Morgunblaðið - 10.07.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2008 11
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
VEGAGERÐIN auglýsti nýlega
eftir tilboðum í gerð Suðurstrand-
arvegar. Óhætt er að segja að hér
sé um langþráða framkvæmd að
ræða fyrir íbúa á Suðurnesjum og
Suðurlandi, enda tengir vegurinn
saman þessi fjölmennu svæði. Suð-
urstrandarvegur hefur verið lengi á
áætlun, en framkvæmdum hefur
ítrekað verið frestað.
Verkið felst í nýbyggingu veg-
arins á 33,6 kílómetra löngum kafla
ásamt 2,3 km löngum tengingum
við hann, smíði 12 metra steyptrar
bitabrúar á Vogsós neðan Hlíð-
arvatns í Selvogi, auk ræsa,
grjótvarnargarða, reiðstígs og girð-
inga. Þessi hluti vegarins er á milli
Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnar.
Um er að ræða mikla vegafram-
kvæmd, sem einnig er auglýst á
Evrópska efnahagssvæðinu. Tilboð
verða opnuð 12. ágúst n.k. Stefnt
er að því að öllu verkinu verði lokið
fyrir 15. september 2011.
Suðurstrandarvegur, milli Þor-
lákshafnar og Grindavíkur, er í
heild 58,5 kílómetrar. Seinni hluti
framkvæmdarinnar, frá Krýsuvík
til Grindavíkur, er í hönnun og
verður væntanlega boðinn út í
haust, að sögn Svans G. Bjarnason-
ar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á
Suðursvæði. Sá hluti liggur í gegn-
um Ögmundarhraun, sem er öllu
grófara yfirferðar. Svanur reiknar
með að þessum hluta verksins verði
einnig lokið haustið 2011.
Vegurinn er hannaður með
bundnu slitlagi fyrir 90 km há-
markshraða og þungaflutninga.
Núverandi vegur, sem nefndur hef-
ur verið Ísólfsskálavegur, er malar-
vegur, mjór og hæðóttur.
Til framkvæmdanna er talið
þurfa um 1.450.000 rúmmetra af
efni og verða um 1.000.000 rúm-
metrar sóttir í 18 námur og 450.000
rúmmetrar í skeringar. Í grein-
argerð Vegagerðarinnar kemur
fram að stofnunin hafi í upphafi
gert sér grein fyrir því að um mjög
viðkvæmt landsvæði væri að ræða,
enda mun vegurinn víða liggja um
ósnortin hraun. Þess vegna hafi
verið reynt að sneiða framhjá við-
kvæmustu svæðunum og ýmsar
ráðstafanir verið gerðar til að koma
í veg fyrir rask lífríkis, nátt-
úruminja, fornminja eða sérstakra
jarðminja.
Stórbrotin náttúrufegurð
Markmið framkvæmdarinnar er
að byggja upp varanlega og örugga
vegtengingu á milli Suðurlands og
Suðurnesja til hagsbóta og öryggis
fyrir atvinnulíf og íbúa á þessum
svæðum. Aðgengi ferðafólks verði
stórbætt að svæði með stórbrotna
náttúrufegurð og mikið útivistar-
gildi. Auk þess gefi nýr Suður-
strandarvegur fyrirtækjum í ferða-
þjónustu möguleika á að bjóða upp
á áhugaverða tengingu og hring-
ferðir frá Keflavíkurflugvelli að
mikið sóttum ferðamannastöðum á
Suðurlandi. Með tilkomu Suður-
strandarvegar skapist greiðfær leið
sem tekið geti við umferð sem ann-
ars færi um Hellisheiði og Þrengsli,
oft í vondum veðrum að vetri til.
Suðurstrandarvegur muni létta á
umferð á Suðurlandsvegi um
Hellisheiði og á stofnbrautarkerfi
höfuðborgarsvæðisins.
Samkvæmt athugunum Byggða-
stofnunar er talið að Suðurstrand-
arvegur muni hafa jákvæð áhrif á
útgerð á svæðinu. Útgerðarmenn
telja að það verði hagkvæmt að láta
skip landa í auknum mæli í Þor-
lákshöfn. Með því að landa þar
komast áhafnir einnig fyrr heim í
landlegum og möguleikar á sam-
starfi við fyrirtæki í Þorlákshöfn
aukast. Einnig opnast möguleiki til
þess að flytja meira út af fiski með
flugi vegna greiðari leiðar á Kefla-
víkurflugvöll. Í þessu sambandi
skipti einnig máli að Grindavík-
urhöfn þykir erfið til innsiglingar
og því oft þægilegra að landa í Þor-
lákshöfn.
Áhrif Suðurstrandarvegar á
ferðaþjónustu eru talin verða mjög
jákvæð. Íslendingar jafnt sem út-
lendingar muni í auknum mæli aka
um svæðið og heimsækja bæði
Grindavík, Krýsuvík og Þorláks-
höfn. Menn sjá fyrir sér fjölgun
starfa í öllum greinum ferða-
mennskunnar, en einkum við
greiðasölu og afþreyingu af ýmsu
tagi.
Möguleikar aukast einnig fyrir
orlofsbyggð á svæðinu og þjónustu
henni tengda.
