Morgunblaðið - 08.08.2008, Síða 34

Morgunblaðið - 08.08.2008, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er föstudagur 8. ágúst, 221. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú held- ur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.) Fyrir nokkru las Víkverji frétt umað nú væri komið farsíma- samband á öllum hringveginum. Gladdist hann mjög enda hefur hann verið ástríðumaður um fjarskipti ár- um saman. x x x Vissulega er það mikil framför aðfólk geti látið vita af sér, sent SMS, horft á sjónvarp í þriðju kyn- slóðar farsímum, valsað um netið og gert næstum það sem hugurinn girn- ist. En þessi samskipti eru þó ekki eins skemmtileg og fjarskiptin í gamla daga þegar Víkverji var ungur. Þá voru opnar útvarpsrásir sem allir gátu fylgst með. Bátabylgjan var vin- sæl og menn hlustuðu sér til ómældr- ar ánægju á Gufunes og samskipti bílstjóranna. x x x Nú er öldin önnur. GSM-rásirnareru lokaðar. Neyðarlínan og lögreglan geta miðað mann út og sagt er að leyniþjónustur erlendra ríkja geti jafnvel hlustað á samtöl í GSM- kerfinu. Tvennum sögum fer þó af því og Víkverji hefur engar áhyggjur. x x x GSM-símarnir eru skammdrægir.Fyrir rúmum 30 árum urðu far- stöðvar mjög vinsælar hér á landi og var jafnvel stofnað Félag farstöðva- eigenda. Gátu menn talast við innan höfuðborgarsvæðisins, suður á Reykjanes og norður á Snæfellsnes. Stundum komu skemmtileg skilyrði svo að allt landið lá undir. Jafnvel heyrðist þá betur í Ísfirðingum en Hafnfirðingum og einhverjir Norð- menn og jafnvel Júgóslavar trufluðu fjarskiptin hér á landi. Þá var gaman að lifa því að aldrei var á vísan að róa í hverjum heyrðist. Lögðust margir í talstöðvarabb og vöktu um nætur. x x x Um daginn lenti Víkverji á flakkog hugðist njóta þess að tala í farsímann á þjóðvegi 1. Ferðinni var heitið vestur á Firði. Vestfirðir eru utan hringvegarins og því er farsíma- sambandið þar ærið stopult. Það kárnaði því gamanið. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Reykjavík Gunnar Elí fædd- ist 27. maí. Hann vó 2.635 g og var 48,5 cm langur. For- eldrar hans eru Karen Hann- esdóttir og Ingvar Helgi Kristinsson. Reykjavík Margréti Schev- ing og Hlyni Ólafssyni fæddist drengur 7. júlí. Hann vó 4.145 g og var 53 cm langur. Nýirborgarar Krossgáta Lárétt | 1 kýr, 4 gelta, 7 heimabrugg, 8 hráslaga- veður, 9 rekkja, 11 lengd- areining, 13 grætur hátt, 14 þátttakanda, 15 flutn- ing, 17 vistir, 20 skordýr, 22 hundur, 23 sætta sig við, 24 hitt, 25 þjálfa. Lóðrétt | 1 öskra, 2 rist- ill, 3 keyrir, 4 ræfil, 5 sár, 6 eldstæði, 10 önug, 12 lærði, 13 sjór, 15 gamla, 16 fjáðan, 18 kvendýrum, 19 jarð- setja, 20 fjarski, 21 vilj- ug. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 snarráður, 8 Japan, 9 áliti, 10 dót, 11 klasi, 13 tengi, 15 stökk, 18 angur, 21 ull, 22 spónn, 23 daunn, 24 viðunandi. Lóðrétt: 2 nepja, 3 rindi, 4 ásátt, 5 urinn, 8 sjúk, 7 hiti, 12 sök, 14 ein, 15 sess, 16 ölóði, 17 kunnu, 18 aldna, 19 grund, 20 rann. