Morgunblaðið - 07.04.2008, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum til
Alicante 9. apríl. Gríptu tækifærið og tryggðu þér flugsæti á
ótrúlegum kjörum. Takmarkað framboð af sætum á þessu verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Alicante
9. apríl
frá kr. 14.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 14.990
Netverð á mann.
Flugsæti aðra leið (KEF-ALC)
með sköttum, 9. apríl.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 24.990
Netverð á mann.
Flugsæti báðar leiðir með sköttum,
út 9. apríl og heim 10. maí.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HALLDÓR Runólfsson yfirdýra-
læknir bendir á að fyrirhugaðar
breytingar á lögum um matvæli
séu óhjákvæmilegar fyrir Ísland
með því að Evrópusambandið er
stærsti útflutningsmarkaðurinn
fyrir íslenskar fiskafurðir. „Og það
er því einfaldlega krafa af hálfu
ESB að við tökum í staðinn upp
matvælalöggjöf ESB,“ segir hann.
Samkvæmt stjórnarfrumvarpi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra um hina nýju matvælalöggjöf
er gert ráð fyrir heimild til hvers
konar innflutnings á hráu kjöti sem
vottað er af viðurkenndum stofn-
unum. Halldór bendir þó á að hrátt
kjöt hefur í töluverðum mæli verið
flutt til landsins um árabil, þrátt
fyrir bann þar að lútandi. Ráð-
herra geti hins vegar leyft inn-
flutning á hráu kjöti að fengnum
meðmælum yfirdýralæknis ef vott-
orð standast skoðun embættisins.
„Breytingin með fyrirhuguðu frum-
varpi felst í að kjöt frá ESB þarf
ekki lengur að sæta skoðun yf-
irdýralæknis, heldur kemur varan
með vottorð frá framleiðanda sem
svo aftur er undir eftirliti stofnana
í viðkomandi ríki.“
Hvað með kamfýlóbakterinn?
Halldór bendir á þá staðreynd að
kjúklingakjöt frá mörgum Evrópu-
löndum getur verið mengað af
kamfýlóbakter og það veldur mest-
um áhyggjum eins og staðan er nú.
„Nú erum við að leita leiða til að
fyrirbyggja að fluttur verði inn
kjúklingur sem er síðri að gæðum
en sá sem framleiddur er hérlend-
is. Löggjöfin heimilar ekki að ís-
lensk matvælayfirvöld setji kröfur
á að innfluttur kjúklingur sé próf-
aður fyrir kamfýlóbakter en þessi
mál eru mjög til umræðu á vett-
vangi ESB. Norðurlandaþjóðirnar
hafa náð tökum á kamfýlóbakter-
mengun í innlendri framleiðslu.
Nágrannaþjóðir okkar vilja eðli-
lega hafa ráð með að verjast inn-
fluttu kjúklingakjöti vegna meng-
unar og benda má á að Danir hafa
þegar gripið til aðgerða með því að
endursenda kjöt til framleiðslu-
landanna ef varan stenst ekki próf-
un. Strangt til tekið samræmast
slík inngrip ekki meginhugsun
matvælalöggjafar ESB um frjálst
flæði matvæla. Það eru vissir fyr-
irvarar í löggjöfinni sem Danir
hafa túlkað með fyrrnefndum hætti
en það á hins vegar eftir að koma í
ljós hvort inngrip þeirra standist
að fullu. Ef þetta gengur upp hjá
Dönum geta Íslendingar fylgt í
kjölfarið.“Um 7.400 tonn af kjúk-
lingkjöti voru framleidd á innlend-
um markaði í fyrra og starfa allt að
500 manns í greininni að sögn
Matthíasar H. Guðmundssonar for-
manns Félags kjúklingabænda.
Hann telur að nýja löggjöfin muni
þrengja að kjúklingabændum og
erfitt verði að keppa við aukinn
innflutning í verði. „Spurningin er
þó hvort verndartollar á innfluttu
kjöti verði felldir niður,“ segir
hann. „Á það má líka benda að allt
kjúklingakjöt frá innlendum fram-
leiðendum er prófað fyrir salmon-
ellu og kamfýólbakter áður en það
er sett á markað, en innflutta kjöt-
ið er aðeins prófað fyrir salmónell-
unni. Ég myndi því ætla að gagn-
vart neytendum væri með auknu
erlendu framboði verið að bjóða
upp á minni gæði. Spurningin er
því hvort neytendur muni velja ís-
lenskt vegna gæðanna eða erlent
vegna verðsins. Innlendir kjúk-
lingabændur ættu að geta séð
sóknarfæri í að benda á þessa hluti
í þeirri samkeppni sem er fyrirsjá-
anleg.“
Með fyrirhugaðri löggjöf er tekið
stórt skref að mati Finns Árnason-
ar forstjóra Haga en á hinn bóginn
eru fyrirvararnir þeir hvernig
tollamálum verður háttað. „Þetta
kemur til með að auka framboðið
af kjöti en lykillinn að því eru tolla-
lækkanir,“ segir hann. „Tollar á
innfluttu kjöti hamla því að hægt
sé að lækka verðið eins og staðan
er í dag. En löggjöfin mun vissu-
lega gefa mikil og fjölbreytt tæki-
færi í innflutningi á kjöti og hér er
um að ræða alveg nýjar víddir á
því sviði. En tollarnir verða að
lækka til að þetta verði verulega
áhugavert fyrir neytendur. Það er
eitt að geta boðið vöruna en það
selst ekki mikið af henni ef hún er
dýr.“
Finnur segir Haga nú þegar með
tengsl við kjötframleiðendur í Evr-
ópu og á Norðurlöndum. Muni
Hagar flytja inn kjöt frá viðkom-
andi aðilum, bæði lífræna vöru og
hefðbundna á grundvelli nýrrar
löggjafar. Hann bendir á að ferskt
nautakjöt henti best í flutning þar
sem flutningstíminn nýtist í
meyrnun. En kjúklingur og svína-
kjöt sé miklu viðkvæmara fyrir
flutningi sem ferskvara.
