Morgunblaðið - 09.07.2008, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
HVER stórlaxinn á fætur öðrum,
yfir 20 pund, hefur veiðst í Breið-
dalsá síðustu daga. Fyrst veiddi sr.
Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum
102 sm langa hrygnu sem hann
sleppti en var áætluð 22 pund. Var
það stærsti lax sem veiðst hafði í
ánni. Þá veiddist 98 sm langur
hængur sem var settur í klakkistu
en veginn tvisvar sinnum. Miðað við
viðmiðunarkvarða Veiðimálastofn-
unar ætti hann að hafa verið undir
20 pundum en hann vóg 23,5. Var
fiskurinn afar myndarlegur en um-
mál hans var 55 sm. Í fyrradag
veiddist síðan þriðji stórlaxinn. Var
hann sléttur metri á lengd en var
ekki veginn áður en honum var
sleppt. Þeir sem sáu báða þessa laxa
og hafa samanburðinn segja þennan
hafa verið enn stærri; áætla 25
pund.
Að sögn Þrastar Elliðasonar
leigutaka tók laxinn hitstúpu sviss-
nesks veiðimanns í Ármótahyl og
stóð viðureignin í tvær klukku-
stundir, enda veiðitækin fínleg.
„Það sá enginn annar en Gunn-
laugur fiskinn hans, ég er viss um
að hann var enn þyngri, enda
hnausþykk hrygna,“ segir Þröstur.
Smálax er að ganga í bland við þá
stóru í Breiðdalnum en auk fyrr-
nefndra laxa hefur veiðst einn 19
punda og nokkrir um 16 pund.
„Ástandið í hafinu virðist mjög
gott. Þessir stóru og feitu fiskar eru
að veiðast um allt land.“
Í vikunni veiddist einnig stærsti
urriði sem veiðst hefur í Breiðdalsá,
um 15 punda ferlíki.
Bara góðar fréttir
„Það eru bara góðar veiðifréttir
þessa dagana!“ segir Stefán Sig-
urðsson sölustjóri hjá Lax-á. „Þess-
ir stóru fiskar eru alls staðar á ferð-
inni. Við erum sterk á
Norðurlandinu, þar sem er höf-
uðvígi stórlaxins og í Blöndu hefur
lax til að mynda verið að veiðast á
öllum svæðum. Hún hefur gefið um
400 og lax er líka að veiðast í
Svartá. Um 10 þessara laxa eru
smálaxar, hinir eru allir stórir.“
Einn 21 punds veiddist þar í gær.
Byrjunin í Rangánum er sú besta
til þessa að sögn Stefáns en hátt í
200 laxar eru komnir á land úr
þeirri eystri og mikið af því stórlax,
upp í 19 pund. „Í Rangánum er
blússandi gangur. Einn veiðimaður
fékk til að mynda 11 laxa á þremur
tímum við Ægisíðufoss í gær.“
Víðidalsá er komin vel í gang en
55 laxar veiddust í síðasta holli og
er laxinn dreifður um alla á. Þá er
lax að ganga í Laxá í Ásum, sex
fengust í fyrradag, allt göngulaxar.
Stórfiskar í Breiðdal
Allt að 25 punda laxar hafa veiðst í Breiðdalsá Enn veiðast nær eingöngu
stórlaxar í Blöndu Besta byrjunin í Eystri-Rangá Gott gengi í Víðidalsá
Morgunblaðið/Einar Falur
Kröftugur Vænn, nýgenginn lax berst hraustlega um eftir að veiðimaður setti í hann neðan við Laxfoss í Grímsá.
AFAR vel veiðist í Norðurá í Borg-
arfirði í blíðviðrinu.
„Hér er rosafín veiði,“ sagði Mjöll
Daníelsdóttir, starfsmaður í veiði-
húsinu við ána, í hádeginu í gær.
Hún sagði að í fyrradag hefðu
veiðst 56 laxar og veiðin í Norðurá I
væri í um 600 fiskum – samtals
stefndi veiðin í ánni í um 800 laxa.
