Morgunblaðið - 14.05.2008, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
10.05.2008
1 15 17 26 38
7 8 4 6 4
7 0 2 7 9
16
7.05.2008
10 13 14 15 26 27
287 43
FJÖLMARGIR Íslendingar skelltu
sér í bíó um hvítasunnuhelgina og
fóru samanlagt um 8.000 manns á
mestu sóttu myndirnar tvær.
Tekjuhæsta myndin að þessu sinni
var bandaríska gamanmyndin
What Happens In Vegas. Nákvæm-
lega 3.925 manns skelltu sér á hana
um helgina og námu tekjur af henni
rúmum 3,5 milljónum króna. Það
eru þau Cameron Diaz og Ashton
Kutcher sem fara með aðalhlut-
verkin í myndinni sem segir frá
tveimur New York-búum sem
bregða sér til Las Vegas til að
hressa upp á sálina. Þar lenda þau
auðvitað í hinum ýmsu ævintýrum
og ganga meðal annars í það heil-
aga.
Þótt What Happens In Vegas sé í
efsta sæti Bíólistans að þessu sinni
var hún þó ekki mest sótta myndin í
íslenskum kvikmyndahúsum um
helgina. Flestir fóru nefnilega á
spennumyndina Iron Man sem
skartar engum öðrum en Robert
Downey Jr. í aðalhlutverkinu. Það
munaði þó ekki miklu á What Happ-
ens In Vegas og Iron Man því að-
eins sex fleiri sáu síðarnefndu
myndina, eða 3.931. Það er varla
innan skekkjumarka.
Tekjur af Iron Man námu tæpum
3,5 milljónum króna, sem er aðeins
minna en í tilfelli What Happens In
Vegas, og skýrist það af því að
miðaverð var lægra á nokkrar sýn-
ingar á Iron Man.
Alls hafa um 18.000 manns séð
Iron Man hér á landi og nema heild-
artekjur af henni rúmum 15 millj-
ónum króna en myndin var frum-
sýnd hinn 30. apríl.
Sérstaka athygli vekur að tón-
leikamyndin U2 3D nær sjötta sæt-
inu, en í myndinni má sjá tónleika
með írsku stórhljómsveitinni í þrí-
vídd. Um 300 manns sáu Bono og
félaga hans með þeim hætti um
helgina og hafa tekjurnar því num-
ið um 330.000 krónum.
Loks nær kvikmyndin Hunting
Party níunda sætinu með 240
áhorfendur, en helstu leikarar í
myndinni eru Richard Gere og
James Brolin.
Tekjuhæstu bíómyndirnar á Íslandi
Diaz, Kutcher
og Downey Jr.
+=
!
"
# %
&
% '(
)%**)(+)*,
)% -
Stuð Það virðist vera gaman hjá þeim Diaz og Kutcher í Las Vegas.