Morgunblaðið - 07.04.2008, Page 10
10 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eins dauði annars brauð, vinur.
VEÐUR
Hvaða áhrif munu fordómar hafaá úrslit forsetakosninganna,
sem haldnar verða í Bandaríkj-
unum í nóvember? Ljóst er að fram-
bjóðandi demókrata verður annað
hvort blökkumað-
ur eða kona. Mun
það draga úr
möguleikum
þeirra í kosninga-
baráttu við hvítan
karlmann?
Nicholas D.Kristof,
dálkahöfundur hjá
The New York
Times, fjallar í
blaðinu um
helgina um hið
pólitíska hlutverk
undirmeðvitund-
arinnar í kosn-
ingabaráttunni
„því að yfirgnæf-
andi sannanir eru fyrir því að flest-
ir Bandaríkjamenn eru ómeðvitað
óvilhallir í garð bæði blökkumanna
og kvenna í forustuhlutverkum“.
Hann segir að við fyrstu sýn mætti
ætla að þetta yrði Barack Obama
frekar til trafala en Hillary Clinton.
Þróunarsálfræðingar líti svo á að
maðurinn sé forritaður til að vera
fullur tortryggni í garð fólks utan
síns hóps og þetta hafi verið til að
bjarga forfeðrum okkar hellisbúun-
um frá því að flaðra upp um óvin-
veitta ættbálka. Slík óvild í garð
kvenna sé ekki fyrir hendi.
Hins vegar bendi tilraunir til þessað auðveldara sé fyrir fólk að
yfirstíga fordóma í garð annarra
vegna kynþáttar, heldur en vegna
kyns: „Bandaríkjamenn hata ekki
konur, en sjá þær fyrir sér sem
hlýjar og vingjarnlegar og það
passar ekki við ímyndina af hörðum
og sterkum leiðtoga.“
Hann segir fólk þó geta unnið áfordómum sínum og staðal-
ímyndum og klykkir út með:
„Kannski verða áhrif þessara for-
setakosninga ekki aðeins mæld í
stefnubreytingum, heldur fram-
förum í dýpstu fylgsnum huga okk-
ar.“
STAKSTEINAR
Barack Obama
Kosningar og fordómar
Hillary Clinton
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
! !
!
"# $
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
! " #
$"%&'
*!
$$B *!
% & ' # & #
( )# *)
<2
<! <2
<! <2
% (#'
+
$,-").
D
$
<
( " ')
#
* '
+ ,)
,'
- ' "
.
* ' )*
/ '
$,' * '
' &'
62
( ' 0
)
'' * '
' #
!1)" + &'
0'"
/0)11
)#2 )")+
$
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Sigríður Aðalsteinsdóttir | 6. apríl 2008
Hrafn réðst á stúlku
Þrátt fyrir að hrafninn
hafi valdið mér bæði
sorg og skelfingu í lífinu
þá bar og ber ég engan
kala til hans. Hann olli
sorg því oftar einu sinni
á þeim tíma sem ég
dvaldist í sveitinni hafði hann náð að
plokka augun úr afvelta lömbum og
kindum á vorin, jafnvel náð að éta úr
þeim tunguna lifandi og hann olli
skelfingu því eitt sinn þegar ég var lítil
stúlka í sandkassa reyndi hann að
kroppa úr mér bláu augun.
Meira: siggaadalsteins.blog.is
Karl Tómasson | 6. apríl 2008
Böllin í Fégarði
Mér eru minnisstæð
böllin í Hlégarði sem
haldin voru reglulega og
stærstu hljómsveitir
landsins kepptust við
að fá að halda þar dans-
leik. Þá gekk Hlégarður
undir nafninu Fégarður hjá tónlist-
armönnunum því þeir fóru ekki tóm-
hentir þaðan, að því gátu þeir gengið
vísu. Mér eru böllin ekki minnisstæð
vegna þess að ég hafi verið á þeim,
ég var of ungur til þess þá, heldur var
það flöskutínslan utandyra.
Meira: ktomm.blog.is
Elfar Logi Hannesson | 6. apríl 2008
Meistari kveður
Charlton Heston var
einn af þessum ekta
stórleikurum Holly-
woodborgar. Leikari
sem yfirleitt valdi verk-
efni sín vel. Mörgum
minnisstæður fyrir Ben
Húr en fyrir þeim kómíska er það eink-
um myndin Apaplánetan sem stendur
upp úr. Sá hana á Beta-spólu í Birki-
hlíðinni á Bíldó og mikið fannst manni
til koma þetta var allt svo raunveru-
legt. Aparnir flottir og maður var alveg
að kaupa þetta.
Meira: komediuleikhusid.blog.is
Guðmundur Magnússon | 6. apríl 2008
Gafst upp á pexinu
Ég slökkti á Silfrinu áð-
an þegar þær vænu
konur, Álfheiður Inga-
dóttir og Þórunn Svein-
bjarnardóttir, voru bún-
ar að pexa um umhverf-
ismál í tíu mínútur.
