Morgunblaðið - 10.07.2008, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í BorgarbíóSími 462 3500
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
Meet Dave kl. 6:10 - 8:30 - 10:40 B.i. 7 ára
Big Stan kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
The Incredible Hulk kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
The Happening kl. 10:20 B.i. 16 ára
Zohan kl. 5:40 - 8 B.i. 10 ára
Sex and the City kl. 10:20 B.i. 14 ára
Mamma Mia kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Hancock kl. 8 -10 B.i.12ára
Big Stan kl. 6 B.i.12ára
Mamma Mia kl. 6 - 8:30 - 11 LEYFÐ
Hancock kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Kung Fu panda enskt tal kl. 6 - 8 LEYFÐ
Big Stan kl. 10 B.i. 12 ára
Sex and the City kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI M. ÍSL. TALI, HÁSKÓLABÍÓI M. ENS. TALI
650kr.
Eddie Murphy er inn í
Eddie Murphy
í frábærri gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna!
Þau komu langt utan úr geimnum...
í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega...
Það er heill heimur inni í honum
sem heldur honum gangandi
eee
,,Unnin af natni, tónlistin frábær og undir-
strikar firringuna, ofsóknaræðið og óttann
við það óþekkta”
- S.V., MBL
eee
eeee
24 stundir
650kr.
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
650kr.
Það er kominn
nýr hrotti
í fangelsið...
af minni
gerðinni!
650kr.
SÝND SMÁRABÍÓI
Þau komu langt utan úr geimnum...
í dulargervi sem hæfði veröld okkar fullkomnlega...
Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi
Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy
í frábærri gamanmynd fyrir alla fjölskylduna!
650kr.
650kr.
ÁNÆGJULEGT hefur verið að fylgjast með
velgengni Garðars Thórs Cortes á Englandi
undanfarin misseri. Með hógværð sinni og
háttvísi hefur hann að mörgu leyti verið sómi
Íslands í landi eng-
ilsaxneskra, enda er hann
afskaplega vandaður og
glæsilegur ungur maður.
En fyrir mannkosti fást
víst engar stjörnur. Þessi
geisladiskur Garðars veld-
ur nokkrum vonbrigðum og ber þess glögglega
merki að Garðar á enn langt í land með að
verða söngvari á heimsmælikvarða. Rödd hans
er vissulega fögur og á köflum nýtur hún sín
prýðilega á plötunni. En víða er ljóðrænni
túlkun stórlega ábótavant og á stundum er
hrynskynið með ólíkindum slæmt. Þannig er
engu líkara en að Garðar sé iðulega að ýta ár-
angurslaust á undirleikinn og stöku sinnum
syngur hann sig raunar fram úr honum.
Lögin á When You Say You Love Me eru
fjórtán talsins og fráleitt fer Garðar illa með
þau öll. Honum tekst oftast nær prýðilega upp
í óperuaríunum og er söngur hans í „Che Ge-
lida Manina,“ úr La Bohéme, framúrskarandi
góður. Hann kemst og vel frá poppsmíðunum
„Lady“ og „Sacrificial Love,“ sem teljast þó
ekki beinlínis ögrandi eða erfiðar til söngs. Þá
er dúett þeirra Garðars og Natöshu Marsh,
„The Prayer,“ til fyrirmyndar og stelur söng-
konan raunar senunni með undurfagurri rödd
sinni. Dægurlagið „She,“ sem Elvis Costello
gerði svo frægt um árið, hljómar skelfilega í
meðförum Garðars og í því endurspeglast allir
þeir vankantar sem víða heyrast á plötunni.
Allt frá fyrstu nótu er ákefðin í söngnum of
mikil og Garðari virðist efst í huga að ljúka
laginu sem allra fyrst. Blæbrigðin í flutn-
ingnum eru nær engin og næmi fyrir ljóðrænu
víðs fjarri, þar sem áherslurnar eru ævinlega í
lok hverrar línu, algjörlega óháð því sem text-
inn býður upp á hverju sinni. Þetta vandamál
er sorglega áberandi á plötunni og á stundum
er engu líkara en að Garðar hafi ekki lesið þá
texta sem hann syngur.
