Morgunblaðið - 14.03.2008, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ VAR merkilegt í sjálfu sér hve
hljómsveitirnar á þriðja til-
raunakvöldi músíktilrauna voru
keimlíkar; af þeim tíu sveitum sem
spiluðu um sæti í úrslitum voru sjö
að spila samskonar tónlist – næsta
hefðbundið, frekar ófrumlegt iðn-
aðarrokk og flestar með enskum
textum sem sungnir voru svo bjagað
að engin leið var að skilja þá. Þrír
flytjendur skáru sig úr hvað flutn-
inginn varðar, en þar varð líka oft að
taka viljann fyrir verkið.
Stuðsveitin Bob Gillan og Ztrand-
verðirnir hófu leikinn, vel spilandi
skemmtisveit með ágætlega samið,
meinlaust gítarpopp. Ekki skil ég af
hverju sveitin er með enska texta –
ef þeim væri snarað á íslensku gæti
hún eflaust náð árangri í útvarpi og
jafnvel víðar.
Félagarnir í Winson lögðu víst
talsvert á sig til að geta verið með og
voru skemmtilegur útúrdúr við iðn-
aðarrokkið sem var allsráðandi
þetta kvöld. Hugmyndin hjá þeim,
magnað slagverk og org, gekk þó
ekki upp nema að litlu leyti enda
vantaði þunga í slagverkið. Bassa-
leikarinn orgaði þó af kappi og sér-
staklega stóð hann sig frábærlega í
fyrra laginu.
Best að byrja umfjöllun um Spiral
Groove með því að leiðrétta aldur
pilta; þeir Kristján Oddur og Arnar
Freyr eru átján ára, ekki sextán eins
og misritaðist í Morgunblaðinu. Spi-
ral Groove sigldi nokkuð lygnan sjó
með klassísku rokki, fín riff og góð
keyrsla, sérstaklega í síðara lagi
sveitarinnar, en lítið um frumleg
stílbrögð.
Næsta sveit þar á eftir, Catch, var
þó enn venjulegri, vissulega vel ein-
beittir og þéttir, en lítt eft-
irminnilegir. Hljómborð gerði þó
talsvert gagn í seinna lagi sveit-
arinnar.
Hafnfirska rokksveitin Diðrik
skar sig nokkuð úr með íslenska
texta sem gerði sitt til að greina
hana frá þeim sveitum sem á undan
voru komnar, en þunnildislegur gít-
arhljómur dró sveitina nokkuð niður
í annars ágætum lögum.
Gítarhljómurinn var í lagi hjá
7Figures, en sveitin ekki vel sam-
æfð, á köflum hljómaði hún eins og
hljómsveit að hrynja niður stiga,
skemmtileg á sinn hátt en full óagað.
Fínn bassaleikur þó.
Tia var ein á ferð með gítarinn,
látlaus og blátt áfram. Lögin sem
hún flutti voru einföld við fyrstu sýn,
en snúin við nánari skoðun, sér-
staklega seinna lagið þó það hafi
ekki alltaf gengið upp. Textinn við
það gerði líka sitt til að skapa í því
spennu.
Þeir í Elect voru vel þéttir en ekki
að sama skapi frumlegir. Frasarnir
allir á sínum stað, sviðsframkoma
góð og hljóðfæraleikur alla jafna
fyrsta flokks, en lögin fyrirsjáanleg
og skilja lítið eftir sig.
Ástarkári kom eins og skrattinn
úr sauðarleggnum í þessari iðn-
aðarrokksveislu, elektródiskó og
grímubúningar á boðstólum. Í lög-
unum voru fínar hugmyndir en ekki
nógu vel útfærðar, of margar eyður í
lögunum og söngurinn eintóna og til-
breytingasnauður, sérstaklega í
seinna laginu.
Lokaorðið átti svo The Nellies,
býsna þéttir með fínni keyrslu. Víst
voru þeir að fara troðnar slóðir, ekki
að brydda upp á nýjungum, en kom-
ust langt á spilagleðinni.
The Nellies komust áfram á at-
kvæðum áheyrenda, en dómnefnd
fannst Ástarkári illskásti kosturinn.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Bob Gillan og Ztrandverðirnir
Ágætlega samið meinlaust gít-
arpopp.
Endurtekið efni
TÓNLIST
Austurbær
Músíktilraunir Tónabæjar og Hins húss-
ins miðvikudaginn 12. mars. Þátt tóku
Bob Gillan og Ztrandverðirnir, Winson,
Spiral Groove, Catch, Diðrik, 7Figures,
Tia, Elect, Ástarkári og The Nellies.
MÚSÍKTILRAUNIR
Árni Matthíasson Winson Magnað slagverk og org.