Morgunblaðið - 14.05.2008, Page 29

Morgunblaðið - 14.05.2008, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 29 Helgi var ljúfur drengur og hafði góða nærveru. Hann var góður faðir og afi og naut hann þess að vera með barnabörnunum þrátt fyrir veikindin. Gússa og Helgi voru sam- hent hjón og góðir vinir og er henn- ar missir mikill. Ég votta Gússu, Jóni Garðari, Eddu Dóru, Hálfdáni og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja þau í sorg þeirra. Jónína. Að heilsast og kveðjast það er lífs- ins saga og nú hefur Helgi Víðir, besti vinur minn, kvatt þetta líf og lagt upp í ferðina til hins eilífa aust- urs, langt um aldur fram. Hans er sárt saknað. Helgi Hálfdánarson var fæddur á Akranesi 1. apríl 1944 og yngstur fjögurra systkina. Þau eru Hilmar Snær, Rannveig Edda og Sveinn Gunnar. Faðir þeirra var Hálfdán Sveinsson, „eðalkrati“ og þekktur í sínu bæjarfélagi og móðir þeirra frú Dóróthea Erlendsdóttir húsfreyja, sómafólk allt saman. Fljótlega eftir að ég hóf störf hjá Brunabótafélagi Íslands í desember 1970 kynntist ég mörgum umboðs- mönnum og svæðisstjórum félagsins um land allt og Helgi var einn af þeim. Hann starfaði lengst af sem umdæmisstjóri Brunabótafélags Ís- lands á Austurlandi með aðsetur á Eskifirði og náði svæði hans frá Hornafirði í suðri að Vopnafirði í norðri. Það var happ fyrir Brunabóta- félag Íslands að velja hann sem um- dæmisstjóra því traustari og ábyggilegri mann hefði ekki verið hægt að finna. Hann var einstaklega hlýr og þægilegur maður sem hafði góða nærveru. Starf umdæmisstjóra er ekki ein- falt starf. Hann þarf að vera í sam- bandi við alla stærstu viðskiptavini félagsins á svæðinu auk allra um- boðsmanna í öllum hreppum og sveitarfélögum í hans umdæmi. Helga fórst þetta einstaklega vel úr hendi enda mikill mannþekkjari og átti auðvelt með að sætta ólík sjón- armið. Ekki er hægt að minnast Helga án þess að nefna Gússu eiginkonu hans sem vann með honum á um- dæmisskrifstofunni á Eskifirði. Þau voru ekki bara hjón heldur einstakir vinir og vinnufélagar í marga ára- tugi. Börn Helga og Gússu, þau Jón Garðar, Edda Dóra og Hálfdán Helgi hafa alla tíð verið mjög náin foreldrum sínum, þrátt fyrir að hafa oft búið fjarri þeim, Jón Garðar í Noregi og Edda Dóra varð eftir á Eskifirði eftir að þau fluttu suður. Þau hafa staðið þétt saman í veik- indum föður síns. Helgi og Gússa voru miklir vinir fjölskyldu minnar og eigum við ein- göngu góðar minningar með þeim og börnum þeirra. Eldri börnin mín urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að dvelja hluta úr sumrum á Eski- firði hjá þeim hjónum við leik og störf, þar sem meðal annars var veiddur marhnútur á bryggjunni og farið í berjamó upp í fjall. Við Helgi brölluðum ýmislegt saman. Eitt af því var að fara í bók- söluferðir um landið og fórum við nokkrar slíkar. Þá sá maður hversu auðvelt hann átti með að umgangast fólk og hafði ljúfa og góða fram- komu sem sannfærði fólk og upp- skar hann samkvæmt því. Þessar ferðir eru mér ógleymanlegar þó áratugir séu liðnir síðan. Aldrei var farið um Austurland án þess að koma við hjá Helga og Gússu á Eskifirði og oftast gist í nokkrar nætur. Móttökurnar voru frábærar og oft var ekið um svæðið og skoðaðir nýir staðir undir leið- sögn þeirra hjóna. Ég minnist þess hversu nærgæt- inn og mikla virðingu Helgi bar ávallt fyrir foreldrum mínum, sér- staklega í veikindum þeirra. Að leiðarlokum vil ég þakka Helga fyrir nærri fjögurra áratuga vináttu sem aldrei bar skugga á. Við fjölskyldan sendum Gússu, börnunum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur á þessari sorgarstundu. Matthías