Morgunblaðið - 14.05.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.05.2008, Qupperneq 4
FÍKNIEFNI fundust við húsleit á tveimur stöðum í Reykjavík sl. föstu- dag en um nokkurt magn var að ræða. Í íbúð í miðborginni var lagt hald á bæði amfetamín og hass, sam- tals um 200 grömm, auk tveggja kannabisplantna. Á sama stað fund- ust 150 þúsund krónur í peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Lögreglan lagði sömuleiðis hald á amfetamín og hass í húsi í vesturbæ Reykjavíkur á föstudag en um minna magn var að ræða, eða rúmlega 30 grömm. Tveir karlar voru handteknir í tengslum við þessi mál en annar þeirra hefur játað sölu fíkniefna. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði. Fyrrnefndar aðgerð- ir eru liður lögreglu í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Fundu fíkniefni við húsleit Eftir Andra Karl andri@mbl.is VERSLUNAR- og þjónustufyrir- tækið N1 mun taka við rekstri all- margra starfsstöðva sinna á lands- byggðinni, í stað umboðsmanna sem sjá um reksturinn í dag. Á liðnum tólf mánuðum hefur N1 tek- ið yfir rekstur fimm starfsstöðva, en um sextíu stöðvar eru enn í rekstri umboðsmanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins gætir óánægju meðal nokkurra umboðs- manna, en dæmi eru um að menn hafi rekið stöðvar sínar í allt að áratug. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir að með því að yfirtaka rekstur þessara stöðva gefist frek- ari tækifæri til að leita hagræð- ingar, auka vöruúrval og bæta þjónustu. „Hluti af skýringunni er að þessar starfsstöðvar bera okkar nafn en eru ekki í okkar rekstri, og til þess að við getum staðið undir því þjónustustigi sem við viljum að nafnið N1 standi fyrir getum við illa lagt þær kvaðir á núverandi umboðsmenn. Þann kostnað þurfum við að axla sjálfir, og þá ábyrgð sem af auknu þjónustustigi leiðir.“ Hermann bendir þannig á að um- boðsmenn hafi ýmsir haft fjárhags- legan stuðning N1 í gegnum tíðina. „Og eins höfum við á tíðum verið með rekstrarstyrki til að halda þeim starfsstöðvum í rekstri þar sem rekstrargrundvöllur er hæp- inn; á minnstu stöðunum.“ Hvert tilvik skoðað fyrir sig Ekki er ákveðið hvenær N1 tek- ur yfir rekstur stöðvanna. Her- mann segir þetta lifandi kerfi sem sé síbreytilegt. „Það er verið að skoða þetta. Margir þessara samninga eru með endurnýjun- arákvæðum. Þeg- ar þeir koma til endurnýjunar skoðum við hvert og eitt tilvik fyrir sig. Sumir þessir staðir eru þannig að það er lítið sem ekkert sem við getum bætt við þjónustustigið. Því er ekki áhuga- vert fyrir okkur að breyta rekstr- arfyrirkomulaginu. Aðrir staðir hafa meiri burði til þess og þá höf- um við kosið að taka þá yfir sjálfir. Þetta er ekki einhver kúvending, en þetta er áherslubreyting hjá okk- ur.“ N1 greiðir umboðsmönnum fyrir reksturinn, þ.e. allar birgðir og fjárbindingu í rekstrinum. Hins vegar verður ekki greitt fyrir við- skiptavild, „enda er hún háð okkar nafni, sem stendur utan á þessum starfsstöðvum“, segir Hermann. „Við getum ekki verið að kaupa okkar eigin viðskiptavild. það er ómögulegt að borga einhverjum öðrum fyrir hana.“ Spurður hvort hann hafi heyrt af óánægju meðal starfsfólks starfs- stöðvanna segir Hermann að öllum sem unnið hafa fyrir umboðsmenn- ina hafi verið boðin ráðning, þannig að ekkert breytist hjá þeim, fyrir utan nafnið á launaseðlinum. „En þeir sem hafa verið umboðsmenn eru í einhverjum tilvikum örugg- lega ósáttir, kannski búnir að eyða miklum kröftum í að byggja upp rekstur. En það verður ekki búin til ommeletta án þess að brjóta nokk- ur egg.