Morgunblaðið - 10.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2008 13
MENNING
EITT af stærstu söfnum New York-
borgar, Brooklyn-listasafnið, hefur
játað að þriðjungur koptískra skúlp-
túra í eigu þess sé falsaður. Engu að
síður verða verkin sett á sýningu á
næsta ári, og verður hún all sérstök
að sögn forsvarsmanna safnsins.
Dr. Edna Russmann, sýning-
arstjóri við Brooklyn-safnið, sagði í
samtölum við fjölmiðla vestra að fyr-
ir fjórum árum hefði hún farið að
renna í grun að ekki væri allt með
felldu með koptísku stytturnar, en
aðeins eitt safn í Bandaríkjunum á
stærra safn koptískra listmuna en
Brooklyn-safnið. Hún sagði jafn-
framt að hún hefði engar efasemdir
um að opinbera sannleikann nú.
Þótt efnagreiningu á styttunum sé
ekki að fullu lokið segir hún að tíu af
þeim þrjátíu styttum sem um ræðir
séu beinlínis falsaðar og að við helm-
ing hinna styttnanna hafi verið átt á
einhvern hátt.
Tilgangur safnsins með að setja
verkin á sýningu er sá að vekja önn-
ur söfn til umhugsunar um þann
möguleika að þau kunni einnig að
sitja uppi með falsaða listmuni. Þau
koptísku verk sem víst er talið að
séu ekta verða einnig á sýningunni.
Koptar voru kristin þjóð sem bjó í
Egyptalandi en talið var að stytt-
urnar, sem höggnar eru í kalkstein,
væru allar frá 3.-7. öld.
Fram hefur komið að sérfræð-
ingur í býsanskri list, Gary Vikan,
hafi fyrst vakið máls á því snemma á
áttunda áratugnum að koptísku
verkin gætu verið fölsuð en aldrei
gert það álit sitt opinbert.
begga@mbl.is
Falsaðir
Koptar í
Brooklyn
Sýndir til viðvörunar
Kopti Ein af fölsuðu styttunum.
HLJÓMSVEITARSTJÓRINN
James Levine, sem jafnframt er list-
rænn stjórnandi elstu og þekktustu
tónlistarhátíðar Bandaríkjanna,
Tanglewood-hátíðarinnar í
Massachusetts, veiktist skyndilega í
gær, fáum dögum eftir að hátíðin
hófst. Hátíðin hófst formlega um
helgina með flutningi á óperunni
Trójumönnunum eftir Berlioz, undir
stjórn Levines sjálfs.
Í tilkynningunni um veikindin
kom fram að hann gæti ekki tekið
frekari þátt í hátíðinni í ár, en henni
lýkur í ágústlok. Sagt var að Levine
þyrfti að gangast undir uppskurð og
að fjarlægja þyrfti annað nýra hans.
Meinið er sagt læknanlegt án frekari
inngripa og mun stjórnandinn geta
náð sér að fullu. James Levine er
listrænn stjórnandi Metropolitan-
óperunnar og sinfóníuhljómsveit-
arinnar í Boston, en hún hefur sum-
araðsetur í Tanglewood.
begga@mbl.is
Levine lasinn
Í KVÖLD kl.20 flytur Hljóm-
eyki Náttsöngva (Vesper) eftir
Sergjej Rachmaninov undir
stjórn Magnúsar Ragn-
arssonar á sumartónleikum í
Skálholtskirkju. Árið 1986 tók
Hljómeyki upp samvinnu við
Sumartónleika í Skálholti og
hefur síðan þá lagt meg-
ináherslu á flutning nýrrar ís-
lenskrar tónlistar. Í Skálholti
hefur Hljómeyki flutt ný verk
eftir mörg helstu tónskáld landsins. Eftir hlé leik-
ur þýski Ishum-kvartettinn strengjakvartett eftir
Giuseppi Verdi, en kvartettinn skipa Lisa Immer
og Elfa Rún Kristinsdóttir á fiðlur, Adam Römer
á víólu og Michael Römer á selló.
