Morgunblaðið - 07.04.2008, Page 28
28 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Hvolpar til sölu, Ungverskur
Vizsla. Vizsla er frábær veiði- og
fjölskylduhundur. Ættbók frá HRFÍ,
örmerktir og bólusettir. Verð 160.000
kr. Upplýsingar í s. 6920279/6915034
vizsla.blog.is
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins 6
mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega
auðveldur. Dóra 869-2024
www.dietkur.is
Húsnæði í boði
Iðnaðarhúsnæði til leigu við
Eldshöfða 9. Til leigu er iðnaðar/
lagerhúsnæði við Eldshöfða 9. Um er
að ræða 600 fm rými með skrifstofu-
aðstöðu og salerni. Tvær innkeyrslu-
hurðir eru á húsnæðinu sem er í góðu
ástandi. Verð 1200 kr/fm á mánuði.
Frekari upplýsingar í síma 567 6700
eða hjá sigridurth@vakabilar.is
Sumarhús
Tvær sumarhúsalóðir til sölu
í Grímsnesi, eignalóðir, mjög góður
staður og mikið útsýni.
Upplýsingar í síma 692 3430.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tölvur
Er tölvan biluð?
Alhliða tölvuþjónusta á góðu verði.
Tek að mér allar tölvuviðgerðir og
ísetningar, 8 ára reynsla. Kem í
heimahús ef óskað er. Tímapantanir í
síma 868-0899.
Til sölu
Vandaðar gjafavörur í miklu
úrvali.
Slóvak kristall, Dalvegi 16 b,
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval. Frábært verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
Vantar skráða kerru
Óska eftir illa farinni kerru, verður að
vera ódýr. Uppl. í síma 8418430.
Þjónusta
www.hvarertu.is
Á fólk í erfiðleikum með að finna þig
á netinu? Fólk mætir á röngum tíma
því það finnur ekki réttu aðkomuna
að húsinu? Eða vantar þig heima-
síðu? farðu inn á www.hvarertu.is
SMIÐUR
Vantar þig smið til ýmissa verka?
úti sem inni, í parket, flísalagnir,
girðingar, sólpalla, eldhúsinn-
réttingar o.m.fl.
Upplýsingar í síma 895 6007.
Myndatökur fyrir alla
fjölskylduna
Skilríkismyndatökur - Myndir á
nafnspjöld - Nafnspjaldagerð -
Hönnun - Útprentun - Endurnýjum
gamlar myndir. LGI ljósmyndir ,
Suðurveri, Stigahlíð 45, s. 553 4852.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
580 7820
Innrömmun
strigaprentun
Teg. Darcey - flottur og sumarlegur í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.995,-
Teg. Iona - mjúkur og yndislegur,
styður samt vel í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.995,-
Teg. Saskia - mjög sérstakur og
smart í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
6.990,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Veiði
Veiðferðir til S-Grænlands
í sumar. Stangveiði, sauðnaut og
hreindýr. Leitið upplýsinga
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar ehf.
S.: 511 1515
www.gjtravel.is
Bílar
Nissan Terrano II 32.000 km.
Til sölu Nissan Terrano II 2,7 disel
árg. 2004 ekinn aðeins 32.000 km.
Staðgreiðsluverð aðeins kr.
2.500.000. Uppl. í síma 895 5608.
Isuzu árg. '94 ek. 108.000 km
Árg. 1994, á götuna 1996. Ekinn
108þ. km. Bsk. Góður bíll. Tilboð
óskast. fridaruner@hotmail.com
Audi A4 Quattro árg.´07
á GAMLA GENGINU!!
Audi A4 2.0 Turbo Quattro árg.´07
ek.18 þús., 250 hestöfl, leður,
sóllúga, sjálfskiptur. 4WD. Eyðsla 8-
12L /100 km. V/4290 þús. Tilb. 3900
þús.stgr. Áhv. 3500 þús. S. 821-4068.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
Bifhjólakennsla.
822 4166.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Atvinnuhúsnæði óskast.
Húsnæðiðið þarf að rúma einn til
þrjá bíla.ætlumin er að nota það
til filmu ísetíga öruggar greiðslur,
banka ábyrð ef með þarf
upplýsingar í síma 662-5844 eða
sendið skila boð á bv@vortex.is
Atvinnuhúsnæði
Vandaðar gjafavörur í miklu
úrvali.
l i t ll l i 16
Kópavogi, s. 544 4331.
