Morgunblaðið - 07.04.2008, Síða 17
|mánudagur|7. 4. 2008| mbl.is
daglegtlíf
og njóta náttúrufeg-
urðar Djúpavogs og ná-
grennis, eins af áhuga-
verðustu fugla- og
náttúruskoðunar-
svæðum landsins.
Víkverji fór í
ógleymanlega göngu-
ferð um Djúpavog til að
skoða þar fugla við
tjarnir og blár fyrir
tveimur árum. Hann
langar til að fara þang-
að aftur og skoða líka
Álftafjörð, Hamars-
fjörð og Papey sem eru
á alþjóðlegum skrám
yfir mikilvæg fugla-
svæði.
Fuglalíf er mjög fjölbreytt í
Djúpavogshreppi, einkum við
ströndina. Alls hafa 58 tegundir
fugla orpið í hreppnum og þar af eru
um fimmtíu þeirra árvissar, að því er
fram kemur í grein í tímaritinu Blika
eftir Kristinn Hauk Skarphéðinsson,
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Mikið af íslenskum varpfuglum fer
um svæðið vor og haust og leirurnar
við sunnanverðan Álftafjörð eru
einn mikilvægasti viðkomustaður
jaðrakana hér á landi á vorin. Í Pap-
ey er til að mynda eitt af stærstu
teistuvörpum á landinu.
x x x
Í Papey og nálægum Hólmum erlíka ein af stærstu lundabyggð-
um landsins. Reyndar má geta þess
að Sturla Friðriksson hefur varpað
fram þeirri tilgátu að nafn Papeyjar
sé dregið af lunda en ekki af írsku
einsetumönnunum (sjá Árbók hins
íslenska fornleifafélags 1982 og 59.
hefti Skjaldar, tímarits um menning-
armál).
Sturla segir að norrænir menn
hafi uppnefnt lunda eftir írsku
munkunum, sem nefndust Papar og
þeir hittu á Írlandi og úteyjum Skot-
lands. Lundinn þótti líkjast pöpum í
útliti og háttum. Sagt var að papar
byggju stundum í torfkofum í út-
eyjum og þóttu minna helst á lunda
koma út úr moldarholunum.
Sturla bendir einnig á að við köll-
um núna lundann prest eða prófast.
Færeyingar kalla hann prest, Skot-
ar Priest og í Cornwall-héraði er
hann nefndur pope. Danir kalla
lunda søpapagøje og Þjóðverjar
Papegeitaucher, eða „sæpáfagauk“
og „páfagaukskafara“. Sturla telur
því líklegt að lundinn hafi verið
nefndur papagaukur eða aðeins papi
í fornu máli.
Víkverji dagsins erorðinn langeygur
eftir vorinu sem verður
að öllum líkindum ein-
dæma gott í ár. Hann
iðar í skinninu af til-
hlökkun til gönguferða
um nágrenni Reykja-
víkur til að fylgjast
með því hvernig nátt-
úran lifnar við, hlusta á
spóa vella í holti og lóu
bía í móa, og fylgjast
með tilhugalífi
fuglanna.
Reyndar sárlangar
Víkverja líka að kom-
ast á landsmót fugla-
skoðara sem verður
haldið á Djúpavogi dagana 9.-11.
maí. Hann hvetur alla fugla-
áhugamenn til að mæta á landsmótið
| vikverji@mbl.is
ardrátt? Og er eðlilegt að andremma
sé af nokkurra mánaða gömlum kett-
lingum?
