Morgunblaðið - 07.04.2008, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 29
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-
16.30, boccia kl. 10, félagsvist
kl.13.30-15.30
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16,
opin handavinnu- og smiðastofa kl. 9-
16, söngstund kl. 10.30, félagsvist kl.
13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, lífsorkuleikfimi, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður,
bútasaumur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-12, leiðb. Halldóra,
Leikfimi kl. 10, leiðb. Guðný Helga-
dóttir. Myndlistarnámskeið kl. 13-16,
leiðb. Hafdís og bridge kl. 14.
Fella- og Hólakirkja | Árlegi kaffidag-
ur Dýrfirðingafélagsins í Reykjavík
verður í kirkjunni 13. apríl og hefst
með guðsþjónustu kl. 14 og kaffisölu
að lokinni messu. Dýrfirðingar og vel-
unnarar fjölmennum.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin kl.
10-11.30, sími 554-1226. Félagsvist í
Gullsmára kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línu-
danskennsla kl. 18, samkvæmisdans
byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Gler- og
postulínsmálun kl. 9.30 og 13, handa-
vinnustofan opin, lomber og canasta
kl. 13.15, kóræfing kl. 17 og skapandi
skrif kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 11.40, hádeg-
isverður, brids og handavinna kl. 13,
Félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45, 10.30, karlaleikfimi kl. 9.30,
boccia kl. 10.30, gönguhópur kl. 11,
glerskurður kl. 13, bæjarferð FEBG og
FEG kl. 13 frá Jónshúsi og 13.15 frá
Garðabergi.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, m.a. tréút-
skurður og handavinna, sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50.
Frá hádegi spilasalur opinn, kóræfing
kl. 14.20. Á morgun kl. 10.30 er létt
ganga um nágrennið. Uppl. á staðn-
um, s. 575-7720 og wwwgerduberg-
.is
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga
og handmennt – gler kl. 10, Gafl-
arakórinn kl. 10.30, handmennt – gler
kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16 hjá Sigrúnu, kortagerð,
handstúkuprjón o.fl. Jóga kl. 9-11, Sól-
ey Erla, hádegisverður. Spilað kl. 13-
16.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Listasmiðjan opin. Fé-
lagsvist, skapandi skrif, Bör Börsson,
Müllersæfingar, brids, þegar amma
var ung, leikfimi, sönghópur Hjördísar
Geirs, Stefánsganga o.fl. Bókmennta-
ferð til Akureyrar 14.-16. maí. Uppl.
568-3132.
Langahlíð 3 félagsmiðstöð | Vitaa-
torgsbandið leikur kl. 3.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús-
inu kl. 9.30-11.30. Uppl. í síma 554-
2780.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
þriðjudag, er sundleikfimi í Graf-
arvogssundlaug kl. 9.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofa og vinnu-
stofa í handmennt opnar kl. 9-16,
boccia kl. 10, gleðistund með Helgu
Björk kl. 14. Nýtt símanúmer á skrif-
stofu 411-2760. Hárgreiðslustofa Erlu
Sandholt, sími 588-1288.
Sjálfsbjörg | Brids kl. 19 í félagheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12.
Sléttuvegur 11, félagsmiðstöð | Fé-
lagsvist kl. 13.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16,
handavinna kl. 9.15-15.30, boccia kl.
11, leikfimi kl. 11.45, hádegisverður,
kóræfing kl. 14.30, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, bókband, morgunstund kl.
9.30, boccia kl. 10, upplestur kl.
12.30, handavinnustofan opin allan
daginn, söngur kl. 10.30, spilað kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn kl.
13, leikfimi kl. 13.15, boccia kl. 14, kaffi-
veitingar. Félagsráðgjafi kl. 10.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára
kl. 17-18 í Grafarvogskirkju og Húsa-
skóla. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í
8.-10. bekk kl. 20 í Grafarvogskirkju.
Laugarneskirkja | Kvenfélag Laug-
arneskirkju heldur fund kl. 20. Allar
konur velkomnar.
dagbók
Í dag er mánudagur 7. apríl, 98. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, að eigi verði það kunnugt og komi í ljós. (Lk. 8, 17.)
Samband íslenskra náms-manna erlendis stendurfyrir hádegismálstofu áfimmtudag undir yfirskrift-
inni Áhrif gengisþróunar á kjör ís-
lenskra námsmanna erlendis – Er ís-
lenska krónan baggi á
námsmönnum?
Garðar Stefánsson er fram-
kvæmdastjóri SÍNE: „Með málstof-
unni viljum við vekja athygli á þeim
miklu áhrifum sem sveiflur í gengi
krónunnar geta haft á hagi íslenskra
námsmanna erlendis,“ segir Garðar.