MINNINGAR
✝ Guðbjörg Valde-marsdóttir
fæddist á Dalvík 25.
desember 1926. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Hlíð á Akureyri
20. mars síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Árný Ingi-
björg Guðjónsdóttir,
f. 28. janúar 1892, d.
21. apríl 1968, og
Valdemar Krist-
jánsson, f. 27. sept-
ember 1892, d. 6.
maí 1983. Systkini
Guðbjargar eru fimm; Ríkharður,
f. 1916, d. 1975, Ingibjörg, f. 1918,
d. 1995, Snjólaug, f. 1922, d. 1995,
Guðjón, f. 1924, og Sverrir Björg-
vin, f. 1932.
Guðbjörg giftist 27. apríl 1952
Valdimari Jónssyni frá Hallgils-
stöðum, f. 27. ágúst 1916, d. 3. júní
1992, og bjuggu þau lengst af í
Þórunnarstræti 103
á Akureyri. Sonur
þeirra er Valdimar,
f. 9. nóvember 1951,
kvæntur Helgu Ing-
ólfsdóttur, f. 1953.
Börn þeirra eru: 1)
Ingólfur Ómar, f.
1972, maki Sigríður
Guðmundsdóttir, f.
1975, börn þeirra
eru Benedikt Sölvi
og Álfhildur Helga;
2) Valdimar Geir, f.
1979, maki Guðrún
Elva Lárusdóttir, f.
1980, dætur þeirra eru Birgitta
Ösp og Rebekka Rut; 3) Guðbjörg
Harpa, f. 1984, maki Gunnar Þór
Stefánsson, f. 1984, sonur þeirra er
Þórir Kató, og 4) Björgvin Helgi, f.
1987, maki Valey Sara, f. 1987.
Guðbjörg verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Það var erfitt að heyra að það væri
komið að því að kveðja ömmu Guggu.
Þó svo að maður vissi að kveðjustund-
in myndi brátt renna upp þá er alltaf
sárt að kveðja þá sem maður elskar.
Það má með sanni segja að góð
amma er gulli betri og ég var svo
heppin að eiga að slíka ömmu.
Amma Gugga var góð kona sem öll-
um þótti vænt um, glæsileg kona sem
hafði húmorinn í lagi og fannst fátt
skemmtilegra en að vera í kringum
fólkið sitt, segja sögur og hafa gaman.
Sögurnar eru ófáar sem ég hef fengið
að heyra frá ömmu, sögur af Dalvík
síðan hún var lítil stelpa, sögur af leik-
árum sínum, sögur af afa þegar hann
flutti kókið til Akureyrar fyrstur allra,
sögur af pabba þegar hann fæddist og
sögur af eldri bræðrum mínum og
strákapörum þeirra. Hún kunni sann-
arlega að segja frá og oftar en ekki var
eins og maður væri staddur inni í
miðju sögusviði að fylgjast með, svo
frábær var frásagnareiginleiki hennar.
Amma hugsaði vel um sig, hún var
ávallt fín til fara, með varalit og spreyj-
að hár jafnvel þó hún væri bara í hjó-
latúr með okkur barnabörnunum sem
við fórum svo oft í og enduðum oftast í
búðinni að kaupa ísblóm með jarðar-
berjsultu og ískexi. Eitt sinn á fögrum
sumardegi tók hún sig til og hjólaði frá
Akureyri og alla leið til Dalvíkur til að
heimsækja systur sínar þar, og enn í
dag segi ég voða stolt söguna af ömmu
minni sem hjólaði til Dalvíkur komin
langt á sextugsaldur.
Nú falla tár. Þér fagnið þá
er finnast vinir himnum á
og samvist hefst í sælubyggð
þá sorg mun gleymd og dauðans hryggð.
Svo krjúpið hljóð við kisturnar
og kveðjið þá er blunda þar
og flytjið kvöldbæn hægt og hljótt.
Af hjarta segið: GÓÐA NÓTT.
(Valdimar V. Snævarr.)
Elsku amma, ég kveð þig með
söknuði og þakka þér fyrir yndisleg
ár. Guð blessi minningu þína.
