Morgunblaðið - 14.03.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 15
FRÉTTIR
· við veitum faglega ráðgjöf við val á víni með mat
· við aðstoðum við að ákvarða magn fyrir veisluhöld
· við erum reglulega til aðstoðar í vínbúðinni þinni
· við skrifum fróðleik um vín á vinbud.is
· við höfum alþjóðlega gráðu frá vínskólanum WSET í London
vinbud.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
4
0
1
SAMKOMULAG hefur tekist á milli
eigenda Valaskjálfar á Egilsstöðum
og Fljótsdalshéraðs um að sveitarfé-
lagið taki á leigu félagsheimilishluta
Valaskjálfar, en sjálfir ætla eigendur
hússins að reka áfram hótel í öðrum
hluta húsnæðisins. Samkomulag um
málið var samþykkt á fundi bæjar-
ráðs á miðvikudag. Mikil þrýstingur
hefur verið á bæjarstjórn að hlutast
til um að samkomuhús sé í bæjar-
félaginu, en skortur á aðstöðu hefur
staðið félags- og menningarlífi fyrir
þrifum undanfarið.
Frá því að þáverandi bæjarstjórn
Egilsstaða tók ákvörðun fyrir um
áratug að selja húsnæði Valaskjálfar
hefur þar verið stundaður fjölbreyti-
legur rekstur, m.a. hótel, sportbar
og kvikmyndahús. Síðustu ár hefur
eignarhald á húsinu sem og rekstur
þess skipt ört um hendur og mismik-
il starfsemi verið í húsinu á þeim
tíma, m.a. af þeim völdum. Í frétta-
tilkynningu frá sveitarfélaginu segir
að núverandi bæjarstjórn Fljóts-
dalshéraðs hafi þó ávallt verið vel-
viljuð rekstri félagsheimilishlutans
og reynt eftir megni að standa við
bakið á þeim aðilum sem þar hafa
ráðið ríkjum, nú síðast með sérstök-
um styrktarsamningi vegna menn-
ingarviðburða sem fram fóru í hús-
inu.
Síðan húsið skipti um eigendur nú
síðast og ljóst var að ekki stæði til að
reka áfram félagsheimilið hefur
sveitafélagið leitað leiða með eigend-
um svo áfram megi treysta hlutverk
Valaskjálfar sem samkomu- og
menningarhúss fyrir svæðið. Sem
slíkt þjónar húsið afar mikilvægu
hlutverki í eflingu svæðisins sem
verslunar- og þjónustukjarna Aust-
urlands svo og þörfu hlutverki í
menningarlífi íbúa sveitarfélagsins,
ekki síst ungs fólks.
Brúa bil uns menningarhús rís
Með þeim samningi sem nú hefur
tekist á milli aðila, vill bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs brúa ákveðið bil
þar til nýtt menningar- og sviðslista-
hús rís í miðbæ Egilsstaða um leið og
rekstur þessa stóra samkomuhúss er
tryggður til næstu ára.
Í framhaldi af undirritun þessa
samnings verður hafist handa við að
finna rekstaraðila að félagsheimilinu
og í þeim tilgangi verður málið kynnt
öllum veitingamönnum á svæðinu
sérstaklega og reksturinn auglýstur
til leigu skv. settum skilyrðum, m.a.
með tilliti til leikhússtarfsemi.
Það er von bæjarstjórnar að með
þessum samningi verði blómlegur
rekstur félagsheimilisins tryggður
til næstu ára um leið og ákveðið bil
er brúað með því að bæta úr aðstöðu-
leysi í sveitarfélaginu gagnvart
sviðslistum, á meðan nýtt sviðslista-
hús er í byggingu í nýjum miðbæ
Egilsstaða.
Fljótsdals-
hérað hleyp-
ur undir
bagga með
Valaskjálf
SKELVEIÐISKIPIÐ Fossá
ÞH-362, sem fékk barka í skrúfuna
austan við Langanes í fyrrinótt, kom
til hafnar í Vopnafirði um þrjúleytið í
gær. Björgunarskipin Sveinbjörn
Sveinsson frá Vopnafirði og Gunn-
björg frá Raufarhöfn voru send á
staðinn og vel gekk að draga skipið til
hafnar.
Tveir kafarar voru fengnir til að
losa úr skrúfunni, en ekki er ljóst
hvort skemmdir hafa orðið á búnaði
skipsins.
Fossá er 250 lesta skip og eru fjórir
menn um borð. Ekkert hættuástand
skapaðist þó að skipið yrði vélarvana.
Fossá fékk
í skrúfuna
♦♦♦
HAFNAR eru framkvæmdir af
krafti við nýbyggingu Norðfjarð-
arvegar um Hólmaháls. Það er
Suðurverk sem annast verkið fyr-
ir Vegagerðina og var hafist
handa fyrir um tveimur vikum.
Vegurinn um Hólmaháls er 5,1
km langur frá Hólmum í Reyð-
arfirði að botni Eskifjarðar.
Byggður verður nýr vegur utan
vegsvæðis núverandi vegar, nema
til endanna þar sem vegurinn
tengist aftur inn á núverandi
Norðfjarðarveg og þar sem veg-
urinn þverar núverandi veg í
Hólmahálsi Reyðarfjarðarmegin.
Samkvæmt upplýsingum
Vegagerðarinnar hefur viðrað
vel til framkvæmda síðustu
daga en talsverður snjór er á
svæðinu eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd. Á verkinu að
vera að fullu lokið 1. október
2009.
Vinna er í fullum
gangi á Hólmahálsi
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson