Morgunblaðið - 08.08.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 43
SÁLIN LEIKUR Á EF
TIRFARAN
DI STÖÐ
UM
ÞAÐ SEM EFTIR LIF
IR SUMAR
S:
Föst. 08. ágúst: Players
Lau. 09. ágúst: Officera-klúbb
urinn, Kef.
Lau. 16. ágúst: Þorlákshöfn
Lau. 23. ágúst: Nasa, Rvk.
Lau. 30. ágúst: 800 Bar, Selfos
s
Lau. 06. sept: Hlégarður, Mos
fellsbæ
Clapton geri litlar kröfur um sérstakan aðbún-
að baksviðs og sé ekki með neina stjörnustæla.
„Hann vill bara fá lambakjöt og fisk bak-
sviðs og það eiga allir að borða saman.“
Clapton kom hingað frá Bergen í Noregi þar
sem hann var með tónleika á miðvikudaginn.
Hér til hliðar má sjá lagalista kappans á tón-
leikunum í Noregi. Héðan fer hann svo til
Skanderborg í Danmörku þar sem hann held-
ur tónleika á sunnudaginn.
Grímur leggur áherslu á að fólk komi tím-
anlega á tónleikana í kvöld en húsið verður
opnað kl. 18. „Við Íslendingar erum alltaf sein-
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG held að hann fari ekkert að veiða núna,
hann kemur í dag [í gær] og allur hans tími fer
í að undirbúa tónleikana. Hann fer svo strax á
laugardaginn,“ segir Grímur Atlason, skipu-
leggjandi tónleika Erics Clapton í Egilshöll-
inni í kvöld. „Það koma tæplega 30 manns með
honum. Það eru til dæmis sjö manns í hljóm-
sveitinni. Svo er líka sérmaður í því að vakta
gítarsafnið hans, sem verður raðað upp með-
fram sviðinu,“ segir Grímur og bætir því við að
ir og við höldum að það taki bara korter að
keyra úr Grafarvogi í miðbæinn. Það mun hins
vegar ekki gera það eftir tónleikana. Þegar 13
þúsund manns safnast saman á sama blett-
inum þurfa menn að hugsa aðeins,“ segir
Grímur en undir „fólkið“ á mbl.is má sjá kort
af bílastæðum við Egilshöll og aðrar upplýs-
ingar um tónleikana.
Uppselt er á svæði A á tónleikana en nokkr-
ir miðar eru eftir á svæði B.
Clapton er mættur
Reuters
Clapton Er einn besti gítarleikari heims.
Heldur risatónleika í Egilshöll í kvöld Nokkrir miðar eftir á svæði B
www.midi.is
1. Tell The Truth
2. Key To The Highway
3. Hoochie Coochie Man
4. Isn’t It A Pity
5. Outside Woman Blues
6. Here But I’m Gone
7. Why Does Love Got To Be So
Sad
8. Driftin’
9. Nobody Knows You When
You’re Down And Out
10. Motherless Child
11. Travelling Riverside Blues
12. Running On Faith
13. Motherless Children
14. Little Queen Of Spades
15. Before You Accuse Me
16. Wonderful Tonight
17. Layla
18. Cocaine
Aukalag:
19. Crossroads
Lagalisti Claptons
í Bergen í fyrradag
FRUMSÝNING»
FYRR í þessari viku var þriðja
myndin um múmíuna frumsýnd en
hún ber heitið The Mummy: Tomb
of the Dragon Emperor.
Rick O’Connell (Brendan Fraser) er
mættur aftur og í þetta skiptið
berst hann við Han keisara (Jet Li)
sem hefur risið upp frá dauðum í
mynd sem á sér stað allt frá graf-
hvelfingum í Kína til hæstu tinda
Himalajafjallanna. Með honum
slást í för sonur hans Alex (Luke
Ford), konan hans Evelyn (Maria
Bello) og bróðir hennar Jonathan
(John Hannah). Rick O’Connell er
farinn að hafa hægt um sig eftir síð-
ustu ævintýri en sonur hans Alex er
ekki á sama máli. Þegar Alex
slysast til að vekja hinn illa keisara
og 10.000 hermenn hans eru góð
ráð dýr. Fjölskyldan kemst fljótt að
því að blóðþorsti keisarans hefur
aðeins aukist síðustu þúsundir ára
og hún verður fljótt að taka á öllu
sínu til þess að koma í veg fyrir að
keisarinn steypi heiminum í eilífa
glötun.
Erlendir dómar:
Metacritic.com: 45/100
The Hollywood Reporter: 30/100
The New York Times: 30/100
Variety: 20/100
Múmían Brendan Fraser er mættur
aftur í allri sinni dýrð.
Legsteinn
keisarans