Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 35
MINNINGAR
Árni Helgasson er
látinn í hárri elli.
Að leiðarlokum
langar mig að þakka
Árna vináttu og tryggð hans, ekki
bara við okkur hjónin og okkar
fjölskyldur, einnig tryggð hans við
Hólminn og bæjarbúa alla sem
hann fylgdist vel með; trúi ég að
mörgum bregði nú við þegar hans
er ekki lengur von í kaffispjall að
morgni eða síðdegis, heimsóknir
hans á sjúkrahúsið til þeirra sem
þar dvöldust og síðast en ekki síst
samverustundir með íbúum á
Dvalarheimilinu þar sem Árni
dvaldist síðustu árin.
Langt mál væri hægt að skrifa
um Árna, störf hans og lífshlaup,
veit ég að margir verða til að rifja
upp góðar minningar í sambandi
við hann og minnast um leið hans
góðu konu Ingibjargar Gunnlaugs-
dóttur sem látin er fyrir allmörg-
um árum.
Mínar fyrstu minningar um
Árna tengdust að sjálfsögðu leik
og starfi í barnastúkunni Björk nr.
94. Hann átti gott með að laða
með sér menn og konur til sam-
starfs í stúkunni, börnin í Hólm-
inum flykktust á stúkufundi þar
sem okkur voru fengin embætti
sem við tókum alvarlega, hver
bekkur undir stjórn síns kennara
sá um hagnefndaratriði þar sem
leiklist var í hávegum höfð sem og
upplestur og söngur hvers konar.
Síðan sótti ég um afleysinga-
starf á símanum hjá Árna, þá 16
ára gömul að loknu landsprófi, það
urðu ekki bara mánuðir sem ég
starfaði við símavörsluna, heldur
urðu árin allmörg. Árni var góður
húsbóndi og lipur, ekki var verra
þegar flust var í nýtt húsnæði og
hjónin fluttust á efri hæðina með
barnaskarann sinn, þá nutum við
símadömurnar góðs af sambýlinu,
gestkvæmt var á heimili þeirra
hjóna, Ingibjörg kom þá oftar en
ekki með trakteringar til okkar
eða sendi Árna með góðgæti niður.
Sjálf bý ég enn að þeim vinnu-
reglum sem Árni lagði ríka
áherslu á við unglinginn, það var
að sýna alltaf fyllstu kurteisi við
alla símsvörun, að viðskiptavinur-
inn hefði líka alltaf rétt fyrir sér,
það þurfti því oft gleðileik Pollý-
önnu á árum handvirkrar símsvör-
unar þegar mikið reyndi á. Árna
sýndi unglingnum í hópnum á sím-
anum einstaka þolinmæði, þolin-
mæði sem neminn lærði að til-
einka sér og var nauðsynleg ásamt
umburðarlyndi í starfi. Að þeim
eiginleikum sem þar lærðust tel ég
mig búa enn í dag.
Störf Árna sem fréttaritari bæði
við Mbl. og Rúv. voru Hólminum
mikilvæg, Árni sagði aldrei nema
góðar fréttir, ég vil halda því fram
að einhver besta kynning á Hólm-
inum hafi ætíð verið pistlarnir
hans Árna.
Kæri vinur, við kveðjum þig og
þökkum þér samstarf, samferð og
vináttu alla tíð.
Fjölskyldu Árna sendum við
samúðarkveðjur.
Sesselja Pálsdóttir og
Þorbergur Bæringsson.
Kynni okkar Árna Helgasonar
hófust er ég gekk í Bindindissam-
tök I.O.G.T. fyrir áratug. Faðmlag
hans er hann bauð mig velkomna í
samtökin er ógleymanlegt. Upp
frá því vorum við innilegir vinir og
urðu ætíð fagnaðarfundir, þegar
við hittumst. Árni var prýddur
þeim mannkostum sem lærdóms-
ríkt var að kynnast. Hógvær og
glaðlyndur, samt fastur fyrir í
Árni Helgason
✝ Árni Helgasonfæddist í
Reykjavík 14. mars
1914. Hann lést á St.
Franciskusspít-
alanum í Stykk-
ishólmi 27. febrúar
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Stykkishólmskirkju
8. mars.
skoðunum, vel ritfær
og hagmæltur. Ekki
alls fyrir löngu
skemmti hann okkur
á félagsfundi með
vísum sínum af góð-
látlegri kímni, sem
hann söng sjálfur.
Árni var sönn fyr-
irmynd og hvatning
fyrir félaga sína í
I.O.G.T. Mannkostir
hans komu vel fram
þegar hann setti nið-
ur penna fyrir fé-
lagasamtökin. Alltaf
hógvær en rökfastar skoðanir sem
eftir var tekið. Þar kom fram um-
hyggja fyrir góðu mannlífi og al-
mannaheill, þar sem gildi kærleik-
ans var gunnfáni hans og
leiðarljós. Seint eða aldrei verður
skarð hans fyllt á vettvangi Bind-
indissamtaka I.O.G.T. Guð blessi
minningu Árna Helgasonar.
