Morgunblaðið - 09.07.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 13
ERLENT
ÓHEFÐBUNDIÐ þjófagengi
herjar nú á þá íbúa San Francisco
sem láta sér annt um umhverfið.
Associated Press sagði í gær frá því
að íbúar borgarinnar kvörtuðu í sí-
vaxandi mæli yfir því að ruslið sem
þeir settu út á stétt á miðvikudags-
kvöldum svo endurvinnslufyrirtæki
gætu hirt það, væri iðulega horfið
örfáum klukkustundum síðar. Talið
er að skipulögð gengi á vörubílum
séu þar á ferð.
Þetta er þó sýnu verra mál fyrir
endurvinnslufyrirtækin sjálf því
fyrir fullan vörubílsfarm af endur-
vinnanlegu efni er hægt að fá í
kringum 1.000 dali, eða tæpar
80.000 íslenskar krónur.
Verðið sem fæst fyrir úrgang úr
áli, gleri og pappa hefur hækkað að
undanförnu en verð á notuðu áli
hefur hækkað nær þrefalt á fimm
árum og mikil eftirspurn er eftir
notuðum dagblaðapappír í Kína og
á Indlandi. Efnahagur almennings
hefur líka dregist saman. Þetta
tvennt er talið ástæðan fyrir því að
þjófar ásælast nú slíkan varning.
Það er nú þegar ólöglegt í nokkr-
um borgum Bandaríkjanna að
hnupla dósum, flöskum og öðru
slíku úr ruslatunnum, þar á meðal í
San Fransisco og New York. Í fyrr-
nefndu borginni geta þjófar fengið
sektir allt að 500 dölum og sex mán-
aða fangelsi.
Nokkur endurvinnslufyrirtæki
hafa fengið einkarannsóknarmenn
til liðs við sig og sett upp eftirlits-
myndavélar en talið er að skipu-
lagðir þjófahringar hafi stolið and-
virði nær hálfrar milljónar
bandaríkjadala, eða nær 40 millj-
óna íslenskra króna, í endurvinn-
anlegum vörum.
Yfirvöld í Kaliforníu íhuga nú að
setja ný lög um endurvinnslu,
þannig að framvísa þurfi persónu-
skilríkjum þegar skilað er á endur-
vinnslustöðvarnar andvirði meira
en 50 bandaríkjadollar.
sigrunhlin@mbl.is
Bíræfnir bófar stela rusli
ÍBÚAR Phnom Penh, höfuðborgar Kambódíu,
fagna því að umdeilt hindúahof frá 11. öld hafi
verið sett á heimsminjaskrá Menningar-
málastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.
Alþjóðadómstóllinn úrskurðaði árið 1962 að
Preah Vihear-hofið tilheyrði Kambódíu þótt
aðalinngangur þess væri innan landamæra Taí-
lands. Þrátt fyrir deiluna ákvað stjórn Taílands
að styðja umsókn Kambódíumanna um að hofið
yrði sett á heimsminjaskrána en taílenskur dóm-
stóll úrskurðaði að stjórninni bæri að draga
stuðninginn til baka.
AP
Umdeilt hof sett á heimsminjaskrá UNESCO
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
LEIÐTOGAR G8-ríkjanna sam-
þykktu í gær það markmið að losun
gróðurhúsalofttegunda yrði minnk-
uð um a.m.k. helming í heiminum
öllum fyrir árið 2050. Leiðtogarnir
skildu þó eftir marga lausa enda.
Evrópusambandið hafði t.a.m.
beitt sér fyrir því að markmiðið yrði
miðað við losunina eins og hún var
árið 1990 eins og í Kyoto-bókuninni
sem fellur úr gildi árið 2012. Í yfir-
lýsingu leiðtoganna kemur ekkert
fram um viðmiðunarárið en for-
sætisráðherra Japans sagði á blaða-
mannafundi að miðað yrði við los-
unina „eins og hún er nú“. Segja má
að leiðtogar iðnveldanna hafi með
þessu fært markið nær sér til að
auðvelda langhlaupið því losun gróð-
urhúsalofttegunda í heiminum hefur
aukist um rúman fjórðung frá 1990.
Margir umhverfisverndarsinnar
urðu fyrir vonbrigðum með niður-
stöðu fundarins, einkum vegna þess
að leiðtogarnir náðu ekki samkomu-
lagi um markmið sem næðu til
skemmri tíma. Evrópusambandið er
hlynnt því markmiði að minnka los-
unina um 25-40% fyrir árið 2020 en
bandarísk stjórnvöld telja það
óraunhæft.
Háð framlagi annarra
Í yfirlýsingunni er tekið fram að
ekki verði hægt að minnka losunina
um a.m.k. 50% fyrir miðja öldina
nema með „hnattrænu“ átaki og
„framlagi allra helstu hagkerfa
heims“. Stjórnvöld í Bandaríkjunum
og Kanada geta því sagt að stuðn-
ingur þeirra við markmiðið sé bund-
inn því skilyrði að lönd á borð við
Kína og Indland leggi einnig sitt af
mörkum í þessum efnum.
