Morgunblaðið - 07.04.2008, Page 14
14 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LÖGREGLAN í London handtók í gær 35 menn sem
trufluðu hlaup með ólympíukyndilinn um götur borg-
arinnar. Um þúsund manns tóku þátt í mótmælum gegn
mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda, m.a. í
Tíbet, og einum þeirra tókst næstum að hrifsa kyndil-
inn af hlaupara. Farið var með kyndilinn um 48 kíló-
metra langa leið um borgina og lögreglan ákvað að
hann yrði fluttur með strætisvagni hluta leiðarinnar.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, fylgdist
með því þegar komið var með kyndilinn að Downing
Street 10 þótt hann hefði verið hvattur til að sniðganga
hlaupið. Hann hélt þó ekki á kyndlinum.
Lögreglumenn handtaka hér mann sem reyndi að ná
kyndlinum.
Reuters
Hlaup með ólympíukyndilinn truflað
Katmandu. AP, AFP. | Þetta var óvænt
sýn í landi þar sem fólk er orðið vant
óvæntum atburðum: Konungurinn
sat við stýri Mercedes Benz-bifreiðar
og ók konu sinni um fjölfarnar götur
Katmandu, höfuðborgar Nepals.
„Hann sat í framsætinu! Í umferð-
inni!“ sagði Krishna Chetri, 56 ára
kaupmaður í Katmandu. „Hvar er
hátignin? Ég hefði aldrei trúað
þessu.“
Útlit er fyrir að konungdæmið
Nepal verði senn lagt niður formlega
og þar með ljúki 269 ára valdatíma
Shah-konunga sem voru álitnir end-
urholgaðir hindúaguðir.
Nepalar ganga að kjörborði á
fimmtudaginn kemur til að kjósa
þing sem á að semja nýja stjórn-
arskrá með það að markmiði að
koma á nútímalegu lýðræði. Fyrsta
verkefni þingsins verður að afnema
konungsveldið formlega.
„Konungurinn hefur valdið of
miklum skaða. Hann hefur sýnt okk-
ur að við þurfum ekki konunga,“
sagði Krishna Prashad Sitaula, ráð-
herra og leiðtogi miðflokks sem tók
þátt í að semja um frið við uppreisn-
arhreyfingu maóista.
„Tákn Nepals“
Sumir Nepalar eru þó ekki vissir
um ágæti þess að afnema konungs-
veldið og óttast er að átök blossi upp
í tengslum við kosningarnar. Maó-
istar hafa sakað herinn um að und-
irbúa valdarán til að verja konung-
inn.
„Konungurinn missti stuðning
fólksins,“ sagði Ram Shresthra Pra-
sad, 42 ára prestur í hofi í Katmandu.
„En talið um veraldlegt lýðveldi er
heimskulegt. Konungar okkar sköp-
uðu Nepal. Þeir vernda hindúasið
okkar. Konungarnir eru tákn Nep-
als.“
Bráðabirgðaþing Nepals lýsti því
þó yfir í janúar að landið væri verald-
legt lýðveldi. Myndir af Gyanendra
konungi voru teknar af veggjum
verslana og peningum. Herinn er
ekki lengur „konunglegur“ og sömu
sögu er að segja um ríkisflugfélagið.
Ekki er lengur minnst á konunginn í
þjóðsöngnum.
Þetta eru ekki einu dæmin um
auðmýkingu Gyanendra konungs.
Hann hefur verið sviptur opinberum
fjárstyrk, sem nam sem svarar 230
milljónum króna á ári, tíu af höllum
konungsfjölskyldunnar og helmingi
lífvarða sinna, auk þess sem ríkið sér
ekki drottningunni lengur fyrir kjól-
um og snyrtum.
Gyanendra er þó ekki á flæðiskeri
staddur. Áður en hann varð kon-
ungur hafði hann getið sér orð fyrir
að vera séður kaupsýslumaður og
fjárfest í ferðaþjónustu-, te- og tób-
aksfyrirtækjum.
