Morgunblaðið - 20.03.2008, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2008 45
Félagsstarf
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Óperusýning S og G í Garðabergi kl.
17. Il Trovatore eftir Verdi. Frír að-
gangur. Lokað í Jónshúsi og Smiðj-
unni í Kirkjuhvoli.
Félagsstarf Gerðubergs | Lokað í
dag og á morgun föstudaginn langa
og annan í páskum. Þriðjud. 25. mars
er opið kl. 9-16.30, fjölbreytt dagskrá.
Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Ís-
landssöguspjall, myndlist, bók-
menntir, framsögn og framkoma, Bör
Börson, söngur, páfagaukar, hlát-
urhópur, Skapandi skrif, postulín,
Þegar amma var ung, hugmynda-
banki, Müllersæfingar, nýstárleg
hönnun fermingarkorta, Vorferð á vit
skálda o.fl. S. 568-3132.
Sjálfsbjörg | Skák kl. 19 í félagheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin kl.
20-22. Bænastundir kl. 20.30 og
21.30. Prestur á staðnum. Hægt er
að kveikja á bænarkerti og eiga kyrr-
láta stund.
Fríkirkjan Kefas | Lofgjörðarstund
og heilög kvöldmáltíð kl. 20, í umsjón
Helgu R. Ármannsdóttur.
Hallgrímskirkja í Saurbæ | Íhug-
unarsamvera verður föstudaginn
langa kl. 20. Heimamenn lesa písl-
arsöguna og valda Passíusálma Hall-
gríms. Kór Saurbæjarprestakalls
syngur undir stjórn Arnar Magn-
ússonar organista. Prestur sr. Skírnir
Garðarsson.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Vinafundur í Setrinu kl. 14-16. Ryfj-
aðar upp gamlar minningar, viðhorf
og skoðanir, rætt um hversdaginn
o.fl. Kristín sér um kaffið.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Samúel Ingimarsson.
KFUM og KFUK | Fundur AD KFUM
fellur niður á skírdag. Félagar eru
hvattir til að sækja kirkjur.
Vegurinn kirkja fyrir þig | Páskamót
Vegarins. Samkoma kl. 10, Gunnar Wi-
encke predikar, kl. 14 prédikar Thom-
as Jonsson og kl. 18 prédikar Ashley
Schmierer. www.paskamot.com
Föstudaginn lang er samkoma kl. 10.
Johannes Amritzer prédikar, kl. 14
prédikar Ashley Schmierer, kl. 18 pré-
dikar Johannes Amritzer. Tónleikar
kl. 22, laugardag kl. 14 Ruth Schmie-
rer. Lokasamkoma kl. 18 Thomas
Jonsson. www.paskamot.com
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 22. Ath.
breyttan tíma. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
85ára afmæli. Áttatíu og fimm áraer í dag, 20. mars, Oddfríður B.
Magnúsdóttir. Af því tilefni tekur Odd-
fríður á móti ættingjum og vinum hjá
nöfnu sinni Fríðu í Skipasundi 72 laug-
ardaginn 29. mars næstkomandi. frá
kl. 15 til 17.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 20. mars, 80. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yður, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.)
Vísindafélag Íslendinga býð-ur til fyrirlestrar 26. marsnæstkomandi í Norrænahúsinu. Þar mun Bjarni E.
Guðleifsson prófessor við Landbún-
aðarháskóla Íslands flytja erindið
Kalskemmdir á Íslandi í fortíð, nútíð
og framtíð og er aðgangur að fyr-
irlestrinum öllum heimill og ókeyp-
is.
