Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is ALVARLEGUM slysum fjölgaði, slysum á bifhjólafólki fjölgaði og ís- lenskir ökumenn stóðust ekki markmið stjórnvalda annað árið í röð. Þrátt fyrir það stórfækkaði banaslysum frá fyrra ári og raunar þarf að leita aftur til ársins 1997 til að finna sambærilegan fjölda. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Umferðarstofu um umferð- arslys á síðasta ári, sem kynnt var í gærdag. Á síðasta árið urðu 1.132 slys með meiðslum í umferðinni og í þeim slösuðust 1.658 manns. Af þeim slösuðust 195 alvarlega sem er 27,5% aukning frá árinu á und- an. Fjöldi slasaðra og fjöldi slysa er almennt 13-17% meiri á síðasta ári en að meðaltali næstu tíu ár á undan. Það eru mikil vonbrigði, að mati Einars Magnúsar Magnússon- ar, verkefnisstjóra hjá Umferðar- stofu, og jafnframt hversu margir keyra enn undir áhrifum áfengis, en af því hljótast oft mjög alvarleg slys. Af fimmtán banaslysum á síð- astliðnu ári má rekja þrjú til ölv- unaráhrifa ökumanns. Einar Magnús lagði mikið upp úr því við kynninguna að þeir sem nota ekki bílbelti eru í mikilli lífs- hættu. Vísaði hann í slys síðasta árs, en sex af ellefu þeirra sem lét- ust og voru ökumenn eða farþegar í bílum voru ekki með beltin spennt. Jákvæðast við umferðina á síðasta ári er að banaslysum stór- fækkaði milli ára – úr 31 árið 2006 – og það hefur aðeins gerst tvívegis frá árinu 1970 að færri hafa látið lífið á einu ári í umferðinni. Árið 1994 létust tólf, árið 1996 tíu og ár- ið 1997 létust svo jafnmargir og í fyrra. Á undanförnum tíu árum hefur umferðarslysum þá fækkað miðað við ekna kílómetra, íbúa- fjölda og fjölda ökutækja. Kristján Möller samgönguráð- herra sagði við kynningu skýrsl- unnar að þrátt fyrir að það sé já- kvætt að banaslysum fækki, megi gera betur. „Ekki er þar með sagt að við getum lagt árar í bát og klappað okkur á bakið. Þessu verk- efni, að fækka slysum, lýkur aldrei. Í lok síðasta árs voru færri syrgj- endur vegna ástvinamissis af völd- um bílslysa en það minnkaði ekki sorg þeirra sem misstu einhvern nákominn við slíkar aðstæður,“ sagði Kristján sem telur aukinn fjölda alvarlegra slysa gefa tilefni til aðgerða. Átak í málefnum útlendinga Í skýrslunni er vakin athygli á því að 55% fleiri erlendir ríkisborg- arar slösuðust hér á landi í umferð- arslysum á síðasta ári miðað við ár- ið 2006. „Árið 2006 voru erlendir ríkisborgarar 9,8% af heildarfjölda slasaðra en það hlutfall fór upp í 12,3% árið 2007. Aukningin þar á milli er um 25% sem líta má á sem raunverulega hlutdeildaraukningu slysa á erlendum ríkisborgurum,“ sagði Einar Magnús og tók undir með samgönguráðherra, sem minntist á það í erindi sínu að hann teldi brýnt að gera átak í málefnum innflytjenda, s.s. hvað varðar ökukennslu, fræðslu og áróður. „Skref í þessa átt var tekið á síð- asta ári þegar sett voru upp skilti á ensku og eins gefinn út bækl- ingur um akstur á Íslandi fyrir út- lendinga,“ sagði ráðherrann. Einnig er mikil fjölgun á alvar- legum slysum bifhjólamanna milli ára en á síðasta ári slösuðust alvar- lega og létust 28 einstaklingar á bifhjólum. Ef miðað er við meðaltal fimm ára á undan er það fjölgun upp á 215%. Einar Magnús benti þó á að nýskráning bifhjóla hefði aukist gríðarlega á umliðnum árum og því sé í raun um hlutfallslega fækkun bifhjólaslysa að ræða. Markmiðum ekki náð Ef miðað er við hin Norðurlönd- in kemur fram að Íslendingar stóðu sig best þegar borinn er saman fjöldi banaslysa. Auk Íslendinga eru Norðmenn þeir einu sem sjá hjá sér fækkun dauðsfalla milli ára. Markmið