Morgunblaðið - 20.03.2008, Page 21
Velkomin,“ segir Þorvaldurþar sem hann stendur íheimreiðinni og er aðhengja upp litskrúðuga
borða í trén. „Ég ákvað að skella
þessu upp til að taka á móti þér!“
Það er sumsé ekki að spyrja að
hlýlegum móttökunum og fyrr en
varir erum við sest með kaffibolla
og dýrindis súkkulaði sem Stein-
unn hefur tekið fram.
Á borðinu liggja alls kyns teikn-
ingar á litlum spjöldum og blöðum,
sem allar eiga sameiginlegt að
vera liður í árlegum páskaeggj-
aratleik sem Þorvaldur skipulegg-
ur fyrir barnabörnin sín sex og
eitt barnabarnabarn. „Við höfum
gert þetta alveg frá því okkar eig-
in börn voru lítil,“ útskýrir hann.
„Ég kynntist þessu fyrst í gegnum
Ellen Sveinsson, danska merk-
iskonu sem var af frönskum ættum
og gift Þórði Sveinssyni á Kleppi.
Systir mín, Herdís Þorvaldsdóttir
giftist jú syni þeirra Gunnlaugi, og
einu sinni fékk ég að vera með
þeim á páskum heima hjá Ellen
þar sem hún hafði falið egg úti um
allt og börnin leituðu. Þetta var
heilmikil upplifun sem ég geymdi
með mér og fór að útfæra eftir að
ég eignaðist sjálfur börn.“
Fyrirpartar og
tungumálakunnátta
Útgáfa Þorvaldar af páska-
eggjaleitinni er í ratleikjar-
formi, sem leikmanni gæti
fundist býsna flókinn en geng-
ur út á að leita uppi páskaegg
með aðstoð vísbendinga.
„Ég hef alltaf hugsað þetta
sem eins konar þroskapróf þannig
að börnin fá verkefni miðað við
þeirra aldur og getu,“ heldur hann
áfram. „Meðan þau eru ólæs fá
þau einfaldar myndir af einhverju
sem þau þekkja hér í húsinu.“
Hann tekur upp eitt spjald með
teiknaðri mynd af glæsilegum
hrafni. „Þetta er dæmi um vís-
bendingu fyrir þessi allra yngstu,
sem eru jafnvel bara rétt byrjuð
að ganga. Ég á stóran uppstopp-
aðan krumma sem þeim hefur allt-
af þótt rosalega merkilegur og ef
barnið hefur í þessu tilfelli náð að
tengja myndina við hann hefur það
fengið lítinn nammimola og næstu
mynd hjá honum. Þegar þau eru
orðin læs fá þau skrifaðar vísbend-
ingar og eins er ég að prófa hvern-
ig þeim gengur að lesa úr teikn-
ingum af húsinu þar sem búið er
að númera inn staðina þar sem vís-
bendingarnar er að finna.“ Á
spjöldunum sem Þorvaldur sýnir
þessu til staðfestingar fer ekki á
milli máli að þar hefur fagmaður
haldið um pennann.
Þorvaldur lætur ekki þar við
sitja heldur geta litlu leitarmenn-
irnir lent í ýmiskonar skyndi-
prófum. „Stundum set ég fram
fyrriparta af vísum sem krakk-
arnir eiga að kunna og þá komast
þeir ekkert áfram nema að muna
botninn. Þegar þau eru farin að
læra eitthvað pínulítið í tungu-
málum eru vísbendingarnar gjarn-
an að hluta til á ensku og dönsku.
Maður er að reyna að ögra þeim
pínulítið.“ Leikurinn er ekki síst
ögrun fyrir hann sjálfan því árlega
finnur hann upp á nýj-
um þrautum fyrir
af- komendurna.
Sé gott veður
berst leikurinn út í garð og þá eru
teikningarnar enn tilkomumeiri,
með flóknum uppdrætti af lóðinni.
„Þá er ég búinn að setja flögg í
sama lit og blöðin þeirra þar sem
vísbendingarnar er að finna, en
hvert barn hefur sinn eigin lit. Svo
er alltaf blaðra þar sem eggið er
til að auðvelda þeim fundinn.“
Í eggjaleit á Kanarí
Aðspurður viðurkennir Þorvald-
ur að fjölskyldan sé mikið páska-
fólk.