„Kalskemmdir í túnum hafa vald-
ið bændum hérlendis miklu fjár-
hagslegu tjóni á ýmsum tímum í
sögunni og þekkt eru úr fortíðinni
grasleysisár sem ollu miklum búsifj-
um,“ útskýrir Bjarni en það er eink-
um svellkal sem hefur valdið
skemmdum hér á landi „Svellkal
myndast við hlákur, þegar snjór
sem hefur safnast fyrir hleypur í
krap og vatnselg sem svo frýs á tún-
um og verður að hörðu svelli. Þessi
svell leggjast einkum yfir flöt tún,
en einnig á hallandi tún í ein-
hverjum mæli, og ef íshellan er
nógu lengi yfir grasinu, t.d. í 2-3
mánuði, koma fram kalskemmdir.“
Bjarni segir þó skemmdirnar ekki
af völdum kuldans, heldur vegna eit-
urefna sem safnist fyrir: „Grösin lifa
yfir veturinn, anda hægt vegna lágs
hitastigs og gefa frá sér efna-
sambönd. Íshellan hindrar að súr-
efni komist að grasinu og öndunin
verður loftfirrð þannig að eiturefni
eins og koltvísýringur og ýmsar sýr-
ur safnast upp undir svellinu og
valda skemmdum. Þessi eiturefni
skemma svo frumur grassins sem
loks drepst.“
Að sögn Bjarna hafa kal-
skemmdir í íslenskum túnum verið
minna áberandi undanfarin ár:
„Vetur hafa verið mjög mildir og
veðurfar hlýrra, svo þær aðstæður
hafa síður myndast sem valda kal-
skemmdum. Reikna má með frekari
loftslagsbreytingum í þessa veru og
að íslensk tún verði að mestu laus
við miklar kalskemmdir,“ segir
Bjarni. „Hins vegar getur það gerst
við þessar breyttu aðstæður að kal-
skemmdir birtist ofar og upp til
fjalla og valdi álagi á fjallaplöntum
sem ekki eru aðlagaðar að svell-
aðstæðum. Þó skemmdir á þeim
tegundum hafi ekki sömu fjárhags-
legu áhrif og skemmdir á túngrös-
um er ástæða til að hafa áhyggjur af
að sumar plöntutegundir hverfi,
einkum plöntur sem vaxa í snjó-
dældum, og að kalið geti valdið
vandræðum í beitilöndum.“
Rannsóknir | Fyrirlestur á miðvikudag um skaðvald í íslenskum túnum
Kalskemmdir þá og nú
Bjarni E. Guð-
leifsson fæddist í
Reykjavík 1942.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR
1962, búfræði-
prófi frá Bænda-
skólanum að Öx-
navaði í Noregi
1963, kandídats-
prófi í búvís-
indum 1966 frá Landbúnaðarhá-
skólanum á Ási og doktorsprófi frá
sama skóla 1971. Bjarni E. Guð-
leifsson starfaði við tilraunastöð
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins á Möðruvöllum í Hörgárdal um
áratugaskeið en hefur verið pró-
fessor við LBHÍ frá 2004 með bú-
setu á Möðruvöllum. Eiginkona
Bjarna er Pálína Jóhannesdóttir
sjúkraliði og eiga þau fjögur börn
og sjö barnabörn.
Tónlist
Hallgrímskirkja | Ágúst Ingi Ágústsson
heldur burtfarartónleika 22. mars kl. 17.30.
Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach, D.
Buxtehude, O. Messiaen, Maurice Duruflé
og Julius Raubke. Tónleikarnir eru liður í
einleiksáfangaprófi Ágústar Inga.
Seltjarnarneskirkja | Á föstudaginn langa
kl. 15 flytur Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna, Sjö síðustu orð Krists á krossinum
eftir Josef Haydn í Seltjarnarneskirkju.
Stjórnandi Óliver Kentish en milli kaflanna í
verkinu les Sigurður Skúlason leikari ritn-
ingargreinar sem verkið byggist á.
Leiklist
KA-Heimilið | Pabbinn sýndur á Akureyri
22. mars kl. 20. Sýningin er haldin í sam-
starfi við KA og verður í KA heimilinu.
Miðasala hefst í Eymundsson Glerártorgi.
VIKUGÖMUL risaskjaldbaka sem ættuð er frá Galapagos-eyjum skríður
framhjá 70 ára gamalli móður sinni í dýragarðinum í Zürich á miðvikudag-
inn.
Reuters
Lítil og stór
FRÉTTIR
ÁRLEG páskaeggjaleit fer fram í Elliðaárdalnum við gömlu rafstöðina og
við grásleppuskúrana á Ægisíðu laugardaginn 22. mars og hefst kl. 14 á
báðum stöðum.
