Morgunblaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 94. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Dubbeldusch >> 33
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
DROPINN DÝRI
HVERNIG ER HÆGT AÐ SPARA BENSÍNIÐ?
FÁ SÉR HJÓL EÐA SKIPTA UM BÍL? >> 17
FRÉTTASKÝRING
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„ELSKU pabbi, ekki kaupa bíl,“
segir í sígildu barnalagi Hrekkju-
svínanna. Víst er þó að margir eru
bílarnir og hefur subbuskapur í mið-
borginni af bílaumferð aukist.
Hér þarf að grípa í taumana enda
hefur sigið á ógæfuhliðina í þessum
málum á undanförnum mánuðum og
árum, sagði Gísli Marteinn Baldurs-
son, formaður umhverfis- og sam-
gönguráðs, á borgarstjórnarfundi í
síðustu viku. Æ fleiri bílum sé lagt á
gangstéttar, á torgum miðborgar-
innar og víðar, þar sem þeir trufla
umferð gangandi fólks.
Í dag funda lögreglan, Bílastæða-
sjóður og Reykjavíkurborg um
vandann, að sögn Pálma F. Rand-
verssonar, sérfræðings í samgöngu-
málum hjá umhverfis- og samgöngu-
sviði Reykjavíkurborgar. Hann
segir að vonandi verði farið í átak
gegn umferðarhegðun sem þessari í
framhaldinu.
Sektir fyrir að leggja ólöglega hjá
Reykjavíkurborg eru miklu lægri en
gengur og gerist á hinum Norður-
löndunum að sögn Pálma. Hér kost-
ar 1.500 krónur að leggja ólöglega,
en gjaldið er 900 krónur ef greitt er
innan þriggja daga. Í nágrannalönd-
unum eru sambærilegar sektir um
10.000 íslenskar krónur.
En vantar stæði í miðborginni?
Fyrir utan stæði í íbúagötum eru
nokkur bílastæðahús í miðbænum; í
þeim eru alls 2.500 stæði, segir
Brynjólfur Gíslason, fulltrúi hjá
Bílastæðasjóði. Önnur gjaldskyld
bílastæði eru um 1.280 talsins.
Nýtingin á stæðunum sem Bíla-
stæðasjóður hefur umsjón með er
misjöfn. Sum stæðanna eru mjög vel
nýtt en annars staðar er nýtingin
lakari. Gildir það t.d. um nýlegt bíla-
stæðahús á Stjörnureit á Laugavegi.
Fram kom í skýrslu sem gerð var
hjá borginni fyrir tveimur árum að
hlutfall bílastæða í miðbænum er
miklu hærra hér en í öðrum Evrópu-
löndum og Bandaríkjunum. Hér eru
stæðin um 800 á hver 1.000 störf, en
sama tala er um 270 í Evrópu og 500
í Bandaríkjunum.
Gísli Marteinn Baldursson benti á
síðasta borgarstjórnarfundi á að á
næstunni bætist við 1.600-1.800
stæði undir nýja Tónlistar- og ráð-
stefnuhúsinu. Bílakjallarann eigi að
opna á næsta ári. Borgin hafi hér sof-
ið á verðinum því ekki hafi enn verið
gert ráð fyrir að fækka stæðum á yf-
irborðinu, þegar allur þessi fjöldi
stæða bætist við.
Átak gegn subbuskap bílstjóra í miðbæ?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólöglegt Algengt er að bílstjórar leggi bílum sínum ólöglega í miðbænum.
Lögregla, Bílastæðasjóður og Reykja-
víkurborg funda um vandann í dag
TOGARINN Sturlaugur H. Böðvarsson fékk
trollpokann í skrúfuna úti á Melsekk í lok vik-
unnar. Skipið varð vélarvana og dró skuttog-
arinn Ottó N. Þorláksson Sturlaug að landi. Fé-
lagar úr Köfunarþjónustu Íslands fóru niður að
skrúfunni og skáru úr henni, en verkið tók
einn og hálfan sólarhring. Rúnar Stefánsson,
útgerðarstjóri HB Granda, sem gerir báða
togarana út, segir að megnið af aflanum í troll-
inu hafi verið farinn úr því, þegar togarinn
kom að landi.
