Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra gangsetti í gær nýja endurvinnslu PET-Baltija í Ríga í Lettlandi. Fékk hún til þess góða aðstoð frá Raimonds Vejonis, umhverfisráðherra Eistlands, og Maris Simanovics, stjórnarformanni PET Baltija. Verksmiðjan, sem er að meirihluta í eigu Gámaþjónustunnar, er stærsta verksmiðja sinnar tegundar í Eystrasalts- löndunum og mun endurvinna plastflöskur, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu. Gangsetningin er eitt embættisverka Ingi- bjargar Sólrúnar sem er í opinberri heimsókn í Lettlandi. Við opnunina minnti utanríkisráðherra m.a. á þann fjölda íslenskra fyrirtækja sem starf- ar nú í Lettlandi. Ingibjörg mun í dag funda með forseta landsins. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Endurvinnsla í gang „ÞAÐ hafa engar þreifingar verið og engin sam- skipti af neinu tagi,“ segir Bára Hildur Jóhanns- dóttir, formaður kjaranefndar ljósmæðra. Fundað verður klukkan 13 í dag um launaleiðréttingu ljósmæðra, en Bára segir stöðuna nákvæmlega þá sömu nú og hún var fyrir verkfall í síðustu viku, ekkert hafi heyrst frá samninganefnd ríkisins í millitíðinni og ljósmæður hviki hvergi frá sínum kröfum. „Við teljum okkur hafa teygt okkur eins langt og mögulegt er. Auðvitað vonumst við eftir ein- hverju útspili frá þeim, en við eigum samt ekki von á því.“ Hún segir ljós- mæður því búnar undir að hefja verkfall að nýju á miðvikudag eins og boðað hefur verið. unas@mbl.is Búast við verkfalli að nýju Fundað aftur í dag um kjör ljósmæðra Bára Hildur Eftir Andra Karl andri@mbl.is HELSTA orsök dauðsfalla ungs fólks á aldrinum 15-24 ára í OECD löndunum árið 2004 var umferð- arslys. Af þeim sem létu lífið í um- ferðarslysum í OECD löndunum var hlutfall ungra ökumanna á milli 18 og 30%, en sami hópur þó ekki nema 9-13% af mannfjöldanum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrsl- unni Ungir ökumenn – leiðin að ör- yggi (e. Young drivers – Road to saf- ety). Á morgunverðarfundi Lýð- heilsustöðvar, Slysavarnaráðs og Umferðarráðs sem fram fer í dag verða athyglisverðar niðurstöður úr skýrslunni kynntar, en þær miða að því að auka öryggi ungra ökumanna. Meðal þeirra tillagna er að setja ýmsar reglur fyrir yngsta aldurs- hópinn, s.s. að banna akstur á kvöld- in, nóttunni og um helgar, en þá eru mörg slys ungra ökumanna skráð. Einnig virðist slysum fjölga ef ungir ökumenn eru með farþega á svip- uðum aldri í bíl sínum. Því er einnig stungið upp á því að takmarka slíkan akstur. Í skýrslunni er jafnframt komið inn á tæknibúnað sem getur og hef- ur komið í veg fyrir slys hjá ung- mennum. Meðal annars er minnst á hljóðmerki sem bíllinn gefur frá sér séu bílbelti ekki notuð, en eins svo- nefndan alkólás, sem ekki er eins al- gengur. Samkvæmt skýrslunni verð- ur of mikið af slysum vegna ölvunaraksturs ungmenna, og of mikið líkamstjón vegna ónógrar notkunar bílbelta. Þá er talið vænlegt að setja öku- rita í bíla hjá ungmennum og jafnvel hraðatakmarkanir. Engin ein leið dugar til Ljóst er að engin ein leið dugar til að fækka umferðarslysum hjá yngsta aldurshópnum. En besta leiðin er að grípa til fjölþættra að- gerða sem miðað er að þeim mörgu áhættuþáttum sem eru til staðar. Þar má nefna reynsluleysi auk þeirra