Morgunblaðið - 09.07.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 29
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU, 26. STARFSÁR
ALÞJÓÐLEGT ORGELSUMAR, 16. STARFSÁR
KLAISORGELIÐ 15 ÁRA
Alþjóðlegt orgelsumar
í Hallgrímskirkju
MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU S. 510 1000
Norræn orgelhátíð
HINN HEIMSÞEKKTI
BÁSÚNULEIKARI Christian Lindberg
OG Gunnar Idenstam ORGELLEIKARI
Í HALLGRÍMSKIRK JU
SUNNUDAGINN
13. JÚLÍ KL. 20.
Á efnisskránni eru
þeirra eigin verk og
umritanir á þekktum
tónverkum m.a.
BOLERO eftir Ravel.
l ist vinafelag. is
ÞESSI prýðilega bók hefst þar sem ung-
lingurinn Todd Hewitt bíður þess óþreyju-
fullur að verða fullorðinn, rétt óorðinn
þrettán ára og bíður þess að gangast undir
manndómsvígslu. Svo vill til að hann er síð-
asta barnið í bænum,
sem einangraður er frá
umheiminum, enda gekk
skæður banvænn vírus
sem lagðist á konur ekki
löngu eftir fæðingu
hans.
Þessi vírus hafði líka
þau sérstöku áhrifa á
karla að þeir geta lesið
hugsanir hver annars,
eða réttara sagt komast
ekki hjá því, þar sem hver karlmaður er
eins og útvarpsstöð með stöðugri útsend-
ingu og þegar margir eru saman komnir
eru óhljóðin, suðið, nánast óbærilegt. Við
þetta er svo því að bæta að öll dýr geta nú
„talað“, eða réttara sagt – menn geta lesið
hugsanir þeirra og þá um leið komist að því
að þau hugsa ekki margt, og fátt gáfulegt.
Sögusviðið er því skemmtilegt, en stein-
inn tekur úr þegar í ljós kemur að þessi
heimsmynd, svo rökrétt sem hún annars
er, er alls ekki rétt, og það sem meira er,
hún er svo vitlaus að þegar Todd Hewitt
rekst fyrir tilviljun á þögn, á reit þar sem
ekkert heyrist í hinu óstöðvandi hugsanas-
uði á hann skyndilega fótum sínum fjör að
launa.
The Knife of Never Letting Go er gletti-
lega vel skrifuð bók þó hún sé ekki nema
önnur skáldsaga höfundar (The Crash of
Hennington kom út 2003). Þannig er Todd
Hewitt vel mótaður og leyndarmálið mikla
hæfilega ógnvænlegt. Hugsanlega má setja
það út á bókina að Ness er full hrifinn af
hugmyndinni um „talandi“ dýr og hvað þau
hafi að segja, en vel má vera að hann ætli
sér að nýta það síðar í bókaflokknum, auk-
inheldur sem „geimverurnar“, Spackle,
(sem eru reyndar ekki geimverur) eiga
örugglega eftir að hafa sitt að segja í fram-
haldi bókarinnar sem er í smíðum.
Óbærilegt suð
The Knife of Never Letting Go eftir Patrick Ness.
479 bls. innb. Walker Books gefur út.
