Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 28

Morgunblaðið - 14.05.2008, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Helgi Víðir Hálf-dánarson fædd- ist á Akranesi 1. apr- íl 1944. Hann lést á sjúkrahúsi í Antalya í Tyrklandi hinn 30. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hálfdán Sveinsson, f. 7.5. 1907, d. 18.11. 1970, og Dóróthea Erlendsdóttir, f. 1.9. 1910, d. 15.1 1983. Helgi var yngstur fjögurra systkina, hin eru Hilmar Snær, f. 24.2. 1934, Rannveig Edda, f. 6.1. 1936, og Sveinn Gunnar, f. 23.7. 1939. Helgi kvæntist 28.12. 1968 Ágústu Guðbjörgu Garðarsdóttur, f. 9.4. 1944. Foreldrar hennar voru Jón Garðar Helgason, f. 15.10. 1911, d. 14.1. 1984, og Jensína María Karlsdóttir, f. 19.5. 1915, d. 7.4. 1997. Börn Helga og Ágústu eru 1) Jón Garðar, f. 20.11. 1965, kvæntur Elise Mathisen, börn þeirra eru Matthias Helgi, August Erlend og Anna Helena. 2) Edda Dóra, f. 6.11. 1970, maki Ingvar Arnar Ingvarsson, börn þeirra eru Jens- ína Martha og Helgi Már. 3) Hálfdán Helgi, f. 14.1. 1985, unnusta Elínborg Sædís Pálsdóttir. Helgi ólst upp á Akranesi. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akraness og verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands. Helgi bjó og starfaði í rúm fjörutíu ár á Eski- firði og veitti lengst af fjórðungs- skrifstofu Brunabótafélags Íslands og síðar VÍS forstöðu á Austur- landi. Helgi flutti til Hafnarfjarðar 2003 og veitti skrifstofu VÍS í Hafn- arfirði forstöðu síðustu árin. Útför Helga verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 14. maí, kl. 15. Elsku pabbi minn. Það er erfitt að sitja hér í Álfa- skeiðinu og skrifa til þín nokkur orð, minningarnar streyma fram en það er erfitt að koma þeim á blað. Ein- hvern veginn er það þannig að ég sit og bíð eftir að þú komir og kveikir á sjónvarpinu og útvarpinu til að hlusta á fréttirnar, því helst varðst þú að hlusta á þær á öllum rásum, en því miður kemur þú ekki, sama hversu lengi ég bíð. En þú ert í hjörtum okkar eins og Jensína Martha afastelpan þín sagði er ég sagði henni að þú værir dáinn. Auð- vitað veit ég að þú munt fylgjast með okkur og vernda okkur. Elsku pabbi þú varst mér allt, yndislegur í alla staði. Áttir svör við öllu og mik- inn kærleik, sama á hverju gekk. Þú varst mjög stoltur af fjölskyldunni þinni og ekki síst afabörnunum þín- um sem áttu hug þinn allan. Það var mér mikil gleði að þú og mamma skylduð vera viðstödd fæðingu frumburðar míns hennar Jensínu Mörthu sem er fædd í nóvember 1997 og ekki síður stuðningur. Ég man að þú hafðir miklar áhyggjur af því að ég myndi fæða í byrjun mán- aðarins því þá var mamma erlendis, þú varst búinn að setja upp plan um sjúkraflutning og allt en sem betur fer þurfti þess ekki með. Tíu árum seinna fæddist svo litli skæruliðinn eins og þú kallaðir nafna þinn hann Helga Má. Elsku pabbi, þú veist ekki hvað ég var ánægð með að geta gefið þér nafna og að þú skyldir halda honum fyrir mig undir skírn. Ofboðslega þótti mér leitt þegar þið mamma fluttuð suður þó að ég viti að það var ykkur fyrir bestu og þar fékkst þú góða læknisþjónustu hjá henni Hlíf Steingrímsdóttur. En við töluðumst við í síma á hverjum degi, stundum oftar en einu sinni, og var sjaldan farið að sofa án þess að hringja í Hafnarfjörðinn og bjóða góða nótt. Elsku pabbi, það er svo leitt að hugsa til þess að þú komir ekki aust- ur að heimsækja okkur Ingvar í nýja húsið okkar sem við erum ný- lega búin að flytja í og koma okkur fyrir. Þið mamma ætluðuð að koma í heimsókn eftir Tyrklandsferðina en ekki má gleyma að fyrst ætluðuð þið að koma við á Akureyri og fylgjast með Jensínu minni á Andrésar and- ar-leikunum en enginn veit sína framtíð fyrirfram elskan mín. Pabbi minn, síðustu þrjár vikur eru búnar að vera svakalega erfiðar, þú mikið veikur í Tyrklandi og ég hér heima á Íslandi. Mamma og Garðar báru þér kveðju mína á hverjum degi og var það mjög gott fyrir okkur systkinin mig og Hálfdán Helga að vita að Garðar bróðir skyldi vera með mömmu á spítalanum þennan erfiða tíma en þú vaknaðir ekki aftur elsku hjartans pabbi minn. Þetta er skrít- ið líf, en þetta er víst leiðin okkar allra. Ingvar saknar þín mjög mikið og þú varst honum sem faðir. Elsku pabbi, ég skal gæta að mömmu eins vel og ég get. Minning þin mun lifa. Sofðu rótt elsku pabbi minn. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran) Ástarkveðja. Þín elskandi dóttir, Edda Dóra og fjölskylda. Helgi bróðir minn, sem er yngst- ur í hópi okkar fjögurra systkina, er fallin frá, 64 ára gamall. Hann og Ágústa Garðarsdóttir, kona hans, voru á ferðalagi í Tyrklandi þegar hann veiktist nokkuð skyndilega. Eftir nokkurra daga dvöl í landinu var hann lagður inn á sjúkrahús og átti ekki þaðan afturkvæmt í lifandi lífi. Þau hjón lögðu upp í þessa lang- þráðu Tyrklandsferð hinn 7. apríl sl. og þar lést hann 30. apríl eftir mjög erfið veikindi. Þegar maður fæðist inn í og er uppalinn í félagslegu umhverfi leiðir það kannski af sjálfu sér að maður sinnir ýmiss konar félagsmálum og verður meðlimur í ótal félögum á lífsleiðinni. Svo er t.d. raunin um lífshlaup þess er þessar línur setur á blað. Sum þessara félaga eru manni kærari en önnur. Það félag sem mér er kærast er kannski ekki félag í orðsins fyllstu merkingu. Ég held að upphafsmaður þess félags hafi verið Helgi, bróðir minn. Það var lokað fé- lag, sem hægt er að segja að hafi orðið til fyrir um 30 árum. Það voru aðeins fjórir einstaklingar sem gátu orðið félagsmenn, þ.e.a.s. við systk- inin. Sem sagt bæði í gamni og al- vöru lagði Helgi til að við stofnuðum „Bræðrafélagið“ og félagsmenn gætu einungis verið við þrír bræð- urnir og eina systirin í hópnum. Skyldi hún verða æviformaður eins og gerist og gengur í „góðum“ ein- ræðisríkjum. Þannig var hann Helgi bróðir minn, vildi hafa gaman og glens í bland við alvöru lífsins. Hann vildi efla samheldni og samhug í systk- inahópnum. Og það var gaman að fylgjast með áhuga hans fyrir vel- gengni systkinabarnanna og fundu þau í honum góðan vin. Og þannig finnst mér hjónaband Helga og Ágústu hafa verið. Sam- heldni og gagnkvæm ást var grund- völlur sambands þeirra og sam- bands þeirra við börnin sín þrjú, tengdabörnin og barnabörnin. Það var og er vakað yfir velferð hvert annars. Það kom kannski best í ljós í veikindum Helga undanfarin ár. Í glímunni við krabbameinið stóðu þau þétt saman, sem einn maður. Og það kom enn betur í ljós síðustu dagana sem Helgi minn dró lífsand- ann í framandi landi. Frumburður- inn Jón Garðar fór þegar í stað til þeirra og var móður sinni stoð og stytta þessa erfiðu daga. Og hin börnin, Edda Dóra og Hálfdán Helgi, sem og tengdabörnin og barnabörnin stóðu vaktina hér heima og í Noregi. Öll stóðu þau saman á þessum erfiðu tímum. Mestalla starfsævi sína starfaði Helgi að tryggingamálum á Austur- landi, fyrst hjá Brunabótafélagi Ís- lands og síðan hjá Vátryggingafélagi Íslands. Þau Ágústa hófu sinn bú- skap á Eskifirði, þar ólu þau upp börnin sín og þar finnst mér rætur þeirra vera. Þau fluttu síðan haustið 2003 til Hafnarfjarðar eftir að Helgi greindist með þennan alvarlega sjúkdóm. Þar starfaði hann áfram hjá VÍS meðan heilsan leyfði. Og þar hafa þau unað hag sínum. Ása, kona mín, hefur alltaf sagt að Helgi væri skemmtilegastur og best- ur okkar systkina. Ég hygg að sú skoðun hennar eigi við rök að styðj- ast. Helgi var drengur góður. Við kveðjum hann með söknuði og biðj- um guð að blessa minningu hans og styrkja og styðja Ágústu, börnin þeirra, tengdabörnin og barnabörn- in. Guð veri með ykkur öllum. Farðu í friði, kæri bróðir. Sveinn. Mig langar að minnast Helga mágs míns nokkrum orðum. Fyrir 45 árum kynnti Gússa systir hann fyrir fjölskyldunni. Helgi þá rétt tvítugur. Ég er ekki viss um að það hafi allt- af verið auðvelt fyrir Helga að tengj- ast fjölskyldu okkar. Fjölskyldan ná- in og kröfuhörð á sína. Helgi og Gússa voru t.d. fyrst af okkur systk- inunum til að eignast börn og finnst mér ég alltaf eiga dálítíð í þeim. Helgi og Gússa settust að á Eski- firði. Fjölskylda Helga bjó á Akra- nesi og er mér minnisstætt hvað það var gaman þegar þau komu til Eski- fjarðar á sumrin. Þá var vakað lengi, mikið hlegið og sungið, en Helga fannst mjög gaman að syngja og hafði góða rödd. Eitt var það sem litaði líf Helga um tíma og gerði honum og