Morgunblaðið - 14.05.2008, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
RÁÐAMENN í Búrma virðast stað-
ráðnir í að hafna kröfum um að er-
lendum hjálparstarfsmönnum verði
hleypt til landsins. George W. Bush
Bandaríkjaforseti og Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, hafa fordæmt þessa afstöðu
herforingjastjórnarinnar. Birgðir af
hjálpargögnum hafa hlaðist upp á
flugvöllum vegna þess að hermenn
Búrma hafa ekki komið þeim til
nauðstaddra á flóðasvæðunum.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, tók í gær
undir með Frökkum og sagði að
ástandið í Búrma væri svo skelfilegt
að nauðsynlegt gæti verið að beita
hervaldi til að tryggja að neyðarað-
stoð bærist fólki. Til greina kæmi að
grípa til slíkra ráða jafnvel þótt ekki
fengist fyrir því samþykki í örygg-
isráði SÞ.
Erlendir sérfræðingar segja að
her Búrma skorti kunnáttu til að sjá
um dreifingu hjálpargagna auk þess
sem hermennirnir hafi ekki nægileg-
an tækjabúnað. Er fullyrt að sums
staðar á óshólmasvæði Irrawaddy,
þar sem tjónið er mest, sé hjálpar-
gögnum dreift með eintrjánungum.
Stjórnvöld segja að staðfest sé að
rúmlega 34.000 manns hafi farist auk
þess sem tæplega 28.000 sé saknað
eftir fellibylinn Nargis fyrir 11 dög-
um. Talið er að 1,5 milljónir manna
séu heimilislaus.
Fólkið skortir tjöld, teppi, mat og
hreint drykkjarvatn og óttast emb-
ættismenn SÞ kóleru og fleiri sjúk-
dóma. „Staðan núna er mjög hættu-
leg,“ sagði Ban Ki-moon. „Ef meiri
hjálp berst ekki mjög fljótt til lands-
ins gætu brotist úr smitsjúkdómar
og vandinn sem nú er fyrir hendi
yrði smávægilegur í samanburði við
þann sem þá yrði reyndin.“ Andrew
Kirkwood, yfirmaður Búrmadeildar
samtakanna Barnaheilla, er bjart-
sýnni en talsmenn SÞ. Telur hann að
sögn breska blaðsins The Guardian
að búið sé að koma hjálp til nær
helmings fórnarlamba hamfaranna.
Gögn á svarta markaðinn?
Bandaríkin hafa lengi haft forystu
um það meðal lýðræðisríkjanna að
beita viðskiptarefsingum til að
þrýsta á herforingjana um að
tryggja mannréttindi og leyfa frjáls-
ar kosningar. Bandaríkjamenn
kröfðust þess í fyrstu að fá að stjórna
dreifingu hjálpargagna sjálfir en
sendu á mánudag flugvélar með
gögn sem voru afhent her Búrma.
Þegar hafa heyrst sögusagnir um að
hjálpargögnum hafi verið stolið og
þau seld á svörtum markaði.
Búrma hafnar áfram erlend-
um hjálparstarfsmönnum
Anders Fogh Rasmussen segir að nauðsynlegt geti orðið að beita hervaldi, jafnvel
án samþykkis öryggisráðsins, til að koma hjálpargögnum til bágstaddra í Búrma
Reuters
Aðstoð Búrmabúar af flóðasvæð-
inu bíða eftir matargjöfum.
Í HNOTSKURN
»Búrma flytur út mikið af gasiog timbri, einkum til Taí-
lands, Kína og Indlands. Tekj-
urnar af gasi jukust um 80% árið
2007 miðað við 2006 og gjaldeyr-
isforði landsins, nú um fjórir
milljarðar dollara, hækkar um
150 milljónir dollara á mánuði.
»Herforingjarnir hafa tryggtsér einkaleyfi á margvís-
legum viðskiptum og hafa á ferli
sínum sankað að sér geysimikl-
um auðæfum. En þorri lands-
manna, sem eru um 50 milljónir,
býr við sult og seyru.