Innilegar samúðarkveðjur til að-
standenda.
Sigríður Laufey Einarsdóttir.
Með djúpri virðingu og þakklæti
í huga minnist ég Árna Helgason-
ar.
Ég var heppinn sem fékk að
kynnast Árna og Ingibjörgu heit-
inni eiginkonu hans og njóta vin-
áttu þeirra og samfylgdar þó svo
að ég væri miklu yngri en þau.
Það voru sannkölluð forréttindi að
fá að gista á heimili þeirra hjóna,
Árna og Ingibjargar, en þangað
voru starfsmenn Kristniboðssam-
bandsins ætíð velkomnir á ferðum
sínum um Snæfellsnes. Hlýja, ein-
lægur áhugi á starfinu í Guðs ríki
og ómæld gestrisni mætti okkur í
hvert sinn sem við dvöldum þar.
Þau voru samhuga í því að greiða
götu okkar og framlag þeirra til
kristniboðsins sem þau styrktu og
studdu með margvíslegum hætti
var ómetanlegt. Ingibjörg heitin
var í áratugi í forsvari fyrir blóm-
legt starf í kristniboðsfélaginu á
staðnum og naut heilshugar stuðn-
ings Árna síns í því. Fyrir hönd
stjórnar Kristniboðssambandsins
vil ég koma á framfæri innilegu
þakklæti fyrir það allt.
Árni var hreinn og beinn með
brennandi áhuga á þeim málum
sem honum þóttu skipta máli.
Ávallt var gefandi og gaman að
ræða við hann. Baráttuhugur,
kraftur og áhugi hans fram eftir
öllum aldri var aðdáunarverður.
Ég bið Drottin Jesú Krist að
blessa minningu góðs drengs,
hugga ástvini hans og varðveita
okkur öll í trúnni á sig á leiðinni
heim til Guðs.
Ragnar Gunnarsson
framkvæmdastjóri Kristni-
boðssambandsins.
Það var árið 2000 sem fundum
okkar Árna Helgasonar bar fyrst
saman, þegar við urðum stofu-
félagar á Landspítalanum við
Hringbraut í Reykjavík. Þá var
hann 86 ára.
Við vorum báðir málhressir og
tókum tal saman. Mér varð strax
ljóst hvílíkur hafsjór hann var af
fróðleik, og ég dáðist einnig að
því, hve einstaklega minnugur
hann var.
Við fundum strax að við áttum
fjölmörg sameiginleg áhugamál
svo að okkur skorti aldrei um-
ræðuefnið.
Tíminn var fljótur að líða og vel
var um okkur hugsað þarna á
sjúkrahúsinu. Við fengum góða
heilsu á ný – vorum fljótlega út-
skrifaðir og fórum hressir heim.
Þessi stutta dvöl á Landspít-
alanum varð okkur ógleymanleg,
og við ákváðum að viðhalda kunn-
ingsskapnum – sem við og gerð-
um.
Ég er honum afar þakklátur
fyrir þá miklu tryggð og vináttu
sem hann sýndi mér alla tíð.
Hann hringdi jafnan í mig þegar
hann kom hingað til Reykjavíkur.
Þá hittumst við og ræddum okk-
ar fjölmörgu áhugamál, einnig fór-
um við í heimsóknir til vina hans,
en hann var sérstaklega vinmarg-
ur og átti farsælan og gifturíkan
starfsferil að baki. Það skyldi því
engan undra hvað ég naut alltaf
góðs af að vera með í heimsóknum
til vina hans og kunningja.
Einnig varð ég þess heiðurs að-
njótandi að koma í heimsókn til
Stykkishólms og skoða byggðina
þar undir dyggri og fróðlegri leið-
sögn hans á sólbjörtum sumar-
degi.
Árni starfaði af dyggð og trú-
mennsku að hverju því sem hann
tók sér fyrir hendur, auk þess var
hann afar mikilvirkur í öllum fé-
lagsmálum.
Ég get ekki talið upp þau fjöl-
mörgu félög, sem hann var starf-
andi í, en ég held að hann hafi ver-
ið einna þekktastur fyrir sín
óþreytandi störf að bindindismál-
um.
Mér finnst að við Íslendingar
ættum að taka höndum saman í
minningu Árna og gera átak til
þess að hrinda af höndum okkar
þeirri miklu vá sem þjóð vorri
stafar af víni og vímuefnum.
Ég er forsjóninni ævinlega
þakklátur fyrir að hafa kynnst
þessum mikilhæfa hugsjónamanni
sem Árni Helgason var og bið góð-
an Guð að blessa minningu hans.
Ég sendi fjölskyldu hans og öll-
um afkomendum mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ólafur Runólfsson.
