Morgunblaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINN STAÐUR
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÍBÚAR í Holta- og Hlíðahverfi eru
margir hverjir ósáttir við tillögu að
deiliskipulagi íbúðasvæðis austan við
verslun Bónus í Glerárhverfi. Hverf-
isnefnd hefur mótmælt hugmyndinni
en bæjarstjórn samþykkti engu að
síður í vikunni að auglýsa tillöguna.
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir tveimur sjö hæða fjölbýlishús-
um á svæðinu. Talsmaður íbúanna
segir þá ekki mótfallna því að byggt
verði þar en þeir vilji að fyrirhuguð
hús verði í samræmi við þau sem fyr-
ir eru í hverfinu. Þar eru nú einnar
og tveggja hæða hús.
Reiturinn sem um ræðir markast
af Undirhlíð, Langholti, Miðholti og
Krossanesbraut. Það er fyrirtækið
SS Byggir sem óskaði fyrir nokkrum
misserum eftir því að fá að byggja
fjölbýlishúsin tvö og meirihluti
skipulagsnefndar samþykkti nýverið
að leggja til við bæjarstjórn að deili-
skipulagstillagan yrði auglýst, en
setti þá kvöð að húsin verði fyrir 55
ára og eldri. Bæjarstjórn samþykkti
tillögu meirihluta skipulagsnefndar
með sjö atkvæðum gegn einu á
þriðjudag en þrír bæjarfulltrúar
sátu hjá.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þétting byggðar væri ávallt
umdeild og viðkvæm. „Þetta er í
fyrsta skipti sem hugmyndin er aug-
lýst. Fólk fær nú tækifæri til að gera
athugasemdir við hana og förum
auðvitað yfir þær athugasemdir sem
koma.“
Bæjarstjóri segir að íbúum á
svæðinu verði boðið til kynningar-
fundar í byrjun næsta mánaðar. „Í
aðalskipulagi 2005 voru skilgreindir
nokkrir reitir til að þétta byggð og
þetta er einn þeirra. Þarna hefur
alltaf verið mikið dýpi en þegar fram
kemur verktaki sem vill byggja og
segir að það sé hægt – og að íbúð-
irnar séu mjög eftirsóttar – er sjálf-
sagt að skoða það.“
Valdimar Pálsson, íbúi í hverfinu,
segist ósáttur við að deiliskipulags-
tillagan skuli auglýst þrátt fyrir að
hverfisnefndin hafi ályktað að skipu-
leggja ætti hverfið í heild og fyrir-
huguð hús yrðu í samræmi við nú-
verandi byggð. „Við erum ósátt við
umfang bygginganna sem þarna eru
auglýst. Og okkur finnst reyndar
nóg komið af því að Akureyringar
láti hvað sem er yfir sig ganga.“
Fyrirhuguð hús
verði í samræmi
við byggðina
Í HNOTSKURN
»Valdimar Pálsson og fleirieru að stofna samtökin ÖLL
LÍFSINS GÆÐI? – sem er slag-
orð Akureyrarbæjar að viðbættu
spurningamerkinu. „Það er
slæmt að fólk virðist hætt að
nenna að mótmæla skipulags-
málum vegna þess að ekkert er
tekið mark á skoðunum þess. Við
í samtökunum ætlum að breyta
þessu,“ sagði Valdimar í gær.
