Morgunblaðið - 20.03.2008, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LÍFRÆN vottun felur í sér veru-
leg sóknarfæri fyrir ekki aðeins ís-
lenskan landbúnað, heldur einnig
hinar dreifðu byggðir landsins. Ósk-
andi væri að forvíg-
ismenn innan landbún-
aðarins gæfu sér tíma
til að líta aðeins upp úr
varnarbaráttunni ei-
lífu, þó ekki væri nema
stundarkorn til að bera
þessi augljósu færi
augum.
Það var fyrir
15 árum
Skömmu fyrir miðj-
an 10. áratuginn skaut
fyrir alvöru upp koll-
inum umræðu innan
Stéttarsambands
bænda og Bún-
aðarfélags Íslands,
forverum Bænda-
samtakanna, um líf-
rænt vottaða búskap-
arháttu. Umræðan
sneri aðallega að þeirri
hröðu sókn sem líf-
rænt vottaðar mat-
vörur stóðu fyrir á al-
mennum
neysluvörumarkaði og
þó að menn slægju
svolítið úr og í, eins og
oft vill verða þegar ný-
mæli fara af stað var ekki annað að
sjá en að þarna þætti almennt áhuga-
verð þróun á ferð, bæði út frá mark-
aðslegum forsendum og eins hvað
umhverfis- og náttúruvernd varðar.
Enn slegið í og úr
Nú, um tæpum 15 árum síðar er
staðan sú að stefna Bændasamtak-
anna gagnvart lífrænt vottaðri bú-
vöruframleiðslu hefur lítið sem ekk-
ert breyst. Nýjasta dæmi þess er
fréttaviðtal við Harald Benedikts-
son, sem birtist í Mbl. 11. mars sl.
þar sem formaður bændasamtak-
anna slær af þrautreyndri fimi í og
úr. Fagþjónusta Bændasamtakanna
lætur ekki á sér standa og já, auðvit-
að á að ýta undir þennan búskap og
jú, vissulega verður að fara fram
stöðumat, en …það vantar peninga –
maður notar víst ekki krónurnar úr
ríkissjóði nema einu sinni, það ku
ekkert vera upp úr lífrænt vottaðri
búvöruframleiðslu að
hafa, bændur eru
áhugalausir um þennan
búskap, búskap-
arðstæður á Íslandi séu
lakari í þessum efnum
hér en í útlöndum, dug-
andi meðöl eru ekki fyr-
ir hendi og så videre.
Staðreyndir málsins
Ég vona að mér fyr-
irgefist þó að ég átti mig
ekki alveg á því hvert
Haraldur er þarna að
fara. Staðreyndirnar
blasa við hverjum þeim
sem vill sjá: 1) Fagþjón-
usta bænda lætur ekki á
sér standa, eins og Har-
aldur réttilega nefnir,
þ.e.a.s. sá fjórðungur úr
stöðugildi sem ráðu-
nautaþjónustan hefur
úr að spila. 2) Lítið sem
ekkert hefur verið ýtt
undir lífrænt vottaða
búvöruframleiðslu af
hálfu Bændasamtak-
anna, sem er eina líf-
ræna búvaran sem
markaðurinn við-
urkennir. Á hinn bóginn hefur mikið
verið gert úr „vistvænum afurðum“
og því um líkt sem hafa enga við-
urkennda stöðu, hvorki hvað inni-
hald, heilnæmi né umhverfisvernd
snertir. 3) Víðtækt stöðumat hefur
farið fram á möguleikum lífrænt
vottaðrar framleiðslu, eins og sjá má
á skýrslu sem kom út fyrir rúmu ári
á vegum Byggðastofnunar, Vott-
unarstofunnar Túns og Staðardag-
skrár 21. Þeir eru frómt frá sagt
miklir sér í lagi fyrir landbúnaðinn
og hinar dreifðu byggðir.
Peningaskortur, áhugaleysi og
lakar aðstæður?
Sömu sögu er að segja þegar að
þeim vanköntum kemur sem Har-
aldur nefnir. 1) Íslensk stjórnvöld
hafa reynst bændum verulega skiln-
ingsrík þegar að fjármunum kemur
til búháttabreytinga. Nægir í þeim
efnum að benda á Framleiðnisjóð
bænda. Peningaskortur eða vilja-
skortur? 2) Lífrænt vottuð búvöru-
framleiðsla skilar um 30%-50%
hærra afurðaverði og því er eftir
talsverðu að slægjast fyrir bændur,
eins og dæmin sanna bæði hér heima
og erlendis. Lágt verð eða hátt verð?
