Morgunblaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ENGUM dylst að verulega hefur hægst um á
fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu og
það getur tekið tímann sinn að selja hús og
íbúðir sem hefðu, bara fyrir nokkrum mán-
uðum, rokið út eins og heitar lummur. Meðal
þeirra sem hafa fundið fyrir þessu eru hjón á
sjötugsaldri sem í október í fyrra keyptu íbúð í
nýju fjölbýlishúsi í Hafnarfirði og settu um leið
húsið sitt í Garðabæ á sölu. Síðan hafa margir
skoðað en engin tilboð borist. Á meðan stend-
ur nýja íbúðin í Hafnarfirði auð og safnar vöxt-
um.
„Þetta byrjar á því að við skoðum þessa íbúð
og fáum fasteignasala hingað heim og hann
segir: „Já, ég sel þetta á hálfum mánuði.“ En
þremur dögum seinna lokuðu bankarnir og all-
ir fóru í mínus. Þannig að það hefur bara ekk-
ert gengið,“ sagði konan sem baðst undan því
að koma fram undir nafni.
Húsið sem um ræðir er í gömlu og grónu
hverfi í Garðabæ. Samkvæmt verðmati sem lá
fyrir þegar hjónin keyptu íbúðina hefði sölu-
andvirði hússins átt að nægja til að greiða fyr-
ir íbúðina og gott betur.
Hjónin gerðu ekki ráð fyrir öðru en að selja
fljótlega. „Það var mikið skoðað og manni datt
þetta aldrei í hug.“ Hún segir að margir séu
hikandi við að kaupa fyrr en þeir séu búnir að
selja sínar eignir. Ef eignin síðan selst ekki
vilji enginn kaupa. „Það er mikið búið að skoða
og fullt af fólki sýnir áhuga en það er allt með
óseldar eignir þannig að þetta er bara víta-
hringur sem maður fer í,“ segir hún.
Þrír mánuðir liðu frá kaupum og þar til
hjónin þurftu að byrja að greiða af íbúðinni.
Skuldin nemur 30 milljónum og vextir nema
12% og segir konan að vaxtagreiðslur nemi
300.000 krónum á mánuði. Þau eru þó ekki
rukkuð um þá upphæð mánaðarlega, heldur
leggst hún ofan á höfuðstólinn. Þau hafa hug-
leitt að taka sjálf lífeyrissjóðslán út á húsið,
sem er skuldlaust, en hættu við þar sem í ljós
kom að lántökugjald, stimpilkostnaður og ann-
að nam hærri fjárhæð en sem nemur muninum
á vaxtakostnaðinum.
„Kreppan ekki komin til okkar“
Hjónin eru þó ekki farin að örvænta. „Við
erum frekar róleg yfir þessu, það þarf eitthvað
meira til að koma okkur úr jafnvægi en auðvit-
að fer maður að hafa áhyggur,“ segir hún. Þau
hafi það gott, eigi húsið skuldlaust og sum-
arbústað fyrir austan fjall. „Kreppan er ekki
komin til okkar,“ segir hún í léttum dúr. Marg-
ir aðrir hafi það helmingi verra. „Við erum
ekkert á barmi örvæntingar en auðvitað er
þetta erfitt,“ segir hún.
Systir konunnar er ein þeirra sem eru í svip-
aðri stöðu. Hún keypti íbúð í sama fjölbýlis-
húsi í Hafnarfirði og ætlaði að selja nýlega ein-
staklingsíbúð á góðum stað í Vesturbæ
Reykjavíkur til að eiga fyrir kaupunum en
íbúðin er enn óseld.
„Allir fóru í mínus“
Húsið selst ekki þótt margir skoði og nýja íbúðin safnar vöxtum á meðan
„Við erum ekkert á barmi örvæntingar en auðvitað er þetta erfitt“
BANASLYS varð í Hafnarfirði, á
gatnamótum Reykjavíkurvegar og
Stakkahrauns, á öðrum tímanum eft-
ir hádegi í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu varð slysið þegar stór
jeppi og fólksbíll rákust saman á
gatnamótunum, sem eru skammt
sunnan gatnamóta Reykjavíkurveg-
ar og Álftanesvegar. Ökumaður
fólksbílsins, sem lést eftir árekstur-
inn, var kona fædd árið 1935. Þetta
er þriðja banaslysið í umferðinni það
sem af er ári.