Árni Matthíasson
ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. Sail - James Patterson & How-
ard Roughan
2. Nothing to Lose - Lee Child
3. The Host - Stephenie Meyer
4. Plague Ship - Clive Cussler &
Jack Du Brul
5. Love the One You’re With -
Emily Giffin
6. Chasing Harry Winston - Laur-
en Weisberger
7. The Broken Window - Jeffery
Deaver
8. Odd Hours - Dean R. Koontz
9. Married Lovers - Jackie Collins
10. Sundays at Tiffany’s - James
Patterson & Gabrielle Charbon-
net
New York Times
1. The Curious Incident of the Dog
in the Night-time - Mark Haddon
2. The Outcast - Sadie Jones
3. The Kite Runner - Khaled Hos-
seini
4. The Ghost - Robert Harris
5. The Road Home - Rose Tremain
6. Dubliners - James Joyce
7. The Uncommon Reader - Alan
Bennett
8. The Forgotten Garden - Kate
Morton
9. The Great Gatsby - F.Scott Fitz-
gerald
10. A Thousand Splendid Suns -
Khaled Hosseini
Waterstone’s
1. Making Money - Terry Pratc-
hett
2. Bones to Ashes - Kathy Reichs
3. Dead Heat - Dick Francis
4. Step on a Crack - James Patter-
son
5. Dark River - John Twelve
Hawks
6. Bungalow 2 - Danielle Steel
7. Invisible Prey - John Sandford
8. When She Was Bad - Jonathan
Nashaw
9. Hollow - Nora Roberts
10. Quest - Wilbur Smith
Eymundsson
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
„ÞAÐ sem kennarar ykkar sögðu ykkur aldrei um
fræga rithöfunda, skáld og leikritahöfunda“ er und-
irtitill bókar sem á ensku ber heitið Secret Lives of
The Great Authors. Höfundurinn er Robert Schna-
kenberg og Mario Zucca myndskreytir verkið þann-
ig að lesandinn tekur eftir.
Bókarkápan er sett upp í líkingu við uppslátt hjá
National Enquirer og álíka slúðurblöðum. Þar eru
birtar myndir af nokkrum rithöfundum með tilheyr-
andi stríðsfyrirsögnum: Hemingway ræðst á gagn-
rýnanda! – Eiturlyfjafíkn Louise May! – Er Kafka
haldinn strípihneigð? – Hin töfrandi Fitzgerald-hjón
á leið í hundana! – Villta hliðin á Joyce!
Á bókarkápu segir síðan að bókin sé einkennileg
en sönn saga af morðingjum, framhjáhaldsseggjum
og eiturlyfjasjúklingum. Innihald bókarinnar er svo
í samræmi við þetta og tryggir lesandanum for-
vitnilegar ánægjustundir.
Leikur verður harmleikur
Bókin hefst á umfjöllun um Shakespeare sem fær
harðan áfellisdóm fyrir að hafa verið nirfill og endar
á Thomas Pynchon sem hæðst er að fyrir að hafa
ekki viljað láta mynda sig í fjörutíu ár. Á 300 ríku-
lega myndskreyttum síðum er meðal annars rætt
um skelfilega borðsiði Balzacs, ópíumfíkn Louise
May Alcott, dálæti Gertrude Stein og Alice B. Tok-
las á ketti sínum, Hitler, og drykkjuskap fjölmargra
rithöfunda.
Sagt er frá því þegar William Burroughs drap
eiginkonu sína, Joan, árið 1951 þegar þau settu á
svið fyrir samkvæmisgesti grobbútgáfu sína af Vil-
hjálmi Tell. Joan setti glas á höfuð sér og Burr-
oughs miðaði á glasið. Hann skaut konu sína í höf-
uðið.
Salinger drakk eigið þvag
Þarna er einnig að finna sakleysislegri upplýs-
ingar eins og þær að J.D. Salinger hafi drukkið eig-
ið þvag sér til heilsubótar. Jean Paul Sartre er
sagður hafa óttast fátt meir en að lenda í klóm kol-
krabba og vera dreginn niður á hafsbotn. Ayn Rand
var einlægur aðdáandi sjónvarpsþáttanna Charlie’s
Angels en hafði þvílíka andstyggð á tónlist Beetho-
vens að hún átti til að slíta vináttusamböndum ef
hún komst að því að vinurinn hefði unun á tónlist
meistarans. Og þetta eru einungis örfá dæmi úr bók
sem er sneisafull af upplýsingum af þessu tagi.
Slúður skilar sínu
Höfundurinn segir að með því að fjalla um ævi
rithöfunda á skemmtilegan hátt sé líklegt að áhugi
ungs fólks aukist á verkum þeirra. Ef kennari segi
nemendum sínum að James Joyce hafi lifað hug-
myndaríku kynlífi þá séu nemendur líklegri til að
leggja til atlögu við Ulysses með opnum huga í stað
þess að gefast upp.