„Þetta er alveg frábært. Veðrið eins
og á Tenerife, 24 stiga hiti og sól-
skin, og samt veiðist vel. Allir veiði-
mennirnir eru spenntir, rífa sig upp
snemma og eru komnir að ánni
klukkan sjö á morgnana. Enda er
nóg af laxi. Þetta er miklu betri
veiði en við áttum von á,“ segir
Mjöll sem þekkir vel til, enda búin
að aðstoða veiðimenn við Norðurá í
mörg ár. Hún sagði að þótt vatn
færi minnkandi í ánni og lax hörfaði
af grynnri veiðistöðum væri til að
mynda mjög góð veiði á ýmsum
stöðum neðan við Laxfoss.
Í gærmorgun veiddu stangirnar á
milli fossa, Laxfoss og Glanna, sex-
tán laxa og misstu annað eins. Í
Gilinu, frá Myrkhyl niður í Hræ-
svelg, veiddust tíu og Stekkurinn
gaf sex. Svo virðist nú vera að laxi
gangi illa að ganga Glanna vegna
vatnsleysis.
Hægt er að fylgjast með veiðibók-
inni í Norðurá á vefnum svfr.is.
Eins og á Tenerife
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
JÓRUNN Frímannsdóttir, formað-
ur velferðarráðs Reykjavíkurborg-
ar, segir að í húsnæðinu við Hólavað
sé ætlunin að reka áfangaheimili fyr-
ir einstaklinga sem hafa lokið með-
ferð, en meðan ekki liggi fyrir hvort
húsnæðið sé í hendi Heilsuverndar-
stöðvarinnar, sé ekki hægt að ganga
frá samningum um stöðina og þar af
leiðandi að kynna málið fyrir íbúum
hverfisins. Það verði hins vegar gert,
ef af samningum verði.
Velferðarráð ákvað á fundi sínum
9. apríl sl. að ganga til samninga við
Heilsuverndarstöðina ehf. um rekst-
ur áfangaheimilisins. Lægsta tilboð-
ið var frá SÁA, en auk þeirra buðu
Samhjálp og Ekron í reksturinn.
Jórunn segir að tilboðin hafi ekki
verið sambærileg og Innri endur-
skoðun borgarinnar hafi líka komist
að því að hagkvæmasta tilboðinu hafi
verið tekið.
Þekkingarleysi
Íbúar í hverfinu eru ekki sáttir við
svona starfsemi inni í miðju íbúða-
hverfi og óttast að hætta fylgi heim-
ilinu. Jórunn segir að um þekking-
arleysi sé að ræða og ástæðulaust sé
fyrir íbúana að óttast. Víða séu
stuðningsheimili í venjulegum íbúða-
götum í borginni, en fólk sé oft hrætt
við það sem það þekki ekki. „Það er
hræðsla í samfélaginu og mótmæli
sem við höfum þurft að fara yfir og
skoða,“ segir Jórunn. „Þetta hús-
næði er talið henta sérstaklega vel af
þeim sem hafa þekkingu á því.“
Jórunn segir mjög óheppilegt að
húsnæðið sé í eigu þrotabús. Heilsu-
verndarstöðin hafi sagt í yfirlýsingu
að hún hefði umrætt húsnæði til um-
ráða, en samningar þess efnis yrðu
að liggja á borðinu áður en hægt
væri að ganga frá málinu.
Ekki öll kurl komin til grafar
Morgunblaðið/Frikki
Vinna Húsnæðið við Hólavað er í eigu þrotabús og hjá skiptastjóra, en engu
að síður eru starfsmenn þar í vinnu við að gera það íbúðarhæft.
Áfangaheimili við
Hólavað í biðstöðu
ÍBÚAR í Norðlingaholti furða sig á
því að Reykjavíkurborg hafi ákveð-
ið að koma á fót áfangaheimili í
miðri íbúðabyggð án samráðs við
íbúa hverfisins og gera ráð fyrir að
afhenda borgaryfirvöldum mót-
mælalista í dag. „Það er ekki kynnt
fyrir okkur hvað standi til. Það er
eins og það eigi bara að skjóta fyrst
og spyrja svo,“ segir Þormóður
Skorri Steingrímsson, íbúi í hverf-
inu.