aðstæðna sem oftast leiða til slysa, s.s. að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Áhættan mest hjá ungu fólki Umferðarslys voru helsta orsök dauðs- falla ungs fólks innan OECD árið 2004 Morgunblaðið/Ómar Hraðakstur Ungmenni eru gjörn á að aka hratt í umferðinni. Hverjir eru ræðumenn á morgunverðarfundinum? Karl V. Matthíasson, formaður um- ferðarráðs, setur fundinn og Kristján Möller, samgönguráðherra, flytur ávarp. Að því loknu tekur Divera Twisk, sviðsstjóri rannsókna á mannlegri hegðun hjá SWOV, við og á eftir henni talar Willem Vlakveld rannsak- andi hjá SWOV. Holgeir Torp, verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðarstofu, er síðasti ræðu- maður og fjallar um námskeið vegna akstursbanns og árangur af því. Hvað er SWOV? SWOV er stofnun um umferðarrann- sóknir í Leidschendam í Hollandi. S&S                            !" #      $    %  % # % &    '    (   )     $ #  %  % '    +      $       ,    '   *   #  &     , '% #        %   * ---* * MAÐURINN sem braust inn í hús á Grettisgötu í Reykjavík að- faranótt laugar- dags hefur verið handtekinn. Hans hefur verið leitað síðan um helgina. Hann komst óséður inn í húsið en húsráðendur vöknuðu við ferðir hans og hröktu hann á flótta. Maðurinn er enn í haldi lögreglu, að sögn Friðriks Smára Björgvins- sonar, yfirlögregluþjóns hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Friðrik Smári staðfestir að mað- urinn sé grunaður um að hafa framið kynferðisbrot inni í húsinu áður en komið var að honum. Fram hefur komið að barn var meðal heimilis- fólks, en ekki hafa fengist nánari upplýsingar um hvað átti sér stað. Braut gegn heimilisfólki Maðurinn var handtekinn í gær. MYNDSKREYTING á heimasíðu Ög- mundar Jónassonar, þingflokksfor- manns Vinstri grænna, hefur vakið nokkra athygli, en þar skeytir hann andliti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra inn á mynd með Moammar Gaddafi, Lýbíuforseta. Ög- mundur segir Guðlaug og Gaddafi eiga það sammerkt að þurfa ekki að færa djúp rök fyrir afstöðu sinni þegar ráð- ist er í breytingar á samfélaginu, og vísar í nýja Sjúkratrygginga- og inn- kaupastofnun á heilbrigðissviði. Ögmundur segir viðbrögð við myndinni almennt góð frá þeim sem hafi húmor og innsæi í hið pólitíska augnablik. Stöku sinnum verði hann var við önuga lesendur. „Hinir eru miklu fleiri, sem kunna að meta að lognmollunni sé blásið frá,“ segir Ögmundur Aðpurður segist Guðlaugur Þór í gær hafa fengið sterk viðbrögð frá fólki sem telur myndina óviðeigandi. „Að spyrða mig saman við Gaddafi, sem er morðingi sem hefur látið myrða konur og börn, það finnst mér ansi lágt lagst. Mér finnst það mikið umhugsunarefni að formaður þing- flokks stærsta stjórnarandstöðuflokksins sjái sóma sinn í því að gera þetta,“ segir hann. Um gagnrýni Ögmundar í pistlinum segir Guðlaugur af og frá að hann hafi veigrað sér við umræðunni. Hann hafi haldið fundi um málið og farið að óskum stjórnarandstöðu á þingi. Að hennar ósk sé það klárað í haust en ekki sl. vor. „Menn hafa haft öll tæki- færi til þess að ræða þetta einstaka mál.“ onundur@mbl.is Guðlaugur settur á mynd með Gaddafi Ögmundur Jónasson Vinir? Ögmundur tekur ekki fram að myndin er tilbúin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.