Tónlist
Hljómeyki syngur
Náttsöngva
Magnús
Ragnarsson
VISTARVERUR veru-
leikans heitir sýning
Margrétar Zóphónías-
dóttur sem nú stendur
yfir í Listhúsi Ófeigs á
Skólavörðustíg. Verkin
eru olíumálverk á
striga, unnin á síðustu
tveimur árum. Margrét
á rætur að rekja til
tveggja landa, Íslands
og Danmerkur. Á sýningunni fléttar Margrét
saman minningarbrotum sem mynda munstur og
tengjast þessum tveimur löndum sem hún rekur
uppruna sinn til. Margrét lauk forskóla Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands 1977 og útskrifaðist
úr Danmarks Design í Kaupmannahöfn árið 1981.
Myndlist
Vistarverur veru-
leikans hjá Ófeigi
Eitt verka Margrétar.
RAGNHILDUR Þóra
Ágústsdóttir opnar
sýninguna „Leit sankti
Húberts“ í Norska hús-
inu í Stykkishólmi á
laugardag kl. 13.30.
Þetta er fyrsta einka-
sýning Ragnhildar, en
hún tók einnig þátt í
samsýningunni „Í
bláum skugga“ á sama
stað nú í sumar. Myndefni hennar eru dýr í ýms-
um stellingum, lifandi eða dauð, máluð á hör með
útþynntri olíu. Innblásturinn sækir hún til leit-
ardýrlingsins Sankti Húberts að hinum full-
komna hirti og samfélags mannsins við náttúr-
una.
Myndlist
Sankti Húbert leit-
ar í Norska húsinu
Verk eftir Ragnhildi Þóru.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG er gríðarlega ánægð með
hvernig til hefur tekist með þessa
sýningu,“ segir Sigrún Sandra
Ólafsdóttir galleristi í Gallerí
Ágúst. Þar stendur nú yfir sum-
arsýning með verkum þeirra sjö
myndlistarmanna sem hafa sýnt
þar á því ári sem liðið er frá opnun
gallerísins. Eitt ár er kannski ekki
langur tími í slíkum rekstri en Sig-
rúnu Söndru fannst þó tímabært að
líta um öxl. „Það er snúið að setja
saman samsýningu. Þetta eru mál-
verk, ljósmyndir, teikningar, skúlp-
túrar og vídeóverk en þetta kemur
mjög vel út. Þetta er ekki eins og
einkasýningarnar þar sem ákveðið
þema er í gangi, listamaðurinn að
vinna í rýmið eða unnið út frá kons-
epti. Þetta er einfaldlega yfirlits-
sýning sem segir: „Sjáiði! Hér eru
frábærir samtíma myndlistarmenn
að sýna og þetta er það sem þeir
eru að gera í dag,“ segir Sigrún
Sandra.
Á sýningunni eru bæði verk frá
einkasýningum listamannanna en
líka ný verk. „Andrea Maack, sem
sýndi hér á Listahátíð við mjög
góðar undirtektir gerði glænýtt
verk fyrir þessa sýningu. Það er
teikning af hjarta og einkennandi
verk fyrir hana. Hún er líka með
handlóð úr HiMax-efni, alveg gull-
fallegir skúlptúrar.
Erlendi listamaðurinn á sýning-
unni er Rakel Bernie frá Argent-
ínu, sem sýndi á opnunarsýningu
gallerísins í fyrra með Ásdísi Sif
Gunnarsdóttur. Ég er með teikn-
ingu og skúlptúr eftir Rakel.
Margir listamannanna hafa verið
að taka þátt í sýningum erlendis.
Hulda Stefánsdóttir er á samsýn-
ingu í Scandinavian House í New
York. Verkin sem hún sýnir þar
eru þau sem voru á sýningu hennar
í Gallerí Ágúst og eru nú í eigi
Listasafns Íslands. Ásdís Sif er líka
að sýna í New York; í Luhring
Augustine-galleríinu,“ segir Sigrún
Sandra ánægð með sitt fólk. Sýn-
ingunni lýkur 26. júlí.
