Morgunblaðið - 10.07.2008, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er fimmtudagur
10. júlí, 192. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Vakið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Víkverji veltir því fyrir sérhvaða áhrif efnahagslægðin
muni hafa á skemmtanalíf landans
á næstu misserum. Mun drykkja
og djamm aukast, minnka eða
standa í stað? Ef um aukningu
verður að ræða, mun það þá eiga
sér skýringar í því að fólk er að
flýja ástandið með því að henda
sér í djamm – jafnvel þótt ekki sé
til peningur? Eða mun fólk spara
við sig? Og hvernig mun ástandið
verka á pirring fólks um helgar?
Mun bera á meiri ofbeldisbrotum
og skyrpingum í átt að lög-
reglumönnum? Skemmdarverk?
x x x
Hvernig mun næsta verslunar-mannahelgi verða, sú fyrsta í
mörg ár sem fagnað verður í
skugga kreppunnar? Fá færri
hljómsveitir samning? Kemur
færra fólk á útihátíðir og þeir sem
koma, munu þeir eyða minna?
Hvað með fíkniefni? Mun fólk
(aðrir en stórnotendur) hætta á
þeim sisvona og þar með ýta undir
vaxandi framboð með lækkandi
verði? Mun innbrotum fjölga í
þrengingum fólks? Og mun fram-
koma okkar í garð útlendinga
breytast, þegar atvinnuleysi bank-
ar uppá?
Þetta eru allt áhugaverðar
spurningar sem tíminn mun svara.
x x x
Víkverji las skemmtilegt viðtalvið Bjarka Friis Síríusvarð-
liða í síðasta sunnudagsmogga.
Þarna var ungur maður í óvenju-
legu starfi sem hafði áhugaverðar
sögur að segja, öfugt við sumar
„stjörnur“ sem sífellt eru til við-
tals í fjölmiðlum og eru jafnan
með „mörg járn í eldinum“ en
gera fátt annað en að vekja at-
hygli á engu, nema þá kannski
sjálfu sér. Nóg um það, viðtalið
við Bjarka var hressandi og það
hafði að sjálfsögðu engin áhrif að
Víkverji er mjög áhugasamur um
útivist og vetrarbarning af ýmsu
tagi. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 steins,
8 kvenmenn,
9 starfið, 10 greinir,
11 blóms, 13 endast til,
15 sól, 18 borða,
21 skúm, 22 róin,
23 skriðdýrið,
24 hryssingslegt.
Lóðrétt | 2 nirfill,
3 nemur, 4 eyddur,
5 korn, 6 bjartur, 7 ilma,
12 beita, 14 bókstafur,
15 bráðum,
16 hrakyrðir,
17 nabbinn, 18 högg,
19 heiðarleg, 20 hófdýrs.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 dreki, 4 hegri, 7 mótor, 8 lyfin, 9 afl, 11 asni,
13 æran, 14 logns, 15 holl, 17 arða, 20 ári, 22 rotin, 23
gildi, 24 annar, 25 akarn.
Lóðrétt: 1 dimma, 2 ertin, 3 iðra, 4 hóll, 5 gæfur, 6 inn-
an, 10 fægir, 12 ill, 13 æsa, 15 hirta, 16 látin, 18 rolla, 19
alinn, 20 ánar, 21 igla.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
Be2 O–O 6. Bg5 Ra6 7. Dc2 c5 8. d5 e6
9. Hd1 Rc7 10. f4 h6 11. Bh4 g5 12. fxg5
Rh7 13. Bg3 e5 14. gxh6 Bxh6 15. Rf3
Be3 16. Hd3 Bd4 17. Bh4 De8 18. Rxd4
cxd4
Staðan kom upp í Boðsmóti Tafl-
félags Reykjavíkur sem lauk fyrir
skömmu. Danski alþjóðlegi meistarinn
Espen Lund (2420) hafði hvítt gegn
Daða Ómarssyni (2027). 19. Bh5! dxc3
20. O–O! Dd7 21. Hg3+ Kh8 22. Bf6+
og svartur gafst upp enda stutt í að
hann verði mát eftir 22… Rxf6 23.
Hxf6 Kh7 24. Dc1. Ingvar Þór Jóhann-
esson og Guðmundur Kjartansson
stóðu sig best Íslendinga á mótinu en
þeir fengu báðir sex vinninga af níu
mögulegum og deildu þriðja sætinu
með Espen Lund. Jakob Vang Glung
varð efstur á mótinu með 7 vinninga.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Borðtilfinning.
Norður
♠ÁK64
♥D6
♦Á104
♣Á762
Vestur Austur
♠G9752 ♠103
♥K ♥G753
♦G765 ♦KD983
♣543 ♣G8
Suður
♠D8
♥Á109842
♦2
♣KD109
Suður spilar 6♣.
Keppendur Evrópumótsins fóru
unnvörpum niður á sex laufum. Spila-
mennskan var í grunninn sú sama:
Tígulútspilið drepið með ás, trompin
tekin í þremur umferðum og ♥D látin
svífa til vesturs. Síðar var ♥Á lagður
niður, en með eitt tromp eftir í borði
var nú engin leið ráða við ♥G fjórða í
austur. Þessi spilamennska er ekki
óeðlileg og hitt er síst betra að svína
♥10 síðar, eins og einstaka maður
gerði. En Geir Helgemo sýndi hvernig
best er að standa að málum. Hann
byrjaði eins og aðrir á því að taka
trompin og spila svo ♥D úr borði.
