Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 45
GR-veitingar og
þjónusta ehf
Golfs. í Grafarholti
óskar eftir sumarstarfsfólki í afgreiðslu og
þjónustu. Vandað fólk með góða þjónustulund.
Skemmtilegur vinnustaður í fallegu umhverfi.
Umsóknir sendist á netfang, ht@xnet.is
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Miðnes 1 (213-9183), Skagaströnd, þingl. eig. Rósa Björg Högnadóttir,
gerðarbeiðendur, Kaupþing banki hf og Landsbanki Íslands hf,
þriðjudaginn 18. mars 2008, kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
13. mars 2008,
Bjarni Stefánsson, sýslum.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Goðabraut 3, veitingahús. 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-4808), þingl.
eig. Guðbjörg Lára Ingimarsdóttir og Kristján Rúnar Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Dalvíkurbyggð, miðvikudaginn
19. mars 2008 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
13. mars 2008.
Tilkynningar
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur Bjarni
Sveinbjörnsson erindi sem hann
nefnir "Síðustu dagar Parama-
hansa Yogananda" í húsi
félagsins Ingólfsstræti 22.
Á laugardag 15. mars kl. 15-
17 er opið hús. Kl. 15.30 heldur
Jón E. Benediktsson erindi sem
hann nefnir “Ræktun bodhi-
citta.”
Á fimmtudögum kl. 16.30 -
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra
bókmennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 18831481/2 Bi.
I.O.O.F. 1 1883148
Guðspekifélagið
Í kvöld kl 20:30 í húsi
Guðspekifélagsins,
Ingólfsstræti 22.
Erindi um síðustu
daga Paramahansa
Yogananda. Stutt
myndband frá SRF
verður sýnt.
Allir velkomnir.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
LANDSVIRKJUN úthlutaði nýlega
rúmum 40 milljónum króna í styrki
til rannsóknarverkefna á sviði orku-
og umhverfismála úr Orkurann-
sóknasjóði fyrirtækisins. Alls hlutu
10 meistara- og doktorsnemar náms-
styrki, ýmist að upphæð 500 þúsund
eða eina milljón hver. Þá voru veittir
styrkir að upphæð um 35 milljónir
króna til rannsóknaverkefna á veg-
um rannsókna- og menntastofnana.
Það var formaður Orkurann-
sóknasjóðs Landsvirkjunar, Svein-
björn Björnsson, fyrrverandi rektor
Háskóla Íslands, sem afhenti styrk-
ina við hátíðlega athöfn. Árni Math-
iesen fjármálaráðherra flutti ávarp
við afhendingu styrkjanna og lagði
áherslu á að styrkir af þessu tagi
væru mikilvægt framlag til að efla
þekkingu og laða hæfileikafólk að
menntun og rannsóknum á sviði
orkumála.
Orkurannsóknasjóður Landsvirkj-
unar veitir eftirtalda styrki árið 2008:
Styrkir til doktorsnáms:
Ásdís Helgadóttir vélaverkfræð-
ingur, Bergrún Arna Óladóttir jarð-
fræðingur, Erla Þrándardóttir
stjórnmálafræðingur og Marta Rós
Karlsdóttir vélaverkfræðingur.
Styrkir til meistaranáms:
Elín Fjóla Þórarinsdóttir land-
fræðingur, Lárus Þorvaldsson véla-
verkfræðingur, Lilja Guðmunds-
dóttir iðnaðaverkfræðingur, Maren
Davíðsdóttir jarðfræðingur, Rósa
Guðmundsdóttir iðnaðarverkfræð-
ingur og Sæmundur Sveinsson, líf-
fræðingur.
Styrkir til rannsóknaverkefna:
Umhverfisrannsóknir í Lag-
arfljóti, 4.500 þús. kr., verkefn-
isstjóri: Hrund Andradóttir, verk-
fræðideild HÍ.
