Morgunblaðið - 08.08.2008, Side 27

Morgunblaðið - 08.08.2008, Side 27
efast ég um að ég hafi nokkur tíma hrósað henni heldur eins og hún átti skilið. Hún var þekkt fyrir að vera með eindæmum barngóð og þar sem ég er eins og barn að því leyti að mér finnst mjög gaman að hlusta á sögur þá náðum við sérstaklega vel saman. Oft var það sem ég þagði nánast alla heimsóknina því ég vildi ekki með nokkru móti hafa af henni orðið. Og ekki skemmdi fyrir ef hún bauð upp á saltkjöt og baunir eins og henni einni var lagið. Amma mín, ég sakna þeirra stunda sem við áttum á Torginu og ég hugsa mikið til þín. Vonandi gerum við þig stolta. Þinn sonarsonur, Yngvi. Elsku amma Lín er látin. Hún kvaddi á fallegasta degi sumarsins þegar hvert hitametið var slegið. Ótal minningar hafa komið fram í huga minn síðustu daga og þá sér- staklega frá æskuárunum. Ég vildi hvergi annars staðar vera en hjá ömmu þegar foreldrar mínir voru í vinnunni. Það þýddi ekkert að setja mig í leikskóla því hann var við sömu götu þar sem amma og afi bjuggu. Það var því nokkuð auðvelt að hrópa og kalla á ömmu þar til hún sótti mig og ekki þurfti ég að kalla lengi. Þegar ég byrjaði svo í skóla var förinni heitið beint til ömmu þegar skóladeginum lauk. Þrátt fyrir mikinn umgang og stórt heimili hafði amma tíma til að spjalla, spila á spil og segja sögur. Hún bjó til himneskar kleinur og ekki var steikta brauðið síðra. Amma eyddi dágóðum tíma í eldhúsinu enda þurfti að vera nóg til að bíta og brenna eins og hún orðaði það sjálf. Amma var alltaf með heitan mat í há- deginu og oftast margrétta. Hún vildi gera öllum til hæfis og enginn mátti fara svangur frá borði. Það var mikið líf og fjör á Iðavöllum 2 í þá daga. Hin síðari ár bjó amma ein í húsinu og var hún ekki til viðræðu að flytja sig um set meðan hún væri fullfrísk. Þá var gott að kíkja í kaffi og spjall við eldhúsborðið. Elsku amma Lín, takk fyrir allt. Harpa. Elsku amma mín, ekki bjóst ég við því þegar ég var stödd á Húsavík helgina áður en þú kvaddir að það yrði í síðasta skipti sem við myndum hittast. Ég fór til þín áður en ég lagði í hann suður til að kveðja þig en þú varst sofandi. Mér var alltaf illa við að vekja þig, hugsaði því með mér að við myndum bara hittast næst þegar ég kæmi og kyssti þig á ennið. Þegar ég er svo að labba út mæti ég mömmu, segi við hana að þú sért sofandi og ég vilji ekki vekja þig. Hún sneri mér þá við og sagði að við myndum bara vekja þig. Mikið er ég ánægð í dag að hafa gert það, því ég veit ekki hvernig mér myndi annars líða. Við áttum þarna saman góða stund eins og alltaf en þegar leið að kveðju- stund sagði ég við þig, „við sjáumst svo bara næst þegar ég kem, amma mín“. En þú sagði við mig, „nei, veistu ég held bara ekki“. Ég brosti bara til þín og sagði, „jú, jú, við sjáumst næst þegar ég kem“. Kvaddi þig og kyssti og hélt suður. Þarna varstu að kveðja mig án þess að ég vissi. Þremur dög- um síðar fékk ég símtalið og þú varst farin. Þetta skeði mjög snögglega og varst þú bara ein. Ég veit um marga sem hefðu viljað vera hjá þér og kveðja þig en held engu að síður að þetta hafi verið það sem þú vildir og ætla ég að lifa með því. Elsku amma, þú munt eiga stórt pláss í hjarta mínu og fullt af minn- ingum. Sérstaklega frá Iðavöllum sem þér þótti svo vænt um og hugs- aðir svo vel um. Þú vildir alltaf hafa garðinn þinn vel hirtan og nýsleginn, sparitröppurnar þínar vildir þú alltaf hafa hreinar og fínar. Þú varst algjör snyrtipinni. Eins var það alveg sama hvenær maður kom þú fylltir alltaf borðið af kræsingum, hvort sem mað- ur vildi eða ekki, pönnukökurnar