Nennti þessu bara ekki.
Það besta við Silfrið er Egill. Ég
mundi horfa þótt hann væri án við-
mælenda. Kannski ætti hann að byrja
að blogga í beinni í Sjónvarpinu?
Formið á Silfrinu er orðið svolítið
þreytt að mér finnst. Egill ætti að
leggjast undir feld og hugsa upp nýtt
og frísklegra skipulag. Ég horfi oft á
bandarísku þættina Meet the Press
og Face the Nation (sæki þá á netið
og set í Ipod); kannski eru þar fyr-
irmyndir?
Svo finnst mér líklegt að Egill þurfi
meiri aðstoð. Í Ameríku eru tugir
manna þáttastjórnendum til aðstoðar
við upplýsingaöflun og grafíska fram-
setningu. Þótt hann fengi ekki nema
einn til tvo væri það áreiðanlega strax
til bóta.
Einhvern tíma fyrir löngu stakk ég
upp á því á bloggi að áhorfendur Silf-
ursins yrðu virkjaðir til þátttöku. Þeir
gætu til dæmis fengið að kjósa um
það heima í stofu hvort einhverjum
þátttakanda í stjórnmálaspjalli yrði
vísað á dyr. Þannig væri hægt að
stöðva margt pexið! Kannski ætti Eg-
ill að íhuga þetta?
Meira: gudmundurmagnusson.blog.is
BLOG.IS
Marta B. Helgadóttir | 6. apríl
Eins og Austur-Berlín
Í skýrslu skipulags- og
byggingarsviðs er sagt
að 37 hús standi auð í
miðborginni. Slökkvi-
liðsstjóri telur að alls
57 hús séu auð að öllu
leyti eða að hluta. Til
stendur að rífa 18 þess-
ara húsa. Þetta eru upplýsingar úr kol-
svartri greinargerð slökkviliðsstjóra
sem kynnt var fyrir borgarrráði 3.apríl.
Ástandinu má einna helst líkja við
Austur-Berlín fyrstu árin eftir að múrinn
féll (9. nóvember 1989). Vegna vöru-
skorts og efnahagsástandsins í gömlu
kommúnistaríkjunum var þar mikið af
gömlum og mjög vanræktum húsum.
Þau urðu á skömmum tíma húsaskjól
útigangsfólks og eiturlyfjaneytenda.
Meira: martasmarta.blog.is
Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
voru stofnuð um helgina. Hátt í
hundrað manns voru viðstaddir
stofnfundinn sem fór fram í Hömr-
um á Ísafirði að viðstöddum um-
hverfisráðherra, alþingismönnum
og sveitarstjórnarfólki.
Í ályktun fundarins er skorað á
stjórnvöld og forráðamenn sveit-
arstjórna á Vestfjörðum að standa
vörð um vestfirska náttúru með
hóflegri og skynsamlegri nýtingu
náttúrugæða, rannsóknum á vist-
kerfi og verndun náttúruverð-
mæta.
Samtökin hvetja til þess að tekið
verði fyllsta tillit til náttúrufars,
dýralífs, gróðurs og sjávarvist-
kerfa við stefnumótun og ákvarð-
anir um samgöngumannvirki, stór-
iðju, uppbyggingu í ferðaþjónustu
og önnur umsvif sem áhrif hafa á
umhverfi og landgæði. Þá leggja
samtökin til að ríkissjóður veiti
fjármuni til þess að stofna rann-
sóknastöðu í náttúru- og umhverf-
isfræðum.
Umhverfisráðhera flutti ávarp á
fundinum ásamt Árni Finnssyni,
formanni Náttúruverndarsamtaka
Íslands, og Ómari Ragnarssyni,
formanni Íslandshreyfingarinnar.
Bryndís Friðgeirsdóttir, fyrr-
verandi bæjarfulltrúi á Ísafirði,
var kosin formaður samtakanna. Í
stjórn með henni voru kosin í að-
alstjórn þau Ásta Þórisdóttir,
kennari á Hólmavík, Jóna Valgerð-
ur Kristjánsdóttir, fv. alþingismað-
ur, Reykhólum, Ragnheiður Há-
konardóttir, fv. bæjarfulltrúi, Ísa-
firði, Sigríður Ragnarsdóttir,
skólastjóri, Ísafirði, Víðir Hólm
Guðbjartsson, bóndi í Arnarfirði,
og Þórhallur Arason, verkefna-
stjóri á Þingeyri.
Í varastjórn voru kjörin þau
Guðrún Edda Gunnarsdóttir, sókn-
arprestur á Þingeyri, Jóna Bene-
diktsdóttir, bæjarfulltrúi á Ísa-
firði, Ólína Þorvarðardóttir,
verkefnastjóri á Ísafirði, og Ómar
Smári Kristinsson myndlistarmað-
ur, Ísafirði.
Staðinn verði
vörður um vest-
firska náttúru
Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
voru stofnuð um helgina