Um 49% hlynnt konungsveldi
Ráðgjafar og stuðningsmenn Gya-
nendra vonast til þess að óeining
stjórnmálaflokkanna verði til þess að
þeir nái ekki samkomulagi um að af-
nema konungsveldið og að konungs-
ættin endurheimti stuðning almenn-
ings. Skoðanakannanir hafa leitt í
ljós að því fer fjarri að þjóðin sé ein-
huga um að leggja konungdæmið
niður.
Könnun sem gerð var í janúar
bendir til þess að 49% Nepala séu
hlynnt því að konungdæmið haldi
velli og 12% hafa ekki gert upp hug
sinn. Hún leiddi á hinn bóginn í ljós
að Gyanendra nýtur lítils stuðnings.
Shah-ættin hefur verið við völd frá
árinu 1769 þegar fyrsti konungur
hennar sameinaði mörg konungsríki
og landsvæði í eitt nepalskt ríki.
Konungsfjölskyldan var sveipuð
mikilli dulúð til ársins 2001 þegar Bi-
rendra konungur, drottning hans og
fleiri í fjölskyldunni voru skotin til
bana. Talið er að þáverandi krón-
prins landsins hafi verið að verki.
Gyanendra, bróðir Birendra, varð þá
konungur.
Fjórum árum síðar vék hann rík-
isstjórn landsins frá, tók sér alræð-
isvald og hét því að binda enda á
u.þ.b. tíu ára uppreisn maóista sem
kostaði a.m.k. 13.000 manns lífið.
Konunginum mistókst þetta og vin-
sældir hans snarminnkuðu. Hann
neyddist að lokum til að koma á lýð-
ræði að nýju í apríl 2006 vegna
fjöldamótmæla. Skömmu síðar lögðu
maóistarnir niður vopn og á síðasta
ári náðu þeir samkomulagi við helstu
stjórnmálaflokka landsins um að
leggja niður konungdæmið.
Saka her Nepals um
að undirbúa valdarán
Kosið til þings sem
á að afnema 269
ára konungsveldi
AP
Kosningabarátta Prachanda, leiðtogi flokks maóista í Nepal, á at-
kvæðaveiðum í grennd við Katmandu í gær fyrir komandi þingkosningar.
STJÓRNARFLOKKURINN í Sim-
babve krafðist þess í gær að öll at-
kvæðin í forsetakosningum, sem
fram fóru fyrir rúmri viku, yrðu
talin aftur. Morgan Tsvangirai,
helsta forsetaefni stjórnarandstöð-
unnar, hafnaði kröfunni og sagði
hana fáránlega.
Daginn áður hafði Tsvangirai
lýst því yfir á blaðamannafundi í
Harare að hann hefði fengið rúm
50% atkvæðanna, eða nógu mörg til
að ná kjöri. Stjórnarflokkurinn
ZANU-PF svaraði þessu með því að
krefjast endurtalningar vegna
meintra kosningasvika.
Einn bandamanna Roberts Mu-
gabe forseta skýrði frá því að flokk-
ur Tsvangirais, Lýðræðishreyf-
ingin, hefði óskað eftir viðræðum
um myndun þjóðstjórnar en stjórn-
arflokkurinn hefði hafnað því þeg-
ar í stað. Mugabe, sem er 84 ára, og
flokkur hans hafa verið við völd í 28
ár, eða frá því að Simbabve fékk
sjálfstæði.
Flokkur Mugabes krefst þess
að atkvæðin verði talin aftur
Reuters
Hafnar endurtalningu Tsvangirai
á blaðamannafundi í Harare.
YFIRVÖLD í Texas fluttu 180 konur og börn af bú-
garði sértrúarsafnaðar um helgina vegna gruns um
kynferðisofbeldi á stúlkum og sifjaspell. Leiðtogi
safnaðarins, Warren Jeffs, var hnepptur í fangelsi í
fyrra eftir að hann var fundinn sekur um að hafa
neytt 14 ára stúlku í söfnuðinum til að giftast
frænda hennar.
Stúlkurnar sem fluttar voru af búgarðinum eru
frá sex mánaða til 17 ára. Sumar eru í umsjá yf-
irvalda, en aðrar fara á fósturheimili.