3) Bændur virðast ekki áhugalausir
um lífræna búvöruframleiðslu, a.m.k.
ekki þeir sem kynna sér hana á ann-
að borð. Upplýsingar virðast á hinn
bóginn vera af skornum skammti.
Skortir áhuga eða upplýsingar? 4) Í
þeim norðlægu löndum þar sem líf-
rænt vottaður búskapur er stund-
aður hefur hann ekkert gefið síðri
raun og jafnvel betri en á suðlægari
slóðum, m.a. vegna færri sjúkdóma,
minni óværu og hreinni náttúru.
Lakar eða góðar aðstæður? Vott-
unarstofan Tún hefur aðlagað líf-
ræna vottunarstaðla ESB fyrir ís-
lenskan landbúnað og unnið
eftirtektarvert þróunarstarf á því
sviði. Má þar nefna sem dæmi að
ESB hagnýtir nú staðla sem Tún
hefur þróað fyrir lagargróður og
þörunga, staðlar fyrir ylrækt sem
Tún er að þróa verða einnig hag-
nýttir við gerð Evrópureglna. Skort-
ir réttu meðölin?
Allt vill nú íslenskum landbúnaði
að óhamingju verða. Stendur ís-
lenskur landbúnaður svo vel að
bændur hafi efni á að leiða hjá sér
umfangsmestu neyslubreytingar
samtímans? Hvernig á að koma til
móts við sívaxandi spurn eftir líf-
rænni búvöru og auknu neysluöryggi
á matvöru? Með enn meiri innflutn-
ingi? Svari nú hver fyrir sig.
Mestu neyslu-
breytingar samtímans
Helga Guðrún Jónasdóttir
skrifar um lífræna vottun
Helga Guðrún
Jónasdóttir
» Stendur ís-
lenskur
landbúnaður
svo vel að bænd-
ur hafi efni á að
leiða hjá sér um-
fangsmestu
neyslubreyt-
ingar samtím-
ans?
Höfundur er stjórnarmaður í vott-
unarstofunni Tún og forstöðumaður
Upplýsingaþjónustu landbúnaðarinsá
árunum 1990-1995. Viðhorf grein-
arhöfundar endurspegla ekki form-
lega afstöðu vottunarstofunnar.
Það hefur eflaust glatt marga
hérlendis að Danir skyldu standa
uppi sem sigurvegarar á nýafstöðu
Evrópumeistaramóti á handbolta –
úr því að við gerðum það ekki
sjálf. Fyrir einhverjum voru þetta
a.m.k. illskárri úrslit en enn einn
sigur Svíanna. Þó að Danir hafi
verið í baráttunni á nokkrum und-
anfarinna stórmóta í handbolta
hefur þeim ekki tekist að sigra
fyrr en nú.
Það sem gerir þennan sigur
Dana athyglisverðan er að að
þessu markmiði hefur
verið unnið skipulega
undanfarin ár, þ.e. að
auka hlut Dana á al-
þjóðlegum vettvangi í
íþróttum. Þessari
stefnumótun er ekki
eingöngu fylgt eftir af
danska handknatt-
leikssambandinu,
heldur líka íþrótta-
sambandinu og
danska ríkisvaldinu.
Ennfremur að þessi
stefnumótun á ekki
aðeins við handknatt-
leik, því einnig er unnið eftir sam-
bærilegri stefnu í öðrum ólymp-
ískum íþróttagreinum. Árið 2004
setti danska þingið sérstök lög um
afreksíþróttir, um stofnun sér-
staks verkefnis sem ber heitið
„Team Danmark“ (TD). Árang-
urinn hefur ekki látið á sér
standa, því að árið 2002 unnu
íþróttamenn sem kepptu innan vé-
banda sambanda sem síðar tóku
þátt í Team Danmark-verkefninu
til 44 verðlauna á alþjóðlegum
vettvangi. Fjórum árum síðar eða
árið 2006, unnu íþróttamenn innan
þessara sambanda til 54 verð-
launa, þ.e. árangur handboltaliðs-
ins er langt frá því að vera til-
viljun eða einstakur. Þessi
aukning er skýrð með bættum
undirbúningi íþróttamanna og liða,
markvissara starfi og bættu sam-
starfi innan íþróttahreyfing-
arinnar. Einna mikilvægasti þátt-
urinn hafa verið rannsóknir og
mælingar ásamt annarri aðstoð
sem bæði einstaklingum og liðum
hefur staðið til boða. TD fær ár-
lega fjármagn frá ríkinu sem nem-
ur rúmlega 81 milljón danskra
króna. Til viðbótar kemur framlag
frá danska íþróttasambandinu,
tekjur af auglýsingum og sjón-
varpsréttindum, en alls hafði TD
um 142 millj. dkr. úr að spila árið
2006 eða sem svarar um 1,8 millj-
örðum íslenskra króna. Yfirfært á
okkar aðstæður svarar þessi upp-
hæð til um 100 m.kr. ef miðað er
við íbúafjölda.
