Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 48

Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞETTA ER MYND AF MÉR OG DODDA Á SVEITABÆNUM VIÐ VORUM MJÖG NÁNIR ÞÚ VEIST HVERNIG BRÆÐUR ERU ER EKKI EINUM OF AÐ VERA Í SAMA SAM- FESTINGNUM? ÉG VIL EKKI AÐ AFMÆLIÐ HANS BEETHOVEN ÚRKYNJIST ÚRKYNJIST? JÁ, ÚRKYNJIST! BRÁÐUM EIGA ALLIR EFTIR AÐ GANGA UM Í PEYSUM MEÐ MYND AF BEETHOVEN! VAR EINHVER AÐ TALA UM PEYSU? ÞARNA ER KAMBEÐLAN! VIÐ ERUM KOMIN! ÞARNA ER SAFNIÐ! ÉG GET EKKI BEÐIÐ EFTIR ÞVÍ AÐ SJÁ ALLAR RISA- EÐLURNAR! ROSALEGA ER LANGT SÍÐAN VIÐ HÖFUM KOMIÐ HINGAÐ JÁ... ÚT AF ÁKVEÐNU ATVIKI JÁ, AUÐVITAÐ... KALVIN, EKKI BÍTA NEINN Í DAG HRÓLFUR, VIÐ ÞURFUM AÐ TALA SAMAN! UM HVAÐ? UM DRYKKJUNA ÞÍNA! ALLT Í LAGI... EN FYRST ÆTLA ÉG AÐ NÁ MÉR Í MEIRI BJÓR AF HVERJU ERTU EIGINLEGA MEÐ ÞENNAN BAKPOKA? ÉG VERÐ AÐ TAKA ALLT ÞETTA DÓT MEÐ MÉR Í NÝJA, FÍNA HUNDASKÓLANN EN NÚNA ER ÉG FASTUR OG GET EKKI STAÐIÐ UPP! ÞÚ ERT AÐ MINNSTA KOSTI STRAX BÚINN AÐ LÆRA AÐ LEGGJAST OG VERA KYRR ÉG MAN HVAÐ ÉG VAR STRESSUÐ ÞEGAR ÉG VAR AÐ FERMAST EN ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ DÓTTIR HANS STEFÁNS SÉ MJÖG ÖRUGG MEÐ SIG ÞVÍ MIÐUR ER EKKI HÆGT AÐ SEGJA ÞAÐ SAMA UM STEFÁN ÉG HEF EKKI SÉÐ SVONA MIKINN SVITA SÍÐAN MAMMA ÞÍN ÁKVAÐ AÐ ÆFA GRÍSK- RÓMVERSKA GLÍMU LÁTTU MIG FÁ BESTU MYNDAVÉLINA SEM ÞÚ ÁTT... OG VERTU FLJÓTUR! AF HVERJU ERTU AÐ DRÍFA ÞIG? ÉG ÞARF AÐ NÁ MYNDUM AF BARDAGA ALDARINNAR FYRIR BLAÐIÐ MITT! dagbók|velvakandi Svipunni skal beitt Ég hélt að Ólafur Ragnar Grímsson stæði með því fólki sem í elsku sinni við land og þjóð hefur lagt sig í líma við að byggja upp þjóðfélagið með sköttum og skyldum og trú á sam- stöðumátt náungakærleikans. En því miður bregðast krosstré sem önnur tré. Ólafur styður „lénsherr- ana“ svo þeir megi okra á landslýð sem aldrei fyrr og náttúrunni skal blæða með aukinni framleiðni á lambakjöti svo selja megi til Kína. Ég hef greitt honum atkvæði mitt við forsetakjör, því verður nú hætt. Pétur Sigurðsson. Reykur Ég lagði leið mína í Lyfju á Smára- torgi í gær, fór þar inn og sinnti mínu erindi. Þegar ég kem út í dásamlega veðrið, sólin skín og bjart yfir, þá mætir mér mökkur af sígar- ettureyk sem kom frá mjög ungri, fallegri stúlku með dökkt fallegt hár, há og ofurglæsileg. Mig rak í roga- stans og hugsaði að maður geti ekki verið úti undir beru lofti án þess að þessi hryllingur, sem sígar- ettureykur er, gjósi yfir mann. Ég hélt að ungt fólk væri betur upplýst í dag og viti að þetta er mesti og al- varlegasti ávani sem hefur dunið yfir heiminn og að lyktin fylgir öllum sem reykja líkt og þeir hafi verið lokaðir inni í fjárhúsi í heilan vetur. Hvenær verðum við laus við þenn- an hrylling? Hildur Hilmarsdóttir. Uppáþrengjandi auglýsingar Alveg er það óþolandi hvernig Morgunblaðið lætur fara með forsíð- una þegar auglýsingu er klesst framaná blaðið, í fyrsta lagi á for- síðan bara að vera heil og óskert, og í öðru lagi rifnar alltaf pappír með þegar auglýsingin er tekin burt. Þessar auglýsingar eru einnig mjög svo einskorðaðar við höf- uðborgarsvæðið, en Morgunblaðið á einnig áskrifendur út um allt land. Þetta er eitthvað sem er hægt að framkvæma á annan hátt. Húsmóðir á Suðurlandi. Peningaveski fannst Peningaveski fannst við Birkigrund í Kópavogi. Engin skilríki eru í vesk- inu. Upplýsingar í síma 587-7828. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Nú fer hver að verða síðastur ef nýta skal færið í snjónum þennan veturinn. Þessar hressu stelpur notuðu það litla sem eftir var af snjónum til að renna sér á rassaþotum. Morgunblaðið/Valdís Bruna niður brekkuna FRÉTTIR FÖSTUKVÖLD verður í Háteigs- kirkju miðvikudaginn 19. mars kl. 20. Í fréttatilkynningu segir að föstukvöld, sem aðstandendur nefna Í skugga krossins, sækir fyrirmynd sína í forna kirkjulega tíðagjörð (te- nebrae lat. myrkur), sem flutt er víða í kristninni að morgni og kveldi þrjá daga í dymbilviku (miðvikudag, skírdag og föstudaginn langa). Þar er minnst í tali og tónum síð- ustu stunda Jesú Krists hér á jörð. Ljósin í kirkjunni og tónlistin er látið undirstrika þungan nið frá- sagnarinnar, er lærisveinar Jesú og vinir yfirgáfu hann hver á fætur öðrum. Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður les píslarsöguna. Þórunn Ósk Mar- inósdóttir lágfiðluleikari, kór kirkj- unnar og tveir kórfélagar, Hrönn Hafliðadóttir og Margrét Jóhanns- dóttir flytja eldri og yngri tónlist ásamt dr. Douglas A. Brotchie org- anista, sem velur og útsetur sum verkin. Tenebrae í Háteigskirkju Lögmenn Árbæ slf. Ókeypis ráðgjöf í umferðar- og vinnuslysamálum, öðrum líkamstjónamálum og almenn lögfræðistörf. Sími 568 1245. Skrifstofan verður lokuð vegna breytinga 13. og 14. mars nk. Steingrímur Þormóðsson, hrl., Þormóður Skorri Steingrímsson, hdl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.