Þetta er í ellefta skipti sem sjálfstæðisfélögin í viðkomandi hverfum efna
til þessa páskaleiks. Leitað verður að skreyttum hænueggjum og börnin fá
súkkulaðiegg að launum. Einnig verður keppt í húlahoppi og verðlaun
veitt fyrir bestan árangur. Gott er að taka með körfur eða poka undir egg-
in, segir í fréttatilkynningu.
Páskaeggjaleit
UMHVERFISRÁÐUNEYTINU
hefur borist kæra frá Landvernd þar
sem krafist er ógildingar á ákvörðun
Skipulagsstofnunar, um að ekki skuli
fara fram heildstætt mat á umhverfis-
áhrifum álvers á Bakka við Húsavík
og tengdra framkvæmda.
Í tilkynningu sem Landvernd sendi
frá sér segir að af hálfu sveitarstjórna
og heilbrigðiseftirlits sé talið æskilegt
að sameina og samræma umfjöllun
um þessar tengdu framkvæmdir eins
og kostur er. „Það er skoðun Land-
verndar að skilvirkasta leiðin til sam-
einingar og samræmingar sé sameig-
inlegt mat á umhverfisáhrifum
framkvæmdanna,“ segir í tilkynning-
unni.
Segir þar jafnramt að „það er skoð-
un Landverndar að sýn Umhverfis-
stofnunar og sveitarstjórna á mál sem
þessi eigi að vega þyngra en sýn fyr-
irtækja sem grundvalla ákvarðanir
sínar og skoðanir út frá mun þrengri
hagsmunum en þau stjórnvöld sem
um málið fjalla.“
Einnig segir Landvernd þann
helsta galla á ákvörðun Skipulags-
stofnunar að hugsanlegt álver Alcoa á
Bakka skuli skilgreint sem orkunot-
andinn í málinu, þó það sé utan þess
svæðis sem umhverfismat áætlana
náði til. „Þá er litið til Alcoa sem hags-
munaaðila í málinu þrátt fyrir að fyr-
irtækið hafi enn ekki tekið ákvörðun
um að byggja álver við Húsavík. Í
ákvörðuninni er hvorki greint frá
framleiðslugetu né orkuþörf hugsan-
legsa álvers og verður því að ætla að í
þeim efnum ríki óvissa,“ segir í til-
kynningu Landverndar.
Segir Landvernd margt benda til
að horft væri til að reisa 250.000 tonna
álver eða stærra, en Landvernd hefur
heimildir fyrir því að Alcoa hafi áhuga
á að byggja jafnstórt álver og á Reyð-
arfirði, sem er um 345.000 tonna. „Þá
þyrfti að virkja allt að 700 MW. Það er
mat Landverndar að ekki sé fast í
hendi að orkuöflun af því umfangi
muni ganga eftir innan þess svæðis
sem umhverfismat áætlananna náði
til. Því gæti þurft að ráðst í fleiri virkj-
anir til þess að anna þörfinni.“
Hjá umhverfisráðuneyti fengust
þær upplýsingar að kæran verði tekin
fyrir eftir páska, en samkvæmt lögum
hafi ráðuneytið tvo mánuði frá því að
kærufrestur rennur út til að úrskurða
í máli af þessu tagi. Ráðuneytið vinn-
ur nú að afgreiðslu kæra vegna ál-
versbyggingar í Helguvík, og verður
þeirri vinnu lokið fyrir næstu mán-
aðamót.
Landvernd kærir
ákvörðun um
umhverfismat
OPIÐ er í Þjóðminjasafni Íslands
klukkan 11-17 á skírdag og á laug-
ardegi fyrir páska en lokað er á
föstudaginn langa, páskadag og ann-
an í páskum.
Í Þjóðminjasafninu er grunnsýn-
ingin Þjóð verður til og í Bogasaln-
um getur að líta sýninguna Á efsta
degi - býsönsk dómsdagsmynd á
Hólum. Í Myndsalnum stendur enn
yfir hin áhugaverða sýning Til gagns
og til fegurðar - sjálfsmyndir í ljós-
myndum og klæðnaði 1860 til 1960.
Þjóðminjasafn-
ið um páska
♦♦♦