Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 33
SIGURÐUR Magnússon bæj-
arstjóri kveinkar sér undan skrifum
mínum í grein sinni í Mbl. 2. mars sl.
Þar heldur hann því
fram að ég reyni að
rangfæra og snúa út úr
ýmsu sem fulltrúar
meirihlutans hafa látið
frá sér fara um skipu-
lagsmál.
Við lestur greinar
Sigurður fær maður á
tilfinninguna að hann
hafi lesið skrif mín með
bundið fyrir augun.
Hann reynir sem fyrr
að lítillækka þann sem
ekki er sömu skoðunar
og hann t.d. með því að
gera mér upp skoðanir.
Á sinn alkunna hátt fer hann í
kringum meginmál greinar minnar í
Mbl. 27. febrúar eins og köttur í
kring um heitan graut.
Hið rétta er að ég hef ítrekað
gagnrýnt á málefnalegan hátt vinnu-
brögð bæjarstjóra og hans jábræðra
og -systra og bent á ýmis atriði sem
orka tvímælis, t.d. lokun Breiðumýr-
ar.
Breyting á verðlaunatillögu
Hann kýs að fjalla ekki um lokun
Breiðumýrar sem er aðalásteyting-
arsteinn við breytingu á að-
alskipulagi og tillögu að nýju deil-
skipulagi, hann kýs að
svara því engu af
hverju hann telji nauð-
synlegt að loka Breiðu-
mýri. Hann svarar því í
engu af hverju hann
kýs að hunsa efnisleg
mótmæli yfir 700 íbúa
við áformum um lokun
Breiðumýrar.
Hann talar hins veg-
ar fjálglega um vönduð
vinnubrögð í skipulags-
ferlinu og afritar um-
sögn dómnefndar í stað
þess að fjalla efnislega
um þær breytingar sem gerðar voru
á verðlaunatillögu frá Gassa arki-
tektum síðastliðið sumar án nokk-
urrar aðkomu skipulags- og bygg-
ingarnefndar. Þær breytingar voru
kynntar á íbúafundi í byrjun sept-
ember 2007. Á þeim fundi voru
fulltrúar í fagnefnd bæjarins að sjá í
fyrsta sinn áform um lokun Breiðu-
mýrar. Á seinni stigum kom síðan í
ljós að búið var að færa fyrirhugaðan
skólaveg upp að lóðamörkum húsa
við Suðurtún og Skólatún. Þessar
breytingar og vinnubrögð hafa verið
harðlega gagnrýnd.
Verðlaunatillagan sem samþykkt
var 7-0 í bæjarstjórn gerði ekki ráð
fyrir því að Breiðumýri yrði lokað,
hún gerði ekki ráð fyrir því að skóla-
vegur væri staðsettur við lóðamörk í
Suðurtúni og Skólatúni, og hún gerði
ekki ráð fyrir 3-4 hæða skrif-
stofublokk inni á núverandi bílastæði
Álftanesskóla. Hún gerði heldur ekki
ráð fyrir að stórvægilegar breyt-
ingar yrðu gerðar á aðalskipulagi
Álftaness, með stækkun deiliskipu-
lagsreits miðsvæðis, færslu á Norð-
urnesvegi né færslu á Suðurnesvegi.
Ef þessar tillögur hefðu legið fyrir á
bæjarstjórnarfundi 20. mars 2007
hefði verðlaunatillagan ekki verið
samþykkt 7-0!
Bæjarstjóri lætur hjá líða að skýra
frá því hvaða breytingar verði gerð-
ar á auglýstum tillögum vegna at-
hugasemda frá 730 íbúum á Álfta-
nesi. Hann kýs að loka á þá umræðu.
Eini einstaklingurinn, svo vitað sé,
sem hefur fengið einhverja útskýr-
ingu frá bæjarstjóra er skólastjóri
Álftanesskóla, eins og frægt er orðið.