Guðm. Pétursson. ✝ Þorsteinn Páls-son fæddist á Syðri-Steinsmýri, Meðallandi, 17. des- ember 1926. Hann lést á líknardeild Landakots 5. maí sl. Foreldrar hans voru Páll Jónsson, bóndi á Syðri- Steinsmýri, f. 7. júní 1874, d. 12. júní 1963, og Ragn- hildur Ásmunds- dóttir, f. 1. júlí 1888, d. 23. janúar 1954. Systkini Þorsteins eru 1) Jón Bjarnmund- ur, f. 1909, d. 2002, 2) Halldór, f. 1912, d. 2001, 3) Jónína, f. 1912, d. 2004, 4) Ásmundur, f. 1915, d. 1996, 5) Elín, f. 1916, d. 1956, 6) Ingibjörg, f. 1919, d. 2008, 7) Magnús, f. 1921, d. 2005, 8) Þor- steinn, f. 1926, d. 2008, 9) Sig- rún, f. 1930, 10) Jóhanna, f. 1932, 11) Haraldur, f. 1934. Þorsteinn ólst upp í foreldra- húsum á Syðri- Steinsmýri ásamt stórum systk- inahópi. Hann lærði bílamálun og við- gerðir og vann við ýmis störf hjá bróð- ur sínum, í álverinu og Sölunefndinni. Þorsteinn átti þrjár dætur: 1) Ragnheiði Öddu, f. 12. októ- ber 1957, hún á sex börn, Þorstein Rún- ar, f. 6. febrúar 1978, Þorberg Svavar, f. 6. febrúar 1978, Þórð Sigurel, f. 26. janúar 1982, Arn- fríði Olgu, f. 13. júní 1987, And- reu Guðrúnu, f. 11. desember 1990, Lísu Maríu, f. 5. febrúar 2001. 2) Alda, f. 1. desember 1958 og 3) Bára, f. 1. desember 1958. Móðir þeirra er Guðrún Jónsdóttir. Útför Þorsteins fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 14. maí, kl. 15. Þegar gróður landsins er að vakna til lífsins eftir vetrardvala er kvaddur mikill sómamaður sem ég átti samleið með um langt árabil. Margar ánægjulegar endurminn- ingar rifjast upp frá þeim tíma sem Þorsteinn Pálsson var starfsmaður Sölu varnarliðseigna. Á þeim starfsvettvangi gekk hann í öll störf og var jafnvígur í erfiðum útistörf- um sem og í sölumennsku í verslun þar sem hann sýndi jafnan mikla lipurð. Á þeim rúmlega 30 árum sem hann starfaði fyrir Sölu varn- arliðseigna varð honum sjaldan misdægur, enda mikið hraustmenni uns erfiður sjúkdómur lagði hann að velli. Þorsteinn Pálsson átti sér ýmis áhugamál og var m.a. þjóðkunnur safnari. Á löngum ferli eignaðist hann gott myntsafn auk þess sem hann safnaði ýmsum minnispening- um sem félög og félagasamtök víðs vegar á landinu gáfu út. Var ekki óalgengt að ýmsir myntsafnarar heimsæktu hann í hádegis- eða kaffitímum til að bera saman bæk- ur sínar. Sýndi Þorsteinn mikla natni við þetta áhugamál sitt og í safni hans var hver peningur á sín- um stað. Þorsteinn var tíður gestur í Kola- portinu og eignaðist þar marga góða kunningja og vini sem ráku verslun þar. Leysti hann þá stund- um af hólmi. Kolaportið er eins konar torg borgarinnar þar sem ólíkir straumar mætast. Munu margir gestir Kolaportsins hafa þekkt Þorstein og notið þess að spjalla við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Þorsteinn var mikill dýravinur. Eftir að starfsferli lauk var hann tíður gestur í Laugardalnum í Reykjavík þar sem hann lagði í vana sinn að gefa fuglunum, ekki síst þegar hart var í ári. Hann bjó í næsta nágrenni og taldi ekki eftir sér að sinna slíku verkefni. Þorsteinn var vel liðinn af sam- starfsmönnum sínum og viðskipta- vinum Sölu varnarliðseigna. Hann var góður lærifaðir yngri dóttur minnar sem naut leiðsagnar hans eins og mörg ungmenni í sumar- störfum í fyrirtækinu. Jafnan var glatt á hjalla þegar dætur Þorsteins heimsóttu föður sinn á vinnustað en ekki fór á milli mála að mikill kær- leikur ríkti á milli þeirra. Þorsteini Pálssyni fylgja bestu kveðjur þegar hann fetar nýjar slóðir. Blessuð sé minning hans. Alfreð Þorsteinsson. Í dag kveðjum við elsku pabba okkar. Hann var okkur systrum mjög góður pabbi. Hann hafði vel- ferð okkar systra alltaf í fyrirrúmi. Hann fór oft í Grasagarðinn