RIFIÐ plakat með mynd af Boris Tadic, forseta Serbíu,
á götu í Belgrad í gær. Sambandsflokkur Tadic fékk
flest atkvæði í þingkosningunum um helgina, tæp 39%,
en bandalagið boðar aðild Serbíu að Evrópusamband-
inu. Helsti flokkur þjóðernissinna, Róttæki flokkurinn,
sem vill samstarf við Rússa, var með nær 30%. Leiðtog-
inn, Tomislav Nikolic, hyggst reyna að mynda stjórn
með smáflokkum sem einnig boða þjóðernisstefnu.
Reuters
Flokkur Tadic sigraði í Serbíu
Mesópótamía. AP. | Í friðsælu og raf-
magnslausu bóndabýli með gaslýs-
ingu dunda tvær stúlkur með hatta
og í bláum síðkjólum við að líma
saman flöskur af útrunninni salat-
sósu, þurrka ryk af beygluðum
grænmetisdósum og sælgætis-
kössum. Þetta eru vörur sem banda-
rískir stórmarkaðir hafa skilað.
Verslunin er í eigu fjölskyldu úr
röðum Amish-fólksins, strangtrúaðs
trúflokks af hópi mennoníta sem er
mjög fastheldinn á forna lifnaðar-
hætti. Amish-menn reka margar
verslanir sem bjóða upp á ýmsan
hræódýran varning sem aðrar versl-
anir hafa skilað vegna galla eða
vegna þess að vörurnar eru útrunn-
ar. Amish-menn eru lítt hrifnir af
nútímalegum verslunarháttum og
halda rekstrarkostnaðinum í algjöru
lágmarki. Slíkar verslanir njóta sí-
vaxandi vinsælda í Bandaríkjunum
nú þegar farið er að harðna á daln-
um.
„Hér er allt frá Mercedes-bílum á
bílastæðum okkar til hesta og barna-
vagna,“ sagði Ray Marvin, versl-
unarstjóri B.B.’s Grocery Outlet,
verslunarkeðju í eigu Amish-manna
í Quarryville í Pennsylvaníu.
Í skilavöruverslunum Amish-
fólksins eru meðal annars seld út-
runnin matvæli og jafnvel lyf. Mat-
væla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna
bannar ekki sölu á útrunnum vörum,
að mjólkurblöndu handa pelabörn-
um undanskilinni. Einnig er bannað
að selja lyf sem eru fölsuð eða með
röngu vörumerki.
„Við erum steinhissa á því hversu
vel okkur hefur gengið,“ sagði Re-
becca Miller, Amish-kona sem opn-
aði verslunina N&R Salvage ásamt
eiginmanni sínum í fyrra í útjaðri
Mesópótamíu, í norðaustanverðu
Ohio-ríki. Verslunin hefur blómstrað
þótt hjónin hafi aldrei auglýst hana.
Flestar verslananna hafa verið rekn-
ar í nokkur ár en eigendur þeirra
segja að viðskiptin hafi aukist veru-
lega á síðustu mánuðum vegna
hækkandi eldsneytis- og matvæla-
verðs, lánsfjárkreppu og aukinna
vanskila á húsnæðisveðlánum.
Nokkrir kaupmannanna vildu
ekki gefa upp sölutölurnar. Einn
þeirra, eigandi Amelia-s Grocery
Outlet í New Holland í Pennsylv-
aníu, segir að salan hafi aukist um
12% á síðasta ári og útlit sé fyrir að
velta 11 verslana hans aukist um
23% í ár.
Amish-fólkið býr í alls 28 ríkjum
Bandaríkjanna en flestir eru í Ohio,
Pennsylvaníu og Indiana. Amish-
menn hafa yfirleitt stundað land-
búnað án rafmagns og annarra nú-
tímaþæginda en margir þeirra hafa
brugðið búi á síðustu árum, stofnað
fjölskyldufyrirtæki eða fengið vinnu
hjá byggingafyrirtækjum eða í verk-
smiðjum.