og púðursykurskökurnar voru þá í sér- stöku uppáhaldi. Það verður því skrítin tilfinning að koma til Húsavíkur núna án þess að eiga viðkomu hjá þér og er ég ekki enn búin að gera mér fulla grein fyrir því. Ég vil biðja guð um að geyma þig, elsku amma mín, og þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þú ert komin á góðan stað og veit ég að þú hefur fengið konungleg- ar móttökur frá afa sem þú elskaðir svo mikið. Loksins eru þið sameinuð aftur eftir allt of langan aðskilnað. Ég vil þú takir utan um hann og kyssir hann frá mér. Þín, Helga Dögg. Elsku amma mín hefur kvatt okk- ur. Höggið var þungt þegar fregnin kom. Minningarnar þutu fram og til baka í kollinum og svo kom söknuður- inn. Þetta á víst fyrir okkur öllum að liggja en kemur samt alltaf eins og reiðarslag. Ég á margar góðar minn- ingar frá Iðavöllum 2 hjá ykkur afa. Ég var ekki há í loftinu þegar ég flutti til ykkar afa og varði hjá ykkur nær 16 árum. Við brölluðum margt á þess- um árum. Það er af svo mörgu að taka, hvort heldur við sátum og spiluðum fram á nætur eða dönsuðum á náttkjólunum við undirleik Lúdó og Stefáns. Og sér- stök voru sparikvöldin hjá okkur þeg- ar þú tókst fram sparistaupin og við skáluðum í skyrmysu. Kvöldin enduð- um við svo á að bankast á milli her- bergja til að bjóða góða nótt. Þegar ég lít til baka þá sé ég hvað ég var hepp- in. Ómetanleg þykir mér sú tilhugsun að á hverjum degi þegar skólinn var búinn og ég labbaði heim eða kom á skíðunum heim, þá varst þú þar. Tilbúin með steikt brauð og kleinur eða vínarbrauð. Það er svo margt sem mig langar að þakka þér fyrir. Þér og afa sem kvaddi okkur allt of snemma. Skjólið sem þið veittuð mér var ómet- anlegt. Öryggi og skjól. Fyrir það ber mikið vel að þakka. Svo leið tíminn og fyrr en varði var ég orðin fullorðin, komin sjálf með börn sem þú fylgdist vel með og alltaf fylltust þau spennu þegar Húsavíkur- ferð til ömmu Lín var á næsta leiti. Þó svo að við sæjumst ekki eins oft og áð- ur þá héldum við alltaf góðu símasam- bandi. Alltaf varstu söm við þig. Alltaf stutt í gamnið og glensið. Það er af svo mörgu að taka, en í þessum kveðjuorðum til þín, elsku amma mín, vil ég umfram allt þakka fyrir allt. Þið afi munuð alltaf eiga stóran hluta af mér. Megi algóður Guð gæta þín, elsku amma mín, og afa líka. Þín, Kristín. Hún elsku Lína mín er komin yfir móðuna miklu. Ég hugsa til þín, Lína mín, með söknuði, ég hef aldrei fundið eins góða og hlýja manneskju eins og þig og hef þó víða farið. Já, Lína mín, við áttum margar góðar stundir sam- an. Þær eru óteljandi, ég þakka þér fyrir allan hlýhug til mín og ég tala nú ekki um hana Kiddý mína, það verður aldrei fullþakkað. Þú varst sú besta mamma, amma og tengdamamma sem hugsast getur. Ég veit að þú ert búin að skila þínu hlutverki í þessu lífi. Það eru kveðjur til ömmu Lín frá Hjördísi og Hafdísi, þú varst þeim eins og besta amma. Guð veri með þér, Lína mín, ég veit að þér líður vel núna þar sem þú ert. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Bjössi, Villi, Óli, Aðalsteinn, Linda og fjölskyldur, ég votta ykkur samúð mína við frá- fall yndislegrar konu. Þín, Dalrós. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 27 ir því að ég kæmi auga á hana. Mamma og pabbi voru víst ekki allt- af sátt við að amma tæki mig af leik- skólanum eftir tveggja tíma dvöl en mér fannst það frábært. Amma mín var svo skemmtileg. Vísurnar sem hún kenndi mér í eldhúsinu sem litlum gutta voru margar hverjar verulega hnyttnar, sumar hverjar svo að ég man eftir að hafa hlegið þar til ég gat ekki staðið í lappirnar. Ég mun svo sannarlega sjá til þess að þær lifi áfram í fjölskyldunni. Dóra amma var alvöruamma. Hún gaf okkur barnabörnunum alltaf mjúka pakka, eitthvað sem hún hafði prjón- að, heklað eða saumað. Hún átti líka alltaf til kökur og jafnvel mola þegar enginn sá til. Hjá henni vildi maður ekki fá kókópuffs í morgunmat held- ur súrmjólk með safti sem hún og Jón afi bjuggu til. Í hennar huga not- aði heldur enginn heilvita maður keyptar sápur, nei sápan sem hún og afi bjuggu til var mikið betri. Ég er afar þakklátur fyrir allar yndislegu stundirnar sem við amma áttum saman, og það er mér mikils virði að litla dóttir mín hafa einnig náð að kynnast henni. Ég vil enda kveðjuna með bæn sem amma söng svo oft fyr- ir mig; Ó, Jesús bróðir bezti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (Páll Jónsson/A.P. Berggreen.) Siggeir Fannar Brynjólfsson. ✝ Systir mín, GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Ljósheimum 8, Reykjavík, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Erla Jónsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, EIRÍKUR GUÐMUNDSSON, fyrrv. mjólkurbílstjóri, Grænumörk 3, Selfossi, lést á Kumbaravogi laugardaginn 2. ágúst. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 9. ágúst kl. 13.00. Margrét Benediktsdóttir, Ingvar D. Eiríksson, Eygló Gunnarsdóttir, Óli Jörundsson, Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, Bjarni Einarsson, Sigurður Eiríksson, Guðmundur Eiríksson, Benedikt Eiríksson, Helga Haraldsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Valdimar Valdimarsson, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. ✝ Kæru vinir fjær og nær. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, SR. BIRGIS SNÆBJÖRNSSONAR, fv. prófasts, Holtateigi 48, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Sumarrós Garðarsdóttir, Jóhanna Erla Birgisdóttir og fjölskylda, Birgir Snæbjörn Birgisson og fjölskylda. ✝ Þökkum innilega vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, RAGNARS KJARTANSSONAR. Helga Thomsen, Ragnheiður Sif Ragnarsdóttir, Birgir Arnarson, Regína Hrönn Ragnarsdóttir, Jóhann Friðrik Ragnarsson, Ragnheiður Pétursdóttir, Ragnar Örn Birgisson, Anna Helga Jóhannsdóttir og Sunna María Jóhannsdóttir. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deilda 13E og 14E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir góða umönnun. Gylfi Gunnarsson, Sigurlín Sveinbjarnardóttir, Gunnar Gunnarsson, Harpa Harðardóttir, Helga Gunnarsdóttir, David Langham, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRDÍS HARALDSDÓTTIR THORODDSEN frá Þorvaldsstöðum í Bakkafirði, til heimilis í Aðalstræti 78, Patreksfirði, sem andaðist laugardaginn 2. ágúst, verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju kl. 14:00 mánudaginn 11. ágúst. Börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Okkar kæra, AÐALHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Baldursgötu 20, andaðist á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli að kvöldi þriðjudagsins 5. ágúst. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jóhanna Stefánsdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar og bróðir, PÁLL JÓHANN EINARSSON, flugmaður, andaðist aðfaranótt laugardagsins 2. ágúst á líknardeild Landakots. Útför hans verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 12. ágúst kl. 15.00. Carolin Einarsson Pálsdóttir, Kristín Einarsson Pálsdóttir, Birgir Davidsen Pálsson, Páll Ástþór Jónsson Pálsson, Stefán (Norman) Mink Pálsson, systkini og afkomendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.