Útsetningar og undirleikur einkennast af
fagmennsku, þótt hugmyndaauðgi og dýna-
mískum blæbrigðum sé ábótavant. Hér er allt
eftir uppskriftabókinni um hið auðmelta lyftu-
popp og vel gert sem slíkt. Hljómur er sömu-
leiðis vandaður, þótt söngur Garðars sé iðu-
lega of framarlega í hljóðblönduninni. Sú er og
lenskan þegar fólk syngur í „karíókí,“ en á
When You Say You Love Me hallar slíkt ójafn-
vægi of mikið á flatneskjulegan undirleikinn.
Maður fær of sjaldan á tilfinninguna að um
heildrænan flutning sé að ræða. Garðar Thór
hefur fagra rödd sem á góðum degi getur hrif-
ið hvern sem er. Fjölmargir annmarkarnir á
plötunni koma því leiðinlega á óvart, svo að
erfitt er að mæla með þessari plötu. Garðar
hefur þó væntanlega og vonandi ekki sungið
sitt síðasta.
Garðar getur betur
TÓNLIST
Geisladiskur
Garðar Thór Cortes – When You Say You Love Me
bnnnn
Orri Harðarson
DÓMAR eru byrjaðir að birtast um Journey
to the Center of the Earth 3D þar sem Anita
Briem leikur íslenskan leiðsögumann þeirra
Brendans Frasers og Josh Hutchersons. Þeg-
ar blaðið fór í prentun höfðu birst 21 dómur á
RottenTomatoes.com og voru 16 af þeim já-
kvæðir, 76 prósent, sem telst mjög gott. Hins
vegar má gera ráð fyrir að dómarnir fari vel
yfir hundraðið áður en yfir lýkur.
Flestir eru sammála um það að myndin sé
hin prýðilegasta poppkornsskemmtun. Har-
vey S. Karten á Compuserve segir raunar að
myndin líkist á köflum „löngu vörupoti frá
ferðamálaráði Íslands“, en merkilegt nokk
meinar hann það vel.
Anita Briem fær ágætis dóma víðast, Coley
Smithey (colesmithey.com) segir þetta sterka
frumraun (missti greinilega af Kaldri slóð) og
Edward Douglas hjá Comingsoon.net segir
„hin raunverulega uppgötvun myndarinnar
er Anita Briem, reffileg íslensk leikkona sem
skapar merkilega sætan ástarþríhyrning á
milli þeirra þriggja [...] Þá er hún afskaplega
hugguleg, sem ætti að halda pöbbunum ham-
ingjusömum á meðan krakkarnir njóta þess
að horfa á hasar og furðuverur.“
Hvort viltu Brendan eða Anitu?
John Anderson, gagnrýnandi Variety, bein-
tengir sig við íslenska orðræðuhefð þegar
hann segir myndina líkast til hafa flest öskur
miðað við höfðatölu í kvikmyndasögunni, en
lengst af eru aðalleikararnir þrír einu mann-
eskjurnar í myndinni. Hann er afskaplega
hrifinn af Brendan Fraser en síður af Anitu,
kallar hana stirðan Skandinava (landafræðin
eitthvað að flækjast fyrir honum) og segir að
hún sé „falleg á svipaðan hátt og jökull er fal-
legur“. Mark Peikert á New York Press, einn
fárra sem naut myndarinnar ekki, er hins
vegar á öndverðum meiði. Honum þykir Fra-
ser tilgerðarlegur og virðist hrifinn af fáu,
nema ef vera skyldi Anitu. „Briem er upp-
götvun myndarinnar. Fallegri og kvenlegri
en nokkur leiðsögumaður á rétt á að vera,
hún ein tekur myndina passlega alvarlega,
alltaf einlæg með blik í augunum fyrir hina
fullorðnu í áhorfendaskaranum.“
Miðjarðarhaf Anita og Fraser á sjó.
Leyndardómar
Snæfellsjökuls lofaðir