Morgunblaðið - 10.07.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2008 35
3.-24. júlí í Kringlunni
Bandarískur hermaður hvílist upp
við skotbyrgi í Korengal-dalnum í
Afganistan, 16 september
Tim Hetherington, UK fyrir Vanity Fair
Skipholt 55
Reykjavík
4ra herbergja m/bílskúr
Stærð: 118 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 1963
Brunabótamat: 15.860.000
Bílskúr: Já
Verð: 25.900.000
ÚTBORGUN KR. 1.250.000 GREIÐSLUB. KR. 103.000 P.M. SKIPHOLT, REYKJAVÍK.
Mjög góð 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð auk sérbyggðs bílskúrs. Hús er í góður
ástandi.Mjög góð staðsetning. ÍBÚÐIN ER LAUS. GREIÐSLUBYRGÐI KR. 130.000 P.M.
BÍLSKÚR Í LEIGU FYRIR KR. 30.000 P.M.
Eignastýring
Erlendur Davíðsson
Lögg. fasteignasali
elli@remax.is
95 prósent lánamöguleiki
534 4040
- kemur þér við
Hjartaþræðingar á
einkastofum lækna
Eiga dómarar
síðasta orðið?
Samfylking velur
á milli Bakka og
Helguvíkur
Mál Paul Ramses
enn óleyst
Dósum skilað
fyrir milljarð
Milljarðakostnaður
vegna útblásturs
flugvéla
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
DAGSKRÁIN um helgina er bor-
in uppi af tveimur hljómsveit-
um, Bláum skuggum og Kvart-
ett Hauks Gröndal, sem bland-
ast og taka á sig ýmsar myndir.
Félagsheimilið Fossbúð ann-
að kvöld klukkan 21: Ragnheiður
Gröndal og kvartett Hauks
Gröndal.
Byggðasafnið í Skógum laug-
ardag klukkan 13 til 17: Tríó Sig-
urðar Flosasonar, Tríó Ara Braga
Kárasonar, Tríó Birkis Freys
Matthíassonar og Kvartett
Hauks Gröndal.
Félagsheimilið Fossbúð
laugardagskvöld klukkan 21:
Bláir skuggar.
Hljómsveitablanda
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
DJASSTÓNAR blandast niðinum
af Skógarfossi um helgina þegar
fimmta Djasshátíðin í Skógum
undir Eyjafjöllum verður haldin.
Sigurður Flosason saxófónleikari
er listrænn stjórnandi hátíðar-
innar og segir áhersluna fyrst og
fremst á góða tónlist. „Ef það er
einhver stefna hjá okkur þarna þá
má segja að hún sé sú að hafa
breitt aldursbil. Þarna koma fram
ungir og upprennandi tónlistar-
menn á borð við Ara Braga Kára-
son trompetleikara, en líka fulltrú-
ar elstu kynslóðar íslenskra
starfandi djasstónlistarmanna, t.d.
Pétur Östlund trommuleikari og
Jón Páll Bjarnason gítarleikari.“
Á fyrstu tónleikunum mun andi
Billie Holiday svífa yfir vötnum og
Ragnheiður Gröndal og Kvartett
Hauks bróður hennar gera tónlist
hennar skil.
Seinni part laugardags verða
haldnir fjögurra tíma langir tón-
leikar á Byggðasafninu þar sem
aðgangur er ókeypis og fólki er
velkomið að koma og fara að vild.
Tónleikarnir á safninu eru orðnir
fastur liður í dagskrá hátíðar-
innar. „Það er mjög gaman að
spila þarna, þetta er frábært
byggðasafn og meðal þess sem
varðveitt er þar eru hljóðfæri Við-
ars Alfreðssonar trompetleikara
sem var ættaður undan Eyjafjöll-
um.“ Tónleikarnir í safninu eru
sérstaklega helgaðir minningu
hans.
Bláir skuggar ljúka síðan hátíð-
inni og flytja tónlist eftir Sigurð
af tveimur nýlegum plötum
sveitarinnar. „Ég kalla þetta
djassmengaða blústónlist eða
blússmitaða djasstónlist,“ segir
Sigurður.
Gestir úr ýmsum áttum
Hátíðin hefur fest sig í sessi á
síðustu árum og segir Sigurður
gesti koma úr ýmsum áttum, sum-
ir komi af höfuðborgarsvæðinu á
hátíðina, heimamenn séu duglegir
að mæta og sömuleiðis erlent og
innlent ferðafólk sem statt er í
Skógum.
Hann segir djassinn alltaf eiga
sína tryggu aðdáendur og fleiri
bætist í hópinn með hverju árinu.
„Það hefur verið svona jafn stíg-
andi í þessu síðustu ár. Það er
visst hlutfall þjóðarinnar sem hef-
ur gaman af þessari tónlist og
þannig hefur það haldist.“
Morgunblaðið/hag
Í sveiflu Sigurður Flosason skipuleggur djasshátíðina í Skógum undir Eyjafjöllum um helgina, fimmta árið í röð.
Djassað við
fossinn
Fulltrúar elstu og yngstu kynslóðar
djasstónlistarmanna sameinast
í Skógum undir Eyjafjöllum