Mótmæli íbúa
Hann talar um að D-listi hafi huns-
að mótmæli við deiliskipulagi rúm-
lega 700 Álftnesinga 2005. Sam-
kvæmt mínum upplýsingum bárust í
heildina 703 athugasemdir, þar af
var 681 sem skrifað hafði nafn sitt á
undirskriftalista með eftirfarandi
huglægum andmælum:
,,Við undirritaðir íbúar á Álftanesi
mótmælum tillögu að deiliskipulagi
miðsvæðis sem auglýst var til kynn-
ingar þann 21. nóvember sl. Tillagan
upppfyllir ekki væntingar okkar til
miðbæjar- og þjónustukerfis varð-
andi legu gatna og göngustíga, stærð
og staðsetningu bygginga. Tillagan
er því ekki ásættanleg fyrir okkur
íbúa sveitarfélagsins. Við teljum það
nauðsynlegt og jafnframt réttlæt-
ismál að fengnar verði fram fleiri til-
lögur. Við förum fram á að skipulag
miðsvæðisins verði tekið upp að
nýju, efnt verði til arkitekta-
samkeppni og okkur íbúum Álfta-
ness verði gefinn kostur á að velja á
milli tillagna af ólíkum toga.“
Bæjarstjóri sleppir að nefna það
að 39 einstaklingar á listanum voru
búsettir utan Álftaness (þar á meðal
nokkrir pólskir verkamenn), 26
höfðu ritað nafn sitt oftar en einu
sinni og 11 voru undir 18 ára aldri.
Þegar þetta er tekið saman er út-
koman 605 sem skrifuðu undir ofan-
greind andmæli.
Ég ætla ekki að hártoga það í
hvort skiptið hafi verið fleiri ein-
staklingar sem mótmæltu, hins veg-
ar stendur eftir ósk þessara ein-
staklinga um að íbúum Álftaness
væri gefinn kostur á að velja á milli
tillagna af ólíkum toga.
Þessar óskir hefur núverandi bæj-
arstjóri haft möguleika á að virða,
enda stór hluti þessara einstaklinga
sem studdi framboð hans og hans fé-
laga í Á-listanum og stuðlaði að því
að Sigurður Magnússon náði völdum
á Álftanesi 2006. Því miður fyrir
þetta ágæta fólk hefur bæjarstjóri
kosið að fara eigin leiðir með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum fyrir sveit-
arfélagið Álftanes. Að skýla sér á
bak við það að D-listi hafi ekki hlust-
að á íbúana er raunalegur útúrsnún-
ingur og til vansa.
Ég hvet bæjarstjóra til að koma
hreint fram og útskýra af hvaða
hvötum hann lætur stjórnast.
Útúrsnúningar bæjarstjóra Álftaness
Elías Bjarnason fjallar um
skipulagsmál á Álftanesi »Ég hvet bæjarstjóra
til að koma hreint
fram og útskýra af
hvaða hvötum hann læt-
ur stjórnast.
Elías Bjarnason
Höfundur er framkvæmdastjóri.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR á
Íslandi eru mjög vel menntaðir en
grunnmenntun þeirra hefur til
margra ára verið fjögurra ára há-
skólanám sem lýkur með BS-prófi.
Rannsóknir hafa sýnt að aukin
menntun hjúkrunarfræðinga hefur
jákvæð áhrif á afdrif sjúklinga og
dregur meðal annars úr dánartíðni
þeirra. Á síðustu árum hefur auk-
ist að hjúkrunarfræðingar mennti
sig enn frekar og hluti þeirra fer
þá leið að afla sér meistaraprófs á
klínísku sviði sem getur í fram-
haldinu gefið þeim rétt til að
verða sérfræðingar í hjúkrun.
Aukin lífsgæði sjúklinga
Nokkur ár eru síðan Landspítali
gerði hjúkrunarfræðingum, sem
hafa leyfi til þess að nota heitið
sérfræðingur í hjúkrun skv. reglu-
gerð 124 frá árinu 2003, kleift að
starfa í stöðu sérfræðings. Fjöl-
margar rannsóknir hafa verið
gerðar á störfum sérfræðinga í
hjúkrun erlendis og hafa þær end-
urtekið sýnt að ávinningur felst í
því að hafa þá í starfi. Það er
ávinningur fyrir sjúklinga þar sem
störf sérfræðinga í hjúkrun stuðla
að auknum lífsgæðum, aukinni
ánægju skjólstæðinga og draga úr
dánartíðni svo eitthvað sé nefnt.
Einnig hafa störf þeirra í för með
sér ávinning fyrir rekstraraðila
heilbrigðiskerfisins þar sem kostn-
aður lækkar um leið og legutími
styttist, endurinnlögnum fækkar
og óæskilegir fylgikvillar með-
ferða verða sjaldgæfari. Auk þess
stuðla störf sérfræðinga að bætt-
um samskiptum á milli heilbrigð-
isstarfsmanna.