í Laug- ardal en hann var safnari í eðli sínu. Hann kom oft í heimsókn til okkar þegar við áttum heima fyrir norðan, og honum þótti líka mjög vænt um dýr. Hann veiktist í febr- úar og systir hans líka. Þau lágu bæði mikið veik og það var mjög stutt á milli þeirra; Imba dó 18. apríl og pabbi 5. maí. Okkur langar að kveðja hann með þessum versum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Guð geymi þig og varðveiti, elsku besti pabbi okkar, þínar Alda og Bára. Þorsteinn Pálsson                          Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix Það er margs að minnast frá glaðvær- um og áhyggjulausum menntaskólaárunum. D-bekkurinn var fyrsti blandaði máladeildarbekkurinn í MR. Við bekkjarfélagarnir komum úr ýms- um áttum en ekki leið á löngu þar til góður andi hafði myndast, svo góður að vináttan helst enn. Við vorum álitin dálítið baldin, eða svo sögðu kennararnir okkur, enda var margt brallað á þessum árum sem ekki verður tíundað hér. Ein úr hópnum, Helga Þórarins- dóttir sagnfræðingur, hefur nú ver- ið kölluð á burt fyrirvaralaust og við söknum hennar sárt. Það eru rétt 45 ár síðan við lukum stúdents- prófi og nutum gleðinnar sem fylgdi því að hlakka til framtíð- arinnar og njóta samvista á vordög- um 1963. Helga gat verið bráðskemmtileg og það hrukku ófáir gullmolar af vörum hennar þessi ár. Hún var fjölfróð, maður kom aldrei að tóm- um kofunum hjá henni. Það var auðvelt fyrir suma latínuratana að snúa sér að Helgu og fá lánaðar glósur þegar allt var komið í óefni. Helga var fjölmenntuð kona og naut þeirrar gæfu að starfa að áhugamálum sínum á sviði menningarmála. Hún og maður hennar, Sigurður Steinþórsson jarðfræðingur, studdu hvort annað af hlýhug og gagnkvæmri um- hyggju. Mörg okkar minnast gleði- stunda með þeim, bæði á ferðalög- um og á mannamótum. Helga var gjafmild og hug- myndarík en jafnframt síleitandi að Helga Þórarinsdóttir ✝ Helga fæddist íReykjavík 3. nóvember 1943. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu, Kaplaskjóls- vegi 53 í Reykjavík, aðfaranótt 2. maí sl. Bálför hennar var gerð frá Neskirkju í Reykjavík 9. maí sl. þeirri menntun og þroska sem gefur líf- inu gildi. En Helga gat líka verið dálítill galgopi. Hún kom iðulega á óvart með skemmti- legum tilsvörum og skondnum athuga- semdum svo hlátur brast á. Á 30 ára stúdents- afmælinu ákvað D- bekkurinn að leggjast í ferðalög. Við heim- sóttum Ítalíu í ógleymanlegri ferð og þar nutum við visku og þekkingar Helgu sem fræddi okkur um Etrúska. Fjórum árum síðar hélt hópurinn til Grikklands og sigldi á milli Hringeyjanna í ferð sem verður lengi í minnum höfð. Við kveðjum góða vinkonu og bekkjarfélaga með þakklæti fyrir góðar stundir sem munu lifa í minn- ingu okkar allra. Sigurði, Ragnheiði móður Helgu og öðrum ættingjum vottum við innilega samúð okkar. D-bekkur Menntaskólans í Reykjavík árgangur 1963. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningargreinar Kæra vinkona, nú hefðir þú átt afmæli dag og af því tilefni langar mig að senda þessa kveðju frá mér og fjölskyldu minni. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Bryndís Gróa Jónsdóttir ✝ Bryndís GróaJónsdóttir fæddist í Hafnarfirði 24. maí 1946. Hún lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi 10. apríl síðastliðinn og var jarðsungin frá Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði 22. apríl. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðj- um, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Emil og börnum votta ég samúð mína. Þórdís Sigríður Óskarsdóttir Huseby (Dísa).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.