Gallerí Ágúst á horni Nönnugötu og Baldursgötu sýnir verk sjö listamanna
Sýning sem segir: Sjáiði!
Sýndarmálverk Virtual Painting heitir þessi ljósmynd eftir Ásdísi Sif Gunnarsdóttur frá árinu 2007.
Andrea Maack
Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Davíð Örn Halldórsson
Hulda Stefánsdótti
Magnea Ásmundsdóttir
Rakel Bernie
Sara Björnsdóttir
Listamennirnir
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„HLJÓMURINN er bara svo falleg-
ur í kirkjunni, hver tónn verður svo
fagur og manni líður vel,“ segir Elfa
Rún Kristinsdóttir fiðluleikari um
tilhlökkunina yfir að spila í Skálholti
um helgina.
Elfa Rún er komin hingað til lands
með heilan kvartett, Ishum Kvart-
ett, efnilegt ungt tónlistarfólk sem
hún hefur kynnst í Þýskalandi þar
sem hún býr.
„Þau eru ótrúleg öllsömul og ég lít
upp til þeirra,“ segir Elfa Rún þegar
hún er beðin að lýsa hópnum. Öll eru
þau virk og frjó í tónlistarlífinu
heima fyrir, t.d. stofnaði sellistinn
kammersveit sem nýlega gaf út sinn
fyrsta disk hjá Sony Classic.
Auk Elfu samanstendur hópurinn
af Lísu Immer á fiðlu, Adam Römer
á víólu og Michael Rauter á selló.
Árið 2006 vann Elfa J. S. Bach
keppnina í Leipzig en hún hefur nú
lokið námi í Freiburg og verið búsett
í Berlín um nokkurt skeið.
Elfa segist enn finna fyrir jákvæð-
um eftirköstum sigursins árið 2006,
hún fái af og til boð um að halda tón-
leika og á næsta ári er væntanlegur
diskur hennar með hljómsveit á veg-
um 12 tóna.
Ung, flink og fjölhæf
Elfa Rún Kristinsdóttir heldur tónleika um helgina með Ishum
Morgunblaðið/Valdís Thor
Þrír fjórðu Meðlimir Ishum Kvartetts nýlentir á landinu: Michael Rauter,
Elfa Rún og Adam Römer. Á myndina vantar Lísu Immer.
Fimmtudagur 10. júlí
20.00 Hljómeyki, stj. Magnús
Ragnarsson. S. Rahmaninov:
Náttsöngvar op. 37
21.30 Ishum Kvartett. G. Verdi:
Strengjakvartett.
Laugardagur 12. júlí
14.00 Erindi um tónlist Sveins Lúð-
víks Björnssonar.
15.00 Hljómeyki stj. Magnús Ragn-
arsson, Sigurður Halldórsson
selló, Ishum Kvartett. Verk eftir
Svein Lúðvík Björnsson stað-
artónskáld.
17.00 Ishum Kvartett. Beethoven:
Harfen kvartettinn op 74. Verk
frá miðöldum, endurreisn og nú-
tíma.
Sunnudagur 13. júlí
15.00 Ishum Kvartett. Endurt. dag-
skr. laugardags.
17.00 Guðsþjónusta. Hljómeyki
flytur messu Sveins Lúðvíks
Björnssonar.
Dagskrá helg-
arinnar í Skálholti
Sigrún Sandra Ólafsdóttir:
„Í mínum huga snerist þetta
fyrsta ár gallerísins að miklu
leyti um það hvernig því yrði tek-
ið. Móttökurnar hafa verið gríð-
arlega góðar. Ég er í góðum
tengslum við aðrar liststofnanir
og það var mikilvægt að svona
ungt gallerí fengi að taka þátt í
Listahátíð.
Fyrsta árið