Morgunblaðið - 08.08.2008, Page 14

Morgunblaðið - 08.08.2008, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is KÍNVERSKIR athafnamenn eru stórhuga. Þeir sjá sóknarfæri í hverju horni og stefna ótrauðir á að byggja upp verðmætustu fyrirtæki heims. Hátækniiðnaðurinn gegnir þar stóru hlutverki og ef fram heldur sem horfir mun „Drekahagkerfið“, eins og kínverska hagkerfið er stundum nefnt, verða í fararbroddi tækniþróunar í heiminum. Vísbendingar um þetta eru þegar komnar fram. Fjöldi skráðra kín- verskra hátæknifyrirtækja á Nas- daq og í kauphöllinni í New York nálgast sjötíu. Heima fyrir hafa þau greiðan aðgang að fjármagni, fjöldi fjárfesta á kínverska hlutabréfa- markaðnum fór yfir hundrað millj- óna markið árið 2007. Þessi umskipti eru viðfangsefni blaðakonunnar Rebeccu A. Fannin í bókinni Kísildrekinn: Hvernig Kín- verjar eru að sigra í kapphlaupinu um tæknina, sem út kom um áramót- in. Fannin dregur þar upp yfir- litsmynd af þeim gríðarlega upp- gangi sem verið hefur í kínverska hátækniiðnaðinum hin síðari ár. Þúsundir tæknifyrirtækja Hún nefnir sem dæmi hugbún- aðarþróunina í Zhongguancun- tæknigarðinum í Beijing, þar sem sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum við tólf þúsund smærri fyrirtæki starfa við hvers kyns tækniþróun. Að hennar sögn koma margir frumkvöðlanna úr Tsinghua-háskól- Reuters Rísandi iðnveldi Keppt verður í nokkrum greinum í íþróttahúsi tækniháskólans í Beijing á Ólympíuleikunum.  Gífurlegur uppgangur í hátækniiðnaði Kína  Stærsti net- og farsímamarkaður heims knýr þróunina  Fyrirtækin hafa aðgang að 100 milljónum fjárfesta  Netfyrirtækið Baidu stærra en Google 2018? Í HNOTSKURN »Kínverski bílamarkaður-inn á þátt í vexti hátækni- geirans, en þar í landi eru nú yfir 30 milljónir bifreiða. »Vöxtur bílamarkaðarinsknýr tækniþróun, en hann er hátt í 40 prósent á ári. »Talið er að heildarveltaauglýsingamarkaðarins í farsímum í Kína muni fara yfir átta milljarða króna í ár. Drekahagkerfið tæknivæðist NÝ TÆKNI sem sagt er frá í nýj- asta tölublaði náttúrufræðatímarits- ins Nature er talin stórt skref í þró- un gerviauga og annarra gervilima. Hópur bandarískra vísindamanna hefur þróað myndavél sem getur lagað sig að hvelfdu yfirborði. Hefðbundnar myndavélar nota sveigða linsu til að beina mynd á flatt yfirborð og þar greinir annað hvort filma eða stafrænir skynjarar ljósið. Þar sem myndin bjagast þeg- ar sveigð linsa varpar henni á flatt yfirborð þarf hins vegar kerfi af mis- munandi linsum til að lagfæra myndina. Þetta flækir málin og myndavélin verður meiri um sig. Innblástur frá náttúrunni Mannsauganu dugir hins vegar aðeins ein linsa, vegna þess að hún varpar myndinni á íhvolft yfirborð. Í 20 ár hafa vísindamenn reynt að herma eftir þessari tækni náttúr- unnar en það sem hefur staðið í veg- inum er að búa til rafræna ljósnema sem hægt er að sveigja. Efni sem eru venjulega notuð í raftækni eru hins vegar svo hörð að þau brotna ef reynt er að sveigja þau. Vísindamennirnir leystu vanda- málið með því að raða 256 ljós- nemum úr kísli á fíngert vírnet, og umluktu netið svo með þunnri filmu af sveigjanlegu plastefni. Galdurinn var að búa til svo litla ljósnema að sveigja yfirborðs kúlu á stærð við augað hefði ekki áhrif á þá, rétt eins og sveigja jarðkúlunnar hefur ekki áhrif á byggingar. Þessi nýja tækni hefur að sögn vísindamannanna marga ótvíræða kosti því sjónsvið myndavélarinnar eykst, myndin er upplýst á jafnari hátt og bjögunin er minni en ef myndinni er varpað á sléttan flöt. Þá eru menn bjartsýnir á notk- unarmöguleikana og segja slíka myndavél geta komið að miklu gagni í læknavísindum, svo sem við gerð gervilima og myndgreiningu manns- líkamans. sigrunhlin@mbl.is Ný tækni skref í átt að gerviauga                            !    !           !   "#       #  #                                                    !      ! "#" $%  & '    ( $    ) !  %  &             !     **     $      +   Myndavél hefur augað sem fyrirmynd Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is STJÓRNARFLOKKARNIR tveir í Pakistan samþykktu á fundi á mið- vikudagskvöld eftir þriggja daga við- ræður að hefja undirbúning að ákæru á hendur Pervez Musharraf, forseta landsins, til embættismissis. Flokkarnir hafa einnig ákveðið að setja dómara, sem Musharraf rak þegar hann lýsti yfir neyðarástandi í fyrra, aftur inn í embætti. Leiðtogar stjórnarflokkanna tveggja eru Asif Ali Zardari, ekkill Benazir Bhutto, og Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra sem Musharraf steypti í herforingjabylt- ingu árið 1999. Tveir þriðju hlutar fulltrúa á sameiginlegum fundi beggja deilda þingsins þurfa að sam- þykkja að Musharraf víki úr emb- ætti til að það verði að veruleika og óljóst hvort það tekst. Fregnir herma að leiðtogarnir vinni ákaft að málinu vegna ótta við að Musharraf verði fyrri til og leysi upp þingið. Myndi hann þá vafalaust reyna að stjórna á ný með neyðar- lögum. Fái hann stuðning hersins gæti honum tekist það. Zardari fordæmdi í gær stefnu forsetans í efnahagsmálum og sagði hann einnig hafa grafið undan um- skiptunum til lýðræðis eftir þing- kosningar í febrúar. Og hann varaði forsetann við að leysa upp þingið. „Ef hann gerir það verður það í síð- asta sinn sem hann snýst gegn þjóð- inni,“ sagði Zardari. Forsetinn hefur undanfarnar vik- ur neitað að láta undan þrýstingi og hætta en þingið kaus hann í emb- ættið á fundi í október sem flestir andstæðingar hans hunsuðu. Mus- harraf hefur þess í stað lýst því yfir að hann sé reiðubúinn að vinna með andstæðingum sínum. Hyggjast reyna að setja Musharraf af AP Í klípu Pervez Musharraf, forseti Pakistans, á hátíðarsamkomu í milljóna- borginni Karachi í sunnanverðu landinu á miðvikudag. Forsetinn talinn íhuga að leysa upp pakistanska þingið Í HNOTSKURN »Musharraf samþykkti ífyrra að hætta sem forseti herráðs Pakistans. »Flokkar sem styðja forset-ann töpuðu fylgi í febrúar sl. »Musharraf hefur notiðtrausts Bandaríkjamanna eftir að hann ákvað að styðja þá í stríðinu gegn hryðjuverk- um. SALIM Hamdan, bílstjóri hryðju- verkaleiðtogans Osama bin Ladens í Afganistan árin 1997-2001, var í gær dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi við herréttarhöld sem fram fóru í Gu- antanamo-fangabúðum Bandaríkja- hers á Kúbu. Hamdan, sem er frá Jemen, var á miðvikudag fundinn sekur um að hafa stutt hryðjuverk en sýknaður af ásök- unum um morðsamsæri. Hamdan hef- ur þegar afplánað fimm ára fangelsi og mun því að lík- indum verða frjáls maður á ný innan skamms. Hamdan sagðist eingöngu hafa verið starfsmaður bin Ladens og borið virðingu fyrir honum en ekki gert neitt saknæmt. Hamdan harmaði að saklaust fólk hefði orðið fórnarlömb hryðjuverka. „Ég bið þau persónulega afsökunar ef eitt- hvað sem ég hef gert hefur valdið þeim þjáningu,“ sagði hann. Verjendur gagnrýndu málsmeðferðina harðlega sem og stríðið gegn hryðjuverkum. Sögðu þeir að mannrétt- indi Hamdans hefðu verið brotin, meðal annars með því að beita ólöglegum aðferðum við yfirheyrslur. kjon@mbl.is Hlaut fimm og hálft ár Salim Hamdan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.