íslenskra stjórnvalda er að fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem minnst gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2016 og að látnum og alvarlegra slösuðum í umferðinni fækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016. Undanfarin tvö ár hafa íslenskir ökumenn ekki náð síðara markmiðinu, en miðað er við meðaltal fimm ára á undan. Árið 2007 bæði gott og slæmt Morgunblaðið/RAX Slys Kristján Möller samgönguráðherra sagði jákvætt að banaslysum hefði fækkað en hægt væri að gera betur í umferðaröryggismálum.              !  !  "! " !    # $    Fleiri alvarleg umferðarslys mbl.is | Sjónvarp  Meira á mbl.is/ítarefni Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ÍSLAND getur leikið stórt hlutverk í baráttunni gegn hungri og vannær- ingu í heiminum á næstu árum. Þetta kom fram á blaðamannafundi þeirra Roberts Zoellick, bankastjóra Alþjóðabankans, og Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur utanríkisráðherra sem fram fór í húsakynnum Hita- veitu Suðurnesja í Svartsengi í gær. Blaðamannafundurinn var haldinn í kjölfar fundar Zoellick með ráðherr- um Norðurlandanna og Eystrasalts- ríkjanna í stjórn Alþjóðabankans. Auk þess fundaði Zoellick sérstak- lega með Ingibjörgu Sólrúnu en Ís- land er nú fulltrúi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í þróunar- nefnd Alþjóðabankans. Rík uppspretta næringar Í máli Zoellick kom fram að mat- vælaverð er mjög hátt á heimsmark- aði um þessar mundir auk þess sem hungur og vannæring eru enn stór vandamál, en lausn þess vandamáls er einmitt hluti af þúsaldarmarkmið- um Sameinuðu þjóðanna. „Fiskur er rík uppspretta prótíns og næringar. Fæst þróunarríki hafa getu til þess að þróa sjávarútveg og í raun er hætta á ofveiði á mörgum fiskimið- um þannig að það er spurning um hvernig hægt er að bæta fiskveiði- stjórnun og hjálpa þróunarríkjum að þróa sjávarútveg sinn,“ sagði Zoel- lick og bætti við að sérstaklega hefði verið rætt um djúpsjávarveiðar. Spurð um þátt Íslands í þessu sagði Ingibjörg Sólrún að Íslending- ar byggju yfir heilmikilli þekkingu og reynslu á sviði sjávarútvegs. „Það er alveg ljóst að ef við ætlum að sjá til þess að fátækustu þjóðir heims hafi fæðu skipta bæði landbúnaður og sjávarútvegur þar máli. Við get- um kennt þróunarríkjum að verja sínar auðlindir og eins að nýta þær,“ sagði Ingibjörg og benti á að nú stæði fyrir dyrum verkefni í samstarfi við eyþróunarríki í Kyrrahafi. „Þar get- um við komið til aðstoðar bæði hvað varðar sjávarútveg og jarðhita.“ Umhverfismál og loftslagsbreyt- ingar voru einnig á dagskrá fundar Zoellick með ráðherrunum og ræddu þau hlutverk Alþjóðabank- ans í þessum málum sem og hvaða hlutverk Norðurlöndin og Eystra- saltsríkin geta leikið þar. Þá var sér- staklega rætt um þá þekkingu sem Íslendingar geta fært á sviði jarðhit- anotkunar en víða í þróunarríkjum heimsins má finna jarðhitalindir. Jafnframt var á fundinum rætt um ástandið fyrir botni Miðjarðar- hafs og hvaða hlutverk Alþjóða- bankinn geti leikið þar hvað varðar efnahagslega uppbyggingu. Þá var fjallað um þróunaraðstoðarverkefn- ið AIDA15 en Norðurlöndin hafa lengi tekið þátt í fjármögnun þróun- araðstoðar bankans og tóku Eystra- saltsríkin nú í fyrsta sinn þátt í fjár- mögnuninni. Sérþekking Íslend- inga mikilvæg Ljósmynd/Ellert Grétarsson Alþjóðabankinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Robert Zoellick ræddu um umhverfismál og sjávarútveg auk þess sem þróunaraðstoð bar á góma. Sjávarútvegur mikilvægt vopn í baráttunni gegn hungri Í HNOTSKURN » Alþjóðabankinn