„Á miðvikudag heyrum við m.a.
reynslusögur námsmanna, fáum til
okkar sérfræðing frá greining-
ardeild Landsbankans, og kynnum
ályktun frá stjórn SÍNE.“
Meira út, minna inn
Samkvæmt reglum Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna fá þeir sem
stunda nám sitt erlendis greitt fram-
færslulán sem reiknað er í erlendri
mynt: „Upphæðir lánanna eru
ákvarðaðar af LÍN hvert sumar, en
lánin greidd út í lok hverrar annar,“
útskýrir Garðar. „Áður en lán eru
greidd út eru námsmenn langflestir
að framfleyta sér með framfærslu-
yfirdráttarlánum í íslenskum krón-
um sem fást hjá bönkunum gegn
lánsloforði frá LÍN. Í þeim miklu
sveiflum sem eru á gengi krónunnar
getur það gerst að kostnaður náms-
manna, vegna framfærslu, sé mun
hærri yfir námstímann og dugi ekki
fyrir útborguðum námslánum. Ef
krónan er veik yfir önnina, en styrk-
ist í lok annar, getur gengis-
munurinn valdið því að munar tug-
um prósenta á milli útborgaðra lána
og áætlaðs framfærslukostnaðar.“
Ekki á bætandi
Meðal þeirra leiða sem dregið
geta úr gengiskostnaði námsmanna
nefnir Garðar þann möguleika að
námslán séu greidd mánaðarlega,
eins og þekkist á öðrum Norð-
urlöndum: „Mikilvægt er að lán
námsmanna erlendis skerðist ekki
frekar vegna gengissveiflna. Er ekki
frekari skerðingu á bætandi, enda
framfærslulán mjög vanáætluð í
flestum námslöndum“ segir Garðar.
Málstofan, sem hefst kl 12, verður
í Norræna Hhúsinu og er öllum opin.
Heimasíða Samtaka íslenskra náms-
manna erlendis er á slóðinni www.si-
ne.is
Menntun | Hádegismálstofa SÍNE á miðvikudag í Norræna húsinu
Námsmenn og gengissveiflur
Garðar Stef-
ánsson fæddist í
Reykjavík 1984.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Verslunarskóla
Íslands 2004,
lýðháskólaprófi
frá Grundtvigs
Højskole í Hill-
erød 2005 og stundar nú B.S. nám í
hagfræði við HÍ. Garðar var vara-
formaður stúdentaráðs HÍ 2007-8,
hefur átt sæti í stjórn Lánasjóðsins
fyrir hönd SHÍ, varamaður 2006-7
og aðalmaður 2007-8. Hann er nú
starfandi framkvæmdastjóri SÍNE.
KUNNAR eru sögur af engisprettuplágum, sem eyða öllum grænum gróðri og skilja landið eftir í auðn. Slík plága
herjar nú á landbúnaðarhéruð í Tajikistan, skammt frá höfuðborginni, Dushanbe. Hér úða menn eitri á ófögnuðinn.
Eitrað fyrir engisprettur
Reuters
Í 20 ár var Guðrún
formaður Skógræktar-
félags Mosfellsbæjar.
Hún tók við stjórn fé-
lagsins á tíma þegar
starfsemin var í lægð.
Athafnasvæði félagsins
var einungis í Hamra-
hlíð, vestasta hluta Úlf-
arsfells. Þar hófst skóg-
rækt 1957 en félagið var
stofnað 1955. Þá var það
deild í Skógræktarfélagi
Kjósarsýslu, en 1972 var
keypt jörðin Fossá í
Hvalfirði. Þar hefur ver-
ið stunduð blómleg skógrækt síðan í
samstarfi við Skógræktarfélag Kópa-
vogs.
Saga skógræktar í Mosfellsbæ hef-
ur verið nátengd Guðrúnu, sem lengst
allra hefur verið formaður. Á stjórn-
arfundum sem voru haldnir heima hjá
henni í Bjarkarholti var alltaf
skemmtilegt að taka þátt í störfum.
Hún var ætíð þessi mikla baráttukona
fyrir þeim málstað sem hún trúði á og
treysti. Á fundunum greindi hún frá
viðtölum sem hún hafði haft við sveit-
arstjóra og alla bæjarstjórana, um að
athuga með ný svæði sem klæða
mætti skógi. Allt var vel undirbúið og
stöðugt voru umsvif félagsins aukin.
Fengin voru ný lönd, einkum fjalls-
hlíðar og opin svæði í eigu sveitarfé-
lagsins eða jafnvel einstaklinga. Með
Guðrún
Hafsteinsdóttir
innkomu nýrra viðhorfa
við vinnu og undirbún-
ing skipulags opnuðust
augu flestra fyrir því að
auka þyrfti sem mest
græn svæði og bæta
umhverfi okkar. Skóla-
nemendur, félagsmenn
og áhugafólk um skóg-
rækt vann að skógrækt.
Eitt árið var um 100.000
trjáplöntum plantað.