Þegar minnast skal Árna Helga-
sonar, heiðursborgara Stykkis-
hólmsbæjar, kemur fyrst upp í
hugann orðið bakhjarl. Því svo
sannarlega var Árni Helgason
traustur bakhjarl í samfélaginu í
þá tæpu sjö áratugi sem hann bjó
og starfaði hér í Stykkishólmi.
Árni var áberandi í bæjarlífinu öll
sín ár og alveg fram á síðasta dag
var hann vakinn og sofinn yfir öllu
því sem til heilla horfði fyrir bæj-
arfélagið og íbúa þess. Hann vann
ötult frumkvöðlastarf í æskulýðs-
málum alla þá áratugi sem hann
stóð fyrir stúkustarfi í bænum.
Þeir eru ófáir Hólmararnir sem
fengu sína fyrstu þjálfun í fé-
lagsstörfum í stúkunni hjá Árna
og enn fleiri sem fengu þar sína
eldskírn í að koma fram fyrir
áhorfendur, því alltaf voru flutt
skemmtiatriði á stúkufundum sem
bekkirnir í skólanum skiptust á
um að útfæra og flytja. Árni var
líka einn af stofnendum Lúðra-
sveitar Stykkishólms og lagði þar
með grunninn að tónlistarskólan-
um og því öfluga tónlistarlífi sem
hér er. En Árni kom víðar við og
var einstaklega duglegur félags-
málamaður, hann var einn af
stofnendum Lionsklúbbs Stykkis-
hólms, var virkur félagi í sjálf-
stæðisfélaginu í bænum og á
landsvísu og svo mætti lengi telja.
Árni lagði líka hönd á eflingu at-
vinnulífisins með þátttöku í út-
gerðarfyrirtækjum. Því má líka
halda til haga að Árni á stóran
þátt í að koma Stykkishólmi á
kortið með störfum sínum sem öt-
ull fréttaritari Morgunblaðsins og
útvarpsins til fjölda ára. En Árni
var líka bakhjarl þeirra sem áttu
undir högg að sækja og margir
sóttu ráð og stuðning til hans, þó
svo að sá þáttur í lífsferli hans
hafi ekki farið hátt. Árni Helgason
setti svo sannarlega svip á sam-
félagið, hann var glaðlyndur mað-
ur og átti auðvelt með að sjá það
spaugilega í lífinu, um það bera
vitni þær fjölmörgu gamanvísur
sem eftir hann liggja. Það sem er
þó eftirminnilegast í fari hans er
viðhorf hans til lífsins, sem ein-
kenndist af æðruleysi, bjartsýni
og glaðværð. Að leiðarlokum
minnumst við Hólmarar Árna
Helgasonar með þakklæti og virð-
ingu og hugsum með hlýju til að-
standenda hans sem syrgja látinn
heiðursmann.
F.h. bæjarstjórnar Stykkis-
hólmsbæjar,
Erla Friðriksdóttir
bæjarstjóri.
✝
Móðir okkar,
MÓEIÐUR HELGADÓTTIR
frá Selfossi,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu
miðvikudaginn 12. mars.
Helgi Garðarsson,
Haukur Garðarsson.
Lokað
Málning hf er lokað í dag milli kl. 13.00 - 15.00 vegna jarðarfarar
STEFÁNS GUÐJOHNSEN.
Málning hf.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
KRISTJÁN EÐVALD HALLDÓRSSON
fyrrverandi yfirtollvörður,
Goðatúni 25,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 9. mars.
Svanhvít Magnúsdóttir,
Hallfríður Kristjánsdóttir, Veigar Óskarsson,
Magnús Eðvald Kristjánsson,Jónína Kristjánsdóttir,
Halldór Kristjánsson, Ingibjörg Herta Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn,
JAKOB ÖRN SIGURÐARSON,
Dynsölum 10,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. mars.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn
19. mars kl. 13.00.
Herdís Þorláksdóttir, Sigurður M. Jónsson,
Rafnar Örn Sigurðarson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Þorlákur Jóhannsson,
Eyrún Hafsteinsdóttir, Jón Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir
og afi,
ÁSGRÍMUR EINARSSON,
Klöpp,
225 Álftanesi,
lést á heimili sínu sunnudaginn 9. mars.
Útförin fer fram frá Garðarholtskirkju miðviku-
daginn 19. mars kl. 15.00.
Susan Minna Black,
Helga Linnet, Stefán Hreinn Stefánsson,
Jóhann Linnet, Júlíanna Guðmundsdóttir,
Viktoría Rós, Sandra Dís,
Hólmfríður Sunna, Sigrún Angela.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURLAUG NJÁLSDÓTTIR,
Lindasíðu 2,
áður Þingvöllum,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 11. mars.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 19. mars kl. 13.30.
Þorsteinn Óskarsson, María Guðmunda Kristinsdóttir,
Jón Þórir Óskarsson, Hlíf Guðmundsdóttir,
Ólafur Njáll Óskarsson, María Helga Kristjánsdóttir,
Sigurður Freyr Sigurðsson,
Lilja Ósk Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.