„Það er fjölmargt sem getur valdið
andremmu hjá hundum og köttum,
en tannsteinn er þar helsti sökudólg-
ur og hann getur komið í dýrin á öll-
um aldri. Þetta fer eftir samsetningu
munnvatns í hverju dýri, rétt eins og
hjá fólki. Flóran er ekki eins hjá öll-
um. Tannskipti ungra katta geta
þannig haft þau áhrif að and-
ardráttur sé illa lyktandi. Slæmur
andardráttur getur sömuleiðis verið
tengdur mataræðinu, þá getur þetta
verið loft sem er að koma upp úr
maganum.“
Anna segir erfitt að mæla með ein-
hverri einni fæðutegund við slíkum
vanda þar sem hann sé svo ein-
staklingsbundinn. „Ein matartegund
hefur neikvæð áhrif á andardrátt hjá
einum ketti eða hundi en ekki hjá
öðrum. Það er engu að síður mjög
gott fyrir gæludýraeigendur að þrífa
tennur dýranna – ekki með tann-
bursta – heldur með rökum klút sem
strokið er yfir tennurnar daglega.
Þessu þarf að byrja á þegar dýrin eru
mjög ung, annars geta þau verið því
mjög mótfallin.“
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Nú fer í hönd sá árstími þegarhundar og kettir fara úrhárum en það gerist einnig á
haustin eins og þeir sem eiga slíkar
skepnur vita af eigin raun. Einnig fer
starraflóin af stað á vorin og gælu-
dýrin geta borið hana inn í mannabú-
staði. En er eitthvað hægt að gera til
að forða köttum og hundum frá
flónni? Og hvað með hárlosið, er
hægt að flýta því eða draga úr? Síðan
er það lyktin af gæludýrunum, hún
getur einnig verið misgóð.
Anna Jóhannesdóttir dýralæknir
hjá Dýralæknastofu Dagfinns varð
fyrir svörum.
„Það er mjög gott að kemba eða
bursta hunda og ketti þegar þeir eru
að fara úr hárum, til að flýta fyrir los-
un háranna. Fóðrið skiptir miklu máli
upp á það hversu mikið hárlosið er,
fyrir nú utan gerð felds á hverju dýri
fyrir sig. Það skiptir máli að fóðrið
innihaldi lífsnauðsynlegar ómega 3
og 6 fitusýrur, því þessar fitusýrur
hafa mjög góð áhrif á húð og feld.“
Sjálf kveðst hún mæla með að dýr-
in fái slíkar fitusýrur allan ársins
hring, en þær er hægt að finna í lýsi
og í töfluformi, sem og í fjölda fóð-
urtegunda. „Einnig eru til olíur sem
eru bornar beint á feldinn sem inni-
halda þessar fitusýrur og það hefur
gefið góða raun. Sum dýr þurfa meira
á því að halda en önnur og sum alls
ekki. Þetta er mjög einstaklings-
bundið.“
Hormónasjúkdómar og ofnæmi
En hvers vegna lyktar feldurinn á
sumum hundum illa? Af hverju stafar
þessi svokallaða hundalykt sem er
mismikil?
„Vandamál þurfa ekki að valda
hundalyktinni, en stundum er eitt-
hvað að og þá geta margvísleg vanda-
mál legið þar að baki. Ýmsir sjúk-
dómar geta valdið þessu, til dæmis
hormónasjúkdómar. Svo er líka mis-
jafnt eftir hundum hvaða bakteríur
lifa á húð þeirra. Lykt getur líka ver-
ið vegna húðsýkingar eða sveppasýk-
ingar og stundum er hún eingöngu á
milli þófanna á þeim. Ofnæmi getur
einnig verið ástæða mikillar lyktar.
Séu endaþarmskirtlarnir til dæmis
stíflaðir þá getur það valdið vondri
lykt, sérstaklega ef upp kemur sýk-
ing, en dýralæknir getur séð um að
tæma þessa kirtla. Svo er bara meiri
lykt af sumum hundum en öðrum og
ekkert hægt við því að gera. Vissu-
lega er hægt að þvo hundum reglu-
lega með hundasjampói, en það má
ekki gera of oft því húðin þurrkast
mikið við það. Ómega 3 og 6 fitusýr-
urnar, sem ég minntist á áðan, geta
líka hjálpað til við að halda niðri
hundalykt.“
Strjúka tennur með rökum klút
En hvers vegna eru sumir hundar
og kettir með illa lyktandi and-
Þrettán ára köttur
með engan tannstein
Tannstein segir Anna hins vegar
vera nokkuð sem dýralæknir þarf að
hreinsa og það sé nauðsynleg aðgerð,
því upp geta komið ýmsir tannsjúk-
dómar og vandamál fái tannsteinninn
að grassera í friði. „Tannsteins-
myndun er mjög einstaklingsbundin,
og ég hef fengið til mín þrettán ára
ketti sem eru ekki með neinn tann-
stein og hafa aldrei farið í hreinsun.