Banaslys
á Reykja-
víkurvegi
INGIMUNDUR Sigurpálsson, for-
maður Samtaka atvinnulífsins, hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér til
áframhaldandi setu sem formaður
SA.
Nýr formaður tekur því við á aðal-
fundi Samtaka atvinnulífsins sem
fram fer föstudaginn 18. apríl í Lista-
safni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu.
Ingimundur var fyrst kjörinn for-
maður SA á aðalfundi samtakanna ár-
ið 2003 og tók þá við af Finni Geirs-
syni sem gegnt hafði formennsku frá
stofnun Samtaka atvinnulífsins í sept-
ember 1999.
Nýr formaður SA verður kosinn
með rafrænni kosningu meðal aðild-
arfyrirtækja SA. Greint verður frá
niðurstöðum kosningarinnar á aðal-
fundi SA 18. apríl 2008.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
hefur gefið kost á sér til formanns SA.
Kosið um nýjan
formann SA
Ingimundur
Sigurpálsson
Þór
Sigfússon
„ÉG geri það af og til að fara um sjúkrahúsið og núna
er ég að heimsækja allar deildir til að þakka fólki fyrir
gott samstarf og hvetja það til að halda áfram að reka
þennan ágæta spítala,“ sagði Magnús Pétursson, for-
stjóri Landspítala, við Morgunblaðið í gær en hann
hættir sem forstjóri eftir níu ára starf 1. apríl næst-
komandi. Magnús kom við á Landspítalanum í Fossvogi
í gær og kvaddi m.a. starfsfólk háls-, nef- og eyrna-
deildar. Þar ræddi hann við Einar Ólafsson lækni að
leiðarlokum.
Morgunblaðið/Golli
Kveður starfsfólk spítalans
SVERRIR Kristinsson,
fasteignasali í Eigna-
miðlun og stjórnar-
maður í Félagi fast-
eignasala, segir að
eignir í vinsælum hverf-
um hafi selst ágætlega í
janúar og febrúar en
erfiðara geti verið að
selja húsnæði í hverfum
sem ekki eru eins vin-
sæl.
Hann segist ekki þekkja mörg dæmi um
að fólk sé í vandræðum vegna þess að það
hafi keypt nýtt húsnæði en takist ekki að
selja það eldra í staðinn. Sumir vilji selja
fyrst og kaupa síðan og aðrir kaupi og bjóði
síðan gamla húsið til sölu. Kveðst hann ekki
hafa orðið var við breytingar í þessum efn-
um síðustu vikur.
Varðandi markaðinn í heild segir hann
óraunhæft að bera hann saman við veltuna
sl. tvö ár, sem hafi verið mestu söluár sög-
unnar. „Það er ekkert eðlilegra en ein-
hverra tugprósentna samdráttur, því svona
getur þetta aldrei gengið,“ segir hann.
Selur vel í vin-
sælum hverfum
Sverrir
Kristinsson
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
KÍNVERSKT fyrirtæki sem
framleiðir og setur upp glervirkið
mikla í Tónlistar- og ráðstefnu-
húsinu við Reykjavíkurhöfn hefur
í hyggju að sækja um atvinnuleyfi
fyrir um eitt hundrað kínverska
starfsmenn sína á þeirri forsendu
að þeir vinni allir sérhæfð störf.
Málið er til gaumgæfilegrar skoð-
unar hjá Vinnumálastofnun en
aldrei hefur komið fyrir að fyr-
irtæki hafi eingöngu sótt um leyfi
fyrir sérfræðinga en hvorki fyrir
iðnaðarmenn né verkamenn.