Úrvalið meira en spurning um verð
Hrátt kjöt frá ESB
þarf ekki skoðun
yfirdýralæknis
samkvæmt boðaðri
matvælalöggjöf
Halldór
Runólfsson
Matthías H.
Guðmundsson
Finnur
Árnason
Í HNOTSKURN
»Í frumvarpi til nýrra matvælalaga er kveðið áum að leitast skuli við að vernda hagsmuni neyt-
enda og gefa þeim kost á upplýstu vali með tilliti til
matvælanna sem þeir neyta.
»Allur innflutningur búfjárafurða, sjávarafurðaog lifandi ferskvatns- eða sjávardýra frá ríkjum
utan Evrópska efnahagssvæðisins skal fara um
landamærastöðvar.
HÁTT í þrjú hundruð manns fóru
um nýju jarðgöngin úr Siglufirði
til Héðinsfjarðar í gær. Þarna var
um kynnisferð að ræða sem bæj-
arstjórn Fjallabyggðar bauð til og
voru tvær rútur í förum sem
fluttu alls 60 manns í ferð.
Tilgangurinn var að gefa al-
menningi kost á að sjá göngin sem
komin eru og einnig landslagið í
Héðinsfirði en þótt allmargir Sigl-
firðingar hafi komið til Héðins-
fjarðar á sjó hafa tiltölulega fáir
komið svo framarlega í fjörðinn
sem gangamunninn er. Ferðin
mæltist mjög vel fyrir enda var
veður sérlega gott, milt og bærð-
ist ekki hár á höfði. Þótti fólki
fróðlegt að skoða þá miklu fram-
kvæmd sem jarðgöngin eru, en
jafnframt er ljóst að gríðarmikil
vinna er eftir við þau þar til
mannvirkið verður fullgert. Vel
sást móta fyrir því hvar gang-
amunninn verður að austanverðu í
Héðinsfirði en um 600 metrar
verða milli gangamunnanna.
Vinna við austari göngin í Héðins-
firði mun hefjast fljótlega og verð-
ur þá borað báðum megin frá.
Margir skoðuðu jarðgöngin
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
ATVINNUBÍLSTJÓRAR gerðu hlé
á mótmælum um helgina en buðu
þess í stað gestum sýningarinnar
Sumarið 2008 í Fífunni upp á góð-
gerðir. Þeir söfnuðu einnig undir-
skriftum þar sem fólk skrifaði und-
ir mótmæli gegn háum
eldsneytisgjöldum ríkisins. Safn-
aðist hátt á annað þúsund undir-
skrifta, að sögn Sturlu Jónssonar.
Bílstjórar hittust í gærkvöldi til
að skipuleggja frekari mótmælaað-
gerðir. Sturla vildi ekki upplýsa ná-
kvæmlega hverjar þær yrðu. „En
við ætlum ekki að vera í umferð-
inni,“ sagði Sturla.
Bílstjórarnir hafa opnað vef-
svæðið www.samtaka.net þar sem
eru upplýsingar um söfnunarreikn-
ing til að standa straum af mögu-
legum sektum, spjallkerfi og fleira.
Ætla ekki
að vera í
umferðinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veitingar Bílstjórar grilluðu pylsur og söfnuðu undirskriftum á Sumrinu 2008.
Atvinnubílstjórar hittust í gærkvöldi til að skipuleggja frekari mótmæli
GEIR H. Haarde
forsætisráðherra
sækir fund nor-
rænu forsætis-
ráðherranna um
alþjóðavæðingu
og áhrif hennar í í
Norður-Svíþjóð
dagana 8.–9. apr-
íl. Fundinn sækja
einnig Björgvin
G. Sigurðsson viðskiptaráðherra,
sem er staðgengill samstarfsráð-
herra Norðurlanda, starfsmenn og
tveir sérstakir gestir ráðherranefnd-
arinnar. Þeir eru ritstjóri Frétta-
blaðsins og aðstoðarframkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins. Alls
fara sjö héðan til fundarins.
Í frétt frá forsætisráðuneytinu
kemur fram að flugvél frá flugfélag-
inu Erni hafi verið leigð til fararinn-
ar og sparist með því 1-2 ferðadagar
á mann. Kostnaðarauki miðað við að
fljúga í áætlunarflugi er lauslega
áætlaður vera 800-900 þúsund krón-
ur, að sögn forsætisráðuneytisins.
Fljúga til
N-Svíþjóðar
Geir H. Haarde