Aðeins smotterí var í pokanum.
Morgunblaðið/Júlíus
Togarinn Sturlaugur H. Böðvarsson fékk trollpokann í skrúfuna
VÍSBENDINGAR eru um að hin alvarlega árás
sem gerð var á öryggisvörð í 10-11 verslun í Aust-
urstræti í gærmorgun hafi verið hefndaraðgerð
sem vísvitandi var beint gegn öryggisverðinum
fyrir afskipti af árásarmanninum vegna óláta fyrr
um kvöldið. Þetta segir Sigurður Reynaldsson
framkvæmdastjóri 10-11. Árásarmaðurinn var
hnepptur í þriggja daga gæsluvarðhald vegna
árásarinnar og er málið í rannsókn lögreglunnar.
Sigurður segir að árásarmaðurinn hafi upphaf-
lega komið reykjandi inn í búðina en verið vísað út.
Hafi hann þá sýnt mótþróa svo kalla varð á lög-
reglu sem fjarlægði hann og veitti honum tiltal í
lögreglubíl.
„Stundu síðar kom þessi aðili aftur og vildi
hefna sín,“ segir Sigurður. „Öryggisvörðurinn
hafði þá brugðið sér út fyrir dyr verslunarinnar og
var að beygja sig eftir einhverjum hlut. Þá virðist
sem árásarmaðurinn hafi staðið þar tilbúinn með
glerflösku sem hann sló öryggisvörðinn með.“
Starfsmaðurinn er nú alvarlega slasaður á gjör-
gæsludeild Landspítalans. Að sögn læknis á gjör-
gæsludeild gekkst hann undir aðgerð á höfði í gær
og er til eftirlits á deildinni. Hann er þó ekki í önd-
unarvél.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók árás-
armanninn og leiddi hann fyrir dómara með kröfu
um gæsluvarðhald. Að sögn lögreglu reyndust
áverkar öryggisvarðarins mun alvarlegri en talið
var í fyrstu með því að blætt hafði inn á heila.
10-11 verslunin í Austurstræti er opin allan sól-
arhringinn og segir Sigurður Reynaldsson að hún
sé vel mönnuð öryggisvörðum.
Telur árásina hefndaraðgerð
Framkvæmdastjóri 10-11 í Austurstræti segir árás á öryggisvörð í gærmorgun
mjög alvarlega Hinn slasaði hlaut heilablæðingu og liggur á gjörgæsludeild
Dakar. AFP. | Stjórnvöld í Afríku-
ríkjum standa frammi fyrir hrinu
óeirða vegna hækkunar á mat-
væla- og eldsneytisverði.
Fjörutíu manns lágu í valnum
eftir óeirðir í Kamerún í febrúar
og mannskæðar
óeirðir hafa orð-
ið á Fílabeins-
ströndinni og í
Máritaníu. Átök
hafa einnig
blossað upp milli
lögreglumanna
og mótmælenda
í Senegal og
Búrkína Fasó
þar sem boðað hefur verið alls-
herjarverkfall á morgun vegna
verðhækkana. Yfirvöld í Egypta-
landi afstýrðu í gær verkfalli með
því að hóta hörðum aðgerðum
gegn þeim sem tækju þátt í mót-
mælum vegna verðbólgu og lágra
launa.
Kanayo Nwanza, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Alþjóðaþróunarsjóðs
landbúnaðarins (IFAD), einnar af
stofnunum Sameinuðu þjóðanna,
hefur varað við því að óeirðirnar
geti breiðst út til annarra landa.
Fjármálaráðherrar Afríkuríkja
sögðu á fundi í vikunni sem leið að
verðhækkanirnar stefndu „hag-
vexti, friði og þjóðaröryggi margra
ríkja í verulega hættu“.
Verð á hrísgrjónum hefur til að
mynda hækkað um 300% í Síerra
Leóne, einu af fátækustu löndum
heims, og um 50% á Fílabeins-
ströndinni, í Senegal og Kamerún.
Verð á pálmaolíu, sykri og hveiti
hefur einnig snarhækkað í álfunni.
Blóðugar
óeirðir
breiðast út
Allt að 300% hækkun
á hrísgrjónaverði