Langþráður vegur boðinn út
!" !
!" !"
!
#
$$$%&
! "
#
$
#
#
$
%##
&
' #
( #
' #
(
Suðurstrandarvegur mun tengja saman fjölmennar byggðir á Suðurlandi og Suðurnesjum
Vegurinn mun hafa mikil áhrif á útgerð, fiskvinnslu og ferðaþjónustu á svæðinu
Í HNOTSKURN
»Hinn nýi Suðurstrandar-vegur mun stytta leiðina
milli Þorlákshafnar og
Grindavíkur um 13 kílómetra.
»Leiðin milli Selfoss ogKeflavíkurflugvallar stytt-
ist um 9 km.
»Sunnlendingar sem leiðeiga í flug þurfa ekki að
aka yfir Hellisheiði og í gegn-
um höfuðborgarsvæðið eins
og nú er.
Ljósmynd/Vegagerðin
Vegurinn í dag Hæðóttur malarvegur sem lokast fljótt að vetri til.
MEÐ tilkomu Suðurstrandarvegar
verða Suðurland og Suðurnes eitt
atvinnusvæði, að mati Guðjóns
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum.
Guðjón segir að hingað til hafi fólk
ekki verið tilbúið að aka yfir fjall-
vegi til að sækja vinnu, en það
muni nú breytast.
Að sögn Guðjóns má áætla, að á
Suðurnesjum og vesturhluta Suð-
urlandsins búi um 40 þúsund
manns. Mikil fólksfjölgun hefur
verið á þessum svæðum undan-
farin ár.
Guðjón segir að sveitarstjórn-
armenn séu ekki farnir að velta því
fyrir sér í alvöru, hvaða breytingar
hinn nýi vegur muni hafa í för með
sér. Áform hafi verið um að setja
slíka vinnu í gang en ekkert hafi
orðið af því, m.a. vegna þess að
vegalagningunni hafi verið frestað
aftur og aftur. Nú verði að setja
þessa vinnu í fullan gang.
Suðurnes og Suðurland eitt atvinnusvæði
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
SKORTUR á samráði og trausti milli
bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar í
Grindavík, leiddi til þess að upp úr
samstarfinu slitnaði í fyrrakvöld.
Þetta segir Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir, oddviti Samfylkingar og verð-
andi bæjarstjóri Grindavíkur. Flokk-
arnir endurnýjuðu samstarf sitt frá
fyrra kjörtímabili í kjölfar sveitar-
stjórnarkosninganna 2006, en nú hef-
ur Samfylkingin gert samkomulag við
Framsóknarflokkinn um samstarf í
bæjarstjórn. Sigmar Eðvarðsson,
oddviti sjálfstæðismanna og fráfar-
andi formaður bæjarráðs, segir að
metnaður Samfylkingar til þess að
komast yfir bæjarstjórastólinn hafi
ráðið för. Ólafur Örn Ólafsson, sem
ekki er flokksbundinn, var bæjar-
stjóri á síðasta kjörtímabili og end-
urráðinn 2006. Honum hefur verið
sagt upp störfum, en heldur launum
út kjörtímabilið, að sögn Jónu Krist-
ínar.
Uppsafnaður vandi
Jóna Kristín segir að eftir að
ágreiningur magnaðist í bæjarstjórn-
inni hafi menn rætt saman. Reynt hafi
verið að ná samkomulagi svo hægt
yrði að halda samstarfinu áfram. Því
miður hafi verið orðið of seint að
treysta böndin við sjálfstæðismenn-
ina. Því hafi verið gengið til fundar við
framsóknarmenn í fyrrakvöld.
Jóna Kristín vill ekki ræða ágrein-
ingsmál milli Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks nánar. „Þetta er upp-
safnaður vandi,“ segir hún. Ekki hafi
endilega þurft stór mál til þess að
fylla mælinn. Aðspurð segist hún ekki
hafa persónulega farið fram á það að
taka við embætti bæjarstjóra. Emb-
ættin hafi verið samkomulag milli
nýju samstarfsflokkanna.
„Langaði í stólinn“
Sigmar Eðvarðsson segir að í upp-
hafi kjörtímabilsins hafi verið gerður
málefnasamningur og eftir honum
hafi verið farið. „Samfylkinguna lang-
aði bara í bæjarstjórastólinn,“ segir
Sigmar, spurður um hvaða skýringar
hann telji helstar á meirihlutaslitun-
um. „Það er eina skýringin á þessu.
Þau lögðu upp með það í síðustu kosn-
ingum en fengu ekki nægilegt fylgi til
þess. Þau setja fyrir sig ágreining við
mig,“ segir hann.
Samráð og traust skorti
Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir
Sigmar
Eðvarðsson
Frá Grindavík Jóna Kristín Þorvaldsdóttir verður nýr bæjarstjóri Grinda-
víkur og Petrína Baldursdóttir, Framsóknarflokki, formaður bæjarráðs.
Meirihlutaslit í
bæjarstjórn
Grindavíkur
STÓRÚTSALA
Í FULLUM GANGI,
SUMARYFIRHAFNIR
2-FYRIR 1
SPARIDRESS Í ÚRVALI
Laugavegi 63 • S: 551 4422