Hvaða áhrif
hafa sérfræðingar?
Í rannsókn okkar á störfum sér-
fræðinga í hjúkrun beindum við
sjónum okkar að því hvernig þeir
starfa innan Landspítala og hvort
og þá hvaða ávinningur er af
störfum þeirra. Í ljós kom að þeir
sinna starfi sínu á sama hátt og
sérfræðingar erlendis. Þeir koma
nýjungum inn í klíníska vinnu og
hafa meðal annars áhrif með
kennslu og þjálfun heilbrigð-
við hjúkrunarfræðinga og halda
utan um nýtt starfsfólk og við-
haldið með því nýjustu þekkingu í
klínískri vinnu.
Við teljum mikilvægt að allra
leiða sé leitað til að styðja við
hjúkrunarfræðinga eins og staðan
er nú, þar sem mannekla og sífelld
krafa um sparnað auka álag í
starfi. Um leið og við vonumst til
þess að rannsókn okkar varpi ljósi
á mikilvægi starfa sérfræðinga í
hjúkrun skorum við á yfirvöld að
hugsa hlýtt til stéttar okkar og
bæta bæði kjör og vinnuaðstöðu.
Rannsóknin sem vísað er í hér að ofan er
lokaritgerð höfunda til BS-prófs í hjúkr-
unarfræði vorið 2007 og hægt er að nálg-
ast hana í heild sinni á Landsbókasafni
Íslands – háskólabókasafni.
Jákvæð áhrif sérfræðinga
í hjúkrun á Íslandi
Ásrún Ösp Jónsdóttir og
Hildur Sveinbjörnsdóttir fjalla
um hjúkrunarfræðinga
og störf þeirra
Ásrún Ösp
Jónsdóttir
»Einn liður í
að bæta
íslenska heil-
brigðisþjón-
ustu er að
fjölga sérfræð-
ingum í
hjúkrun
umtalsvert.
Höfundar eru starfandi hjúkr-
unarfræðingar á Landspítala.
Hildur
Sveinbjörnsdóttir
isstarfsfólks, beinum samskiptum
við skjólstæðinga og með fræði-
legri vinnu svo sem rannsóknum.
Hluti sérfræðinga sinnir göngu-
deildarþjónustu á meðan aðrir
starfa meira innan legudeilda.
Þeir hafa því áhrif á skipulag
hjúkrunar og geta veitt hjúkr-
unarfræðingum stuðning í starfi
sínu og aðstoðað þá við að veita
bestu þjónustu sem völ er á. Það
kom einnig í ljós í rannsókninni að
störf sérfræðinga í hjúkrun eru
lítt þekkt á Íslandi sem getur ver-
ið hamlandi fyrir þá og gerir það
að verkum að þeir þurfa sífellt að
sanna sig og gildi starfs síns.
Niðurstöður rannsóknar okkar á
íslenskum sérfræðingum í hjúkrun
eru að öllu leyti samhljóða rann-
sóknum sem gerðar hafa verið á
erlendum vettvangi. Það má því
reikna með að ávinningur af störf-
um þeirra sé sá sami hér og áður
hefur komið fram þrátt fyrir að
það hafi ekki verið sýnt með mæl-
anlegum hætti hérlendis enda
stutt síðan þeir hófu störf í stöð-
um sérfræðinga.
Betri þjónusta –
minni kostnaður
Eftir að hafa unnið rannsóknina
og borið niðurstöður hennar sam-
an við rannsóknir sem áður hafa
verið birtar drógum við þá álykt-
un að einn liður í að bæta íslenska
heilbrigðisþjónustu væri að fjölga
sérfræðingum í hjúkrun umtals-
vert. Með því mætti bæði auka
gæði þjónustu og draga úr kostn-
aði innan heilbrigðiskerfisins. Nú
á tímum manneklu í stétt hjúkr-
unarfræðinga geta sérfræðingar í
hjúkrun dregið úr þeim neikvæðu
áhrifum sem hún getur haft. Það
geta þeir gert með því að styðja
UNDANFARNAR vikur hafa
nokkrir aðilar úr Sjálfstæð-
isfélagi Álftaness
látið neikvæðum
fréttum um heima-
byggð sína rigna yfir
landslýð allan.