SkógVatn – áhrif skógræktar og
landgræðslu á vatnsgæði, vatnshag
og vatnalíf., 3.000 þús. kr., verkefn-
isstjóri: Bjarni Diðrik Sigurðsson,
Landbúnaðarháskóla Íslands.
GLORIA-tindagróður, örlög við
hlýnandi loftslag, 700 þús. kr., verk-
efnisstjóri: Starri Heiðmarsson,
Náttúrufræðistofnun Íslands, Ak-
ureyrarsetri.
Gönguhegðun urriða í Efra-Sogi
og Úlfljótsvatni, 2.000 þús. kr., verk-
efnisstjóri: Jóhannes Sturlaugsson,
Laxfiskum ehf.
Steinslækur í Ásahreppi, 350 þús.
kr., verkefnisstjóri: Benóný Jónsson,
Veiðimálastofnun, Suðurlandsdeild.
Yfirborðskortlagning íslenskra
jökla á heimskautaárunum 2008 og
2009, 3.800 þús. kr., verkefnisstjóri:
Tómas Jóhannesson, Veðurstofu Ís-
lands.
Hæðarlíkön af íslenskum jöklum
unnin úr bylgjuvíxlgervihnattagögn-
um, 2.100 þús. kr., verkefnisstjóri:
Eyjólfur Magnússon.
Jökulgarðar og jaðarumhverfi ís-
lenskra framhlaupsjökla, 600 þús.
kr., verkefnisstjóri: Ívar Örn Bene-
diktsson, Jarðvísindastofnun Há-
skólans.
Hönnun stíflugarða á jarð-
skjálftasvæðum. 1.500 þús. kr., verk-
efnisstjóri: Sigurður Erlingsson,
verkfræðideild HÍ.
Gjóskufall frá Heklu og mat á
áhættu fyrir vatnsaflsstöðvar og
miðlunarlón, 1.400 þús. kr., verkefn-
isstjóri: Kate Taylor Smith, Jarðvís-
indastofnun Háskólans.
M5 kort og úrkomutíðni, 2.000 þús.
kr., verkefnisstjóri: Jónas Elíasson,
verkfræðideild HÍ.
Vetrarís á Þingvallavatni, 1.200
þús. kr., verkefnisstjóri: Einar Svein-
björnsson, Veðurvaktinni ehf.
Jökulsá á Fjöllum, hófleg nýting
til orkuframleiðslu, 1.400 þús. kr.,
verkefnisstjóri: Birgir Jónsson, verk-
fræðideild HÍ.
Osmósuvirkjanir á íslenskum
vatnsföllum, 1.000 þús. kr., verkefn-
isstjóri: Þorsteinn I. Sigfússon, Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands.
Eiginleikar tvífasa streymis vatns
og gufu í jarðlögum, 1.500 þús. kr.,
verkefnisstjóri: Guðrún A. Sævars-
dóttir, verkfræðideild HÍ.
Örlög brennisteinsvetnis (H2S) frá
jarðvarmavirkjunum, 3.000 þús. kr.,
verkefnisstjóri: Sigurður Magnús
Garðarsson, verkfræðideild HÍ.
Rætur háhitasvæða: Lekt bergs,
ummyndun og kvikugös – jarð-
efnafræðileg athugun, 3.600 þús. kr.,
verkefnisstjóri: Stefán Arnórsson,
Jarðvísindastofnun Háskólans.
Nánari upplýsingar um Orkurann-
sóknasjóðinn, styrkþegana og rann-
sóknarverkefni þeirra er að finna á
vef Landsvirkjunar, www.lv.is.
Afhending Styrkþegar og fulltrúar þeirra að lokinni afhendingu ásamt þeim Árna Mathiesen fjármálaráðherra, Páli Magnússyni, stjórnarformanni
Landsvirkjunar, Friðriki Sophussyni, forstjóra Landsvirkjunar, og stjórn Orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar.
Landsvirkjun úthlutar styrkjum