Austur lét lítið átakalaust og Geir reri
fram í gráðið drjúga stund. Loks
stakk hann upp hjartaás og var verð-
launaður með kóngnum. Geir treysti
borðtilfinningunni – að austur ætti
ekki ♥KGxx.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert með fulla skrifblokk af
markmiðum og ert að endurskoða þau,
henda út og bæta við nokkrum nýjum og
spennandi. Steingeit styður þig í þessu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert upptekinn af að leita að nokk-
urs konar heilögum kaleik. Eins og oftast
í þannig leit skiptir fólkið sem hjálpar þér
meira máli en fundurinn sjálfur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Verkefni þitt er á góðu róli.
Samt er upphaflega áætlunin gleymd.
Kannski á hún ekki við lengur, en þetta er
góður dagur til að athuga málið og vera
viss.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert upptekinn af þörfum ann-
arra. Af hverju? Af því að þú elskar. Þú
gerir þér grein fyrir að ást en meira en
tilfinningaleg yfirlýsing, hún er um-
hyggja fyrir öðrum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er auðvelt að fá letikast á verstu
stundu. Náðu sjálfstjórn. Hoppaðu upp
og niður. Öskraðu. Sýndu eldmóð, jafnvel
þótt hann sé uppgerð í upphafi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þegar þú bætir við eignir þínar,
bætir þú við ábyrgðina. Áður en þú borg-
ar, skaltu íhuga hvort kaupin bæti ein-
hverju vð reynsluheim þinn.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér gengur betur þegar þú reynir
ekki að stjórna öllum þínum gjörðum af
hörku eða tilheyrir hóp þar sem reglur
ráða ríkjum. Hugur þinn þarfnast rýmis.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þegar sinnt er stóru verkefni
er orkan oft tvístruð. Það er bara tíma-
bundið ástand. Þú þarft að staldra við og
íhuga. Þögnin safnar kröftunum saman.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Kannski eru fáir sem skilja
verkin þín í raun. En fólk þarf ekki að
skilja til að kunna að meta þau og virðir
þig fyrir að framkvæma þau. Haltu því
áfram án útskýringa.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert með allnokkur verkefni á
prjónunum. Það getur verið yfirþyrmandi
að stoppa og hugsa um það, svo ekki
stoppa, ekki hugsa, haltu áfram.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er mikil vinna framundan
og þú ert ákveðinn í að vinna vel. Hluti af
því að vera seigur er að viðurkenna þegar
kemur að því að þiggja þarf hjálp.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er auðvelt að sitja og kvarta
yfir ringulreiðinni. Ef þú ert meiri mann-
eskja en það, sem þú ert, og foringinn, er
það þitt hlutverk að koma reiðu á hlutina.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
10. júlí 1815
Hið íslenska Biblíufélag var
stofnað í Reykjavík. Það er
elsta félag landsins og hefur
einkarétt á útgáfu Biblíunnar
hér á landi.
10. júlí 1875
Haglél gerði í Biskupstungum
og stóð það í þrjá tíma. Élinu
fylgdi ofsastormur með
þrumum og eldingum. „Hagl-
kornin voru á stærð við titt-
lingsegg og mörg þrjú föst
saman,“ að sögn Þjóðólfs.
10. júlí 1937
Danskur maður sem var á ferð
austan við Dettifoss féll um sjö-
tíu metra niður í grjóturð þeg-
ar hann fór fram á brúnina til
að taka myndir. Hann lifði fall-
ið af.
10. júlí 1951
Íslendingar sigruðu með yf-
irburðum í norrænni sund-
keppni sem stóð í tæpa tvo
mánuði. Fjórði hver lands-
maður hafði þá synt tvö hundr-
uð metra.
10. júlí 1970
Ráðherrabústaðurinn á Þing-
völlum brann. Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra, Sig-
ríður Björnsdóttir kona hans
og Benedikt Vilmundarson
dóttursonur þeirra fórust í
brunanum. Tæpu ári síðar var
reistur minnisvarði á staðnum.
10. júlí 1980
Viðskipti með greiðslukort frá
Eurocard hófust hér á landi á
vegum Kreditkorta hf. Fyrstu
Visa-kortin voru gefin út árið
eftir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…
„Ég finn nú ekki mikinn mun á því að vera fimm-
tugur eða fertugur. Maður heldur sér svo spræk-
um í golfinu,“ segir Ragnar Pétur Hannesson,
framkvæmdastjóri, en hann er fimmtugur í dag.
Ragnar er fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi,
með viðkomu í Reykjavík og Garðabæ, en hefur
búið sl. 25 ár í Hafnarfirði. „Ég orðinn nokkuð
mikill Hafnfirðingur þó ég líti nú alltaf á mig sem
Gróttumann,“ segir Ragnar.
Hann rekur flutningafyrirtækið Laxaflutninga
sem stendur í flutningi á lifandi fiskum og þá að-
allega eldisfiski. „Þetta er stór vörubíll og 40
tonna farmur og sérsmíðaðir tankar fyrir fiskana,“ segir Ragnar.
Hann segir reksturinn ganga vel en hann er búinn að vera í brans-
anum í 20 ár.
Aðspurður segir Ragnar golf og sjóstangaveiði vera meðal helstu
áhugamála en hann er meðlimur í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði
og er með 20 í forgjöf. „Golfið er númer eitt, tvö og þrjú. Eiginkonan
segir að ég spili mikið en mér finnst ég aldrei spila nóg,“ segir Ragn-
ar, léttur í bragði. Sumarbústaðasmíði er einnig meðal áhugamála en
Ragnar og fjölskylda eru að smíða einn slíkan austur á Rangárvöllum.
Ragnar ætlar að bjóða nánustu fjölskyldu í mat á afmælisdaginn en
hann er kvæntur Margréti Sigurbjörnsdóttur og eiga þau þrjú börn
og tvö barnabörn. thorbjorn@mbl.is
Ragnar Pétur Hannesson fimmtugur
Golfið númer eitt
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is