„Við páskumst gríðarlega mikið
og til dæmis höfum við föndrað
alls kyns páskahænur úr filti sem
eru ekki bara skraut heldur virka
sem eggjahitarar líka.“ Hann út-
skýrir þetta betur. „Dagurinn
byrjar alltaf með því að við kom-
um saman að morgni eða um há-
degisbilið á páskadag og þá þurfa
allir að skreyta soðið hænuegg.
Þegar það er búið eru eggin látin
ganga á milli manna í hring og
þegar ég segi til, er stoppað. Þá
má fólk geta hver skreytti hvaða
egg áður en þau eru borðuð með
öðru góðgæti. Það er ekki fyrr en
því er lokið sem krakkarnir geta
farið að leita að páskaeggjunum.“
Fleiri siðir eru órjúfanlegir á
páskum hjá fjölskyldunni. „Leitin
hefst alltaf á því að ég les upp
kafla úr ljóði eftir Hannes Pét-
ursson sem heitir Páskaliljur og
smám saman eru krakkarnir farnir
að kunna línu og línu úr ljóðinu.
Svo þegar ég er að lesa: „Þið
hringið inn upprisu jarðar kólf-
lausu klukkur …“ þá heyrist
gjarnan: „kólflausu klukkur“ eins
og bergmál frá þeim stuttu. Nú
eru páskarnir snemma en oftast
eru blómstrandi páskaliljur hér
fyrir utan og þá er hægt að út-
skýra fyrir þeim hvernig ljóðið er
hugsað.“
Eftir páskaeggjaleitina og óhjá-
kvæmilegt páskaeggjaát í kjölfarið
heldur dagurinn áfram, gjarnan
með göngutúr um Elliðaárdalinn
sem nánast er í bakgarði þeirra
hjóna. „Svo borðum við saman um
kvöldið og þá hjálpast allir að við
eldamennsku og frágang.“
Svo ómissandi er páskaeggja-
ratleikurinn fjölskyldunni að þegar
Þorvaldur tók „allt liðið“ eins og
hann kallar það með sér til
Kanaríeyja yfir páska í tilefni af
sjötugsafmælinu sínu kom ekki til
greina annað en að halda sínu
striki. „Neinei, þá var fjölskyldan
úti um allar Kanaríeyjar að leita
að páskaeggjum,“ segir hann og
skellihlær við tilhugsunina.
ben@mbl.is
Skipuleggjendurnir „Við páskumst gríðarlega mikið,“ viðurkennir Þorvaldur sem ásamt Steinunni konu sinni
heldur heilmikla páskahátíð fyrir afkomendur sína. Á borðinu má sá sérhannaða eggjahitara.
Hátíðlegt Í heimreiðinni eru trén skreytt litríkum borðum og flöggum sem
bjóða páskagesti velkomna til þeirra Þorvaldar og Steinunnar.
Byrjunin „Þarna er ég að messa yfir þeim áður en þau fara af stað,“ segir
Þorvaldur og bendir á þykkan gagnabunkann sem sumir þátttakendur
rýna einbeittir í áður en páskaeggjaleitin hefst af alvöru.
Miserfiðar Vísbendingarnar fara
eftir aldri og þroska barnsins og
geta verið allt frá einfaldri mynd af
krumma að flóknum grunnmyndum
af ömmu- og afahúsi.
Í eggjaleit í afagarði
Árlega halda hjónin Þorvaldur S. Þorvaldsson, fyrrum borgararkitekt, og kona
hans, Steinunn Jónsdóttir, mikla páskahátíð fyrir börn sín og afkomendur þeirra þar
sem vel úthugsaður páskaeggjaratleikur er hápunkturinn. Þorvaldur gaf Bergþóru
Njálu Guðmundsdóttur nokkrar vísbendingar um hvernig hann fer fram.
Ég hef alltaf hugsað
þetta sem e.k. þroska-
próf þannig að börnin
fá verkefni miðað við
aldur og getu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
|fimmtudagur|20. 3. 2008| mbl.is
daglegtlíf