var stofn-aður árið 1944 sem hluti af Bretton-Woods samkomulaginu sem miðaði að því að byggja efnahag Evrópu upp eftir seinni heimsstyrjöldina. » Robert Zoellick tók viðstjórn bankans í júní sl. » Hann var áður aðstoðarut-anríkisráðherra í stjórn George Bush eldri og varð starfsmannastjóri Hvíta hússins árið 1992. FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÞÓTT öll landssambönd og stærri aðildarfélög Alþýðusambands Ís- lands hafi nú samþykkt nýgerða kjarasamninga með miklum meiri- hluta, eru nokkur stéttarfélög á al- menna vinnumarkaðinum enn með lausa samninga. Óleystar kjaradeilur flugmanna og flugvirkja eru komnar til kasta ríkissáttasemjara. Kjarasamningar Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ) við viðsemjendur runnu út um síðustu áramót. Samningaviðræður hófust í október við Icelandair og skömmu síðar við bæði Bláfugl og Flugfélag Íslands. Þar sem lítið þótti miða í viðræðunum ákvað samninganefnd FVFÍ í síðasta mánuði að vísa kjara- deilu sinni við Icelandair til ríkis- sáttasemjara. Guðmundur Brynj- ólfsson, formaður samninganefndar FVFÍ, segir hægt ganga „en aðilar eru ennþá við taflborðið og það eru nokkur peð komin af stað“, segir hann. Guðmundur tekur fram að ekkert sé enn farið að ræða mögu- legar aðgerðir til að knýja á um gerð samninga. Næsti sáttafundur hefur verið boðaður eftir páska. Kjaradeilur atvinnuflugmanna við flugrekendur eru einnig til meðferð- ar hjá ríkissáttasemjara. FÍA ákvað í síðasta mánuði að vísa deilunni um endurnýjun kjarasamnings við Ice- landair til sáttasemjara en kjara- samningurinn rann út um áramót. Þá eru flugfreyjur enn í kjaravið- ræðum við flugfélögin en viðræður Flugfreyjufélagsins, sem er innan vébanda ASÍ, hófust sl. haust. Deil- unni hefur ekki verið vísað til sátta- semjara og var litlar fregnir að hafa af gangi þeirra hjá félaginu í gær. Framundan er umfangsmikil við- ræðulota hjá ríki og sveitarfélögum. Samninganefnd ríkisins þarf að semja við félög innan ASÍ vegna starfsmanna hjá ríkinu. Þá er ótalinn fjöldi samninga ríkis og sveitarfé- laga við félög opinberra starfs- manna, sem verða með lausa samn- inga í vor eða næsta haust. Alls losna hátt í 200 samningar á þessu ári og má ljóst vera að þó að meirihluti launþega sé kominn með nýja samn- inga sé kjaralotan aðeins hálfnuð. Hægt miðar í við- ræðum í fluginu LANDFYLLING við Ánanaust, sem framkvæmdir eru hafnar við, kom til umræðu í borgarráði í gær, þar sem lögð voru fram bréf frá sviðsstjóra eignasjóðs og yfirlögfræðingi skipu- lags- og byggingasviðs borgarinnar. Dagur B. Eggertsson, fulltrúi Sam- fylkingarinnar, lét bóka vegna þess máls að ljóst væri að sjónarmið íbúa hefðu orðið ofan á þótt enn væri nokkur óvissa um framhald málsins. Mikilvægt væri að þeirri óvissu yrði eytt. Þá létu Ólafur F. Magnússon borg- arstjóri og fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins bóka að rétt væri að íbúar við Ánanaust hefðu mótmælt uppfyll- ingunni hraustlega, en Samfylking, Vinstri-græn og Framsóknarflokkur hefðu sett hana í aðalskipulag árið 2002. Núverandi meirihluti hefði ekki í hyggju að ráðast í þá risa- vöxnu uppfyllingu sem áður hefði verið ráðgerð, heldur aðeins örlítið brot af henni, m.a. til að koma fyrir því efni sem mokað er upp úr grunni Tónlistar- og ráðstefnuhússins. „Samráðsfundur hefur verið haldinn með íbúum á svæðinu og því samráði verður haldið áfram og öllum spurn- ingum sem kunna að vakna svarað,“ segir í bókuninni. Aðeins brot af landfyll- ingunni við Ánanaust

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.