Forvitnilegar bækur: Hið leynda líf rithöfundanna
Einkennilegir siðir
Samkvæmisleikur William Burroughs í hlutverki
Vilhjálms Tell.
Samkvæmisleikur Burroughs og eiginkona hans
bregða á leik með skelfilegum afleiðingum.
TEIKNIMYNDIN Kung Fu Panda
hefur vakið mikið umtal í Kína. Þar
hefur myndin verið sýnd fyrir full-
um bíósölum um gervallt Kínaveldi
og kunna þarlendir vel að meta,
skv. frétt í The Guardian. En um
leið hefur myndin orðið Kínverjum
tilefni sjálfskoðunar: af hverju
tekst Hollywood að nýta sér kín-
versk minni, líkt og risapönduna
sem og fleiri þekkt kínversk minni
sem koma fyrir í myndinni, jafn vel
og raun ber vitni – á meðan kín-
verskum kvikmyndagerðarmönn-
um mistekst það svona oft? „Af
hverju getum við ekki búið til
fyndna risapöndu?“ kalla kínversk-
ir álitsgjafar og bloggarar örvænt-
ingarfullir.
Teiknimyndapanda á borð
ríkisstjórnarinnar
Og það eru ekki bara kaffihúsa-
spekingar sem ræða þetta mál, ráð-
gjafanefnd ríkisstjórnarinnar í
menningarmálum fundaði sérstak-
lega og lýsti því yfir að of strangt
eftirlit og of harðar reglur stæðu
kínverska kvikmyndaiðnaðinum
fyrir þrifum, auk þess sem kín-
verskir kvikmyndaframleiðendur
væru flestir of áhættufælnir. „Þrátt
fyrir að það sé engin töfrauppskrift
til að góðri kvikmynd, þá ætti ríkis-
stjórnin að slaka á ritskoðun sinni.
Að opna fleiri gáttir fyrir kín-
verska listamenn og veita þeim
meira rými myndi á endanum þýða
meiri nýsköpun og á endanum auka
menningaráhrif Kína um heim all-
an,“ segir í niðurstöðu nefndar-
innar.
Efasemdaraddir í minnihluta
Einstaka álitsgjafar hafa vissu-
lega latt fólk til þess að sjá mynd-
ina, en hingað til hafa ástæður
þeirra ýmist verið langsóttar eða
vafasamar. Listmálarinn Zhao
Bandi, sem notar pandabirni mikið
í verkum sínum, kvartaði yfir því að
Hollywood væri að mala gull á
menningararfi Kínverja svo stuttu
eftir jarðskjálftann í Sichuan á
meðan aðrir benda á að myndin sé
framleidd af DreamWorks kvik-
myndaverinu, sem Steven Spiel-
berg er meðeigandi að, en hann
hætti ráðgjöf við Ólympíuleikana í
Beijing sökum tengsla Kínverja við
Súdan. En slíkum röddum hafa
flestir Kínverjar hlegið jafnt hátt
að og þeir hlæja að risapanda-
birninum Po og bardagatilþrifum
hans. asgeirhi@mbl.is
Slagsmálapandan hristir
upp í Kínverjum
Bandarískur Kínverji Hér sést kung-fu pandan Po taka létta sveiflu.
Kung Fu Panda
hefur leitt til
naflaskoðunar
kínverska kvik-
myndaiðnaðarins
ÞRIÐJA sería Heroes er nú í undir-
búningi ytra og þegar eru komnar
myndir á netið af nýjum skúrki,
Daphne, sem gengur einnig undir
nafninu Snögg eða „The Speedster“,
en eins og nafnið bendir til ferðast
snótin sú um á ofurhraða. En þegar
vinur okkar Hiro Nakamura stöðvar
tímann þá nær hann ekki að stöðva
hana að fullu, en þá ferðast hún um á
eðlilegum hraða þannig að þau jafna
í raun út ofurkrafta hvors annars.
Daphne er leikin af Brea Grant
sem áhorfendur annarra sjónvarps-
þátta, Friday Night Lights, kannast
vafalaust margir við sem hina bók-
hneigðu Jean.
Hægt á Snöggu
Störukeppni Hiro og Daphne.