Guðbjörg Harpa
Elsku Gugga.
Komið er að kveðjustund.
Mín fyrsta minnig um þig er sú að
ég ásamt foreldrum mínum var hjá
ykkur í Þórunnarstrætinu tímabund-
ið, þegar við vorum að flytja úr Mos-
fellssveitinni til Dalvíkur. Þú vildir
létta undir með mömmu og greiddir
mér. Settir hárið í gosbrunn. Ég var
alls ekki sátt við þetta. Í minningunni
fannst mér þetta ekki rétt gert hjá
þér, mamma væri sú eina sem gerði
þetta rétt og reif ég því úr mér gos-
brunninn. Þú varðst aldeilis hissa á
krakkanum.
Ég man þegar þú komst að tali við
mig u.þ.b. tveimur árum seinna eða
þegar ég var sjö ára og spurðir mig
hvort ég vildi ekki koma og búa hjá
þér, þú ættir enga stelpu og þig lang-
aði svo að hafa stelpu hjá þér. Þér
tókst einstaklega vel upp. Þú varst
ekkert að beina athyglinni að veikind-
um mömmu minnar sem voru auðvit-
að ástæða þess að þú tókst mig að þér,
heldur snerir þú þessu upp í það að
þig langaði svo að hafa stelpu á heim-
ilinu. Ég náttúrlega féll fyrir þér og
bjó svo hjá þér næstu tvö árin og má
segja að þann tíma hafir þú gengið
mér í móðurstað.
Mér leið vel hjá þér. Það var gott að
búa í Þórunnarstrætinu. Þú varst mér
mjög góð og styðjandi.
Þú tókst vel og skynsamlega á mál-
um sem upp komu. Ég minnist ekki
annars en að skynsamlega hafi verið
tekið á málunum þegar ég ásamt vin-
konum mínum kveikti í skúr sem stóð
norðan við húsið. Þetta var mikið bál
og sjálfsagt megum við gerendurnir
þakka fyrir að hafa sloppið með
skrekkinn. Ég man ekki einu sinni
eftir því að hafa verið skömmuð.
Svo varð ég fullorðin og kynntist
þér á fullorðinsgrundvelli. Þá kynnt-
ist ég því hvað þú varst skemmtileg.
Alltaf til í grín og glens. Þú gast nú
hermt eftir fólki og gerðum við það
stundum saman og hlógum ógurlega
mikið.
Í huga mínum varstu einhvern veg-
inn alltaf vafin dýrðarljóma.
Þú varst ein af hetjum hversdags-
ins. Vannst ýmis störf. Þú varst hót-
elhaldari í eina tíð og svo sinntir þú
ýmsum verkakvennastörfum.
Þú varst Gugga frænka á hjólinu,
þú varst eiginkona, mamma, amma og
svo varstu langamma. Síðast en ekki
síst varstu æðsta frænka.
Fyrir nokkrum árum fór að bera á
sjúkdómi hjá þér sem þú óttaðist
mest af öllu að fá. Smám saman týnd-
ist persónuleiki þinn og þú hættir að
þekkja okkur. Þú sjálf hvarfst á vit
sjúkdómsins. Það var mjög erfitt að
horfa upp á þig hverfa frá sjálfri þér.
Þegar svona var komið gat ég ekki
annað en verið forsjóninni þakklát
fyrir það að þú fékkst að yfirgefa
þetta jarðlíf.
Tár þín voru bros
er eitt sinn sneru mót sól
en þéttust í kuli
þau verði þér
perlur um háls
svo þú farir ekki að eilífu
á mis við skart
(Þóra Jónsdóttir)
Elsku Valdi, Helga og afkomendur.
Þið eigið mína dýpstu samúð. Horfin
er á vit feðra sinna frábær kona. Megi
almættið vaka yfir ykkur.
Elsku Gugga, þakka þér fyrir allt.
Þakka þér fyrir að ganga mér í móð-
urstað, þakka þér fyrir að vera æðsta
frænka, þakka þér að fyrir að vera ein
af skemmtilegu frænkunum mínum. Í
hjarta mínu geymi ég myndir af þér.
Bróðurdóttir þín,
Margrét I. Ríkarðsdóttir (hún
Magga hans Rikka).
Guðbjörg Valdemarsdóttir