Við Hólavað 1-11 er rað-
húsalengja í byggingu og stendur
til að þar verði áfangaheimili fyrir
fjóra einstaklinga í hverju húsi eða
alls 24 manns. Þormóður Skorri
Steingrímsson segir að fyrst hafi
verið talað um að þarna ætti að
vera eftirmeðferð á sprautufíklum
en síðan hafi heyrst að húsnæðið
yrði fyrir eftirmeðferð á áfeng-
issjúklingum. Íbúarnir vissu ekki
fyrir víst hvað ætti að vera þarna
og fengju engar upplýsingar frá
borgaryfirvöldum.
Húsnæði nauðsynlegt
Þormóður Skorri segir ljóst að
einhvers staðar verði eftirmeðferð
að eiga sér stað og ekki sé hægt að
hafa þetta fólk á hrakhólum en
mjög æskilegt sé að málið sé kynnt
fyrir íbúum svæðisins. „Það er bara
fyrir tilviljun að þetta kemst upp,“
segir hann og bætir við að nú standi
vinna yfir í húsunum þrátt fyrir að
þau séu enn eign þrotabús.
Síðan um helgi hefur undir-
skriftum verið safnað í hverfinu til
stuðnings mótmælum vegna þess að
málið hafi ekki verið kynnt íbúum
og vegna staðsetningar starfsem-
innar. Hafsteinn Þór Eggertsson
segir að söfnunin hafi gengið vel.
Um 300 undirskriftir hafi fengist í
fyrstu atrennu og afhenda eigi
borgaryfirvöldum listana í dag.
Eins og að skjóta
fyrst og spyrja svo
JARÐSKJÁLFTI, 3,3 að stærð,
mældist upp úr klukkan 6 í gær-
morgun við norðanvert Ingólfsfjall.
Skjálftinn var á fimm kílómetra
dýpi og fannst á Selfossi.
Fáeinir minni skjálftar mældust í
kjölfarið. Þetta eru eftirskjálftar
frá Suðurlandsskjálftanum sem
varð hinn 29. maí síðastliðinn.
Jarðskjálfti
við Ingólfsfjall
BÚSTÓLPI ehf. á Akureyri hefur
hækkað verð á kjarnfóðri um
4-5%. Meðalverð á 16% blöndu
með fiskimjöli hefur hækkað um
31% það sem af
er ári og með-
alverð á 16%
blöndu, án fiski-
mjöls, hefur
hækkað um 35%.
Meðalverð á
fiskimjöls-
blöndum er
reiknað út frá verði á Alhliða-
blöndu frá Bústólpa, Kúakögglum
16 frá Fóðurblöndunni og Góðnyt
K-16 frá Líflandi. Af þeim fiski-
mjölslausu er miðað við DK-16 frá
Bústólpa og Fóðurblöndunni og
Sparnyt 16 frá Líflandi.
Fóður hækkar
SAMNINGANEFND heilbrigð-
isráðherra (SHBR) og samninga-
nefnd Læknafélags Íslands hafa
gert með sér samning um þjónustu
heimilislækna á læknastofum utan
heilsugæslustöðva. Um er að ræða
rammasamning sem nær til fimm
ára og er á grundvelli hans „stefnt
að útboði á rekstri læknastofu
þriggja til fimm heimilislækna á
höfuðborgarsvæðinu síðar á
árinu,“ að því er fram kemur í til-
kynningu frá heilbrigðisráðuneyt-
inu.
Miðar samningurinn að því að
þrír eða fleiri heimilislæknar
myndi teymi um „faglegt samstarf
og rekstur heilsugæslu- og lækna-
stöðvar“, samkvæmt sömu kröfum
og gerðar séu til „læknastöðva og
lækna sem vinna eftir þessum
samningi og gerðar eru í hinu op-
inbera heilsugæslukerfi“. Vinna
starfsmenn SHBR að gerð sam-
bærilegs rammasamnings við sjálf-
stætt starfandi hjúkrunarfræðinga.
Samið um
þjónustu
heimilislækna