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. Rf3 c6 3. c4 Rf6 4. e3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Rh4 Bg6 7. Be2 Rbd7 8. O–O Re4 9. g3 Rd6 10. b3 Be7 11. Rxg6 hxg6 12. Dc2 Rf6 13. Hd1 Dc7 14. Bf1 O–O–O 15. Bg2 Hh5 16. c5 Rf5 17. h3 Hdh8 18. e4 dxe4 19. Bf4 Dd8 20. g4 Hxh3 21. gxf5 Hxc3 22. Dxc3 Rd5 23. Dc1 gxf5 24. Kf1 Hh4 25. Be5 Dh8 26. Ke1 Hg4 27. Bf1 Hg1 28. Dc4 Dh4 29. Ke2 Bg5 30. Hdb1 f4 31. Hb2 f3+ 32. Kd1 e3 33. Ke1 e2 34. Hxe2. Staðan kom upp á 5. Karpov-mótinu í Poikovsky í Rússlandi sem lauk fyrir skömmu. Alexei Shirov (2741) sem teflir fyrir Spán hafði svart gegn Rúss- anum Ernesto Inarkiev (2675). 34… Hxf1+! og hvítur gafst upp enda mát í næsta leik. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Óþarfa hittingur. Norður ♠KD ♥-- ♦ÁG943 ♣ÁKDG106 Vestur Austur ♠109 ♠G7652 ♥DG98752 ♥63 ♦K72 ♦D8 ♣4 ♣9873 Suður ♠Á843 ♥ÁK104 ♦1065 ♣52 Suður spilar 6G. Vestur opnar á 3♥, norður tekur undir sig stökk í 6♣, sem suður breytir í 6G út á hjartastyrkinn. Grófar, en hreinlegar sagnir. Útspilið er ♠10. Slagasumman á höndum sagnhafa er tólf en stíflan í spaðanum er til vand- ræða – það kostar slag að yfirdrepa ♠D og þá vantar einn. Ef til vill má vinna úrslitaslaginn úr tígullitnum, en þá þarf að velja réttu íferðina. Þetta er þekkt staða: hjónin fimmtu úti og að- eins ein innkoma til reiðu. Hér gengur að spila smáum tígli úr borði fyrst, en sé gert ráð fyrir háspili öðru í vestur er íferðin sú að spila fyrst að blindum. Þennan „hitting“ má þó forðast með því að taka alla svörtu slagina í borði, spila síðan ♦Á og tígli. Þá er sama hvor mótherjinn á háspil annað, sá hinn sami verður að spila suðri inn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert harður af þér. Þér er hrint en þú stendur bara upp og dustar af þér rykið. Ekki af því að þér sé sama, heldur veistu að þetta er hluti af þroskanum sem þú sækist eftir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Enginn hefur sama persónuleika. Þú kannt að meta þann lit sem það gefur lífi þínu. Þér finnst smámunasama fólkið hafa meira fram að færa en það andvaralausa. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er áskorun að halda einbeit- ingunni því margt vill dreifa huganum frá verkinu. Getur verið að þessi utanað- komandi skemmtilegheit séu málið? (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú hvetur félaga til dáða sem býr yfir hæfileikum – þú stendur vörð um andagift hans. Stattu þína plikt ef lista- maðurinn finnur fyrir vonleysi. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert einbeittur og tilbúinn. Heim- urinn lætur reyna á ásetning þinn og þú segir bara: „Látið það koma!“ Í nótt sef- urðu vel í miðri ringulreið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert valinn til að vera með í fund- arhöldum mjög áhrifaríks fólks. Þú óskar þess að þetta taki aldrei enda um leið og þú veltir fyrir þér í hverju þú sért eig- inlega að taka þátt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Réttlæti snýst allt um jafnvægi. Það sem virðist óréttlátt til styttri tíma litið er kannski besta lausnin til lengri tíma litið. Treystu á „karma“. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú þarft að standa í fé- lagslegum leiðindum eins og afsökunum og átökum. En þú nennir því ekki og flýtir þér að skipta um umræðuefni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert að velja fólk til að hjálpa þér með verkefni. Veldu það sem getur haft umsjón með verkinu ef þú þarft að bregða þér af bæ og jafnvel hefja annað ævintýri. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Samfélagið þitt þarfnast þín og þú þarfnast þess. Það er svo gefandi að helga sig verki sem þjónar heildinni. Ein- beittu þér í kvöld með penna í hönd. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert við stjórnvölinn í vissu sambandi. Það er þægilegt en krefst vinnu. Þú tekur ákvarðanirnar en líka ábyrgðina á slæmu ákvörðunum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er freistandi að gefa loforð núna en reyndu að standast það og ekki segja neitt sem gerir þig vandræðalegan seinna meir. Vertu glaður og hvetjandi. Stjörnuspá Holiday Mathis 8. ágúst 1958 Þyrla frá Keflavíkurflugvelli sótti N. R. Anderson skip- stjóra á kafbátnum Nautilus, sem þá var 14 mílur frá Ís- landsströndum, en þessi fyrsti kjarnorkukafbátur hafði fimm dögum áður siglt undir íshell- una á norðurpólnum. Skip- stjórinn fór með flugvél til Bandaríkjanna þar sem Ei- senhower forseti tók á móti honum. 8. ágúst 1959 Matthías Johannessen, 29 ára blaðamaður, var ráðinn einn af ritstjórum Morgunblaðsins. Hann lét af störfum í árslok 2000 og hafði þá verið blaða- maður og ritstjóri í tæpa hálfa öld. 8. ágúst 1989 Móttaka einnota öl- og gos- drykkjaumbúða hófst á 10 móttökustöðvum og 44 söfn- unarstöðvum á vegum End- urvinnslunnar hf. Greiddar voru 5 krónur fyrir hverja um- búðaeiningu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist þá… Þessar sætu stelpur, Anna Ólafs- dóttir og Thelma Karen Halldórs- dóttir frá Seltjarnanesi, komu til Rauða kross Íslands og afhentu ágóða af tombólu sem var 1.510 krónur. Hlutavelta Þær Aðalheiður Fanney, Kolbrún Helga og Karen héldu tombólu fyr- ir utan 10-11 verslun á Arnarbakka í Breiðholti og gáfu Rauða krossi Ís- lands ágóðan sem var 2.962 krónur. AFMÆLISBARN dagsins, Páll Viðar Haf- steinsson, er átta ára í dag. „Hún er fín,“ segir hann spurður um töluna átta og segir hana uppá- haldstöluna sína. Páll mun halda upp á daginn í faðmi fjölskyldu sinnar og vina en svo heppilega vill til að hann er í fríi frá námi í Ísaksskóla, þar sem þriðji bekkur bíður hans. Páli er augljóslega margt til lista lagt en hann æfir ballett í Listdansskólanum í Reykjavík og undanfarin tvö ár hefur hann stundað fornám í fiðluleik í Tónlistarskólanum í Garðabæ. „Síðan er ég boltastrákur hjá meistaradeild Stjörnunnar,“ bætir hann við en hann hefur brennandi áhuga á fótbolta og heldur með Stjörnunni og Manchester United. Uppáhaldskvikmyndir Páls eru Star Wars og Transformers. „Mér finnst það eiginlega svolítið lélegt,“ segir hann hneykslaður um áform um að gera tölvugerða Star Wars-mynd, „Það er búið að gera sex myndir og síðan koma einhverjar tölvugerðar lélegar myndir.“ Uppá- haldssögupersónan er Luke en hann heldur líka upp á klónana og orr- ustuvélmennin í fyrstu þremur myndunum. Þrátt fyrir ungan aldur er afmælisbarnið víðförult. Í sumar hefur hann farið í tvö ferðalög, til Hellu og upp í sumarbústað til ömmu sinnar og afa. Þá hefur hann m.a. ferðast til Ítalíu, Svíþjóðar, Dan- merkur og Portúgals og lætur vel af. | andresth@mbl.is Páll Viðar Hafsteinsson átta ára 8 ára 08.08.08 ;)Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.