fjöl- skyldu hans lífið leitt, en það var áfengið. Hann leitaði sér hjálpar og var það mikil gæfa. Eftir að við Svavar stofnuðum fjöl- skyldu í Reykjavík tengdumst við enn sterkari böndum. Það var alla tíð mikill samgangur milli fjölskyldn- anna og þegar Hálfdán fæddist bjuggu þau hjá okkur um tíma vegna veikinda hans. Eitt sumarið fórum við í fimm daga gönguferð um Víknaslóðir. Ógleymanleg ferð í yndislegu veðri. Þá vorum við systur heppnar að eiga söngelska maka því þeir björguðu heiðri okkar á kvöldvöku þar sem við þurftum að koma með skemmtiat- riði. Það átti að endurtaka leikinn ári síðar og fara í gönguferð um Lóns- öræfi en þá hafði Helgi greinst með hvítblæði. Helgi og Gússa fluttu til Hafnar- fjarðar 2003 og áttum við góðar stundir saman. Helgi var mikill áhugamaður um fótbolta og var oft mikið fjör þegar hann kom og horfði á leiki með Svavari, Garðari og Hall- grími. Mikið er ég þakklát fyrir daginn sem við áttum saman systkinin ásamt mökum, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum í Húsafelli sum- arið 2005. Það var yndisleg stund og eina skiptið sem við vorum öll sam- an. Helgi og Svavar voru þá báðir mikið veikir en tóku samt þátt í söng og gleði. Einnig kom Helgi, meira af vilja en mætti, þegar við stórfjöl- skyldan hittumst aftur á Vatnshömr- um 2007. Þrátt fyrir eigin veikindi var Helgi okkur stuðningur í veik- indum Svavars sonar okkar. Kom hann oft í heimsókn og töluðu þeir mikið saman og hafa eflaust skilið hvor annan. Í árslok 2005 fór Helgi í beinmergsskipti til Svíþjóðar. Að- gerðin sem slík tókst og var Helgi þakklátur Hilmari bróður sínum fyr- ir lífgjöfina. Síðastliðið eitt og hálft ár hefur verið Helga mjög erfitt, en þegar aðeins rofaði til kom löngunin til að gera eitthvað nýtt og hann pantaði 10 daga ferð til Tyrklands. Ekki datt mér í hug þegar ég kvaddi þau kvöldið áður en þau fóru að það yrði í síðasta skiptið sem ég sæi hann. Helgi Víðir Hálfdánarson ✝ Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GARÐARS SÖLVASONAR, Þórðarsveig 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 6a á Landspítalanum í Fossvogi fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Edda Hrönn Hannesdóttir, María Garðarsdóttir, Theodór S. Friðgeirsson, Elín Inga Garðarsdóttir, Brynjar H. Jóhannesson, Ríkey Garðarsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LUKKU INGIBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR, Höfðavegi 5, áður Vallnesi, Höfn í Hornarfirði, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þriðjudaginn 22. apríl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Sigurður Eymundsson, Olga Óla Bjarnadóttir, Anna Margrét Eymundsdóttir, Guðjón Davíðsson, Agnes Eymundsdóttir, Grétar Geir Guðmundsson, Eygló Eymundsdóttir, Jakob Ólason, Albert Eymundsson, Ásta Ásgeirsdóttir, Ragnar Hilmar Eymundsson, Rannveig Sverrisdóttir, Brynjar Eymundsson, Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir, Benedikt Þór Eymundsson, Halldóra Eymundsdóttir, Óðinn Eymundsson, Elísabet Jóhannesdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, JÓN MAGNÚS GUNNLAUGSSON flugvirki, Sólheimum 27, Reykjavík, lést sunnudaginn 4. maí. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 15. maí kl. 15.00. Nína Sólveig Markússon. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SVEINS ÞÓRIS ÞORSTEINSSONAR, Skólavörðustíg 28, Reykjavík. Hjördís Einarsdóttir, Lísbet Sveinsdóttir, Árni Þór Árnason, Sveinn Þórir Geirsson, Tinna Hrafnsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Ragnar Þórisson, Þórdís Hulda Árnadóttir og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur og bróðir, ÓSKAR JÓNSSON blikksmíðameistari, Krummahólum 6, lést á heimili sínu mánudaginn 5. maí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 16. maí kl. 13.00. Marteinn Örn Óskarsson, Guðlaug Jónsdóttir, Katrín Ýr Óskarsdóttir, Helga Lilja Óskarsdóttir, Jón Bjarni Óskarsson, Jón Óskarsson, Katrín Marteinsdóttir, Lilja Jónsdóttir, Ragnar D. Stefánsson, Marteinn Jónsson, Þórunn Ásmundardóttir, Kristján Jónsson, Kristín Ólöf Jansen, systkinabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.