Útrunnar og gallaðar vörur rokseljast
Hræódýrar verslanir í eigu
Amish-fólksins blómstra í Bandaríkj-
unum vegna efnahagssamdráttar
AP
Hræódýrt Viðskiptavinir í verslun í eigu Amish-fjölskyldu í Ohio.
Washington. AP. | Aukinn stuðningur
svonefndra ofurfulltrúa við Barack
Obama hefur orðið til þess að hann
getur tryggt sér nógu marga kjör-
menn til að verða fyrir valinu sem
forsetaefni demó-
krata þegar for-
kosningunum lýk-
ur 3. júní – þótt
hann tapi í þrem-
ur af sex ríkjum
þar sem kosið
verður á næstu
þremur vikum.
Útkoman í for-
kosningum demó-
krata í Vestur-Virginíu í gær var því
talin mundu hafa lítið að segja um
heildarstöðuna, en Hillary Clinton
hafði þegar tryggt sér 15 af 28 kjör-
mönnum ríkisins þegar Morgunblað-
ið fór í prentun í nótt.
Alls hafa 26 ofurfulltrúar lýst yfir
stuðningi við Obama á einni viku.
Útlit er því fyrir að hann hafi
tryggt sér nógu marga kjörmenn –
eða 2.025 – þegar forkosningunum
lýkur. Hvorki Obama né Clinton geta
fengið svo marga kjörmenn í for-
kosningunum sjálfum og úrslitin ráð-
ast því af stuðningi 800 ofurfulltrúa,
sem sitja landsfund demókrata, geta
kosið hvort þeirra sem er og eru ekki
bundnir af úrslitum forkosninganna.
Þessi staða hefur orðið til þess að
Obama er farinn að beina sjónum sín-
um að baráttunni við John McCain,
forsetaefni repúblikana.
Obama
eflist
Barack Obama
Clinton sigraði í
Vestur-Virginíu
Beirút. AFP. | Her Líbanons kvaðst í
gær vera tilbúinn til að beita valdi til
að binda enda á mannskæð átök milli
vopnaðra hópa stuðningsmanna rík-
isstjórnar landsins og liðsmanna
Hizbollah-hreyfingarinnar.
Fregnir hermdu í gær að a.m.k. 62
menn hefðu beðið bana og 200 særst
í átökunum á sex dögum. Eru þetta
mannskæðustu átök milli líbanskra
fylkinga frá borgarastríðinu á árun-
um 1975-1990 og óttast er jafnvel að
þau leiði til nýs borgarastríðs.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að stjórn sín myndi
styðja stjórn Líbanons með því að
efla herinn. Hann áréttaði ásakanir
sínar um að stjórnvöld í Íran og Sýr-
landi hefðu staðið fyrir átökunum og
sagði að ríki heims myndu ekki láta
það viðgangast að Líbanon þyrfti að
lúta erlendu valdi að nýju.
Hótar að
beita valdi
AÐ MINNSTA kosti 60 manns biðu
bana og 150 særðust í sprengju-
tilræðum í ferðamannaborginni
Jaipur á norðvestanverðu Indlandi í
gær. Sjö sprengingar urðu á úti-
mörkuðum og fleiri stöðum í Jaipur,
að sögn yfirvalda í indverska ríkinu
Rajasthan. Ein sprengjanna sprakk
nálægt hindúahofi.
Hundruð þúsunda ferðamanna
koma til Jaipur og nágrennis á ári
hverju og svæðið er einkum þekkt
fyrir fornar hallir og hindúahof.
Lögreglustjóri Rajasthan sagði að
hermdarverkamenn hefðu verið að
verki og markmið þeirra hefði aug-
ljóslega verið að valda eins miklu
manntjóni og mögulegt var.
Mikill öryggisviðbúnaður var í
stærstu borgum Indlands og á flug-
völlum og lestastöðvum út um allt
landið eftir tilræðin.
Minnst 60
manns
létu lífið
Hryðjuverk í
Jaipur á Indlandi
♦♦♦