MARTHA Óskarsdóttir, eldvarnaeftirlitsmaður á Ak-
ureyri, og Gunnar Björgvinsson slökkviliðsmaður luku
í vikunni heimsóknum í leikskóla bæjarins í verkefninu
Logi og Glóð. Þar er um að ræða samstarfsverkefni
milli Slökkviliðs Akureyrar og leikskólanna og krakk-
arnir höfðu greinilega mjög gaman af. Gunnar leynist í
reykkafarabúningnum, á myndinni að ofan, en hér til
hliðar er hjálpar Martha einni stelpunni út úr slökkvi-
bílnum sem krakkarnir fengu að skoða. „Farið var í
leikskólana í haust og kynntar brunavarnir þar og síð-
an hafa starfsmenn leikskólanna farið í reglulegar eft-
irlitsferðir með elstu börnunum um skólann þar sem at-
hugað er hvort brunaslöngur, slökkvitæki, viðvörunar-
kerfi og neyðarútgangsljós séu til staðar og í lagi,“
sagði Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri, við Morg-
unblaðið. Í seinni heimsókninni fengu börnin verk-
efnamöppu og viðurkenningarskjal, og síðast en ekki
síst að skoða dælubíl slökkviliðsins hátt og lágt. „Í
verkefninu eru krakkarnir svonefndir aðstoðarmenn
slökkviliðsins. Verkefninu hafa verið gerð góð skil og
er þátttaka leikskólanna hreint til fyrirmyndar. Ég er
því afar ánægður með þennan mikla liðsauka sem að-
stoðarmenn slökkviliðsins eru enda með forvörnum
horft til framtíðar,“ sagði Þorbjörn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ungir aðstoðarmenn slökkviliðsins
AKUREYRI
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Kópavogur Samgönguráðuneytið hefur úr-
skurðað að Gunnsteinn Sigurðsson fyrrum
formaður Íþrótta og tómstundaráðs Kópa-
vogs og bæjarfulltrúi (D) hafi verið van-
hæfur til að koma að ráðningu í stöðu verk-
efnisstjóra æskulýðs- og tómstundamála í
bænum. Ráðuneytið féllst ekki á þá kröfu
kærenda í málinu, Guðríðar Arnardóttur og
Hafsteins Karlssonar bæjarfulltrúa (S), að
ákvörðun ÍTK um að mæla með ráðningu
Örnu Margrétar Erlingsdóttur í starfið yrði
gerð ógild, enda þótti sýnt að niðurstaða um
ráðningu hefði orðið sú sama þó Gunnsteinn
hefði ekki komið að valinu.
Arna Margrét hafði starfað við Lind-
arskóla um margra ára skeið þar sem Gunn-
steinn er skólastjóri, og tilgreindi hún Gunn-
stein sem meðmælanda á umsókn sinni.
Gunnsteinn var staddur erlendis þegar
blaðamaður náði af honum tali, og hafði ekki
haft færi á að lesa úrskurðinn. Hann tók þó
fram að hlutaðeigendur hefðu lagt sig fram
við að valið færi löglega fram og hefði hann
leitað álits bæjarlögfræðings Kópavogs þeg-
ar spurningar vöknuðu um hæfi. „Framhald
málsins tók mið af þeirri niðurstöðu bæj-
arlögfræðings að þátttaka mín í valinu væri
ekki á skjön við lög, en það virðist af úr-
skurði ráðuneytisins sem um sé að ræða
túlkunaratriði í lögunum,“ sagði Gunnsteinn.
Á skrifstofu bæjarlögfræðings fengust
þau svör að ekki hefði gefist tími til að skoða
dóminn. Þó hefði bæjarlögfræðingi ekki ver-
ið ljóst, þegar hann gaf mat sitt, að Arna
Margrét hefði tilgreint Gunnstein sem með-
mælanda, og virðist sem Gunnsteinn hafi
sjálfur ekki vitað af því.
Guðríður Arnardóttir sagðist mundu taka
málið upp í bæjarstjórn eftir páska, og að sér
þætti málið mjög alvarlegt. Hún bæri þó fullt
traust til hins nýja verkefnisstjóra.
Um túlk-
unaratriði
að ræða
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞAÐ er okkur mikið kappsmál
að búa vel að borgarbúum og
bjóða upp á ýmsa valkosti til bú-
setu,“ sagði Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri, en hann skrifaði í
gær undir samning við forsvars-
menn Félagsstofnunar stúdenta
(FS) og Stúdentaráð Háskóla Ís-
lands (SHÍ) um að Reykjavík-
urborg útvegi FS lóðir undir um
600 stúdentaíbúðir, bæði ein-
staklingsíbúðir og fjölskylduíbúð-
ir, á næstu fjórum árum. Að sögn
Ólafs verður rúmlega helmingur
íbúðanna í nágrenni miðborg-
arinnar, en svæðin sem sér-
staklega eru til skoðunar eru hið
svonefnda Hlemmur+-svæði, lóðir
í nágrenni við Hverfisgötu, við
hafnarsvæði, þ.e. Örfirisey og
Mýrargötu, og í Vatnsmýrinni.