“ N1 tekur við rekstrinum af umboðsmönnum  Fyrirtækið hefur tekið yfir rekstur fimm starfsstöðva á landsbyggðinni  Leggja ekki kvaðir við eflingu þjón- ustustigs á umboðsmennina Hermann Guðmundsson 4 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is YFIR 800 athugasemdir höfðu bor- ist Sigurði Jónssyni, byggingafull- trúa í Ölfusi, undir kvöld í gær, vegna auglýstrar breytingartillögu á aðalskipulagi Ölfuss. Tillagan gerir ráð fyrir Bitruvirkjun, allt að 135MW jarðgufuvirkjun við Öl- kelduháls, skammt ofan Hvera- gerðis. Hafa Hvergerðingar m.a. miklar áhyggjur af mengun frá virkjuninni. Að sögn Sigurðar er von á að athugasemdirnar fylli þúsund áður en yfir lýkur, enda hafi ein- hverjar þeirra eflaust verið póst- lagðar í dag. Athugasemdirnar verða í kjölfarið teknar saman og yfirfarnar af skipu- lagsnefnd Ölfuss, sem fundar næst 20. maí. Nefndin leggur athuga- semdirnar og umsögn sína um þær því næst fyrir bæjarstjórn, sem næst fundar 29. maí. Samþykki bæjar- stjórn skipulagsbreytinguna verða öll gögn málsins, þ.á m. athugasemd- irnar þúsund, send til Skipulags- stofnunar sem fer yfir vinnuferla sveitarfélagsins í málinu, að sögn Sigurðar. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar- stjóri í Ölfusi, segir í samtali við Morgunblaðið að beiðni Orkuveitu Reykjavíkur, sem er landeigandi á Ölkelduhálsi, um skipulagsbreyt- ingu vegna virkjunarinnar hafi verið tekin til greina eins og allar aðrar beiðnir landeigenda um skipulags- breytingar. Því næst berist athuga- semdirnar, þannig sé eðlilegur gang- ur lýðræðisins. „Við höfum ekki staðið í vegi fyrir því að landeigend- ur fái að skoða möguleika á breyttri landnýtingu hjá sér,“ segir Ólafur. Efast um hæfi sveitarstjórnar Landvernd sendi sveitarfélaginu erindi í gær þar sem auglýsing tillög- unnar var sögð haldin vanköntum og efast um hæfi sveitarstjórnar til að fjalla frekar um málið, þar sem sveit- arfélagið hafi með samningi við OR skuldbundið sig til þess að skipu- leggja svæðið til samræmis við fram- kvæmdir sem fyrirhugaðar eru. „Okkar skilningur er sá að við höf- um farið löglega að þessu eins og öðrum breytingum á skipulagi sem við höfum auglýst,“ segir Ólafur Áki. Nær þúsund athugasemdir við skipulagstillögu Ölfuss Bæjarstjóri segir tillögur allra land- eigenda auglýstar                                               !     "                       EINBEITINGIN skein úr augum barnanna í 4. bekk Háteigsskóla á Austurvelli í gær. Þar komu þau sér vel fyrir á hellulagðri jörðinni með blýant og stílabók og vönduðu sig sem mest þau máttu við að teikna Alþing- ishúsið og Dómkirkjuna. Öðrum fannst hentugra að teikna við fótskör styttu Jóns Sigurðssonar forseta. Smáatriði Alþingishússins fönguð Morgunblaðið/Golli ÍTALSKUR ferðamaður fannst við vestanverð mörk Breiðamerkurjök- uls á sjötta tímanum í gærdag. Neyðarsendir hans fór í gang vegna bilunar eða mistaka en maðurinn reyndist ekki í hættu. Þyrla Land- helgisgæslunnar var kölluð út en var snúið við eftir að maðurinn fannst. Var heill á húfi við Vatnajökul SAMTÖK breskra fjármálafyrir- tækja, BBA, hafa ákveðið að endur- skoða útreikninga vaxta á milli- bankamarkaði í London, svokallaðra Libor-vaxta. Útreikn- ingar vaxtanna byggjast á upplýs- ingum sem BBA fær frá aðildar- bönkum sínum en eins og greint var frá í Morgunblaðinu 21. apríl sl. lék grunur á að einhverjir bankar hefðu vísvitandi veitt rangar upp- lýsingar og því væru Libor-vext- irnir mun lægri en efni stóðu til. Aukinn kostnaður lánþega um allan heim hækki vextirnir Samkvæmt Vegvísi Landsbank- ans verður aðferðin við útreikninga Libor-vaxtanna endurskoðuð en hækki vextirnir mikið í kjölfarið getur það haft í för með sér aukinn kostnað fyrir lánþega um allan heim enda eru vextirnir almennt notaðir sem viðmið við fjármögnun á alþjóðlegum mörkuðum. Útreikning- arnir endur- skoðaðir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.