Jeffs bíður nú réttarhalda í Arizona, þar sem
hann er ákærður fyrir aðild að fjórum sifjaspells-
málum og kynferðisofbeldi á barni í tengslum við skipulögð hjónabönd.
Alls eru um 10.000 manns í söfnuðinum, búsettir í Arizona og Utah, auk
Texas.
Söfnuðurinn klofnaði frá Mormónakirkjunni fyrir rúmri öld. Sam-
kvæmt meginkenningunum sem söfnuðurinn fylgir þurfa karlar að taka
sér að minnsta kosti þrjár konur til að komast til himna.
Börn flutt af búgarði í Texas
vegna gruns um kynferðisofbeldi
Burt Konur og börn
flutt úr búgarðinum.
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseta og Vladímír Pútín Rúss-
landsforseta tókst ekki að leysa
deilu sína um fyrirhugað eld-
flaugavarnakerfi Bandaríkja-
manna í Evrópu á fundi sínum í
rússneska bænum Sochi við Svarta-
haf í gær. Þeir sögðu þó að löndin
myndu eiga náið samstarf sín á
milli þegar fram liðu stundir um
eldflaugavarnir og önnur erfið mál.
Þetta var síðasti fundur þeirra áður
en Pútín lætur af embætti 7. maí.
Þeir lögðu áherslu á að samstarf
þeirra hefði verið gott síðustu sjö
ár og hrósuðu hvor öðrum óspart
þótt þeir viðurkenndu að þeir
deildu enn um eldflaugavarnir og
stækkun Atlantshafsbandalagsins.
Reuters
Kveðjufundur Pútín og Bush tak-
ast í hendur eftir fund þeirra í gær.
Tókst ekki að
leysa deiluna
CHERIE Blair, eiginkona forsætisráðherrans fyrrver-
andi, hyggst höfða mál gegn blaðinu News of the World
vegna fréttar um að hún eigi í „leynilegum illdeilum“ við
Söru Brown, eiginkonu Gordons Browns, forsætisráð-
herra Bretlands. Cherie Blair krefst þess að blaðið biðji
hana afsökunar og greiði henni miskabætur vegna
fréttar með fyrirsögninni „Þögult stríð: Leynilegar ill-
deilur Cherie við Söru forsætisráðherrans“.
Forsætisráðherrafrúin fyrrverandi hefur falið lög-
mannastofunni Atkins í London að höfða mál gegn News
of the World. Atkins hefur nokkrum sinnum áður unnið
fyrir Blair-hjónin, til að mynda þegar blaðaútgáfan Associated Newspap-
ers féllst á að greiða þeim „verulegar miskabætur“ í nóvember síðast-
liðnum fyrir að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífsins.
Cherie Blair lögsækir blað
Cherie Blair
CLINTON-hjónin voru skuldug
þegar Bill Clinton lét af embætti
forseta en tekjur þeirra á árunum
2000-2007 námu 109 milljónum
dollara, sem svarar rúmum átta
milljörðum króna. Ræðuhöld Bills
Clintons víða um heim gáfu af sér
tæpan helming teknanna, eða sem
svarar um 3,8 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í skatt-
skýrslum sem Clinton-hjónin hafa
gert opinberar. Þau greiddu sem
svarar tæpum 2,5 milljörðum króna
í skatta og gáfu jafnvirði 750 millj-
óna króna til góðgerðastarfsemi.
Þau eru nú á meðal 14.500 auð-
ugustu fjölskyldna Bandaríkjanna.
Tekjur Baracks Obama og eig-
inkonu hans námu tæpri milljón
dollara, sem svarar 75 milljónum
króna, árið 2006.
Clinton talaði fyrir
3,8 milljarða
FILIP Vujanovic, forseti Svart-
fjallalands, lýsti í gær yfir sigri í
fyrstu forsetakosningunum í land-
inu frá því að það sleit sambandinu
við Serbíu. Vujanovic var spáð rúm-
um 52% atkvæða.
Vujanovic sigraði
STUTT