Vegna forgangs íbúa á Evrópska
efnahagssvæðinu hefur nánast
lokast á útgáfu atvinnuleyfa til
við í þessu tilviki því fyrirtækið
hafi gefið til kynna að það hyggist
ekki sækja um atvinnuleyfi fyrir
iðnaðarmenn eða verkamenn, ein-
ungis fyrir sérhæfða starfsmenn.
Málið þarfnist mjög gaumgæfi-
legrar skoðunar og stofnunin sé
að fara yfir alla sína verkferla
varðandi umsóknir sem þessa.
Fyrirtækið kínverska heitir
Linguyn. Það hefur ekki útibú hér
á landi og því getur það greitt
starfsmönnum sínum laun í Kína.
Gissur segir að óskað hafi verið
eftir því að fyrirtækið setji upp
útibú hér á landi en með því móti
er auðveldara að fylgjast með því
hvort starfsmenn fái greidd laun í
samræmi við íslenska kjarasamn-
inga.
starfsmenn sem hafa fengið at-
vinnuleyfi á þessum grundvelli
eru verkfræðingar, læknar og
tölvunarfræðingar. Sérfræðinga-
leyfin eru gefin út til skamms
tíma og er miðað við sex mánuði.
Kínverska fyrirtækið hefur lýst
því yfir að verkefnið takið sex til
átta mánuði.
Engir iðnaðarmenn
og engir verkamenn
Gissur segir að stofnunin fallist
á að kínverska fyrirtækið þurfi að
flytja hingað sérhæfða starfsmenn
en kannað verði hvort þeir þurfi
að vera eitt hundrað talsins. Yf-
irleitt vinni sérfræðingar, iðnaðar-
menn og verkamenn saman að
framkvæmdum en það eigi ekki
íbúa sem koma frá ríkjum utan
þess og má fullyrða að umsókn
um starfsleyfi fyrir ófaglært
verkafólk frá ríkjum utan EES
yrði hafnað
Fjórar af þessum hundrað um-
sóknum hafa þegar borist Vinnu-
málastofnun og verða leyfin vænt-
anlega veitt. Um er að ræða
verkfræðinga og túlk. Þá liggja
um 15 umsóknir frá fyrirtækinu
fyrir hjá Útlendingastofnun. „Við
höfum gefið út eitt og eitt svokall-
að sérfræðingaleyfi við ákveðnar
aðstæður en við höfum aldrei gef-
ið út svona mörg. En það er ekk-
ert sem bannar að sækja um
svona mörg sérfræðingaleyfi,“
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar. Dæmi um
Sækja um leyfi fyrir 100
sérfræðinga frá Kína
FRAMKVÆMDIR við Tónlistar- og ráð-
stefnuhúsið ná hámarki síðsumars þegar
gert er ráð fyrir að um 300 manns vinni að
byggingu þess, þar af um 100 starfsmenn
kínverska fyrirtækisins Linguyn sem munu
setja upp glervirkið, helsta einkenni húss-
ins.
Glervirkið er engin smásmíði en í því
verða um 12.000 m² af gleri.
Eyjólfur Gunnarsson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs Íslenskra aðalverk-
taka, segir uppsetningu glervirkisins gríð-
arlega flókið verkefni. Þetta verði lang-
stærsti glerveggur sem hér hafi verið
reistur en til samanburðar sé glerveggurinn
í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands
um 1.300 m². Eftir töluverða skoðun hafi
verið ákveðið að semja við kínverska fyr-
irtækið en það hafi mikla reynslu af verk-
efnum af þessu tagi. ÍAV kaupi bæði efni og
uppsetningu á glervirkinu af þessu kín-
verska fyrirtæki.
300 starfs-
menn þegar
mest verður
RÁN var framið í söluturni í Eddu-
felli í Breiðholti á níunda tímanum í
gærkvöldi. Lögreglu barst tilkynn-
ing um ránið þremur mínútum fyrir
níu, en einstaklingur sem kom inn í
söluturninn hafði ógnað afgreiðslu-
manni með sprautunál og komist á
brott með peninga úr kassa. Málið
var enn í rannsókn á miðnætti.
Rán framið
í Eddufelli
♦♦♦