Í yfirlýsingunni kemur ekki fram
hversu mikið einstök ríki þurfi að
minnka losunina til að markmiðið
geti náðst.
Leiðtogar Evrópusambandsins
fögnuðu yfirlýsingunni, sögðu hana
„skýr skilaboð“ til heimsbyggðar-
innar. Umhverfisverndarsamtök
sögðu hins vegar niðurstöðuna alltof
óskýra og rýra í roðinu.
Margir endar óhnýttir
G8-ríkin samþykktu fjarlægt og óskýrt markmið um að minnka losun gróðurhúsa-
lofttegunda um helming Umhverfisverndarsamtök óánægð með niðurstöðuna
! "#$
% &''(
!"##$ !%&&#
' (%&&#)"##$* + !' %&&# "##,)%"* )*+
*,-+
).-*/-0
)++-0/-0
)'-'/-.
0-0
&-++&-0
&.-0&+-.
*-'0-0
!
"#$% &'($$ ')#
) & $ & &$ & ( *
Leiðtogar Kína, Indlands, Mexíkó,
Brasilíu og Suður-Afríku skoruðu í
gær á G8-ríkin að minnka losun
gróðurhúsalofttegunda um 45%
fyrir árið 2012 og allt að 95% fyrir
2050, miðað við árið 1990. Þeir
sögðu G8-ríkin bera mesta ábyrgð
á loftslagsbreytingum af manna-
völdum og hafa efnahagslegan
mátt til að samþykkja minni losun.
G8-ríkin minnki losunina um 95%
STARFSMENN banka í Kalkútta á
Indlandi rak í rogastans þegar
Laxmi Das rogaðist inn með ævi-
starf sitt, meira en 90 kíló af klinki.
Laxmi er sextug og hefur haft
lifibrauð sitt af betli síðan hún var
sextán ára. Með sparsemi og ráð-
deild safnaði hún 30.000 rúpíum eða
um 50.000 íslenskum krónum. Elsta
myntin var frá 1961, en bankinn tók
við henni þó að hún væri úrelt.
Lögregla hafði ráðlagt henni að
leggja peningana inn á banka, þar
sem hætt væri við að þeim yrði stol-
ið úr kofa hennar í fátækrahverfi
skammt frá bankanum.
Digur sjóður
MARCUS
Brauchli verður
næsti ritstjóri
bandaríska dag-
blaðsins The
Washington Post
en hann var áður
ritstjóri Wall
Street Journal.
Brauchli sem
er 47 ára gamall
tekur í septem-
ber við af Leonard Downie sem hef-
ur starfað á blaðinu í alls 44 ár.
Washington Post er einkum þekkt
fyrir fréttaskýringar og á sínum
tíma fletti það ofan af Watergate-
hneykslinu sem varð Richard Nixon
forseta að falli. Líkt og aðrir rit-
stjórar dagblaða stendur Brauchli
frammi fyrir erfiðum verkefnum og
ljóst að þungur róður er fram-
undan. Breyttar neysluvenjur og ný
tækni, fækkun lesenda og auglýs-
inga hefur gert flestum vestrænum
daglöðum erfitt fyrir. Lesendum
Washington Post hefur fækkað um
200.000 frá árinu 1993 en þeir eru
nú um 630.000.
Brauchli tekur
við stýrinu
Marcus W.
Brauchli
KÍNVERJUM hefur gengið vel að
reisa þau mannvirki sem þarf til að
halda sumarólympíuleikana en þeir
hefjast í næsta mánuði. Miklar um-
bætur hafa einnig verið gerðar á
samgöngum og öðrum innviðum í
Beijing, hvarvetna hafa menn fágað
og skrúbbað, múrar eru reistir til að
fela fátækrahverfi. Um 8000 manna
lið á að halda almenningssalern-
unum hreinum en þau hafa lengi
þótt illa þefjandi.
En loftmengun er vandi sem sum-
ir óttast að muni setja strik í reikn-
inginn. Fréttamaður BBC mældi
hana nýlega og var niðurstaðan að
sex daga af sjö var mengun yfir
gæðastöðlum sem Alþjóðaólymp-
íunefndin notar sem viðmiðun. Er
hætta á að þetta komi illa niður á
greinum sem taka langan tíma. Svo
gæti farið að fresta yrði eða fella
niður keppni í þeim. En Kínverjar
eru sannfærðir um að allt muni
ganga vel. Tveim vikum áður en
leikarnir hefjast verður mengun
minnkuð með því að draga stórlega
úr bílaumferð og verksmiðjum verð-
ur lokað tímabundið. kjon@mbl.is
Fágað og
skrúbbað
Enn er loftmengun
of mikil í Beijing
Reuters
Vont loft Varla grillti í leikvanginn
í Beijing í gegnum mistrið í gær.