Ég hef líka fengið til mín eins árs
ketti sem eru byrjaðir að mynda
tannstein. Fyrir flesta ketti og hunda
er gott að láta hreinsa tannstein á
tveggja til þriggja ára fresti. Það er
misjafnt hvenær þarf að byrja á því,
en dýralæknir getur metið slíkt.“
Flóaólar og flóaúði
Er ungar starrans koma úr eggi á
vorin getur starraflóin borist víða.
Þeir kettir sem eru mikið úti geta þá
fengið flóna í feld sinn og borið inn í
heimilið,t.d. í rúm mannfólksins, en
þar getur hún lifað stutta stund.
„Flóaólar eru til fyrir kisurnar, en í
þeim er efni sem drepur flærnar.
Eins er til flóaúði sem notaður er á
feld kattarins eftir að vart hefur orðið
við fló. Úðann má líka nota í rúm eða
á þá staði sem fólk heldur að kött-
urinn hafi skilið eftir sig fló.“
Starrafló og hárlos á vorin
Reuters
Vel lyktandi? Þó að væntumþykjan í garð þessa besta vinar mannsins geti verið mikil er lyktin ekki í öllum tilfellum góð.
www.dagfinnur.is
Það skiptir máli að fóðrið
innihaldi lífsnauðsynlegar
ómega 3 og 6 fitusýrur, því
þessar fitusýrur hafa mjög
góð áhrif á húð og feld.
EINUNGIS það að innbyrða eina
reykta pulsu og um þrjár beikon-
sneiðar yfir daginn getur aukið um
fimmtung hættuna á að fólk þrói
með sér ristilkrabbamein. Berl-
ingske Tidende vísaði nýlega í
rannsókn þessa efnis sem breska
sjónvarpsfréttastöðin Sky News
sagði frá.
Alþjóðakrabbameinsrannsókna-
sjóðurinn (WCRF) beinir sjónum
sínum að mögulegu heilsutjóni sem
skapast af því að borða reglulega
unna kjötvöru.
Martin Wiseman, prófessor og
ráðgjafi WCRF, segir vísindamenn
hafa fundið augljós tengsl unnins
kjöts við krabbamein. Hann skil-
greinir unna kjötvöru sem reykt
kjöt, niðursoðið eða saltað, sem
sagt vöru eins og skinku, beikon og
ýmiss konar pulsur. Hamborgarar
og nautahakk falla ekki undir skil-
greininguna nema ef varan er sölt-
uð eða inniheldur kemísk aukaefni.
Minna en 500 g
af rauðu kjöti
„Við höfum aldrei verið eins
sannfærðir um þessa hættu af unn-
inni kjötvöru og því ráðleggur
WCRF fólki að forðast þessa mat-
vöru,“ segir Wiseman.
Rannsókn sjóðsins frá því í októ-
ber í fyrra varaði að sama skapi við
því að rautt kjöt og unnin kjötvara
gæti aukið líkurnar á rist-
ilkrabbameini og ráðlagði fólki að
borða minna en 500 g af rauðu kjöti
yfir vikuna og forðast unna kjöt-
vöru með öllu.
Unnin kjöt-
vara eykur
hættu á
ristilkrabba
Morgunblaðið/Sverrir
Allt er best hófi Unnin kjötvara er
eitur í beinum Alþjóðakrabba-
meinsrannsóknasjóðsins.