Í lögum um TD er gerð krafa
um mótun og framkvæmd heild-
stæðrar íþróttastefnu í landinu og
stefnan sett á að gera Danmörku
að ákjósanlegasta landinu til að ná
árangri í íþróttum. Á vegum TD
var gerð ítarleg greining á stöðu
og möguleikum allra ólympískra
íþróttagreina í landinu og þeim
skipt í flokka eftir frammistöðu og
getu. Í byrjun var farið ofan í
stöðu einstakra íþróttagreina,
frammistöðu einstaklinga og liða,
umhverfi þeirra skoðað ásamt
skipulagi, starfsemi, menntun
þjálfara og annarra starfsmanna
o.fl. Í kjölfarið var gerð áætlun
fyrir hverja einustu íþróttagrein
og unnið skv. henni. Þessi vinna
er síðan í stöðugri endurskoðun,
bæði að hálfu stjórn-
ar TD og íþrótta-
hreyfingarinnar.
Hluti af starfi TD
er mótun heild-
stæðrar þjálfunar og
uppbyggingar afreks-
íþróttamanna fram-
tíðarinnar. Að verk-
efninu kemur
ríkisvaldið, sveit-
arfélög, skólar ásamt
íþróttahreyfingunni. Í
stórum dráttum felst
þetta starf í mótun
heildstæðrar íþrótta-
og afreksstefnu. Þetta starf skilar
sér í betri undirbúningi íþrótta-
manna fyrir keppni og þjálfun.
Fylgst er náið með afreks-
íþróttamönnum, líkamlegu og and-
legu ástandi þeirra og gripið inn í
ef nauðsyn krefur. Markvissar
rannsóknir og mælingar eru gerð-
ar á íþróttamönnum sem eru inn-
an TD og styrktar- og þrekæf-
ingar skipulagðar í kjölfarið í
samráði við fagaðila. Þá er mynd-
að þverfaglegt samstarf milli
þjálfara í mismunandi íþrótta-
greinum til að tryggja hámarks
nýtingu á þeirri þekkingu sem til
er íþróttafólkinu til hagsbóta. For-
ystumenn íþróttahreyfingarinnar,
sem tjáð sig hafa um þetta mál,
eru sannfærðir um að þessi
stefnumótun hafi skilað betri ár-
angri og minni meiðslum hjá
íþróttamönnum.
Það er ekki bara íþróttahreyf-
ingin sem nýtur góðs af starfi TD.
Mikil þekking um íþróttir og lýð-
heilsu verður til innan háskóla- og
rannsóknarsamfélagsins. Aukin
umræða í kjölfar bættrar frammi-
stöðu leiðir af sér aukna þátttöku
barna, unglinga og almennings í
íþróttum. Flestum er ljóst mik-
ilvægi góðra fyrirmynda fyrir
æsku landsins. Sýnt hefur verið
fram á fylgni milli góðs árangurs í
íþróttum og í námi. Ennfremur
verður forvarnargildi íþrótta seint
metið til fjár.
Aðstaða og skilyrði til æfinga og
keppni hefur tekið miklum fram-
förum hér á landi á undanförnum
árum. Áhugi og metnaður ís-
lenskra íþróttamanna er vel
þekktur en árangurinn virðist láta
á sér standa. Nauðsynlegt er fyrir
íþróttamenn okkar að búa við
sambærileg skilyrði og keppinaut-
ar okkar. Að öðrum kosti verðum
við ekki samkeppnisfær í framtíð-
inni.
Árangur Dana
á EM tilviljun?
Jónas Egilsson lýsir stefnumót-
un og skipulagi Dana til styrkt-
ar afreksíþróttum
»Með markvissu
starfi tókst Dönum
fjölga verðlaunahöfum á
alþjóðlegum íþróttamót-
um um 20% á fjórum ár-
um.
Jónas Egilsson
Höfundur er fyrrv. formaður FRÍ.
Nöfn
fermingarbarna á
mbl.is
FERMINGAR
2008
NÝTT Á
mbl.is