Morgunblaðið - 14.05.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 9
FRÉTTIR
Hverfisgötu 6 101 Reykjavík
sími 562 2862
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Sumardress frá
„BLEYJUNAR hækkuðu veru-
lega,“ segir foreldri tvíbura, sem
ekki var alls kostar sátt við ummæli
Guðmundar Marteinssonar, rekstr-
arstjóra Bónuss, í Morgunblaðinu í
gær. Þar sagði Guðmundur að
hvorki hefði orðið hækkun á Pamp-
ers eða Libero-bleyjum hjá Bónus
síðustu mánuði.
Foreldrið sem um ræðir lét Morg-
unblaðinu í té innkaupastrimla sína.
Þar sést að pakki af Liberos maxi +
bleyjum fyrir 10-16 kg þungt barn
kostaði 963 krónur í Bónus 24. mars
sl. 9. apríl kostaði sama pakkning
1.259 krónur, sem er 296 króna mun-
ur, eða tæplega 24% verðhækkun. Í
gær kostuðu sami bleyjupakki 1.279
krónur. Frá mars og fram í apríl
urðu ekki breytingar á verði pakka
af bleyjuþurrkum frá Pampers.
Guðmundur Marteinsson segir að
á heildina litið hafi lítil hækkun orðið
á barnavörum hjá Bónus.
22. október kostuðu bleyjurnar
1.259 krónur og 14. nóvember 2006
kostaði pakkinn 1.285 krónur,“ segir
hann. Bleyjurnar kostuðu 963 krón-
ur í janúar, febrúar og fram í mars á
þessu ári. Í lok mars hækkuðu þær í
1.098 krónur, í 1.259 krónur í apríl og
loks í 1.279 krónur, sem er núverandi
verð.
„Við eltum öll tilboð, þetta getur
tengst því,“ segir Guðmundur.
Hugsanlegt sé að samkeppnisaðili
hafi verið með tilboð í gangi og því
hafi verðið í Bónus lækkað um tíma.
Bleyjurnar hækk-
uðu verulega
Rekstrarstjóri Bónuss segir litla hækkun
á barnavörum þegar á heildina er litið
RJÚPAN er nú sem óðast að koma
sér fyrir á varpstöðvum og víða má
sjá skjannahvíta karra vakta óðul
sín. Ljósmyndarinn rakst á þetta
fallega rjúpnapar í sólskininu í Að-
aldal í Suður-Þingeyjarsýslu um
hvítasunnuhelgina. Karrarnir
mæta á varpstöðvar um hálfum
mánuði á undan kvenfuglum. Varp-
ið hefst svo í maílok.
Kvenfuglinn á myndinni er byrj-
aður að klæðast sumarbúningnum.
Rjúpan skiptir þrisvar sinnum á ári
um búning og líkist þá mjög um-
hverfinu. Litarbreytingin er vörn
gegn ránfuglum. Sumar- og haust-
fiður er brúnleitt (dekkra á körr-
um) en vetrarfiðrið að mestu hvítt.
Fjaðurskipti karranna eru mjög
hæg á vorin og þeir komast ekki í
sumarbúning fyrr en upp úr
miðjum júnímánuði. Það kemur
fálkanum vel, því talið er að hann
drepi þriðjung og jafnvel allt að
helmingi allra rjúpnakarra á þess-
um tíma.
Farfuglarnir eru nú flestir komn-
ir en sá næstsíðasti í röðinni, óðins-
hani, sást hér 12. maí, að því er
fram kemur á farfuglasíðu Yanns
Kolbeinssonar (http://www.hi.is/
~yannk/migrants.htm). Þórshaninn
er einn ókominn svo vitað sé, en
venjulega kemur hann upp úr
þriðju viku maí. Þetta er 11. árið
sem Yann skráir komudaga far-
fugla og má sjá af skránni að flestir
farfuglar koma í mars og apríl.
Flækingar á ferð
Brynjúlfur Brynjólfsson, í Félagi
fuglaáhugamanna Hornafirði,
sagði að þetta vor skæri sig ekki úr
hvað varðaði komur flækingsfugla.