Í annars friðsælu
og notalegu sveitar-
félagi virðist sem lít-
ill hópur manna, sem
ekki getur kyngt því
að hafa misst völdin
í síðustu kosningum,
stofnað með sér
nokkurskonar
dramadeild sem
fylgist með stjórn-
sýslunni og túlkar
það sem þar fer
fram á mjög svo
ómálefnalegan og
óábyrgan hátt. Allur
kraftur minnihluta
Sjálfstæðisflokks fer
í að vera á móti í
einu og öllu, skrum-
skæla málflutning og
beita hvaða brögðum
sem er til að koma
neikvæðum og
ósönnum fréttum um
heimabyggð sína á
framfæri. Það heyrir
hins vegar til und-
antekninga að fulltrúar D-listans
leggi fram tillögur eða málefna-
legar bókanir. Þvert á móti virð-
ast þeir halda að hlutverk minni-
hlutans sé fyrst og fremst að
varpa fram dylgjum og níða ein-
staklinga sem mest þeir mega, að
spilla vinnufriði og halda uppi
harðsvíraðri kosningabaráttu allt
kjörtímabilið.
Fulltrúum Á-lista, eins og öll-
um þorra íbúa á Álftnesi, finnst
slík pólitík ekki sæmandi og
kjósa að halda sig fremur við
raunveruleikann en svo yf-
irgengilegan æsing og dramatík.
Vonandi rennur sú staðreynd upp
fyrir D-listanum með hækkandi
sól að Álftnesingar sem aðrir eru
fyrir löngu orðnir hundleiðir á
þeirri gamaldags götustrákap-
ólitík sem forysta sjálfstæð-
isfélagsins hefur rekið hér um
langt árabil.
Í valdatíð D-listans á síðasta
kjörtímabili voru teknar ákvarð-
anir um að fara í mikla uppbygg-
ingu á Álftanesi sem ekki verður
aftur snúið með. Á-listinn hefur
lagt allan sinn metnað í að vanda
til uppbyggingar miðsvæðisins.
Arkitektasamkeppni
sem efnt var til skil-
aði góðum árangri og
unnið hefur verið með
verðlaunatillöguna
síðustu mánuði.
Gatnakerfið er skil-
virkt, bílastæði færð
að hluta niður í jörðu
og gert ráð fyrir at-
vinnuhúsnæði sem er
grundvöllur fyrir já-
kvæðum og bættum
rekstri sveitarsjóðs.
Unnið er með þær at-
hugasemdir sem bár-
ust eftir undir-
skriftasöfnun og leiða
leitað til að tryggja
öryggi skólabarna
sem annarra íbúa sem
best.
Í stað þess að reisa
100 íbúða öldr-
unarstofnun, eins og
D-listinn hafði áform-
að, verður boðið upp
á mismunandi val-
kosti varðandi hús-
næði fyrir eldri íbúa
og vel hefur gengið
að fá aðila til að koma
að þessari uppbygg-
ingu. Bæjarstjóri hefur lagt
metnað sinn í að ná hagkvæmum
og góðum samningum fyrir sveit-
arfélagið og til framkvæmda
kemur í sumar ef efnahagsástand
leyfir.
Í skoðanakönnun sem fram fór
í nóvember sl. voru íbúar spurðir
um miðsvæðið. Af þeim sem af-
stöðu tóku studdu 62% skipulag
miðsvæðisins en 37% voru á móti.
Tekjur af uppbyggingu svæð-
isins verða nýttar til ýmissa
framkvæmda s.s. stækkunar skól-
ans og nú þegar hefur verið haf-
ist handa við að byggja nýja og
glæsilega sundlaug sem vænt-
anlega verður tilbúin um áramót.
Þá er fyrirhugað að stækka golf-
völl og byggja gervigrasvöll auk
fjölmargra annarra smærri verk-
efna. Það er því bjart framundan
á Álftanesi og mannlífið í blóma.
Uppbygging mið-
svæðis á Álftanesi
Kristján Sveinbjörnsson skrifar
um skipulagsmál á Álftanesi
Kristján Sveinbjörnsson
» Á-listinn hef-
ur lagt allan
sinn metnað í að
vanda til upp-
byggingar mið-
svæðisins.
Arkritekta-
samkeppni sem
efnt var til skil-
aði góðum ár-
angri.
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Álftaness.
<=>?@ABCDB@ EFG H IAE@CJFKGLB MN
O=PQ RNN STUT H VVVWAQ>?@ABCDB@WQJ