Morgunblaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 50
...og er svo vel vandað
til þess verks að
bíómyndin lítur út eins
og ein stór Benetton-
auglýsing… 56
»
reykjavíkreykjavík
Og meira af Íslensku tónlist-
arverðlaununum sem Dr. Gunni
gerir að umtalsefni á bloggsíðu
sinni, en athygli vakti að hvorki
Björk Guðmundsdóttir né Megas
voru viðstödd til að taka á móti
þeim verðlaunum sem þeim féllu í
skaut. „Sigtryggur [Baldursson] og
EÖB [Einar Örn Benediktsson] enn
og aftur að sækja styttur fyrir
Björk. Bjánalegt. Hætta að dæla
þessu í kellu nema hún sæki sjálf.
Henni er alveg sama þótt hún fái
þetta ekki. Megas mætti auðvitað
ekki heldur. Of kúl fyrir svona,“
skrifar doktorinn meðal annars.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
„EFTIRPARTÍIÐ fjaraði út eiginlega strax og
við komumst að því að klukkan ellefu eru eig-
inlega öll eldhús í Reykjavík lokuð og enginn
staður opinn til þess að fara á og halda upp á
þetta, svo við enduðum á því að fara á Hlölla-
báta,“ segir Páll Óskar, sem var valinn söngvari
ársins, fékk netverðlaun Tónlist.is og vinsælda-
verðlaun Visir.is á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum á þriðjudaginn. „Þetta var voða sætt, en
kannski merki um það að Reykjavík er ekki al-
veg jafnmikil stórborg og við erum stundum að
monta okkur af.“
Honum þykir sérstaklega vænt um að fá verð-
launin sem almenningur velur. „Þetta skiptir
mestu máli, en ég er auðvitað bara mjög upp
með mér eftir kvöldið og er ennþá að ná mér nið-
ur á jörðina. Allt í kringum plötuna, Allt fyrir
ástina, er búið að vera eitt risastórt ævintýri og
þessi uppskeruhátíð í gær var kremið á kökuna.“
Hann hefur sjaldan átt meiri vinsældum að
fagna og er nú þegar bókaður út árið. „Þetta er
allt komið og það er allt planað. Ég veit hvar ég
verð á gamlárskvöld,“ segir hann. Þeir aðdá-
endur Páls Óskars sem skipuleggja sig jafnlangt
fram í tímann geta merkt við á síðustu blaðsíð-
unni í dagbókinni að þá liggi leiðin á NASA.
„Ég þakka bara guði fyrir að fólk skuli nenna
að hringja í mann og biðja mann að spila, vegna
þess að það er ekkert sjálfgefið í jafnóútreikn-
anlegum bransa og tónlistarbransinn er. Þannig
að ég er alveg sérstaklega þakklátur fyrir að fá
að vera á staðnum og poppa. Fólk tekur við því
sem maður sendir frá sér af svo miklum hlýhug.
Ég hef fengið send myndbönd af þriggja ára
gömlum börnum sem eru að syngja „Allt fyrir
ástina“ og kunna textann utan að. Svona augna-
blik eru mér mun mikilvægari en öll verðlaun.
Þetta eru stærstu verðlaunin.“
Páll Óskar heldur upp á fimmtán ára starfs-
afmæli í ár. „Það er ef talið er frá fyrstu sóló-
plötunni minni, sem kom út 1993 og hét Stuð.
Þetta er afmælisár hjá mér núna og ætlunin er
að halda stórtónleika í Laugardalshöllinni í
haust. Þeir tónleikar verða svona yfirlitssýning
yfir síðustu fimmtán ár. Í kjölfarið kemur svo
tvöföld safnplata með diskóinu öðrum megin og
ballöðunum hinum megin. Þannig að það er nóg
að gera.“
Endaði á Hlöllabátum
Páll Óskar Hjálmtýsson fór heim með þrjár styttur af Íslensku tónlistarverð-
laununum Bókaður út árið og veit hvar hann verður næsta gamlárskvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kom, sá og sigraði Páll Óskar hefur sjaldan notið meiri vinsælda en síðan Allt fyrir ástina kom út fyrir tæpu ári.
MEISTARAVERK Bítlanna, plat-
an Sgt. Pepper’s Lonely Hearts
Club Band, verður flutt í heild
sinni á tvennum tónleikum í Há-
skólabíói á laugardaginn af mörg-
um fremstu söngvurum landsins,
tíu manna rokksveit Jóns Ólafs-
sonar píanóleikara og 40 hljóð-
færaleikurum úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Söngvararnir eru þeir Björgvin
Halldórsson, Stefán Hilmarsson,
Sigurjón Brink, Daníel Ágúst Har-
aldsson, Eyjólfur Kristjánsson og
KK. Hljómsveitarstjóri er Bern-
harður Wilkinson, tónlistarstjóri
Jón Ólafsson og Þorgeir Ástvalds-
son kynnir. Sgt. Pepper’s Lonely
Hearts Club Band er jafnan talin
ein áhrifamesta hljómplata allra
tíma og þótti marka tímamót í tón-
listarsögunni þegar hún kom út
árið 1967. Fyrri tónleikarnir hefj-
ast kl. 17 og þeir síðari kl. 21.
Miðasala fer fram á Midi.is.
Íslenskt bítl í Háskólabíói
Sígild Plata Bítlanna, Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band.
■ Lau. 29. mars kl. 14.00
Maxímús Músíkús - Tónsprotatónleikar
Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljómsveitar-
innar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar Hallfríðar
Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má Baldursson
víóluleikara. Valur Freyr Einarsson leikari segir söguna af Maxímúsi,
trúðurinn Barbara lítur við og Maxímús sjálfur kemur í heimsókn. Á
efnisskránni eru m.a. Bolero eftir Ravel og fyrsti kaflinn úr fimmtu
sinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
■ Fim. 3. apríl kl. 19.30
Einstakur gestur
Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann
leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sína eigin
kadensur.
■ Fös. 4. apríl kl. 21.00
Heyrðu mig nú!
Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleikar þar sem lista-
mennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert
Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem
tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL
Group.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Það hefur
varla farið
framhjá mörgum
að Íslensku tón-
listarverðlaunin
voru afhent í
Borgarleikhúsinu
í fyrrakvöld. Það hefur eflaust ekki
heldur farið framhjá neinum sem
fylgdist með beinni útsendingu
Sjónvarps frá athöfninni hversu
mörg auð sæti voru í salnum. Engin
skýring hefur fengist á þessu fá-
menni, en tvær eru þó líklegar: Að
annað hvort hafi stór hluti þess
fólks sem var boðið ekki látið sjá
sig, eða þá að barinn frammi í and-
dyri leikhússins hafi haft óvenju
sterkt aðdráttarafl þetta kvöld.
Verðlaunaafhendingin þótti ann-
ars heppnast nokkuð vel, þótt kynn-
irinn Felix Bergsson hafi að vísu
sagt nokkra brandara sem fóru fyr-
ir ofan garð og neðan.
Tómlegt á tónlistar-
verðlaunum
Hvar voru Björk
og Megas?