Á heimasíðu félagsins (www.fugl-
ar.is) er gerð grein fyrir þeim flæk-
ingum sem sjást hér hverju sinni.
Tegundanöfnin eru litmerkt á síð-
unni eftir því hve oft tegundirnar
hafa sést hér. Meðal sjaldséðustu
tegunda (sést sjaldnar en 16 sinnum
fyrir 2003) sem hafa sést hér nýlega
eru bjarthegri sem m.a. sást á
Heimaey, hnúðsvanur á Stöðv-
arfirði, vestræn korpönd við Þvott-
árskriður og hvítönd á Djúpavogi.
Þá hefur sést grátrana á Austur-
landi sem ekki er algeng sjón.
Í vor hafa svölur, bæði bæj-
arsvölur og landsvölur, sést suð-
austanlands og víðar. Þá bar tals-
vert á barrfinkum á liðnu hausti og
eins hafa þær sést víða í vor. Brynj-
úlfur sagði hugsanlegt að ein-
hverjar þeirra hefðu dvalið hér í
vetur. Hann taldi ekki ósennilegt að
barrfinkur settust hér að við aukna
skógrækt.
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Tilhugalíf Rjúpnapar naut lífsins í S-Þingeyjarsýslu um helgina. Karrinn
vaktar óðalið og kvenfuglinn er farinn að skipta litum fyrir sumarið.
Vorfiðringur
í fuglalífinu
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
gudrung@mbl.is
„ÞÆR hugmyndir sem uppi hafa
verið á breytingum á [Hallar]garð-
inum í tengslum við sölu á Frí-
kirkjuvegi 11 og uppbyggingu á
safni þar um
Thor Jensen tel
ég varasamar og
hef ýmislegt við
þær að athuga.
Þær sýna bæði
Hallargarðinum
og húsinu, með
sinni upphaflegu
aðkomu frá Frí-
kirkjuvegi,
ákveðna vanvirð-
ingu,“ segir Samson B. Harðarson
landslagsarkitekt FÍLA í viðtali um
Hallargarðinn í síðasta sunnudags-
blaði Morgunblaðsins. Þar kom og
fram að umræddur garður er í
óformbundnum stíl amerísks mód-
ernisma, en hann var hannaður af
Jóni H. Björnssyni landslags-
arkitekt á árunum 1953 og 1954.
Hallargarðurinn var svo endur-
hannaður af Jóni í upphaflegri
mynd að nokkru árið 1986.
Umhverfis- og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar mun að sögn
Þórólfs Jónssonar, garðyrkjustjóra
Reykjavíkurborgar, eiga samræður
við kaupendur Fríkirkjuvegar 11.
„Tillögur um frágang á bættu að-
gengi að kjallara hússins, eins og
kveðið er á um í kaupsamningi,
voru samþykktar en engar end-
anlegar teikningar eru komnar að
þeirri framkvæmd. Bæði seljendur
og kaupendur þurfa að samþykkja
breytingar á garðinum,“ segir Þór-
ólfur.
„Miðað við þær samræður sem ég
hef átt við fulltrúa kaupanda þá er
fullur vilji hjá honum til að gera alla
hluti vel sem snúa að Hallargarð-
inum. Garðurinn er almenningseign
og samkvæmt samningnum er að-
eins þröng lóð utan um sjálft húsið
sem fylgir með í kaupunum. Lóðin
er samkvæmt nýja samningnum 903
fermetrar sem húsið stendur á, auk
þess fylgir 760 fermetra leigulóð
bak við húsið.“
Er þar svokallað Hestagerði?
„Já. Það liggur fyrir tillaga um að
stytta gat á veggnum á Hestagerði
þannig að hægt sé að nýta það sem
bílastæði með aðkeyrslu frá Lauf-
ásvegi. En um slíkar framkvæmdir
þarf að sækja til Fornleifanefndar
ríkisins af því að umræddur veggur
er það gamall.“
Þórólfur Jónsson
Guðinn Adonis Bronsafsteypa í
Hallargarðinum.
Engar endanlegar teikningar
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111