„Hluti lóðanna verður á nýbygg-
ingarsvæðum og verður þar sér-
staklega tekið mið af þörfum
stúdenta með fjölskyldur, eins og
við Sléttuveg og Úlfarsárdal,“
sagði borgarstjóri. Lagði hann
áherslu að samningsaðilar væru
sammála um að leita leiða til að
blanda saman hefðbundinni íbúð-
arbyggð og uppbyggingu fyrir
stúdenta til að stuðla að fjöl-
breytni á uppbyggingarreitum,
hvort heldur það væri á þétt-
ingar- eða nýbyggingarsvæðum.
Nærri tvöfalda íbúðafjölda
„Þetta er mikill hátíðisdagur
fyrir okkur sem höfum það að
meginmarkmiði að þjónusta stúd-
enta,“ sagði Guðrún Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri FS. Benti hún
verkefni með lánum frá Íbúða-
lánasjóði þar sem við höfum að-
gang að fjármagni eins og aðrir
þeir sem leigja félagslegt hús-
næði, en á framkvæmdatíma þurf-
um við að leita til viðskipta-
banka,“ sagði Guðrún.
„Þetta hefur mikla þýðingu fyr-
ir borgina. Okkur finnst skipta
öllu máli að þetta unga fólk velji
sér stað og búi hér. Með því
tryggjum við m.a. líf í miðborg-
inni,“ sagði Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, formaður skipulags-
ráðs, og tók fram að borgar-
yfirvöldum þætti mjög vænt um
hversu áfjáðir stúdentar væru í að
búa í borginni. Sagðist hún vonast
til þess að námsmenn kysu að búa
áfram í borginni að námi loknu.
á að FS hefði það að markmiði að
útvega 15% stúdenta húsnæði, en í
dag næðist hins vegar aðeins að
útvega 7% stúdenta húsnæði. „Nú
vænkast hagur okkar þegar við
bætum 600 íbúðum við þær rúm-
lega 700 sem við höfum í dag,“
sagði Guðrún og benti á að menn
þyrftu þó að halda vel á spöðunum
þar sem stúdentum sem FS þjón-
ustaði myndi fjölga allnokkuð við
sameiningu HÍ og KHÍ nk. sumar.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Guðrún stefnt að því að
hefja byggingarframkvæmdir við
Sléttuveginn í haust og að hægt
yrði að flytja inn í fyrstu íbúð-
irnar haustið 2009. Aðspurð sagði
hún búið að fjármagna fyrsta
áfangann. „Við fjármögnum þessi
Reykjavíkurborg mun útvega lóðir undir um 600 stúdentaíbúðir
„Þetta er mikill hátíðisdagur“
Morgunblaðið/Golli
Gleðileg undirskrift Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs HÍ, Ólafur F. Magnússon borgarstjóri,
Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs, og Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri FS.
Í HNOTSKURN
»Árið 2008 verður úthlutaðlóðum fyrir um 70 fjöl-
skylduíbúðir við Sléttuveg og
um 100 einstaklingsíbúðum
miðsvæðis í borginni.
»Árið 2009 er ráðgert aðúthluta lóðum fyrir um
100 fjölskylduíbúðir í Úlfars-
árdal og um 130 ein-
staklingsíbúðum miðsvæðis.
»Á árunum 2010 og 2011er ráðgert að úthluta
hvort árið fyrir sig um 100
íbúðum, bæði fyrir ein-
staklinga og fjölskyldur, mið-
svæðis í borginni og í Vatns-
mýrinni.