Það var vel að verki
staðið hjá félagi sem ör-
fáum árum áður hafði
með herkjum náð að
planta örfáum þúsundum. Er svo
komið að á þessum tveimur áratugum
hefur skógrækt verið hafin í nánast
öllum fjöllum Mosfellsbæjar.
Við sem höfum starfað með Guð-
rúnu í skógræktarstarfi í Mosfellsbæ
viljum óska henni til hamingju með 80
ára afmælið. Fornt kínverskt máltæki
segir: „Sá sem ræktar skóg lifir
lengi.“ Við sem eigum leið um mos-
fellsku skógana minnumst þess góða
starfs sem Guðrún hefur átt þátt í að
láta verða að raunveruleika. Þessir
vaxandi ungskógar eiga að verða okk-
ur hvatning til meiri og frekari at-
hafna á sviði skógræktar, myndunar
nýrra skógarlunda þar sem mannlífið
og náttúran blómgast og þroskast
sem best.
Guðjón Jensson.
Frímann Stefánsson og Reynir
Helgason Íslandsmeistarar
Norðanmennirnir Frímann Stef-
ánsson og Reynir Helgason urðu Ís-
landsmeistarar með góðum enda-
spretti á Íslandsmótinu í tví-
menningi sem fram fór síðustu
helgina í mars.
Sveinn Rúnar Eiríksson og Hrólf-
ur Hjaltason urðu að sætta sig við
annað sætið eftir að hafa verið með
ágæta forystu fyrir síðustu umferð.
Bronsið hlutu Daníel Már Sigurðs-
son og Guðmundur Snorrason.
Mótið var jafnt og spennandi allt
til loka. 36 pör tóku þátt í keppninni
og þessi varð lokastaðan:
Frímann Stefánss. - Reynir Helgas. 54,9%
Sveinn R. Eiríkss. - Hrólfur Hjaltason 54,7%
Daníel M. Sigurðss. - Guðm. Snorras. 54,5%
Vignir Haukss. - Stefán Stefánsson 53,5%
Sveinn R. Þorvaldss. - Gísli Steingrss. 53,3%
Arnar G. Hinrikss. - Björn Theódórss. 53,3%
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Fimmtudaginn 3. apríl var spiluð
sveitakeppni milli FEB Reykjavík
og FEB Hafnarfirði á 10 borðum.
Úrslit urðu þau að Hafnfirðingarnir
fóru með sigur af hólmi með 155 stig-
um á móti 144.
Föstudaginn 4. april var spilaður
tvímenningur á 15 borðum. Úrslit
urðu þessi.i N/S:.
Bragi Björnsson - Auðunn Guðmss. 370
Ragnar Björnsson – Gísli Víglundsson 363
Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 361
Bjarnar Ingimars. – Friðrik Hermanns.
355A/V
Ingimundur Jónss. – Helgi Einarss. 387
Jón Lárusson – Halla Ólafsdóttir 385
Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 366
Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 361
Björn Þorláksson er efstur í
einmenningnum á Akureyri
Lokið er tveimur kvöldum af
þremur í Akureyrarmótinu í ein-
menningi hjá B.A. Seinna kvöldið
náðu þessir spilarar bestum árangri:
Una Sveinsdóttir 63,2%
Sigfús Hreiðarsson 59,7%
Pétur Gíslason 58,4%
Björn Þorláksson 57,6%
Samanlagður árangur tveggja
kvölda gildir í baráttunni um Akur-
eyrarmeistaratitilinn í einmenningi.
Staðan er nú þessi á toppnum.
Björn Þorláksson 61,3%
Una Sveinsdóttir 58,2%
Sigfús Aðalsteinsson 54,7%
Helgi Steinsson 54,5%
Síðasta spilakvöldið í einmenn-
ingnum verður 15. apríl.
Kjördæmamótið í brids
í Hólminum í maí
Kjördæmamótið i brids fer fram í
Stykkishólmi dagana 17. og 18. maí
nk. Hótel Stykkishólmur hefur gert
okkur bridsspilurum mjög gott til-
boð á mat og gistingu sem er svo-
hljóðandi:
Gisting eina nótt í tveggja manna
herbergi, 2x hádegisverður og 1x
veislukvöldverður, verð 12.600 kr. á
mann. Sama tilboð á eins manns her-
bergi, 15.100 kr. Morgunverður er
innifalinn.
Verð á hádegismat er 1.800 kr. á
mann á dag og veislukvöldverður
kostar4.500 kr. á mann, morgun-
verður er á 900 kr. á mann fyrir þá
sem gista ekki.
Aukanótt 4.000 kr. á mann.
Pöntunarsími er 430-2100 eða á
netfangið hotelstykkisholmur@sim-
net.is
Íslandsmeistarar Reynir Helgason og Frímann Stefánsson sigruðu í Ís-
landsmótinu í tvímenningi sem fram fór um helgina.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is