Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI DEATH RACE kl. 8:10D - 10:30D B.i. 16 ára DIGITAL DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára GET SMART kl. 5:50D - 8D - 10:10 LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ísl. tali kl. 6D LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR. YFIR 68.000 MANNS EIN BESTA MYND ÁRSINS! -L.I.B.TOPP5.IS -T.S.K - 24 STUNDIR -ÁSGEIR J. - DV VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SPENNA, HASAR OGTÖFFARASKAPUR EINS OG ÞAÐ GERIST BEST ATH. STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA. EKKI FYRIR BÍLVEIKA! "ALVÖRU STRÁKAMYND SEM KREFST ÞESS EINUNGIS AÐ ÞÚ SLÖKKVIR Á HEILANUM OGTAKIR VEL Á MÓTI HÖRÐU OFBELDI, FLOTTU KVENFÓLKI OG HEILMIKLUM TÖFFARASKAP" -TOMMI - KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / ÁLFABAKKA DEATH RACE kl. 5:50D - 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL DEATH RACE kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ THE DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 - 10:20 B.i. 12 ára THE MUMMY 3 kl. 8 B.i. 12 ára STAR WARS: CLONE WARS kl. 5:50D LEYFÐ DIGITAL FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is GRÍÐARLEG velgengni söngva- myndarinnar Mamma Mia! hefur fengið margan Íslendinginn til að klóra sér í kollinum og menn í kvik- myndageiranum klóra sér líka, að sögn framkvæmdastjóra Smáís, Samtaka myndréttahafa á Íslandi, Snæbjörns Steingrímssonar. Vissu- lega áttu menn von á því að myndin gengi vel í landann en Mamma Mia! er, þegar þetta er skrifað, önnur tekjuhæsta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum frá því skipuleg skráning hófst hjá Smáís. Sú tekju- hæsta er íslensk, Mýri Baltasars Kormáks, með um 7,2 milljónum krónum meira en Mamma Mia!. Haldi Mamma Mia! áfram sinni sig- urför gæti hún auðveldlega varpað Mýrinni úr hásæti sínu. Þegar listi Smáís hér til hliðar er skoðaður, yfir tíu tekjuhæstu mynd- irnar í íslenskum kvikmyndahúsum frá því að skráning hófst árið 1995, kemur í ljós að leikstjórarnir Baltas- ar Kormákur og Friðrik Þór Frið- riksson eiga tvær myndir hvor á lista og sú í ellefta sæti er einnig verk Baltasars Kormáks, Hafið. 125.000 Athygli skal hins vegar vakin á því að mikil aðsókn að íslenskum mynd- um er áratugagamalt fyrirbæri. Drottningin situr enn í hásæti sínu sallaróleg, með öruggt Íslands- met, þó svo staðfestar tölur yfir tekjur af henni sé ekki að fá. Þetta er söngva- og gleðimyndin Með allt á hreinu, um 125.000 miðar voru seldir á hana á einu ári, að sögn Stuð- mannsins Jakobs Frímanns Magn- ússonar, framleiðanda hennar. Það var Íslandsmet og jafnvel heimsmet sé miðað við höfðatölu. Ef miðað er við 1.100 króna miðaverð fyrir ís- lenska kvikmynd (sem er verðið á aðgöngumiða að Sveitabrúðkaupi), myndi miðasala á Með allt á hreinu nema 137,5 milljónum króna ef hún væri í bíói í dag og 125.000 miðar seldust. Þessi talnaleikfimi er á ábyrgð blaðamanns. Fram- kvæmdastjóri Smáís bendir á að miðað við miðaverðið árið 1983 kæmist myndin aldrei inn á listann yfir tíu tekjuhæstu myndirnar. List- inn sé ekki verðtryggður. Íslandsmetið stendur enn Gaman- og söngvamyndir virðast höfða til Íslendinga ef marka má velgengni Mamma Mia! og Með allt á hreinu           ).5;) E   0 ! & E  + + H+ I+  .D & . . E  & 6 3 ! / &  3 ! / &  ,&  5/  & 3 ! / & E/ 0  <& / 8%$ && 0! - & ) & .-&! ) & .-&! .-&! ) !  .-&! ) !  ) & ) !   < < < < < < < < < < MAMMA Mia! hvað? Um 96 þúsund manns hafa séð þá gaman- og söngvamynd en hún er þó rétt í hæl- unum á Með allt á hreinu frá árinu 1982. Framleiðandi kvikmynd- arinnar, Jakob Frímann Magnússon, sem jafnframt lék í myndinni og samdi og flutti tónlist með félögum sínum í Stuðmönnum og Grýlunum, segir það staðreynd að myndin hafi slegið aðsóknarmet í íslenskum kvik- myndahúsum sem enn standi. Og verði lík- lega aldrei bætt. 118 þúsund í fyrstu atrennu „Það var vottað og staðfest af framleiðand- anum, dreifiaðilanum og öðrum eftirlits- aðilum á þeim tíma að myndin náði, í fyrstu atrennu (þ.e. frá frumsýningu í desember 1982 til loka sýninga 1983, innsk. blm.), 82.000 manns í þeim eina sal sem hún var sýnd í, í Háskólabíói. 36.000 manns að auki í þeim virku bíósölum landsbyggðarinnar sem þá voru, s.s. um 118.000 manns í fyrstu at- rennu. Fyrstu endursýningar bættu liðlega 7.000 manns við það, og þá erum við bara að tala um fyrstu 12 mánuði sýninga á þeirri ágætu kvikmynd,“ segir Jakob Frímann um aðsókn- ina. Aðrar aðstæður þá en nú Þetta hafi þótt undur og stórmerki á Ís- landi og víðar um lönd, að öllum líkindum hafi verið slegið heimsmet í aðsókn á kvik- mynd með tilliti til höfðatölu Íslendinga. „Á þessum tíma var þjóðin rétt liðlega 270 þúsund manns þannig að það hjó ansi nærri því að helmingur þjóðarinnar hefði farið í kvikmyndahús að sjá þessa mynd.“ Jakob Frímann segir að skrifað hafi verið um þetta og rætt á þessum tíma og þessar tölur hafi aldrei verið vefengdar. „Þetta var allt vottað og skjalfest af endur- skoðendum og skattayfirvöldum þess tíma, nánast í beinni útsendingu fjölmiðla,“ bendir hann á. Þegar þessi aðsókn sé borin saman við að- sókn að myndum í dag verði að taka tillit breytts þjóðfélags. Í upphafi 9. áratugar síð- ustu aldar hafi kvikmyndahúsin ekki átt í eins mikilli samkeppni við annars konar af- þreyingu og þau eiga nú, t.d. tölvur, tölvu- leiki, DVD-diska, myndbandaleigur, sjón- varpsdagskrá o.s.frv. Tegund sem höfðar til fjöldans „Við sjáum það núna með söngva- og gleði- myndinni Mamma Mia! að það er kannski svona tegund af kvikmyndum sem höfðar hvað mest til fjöldans á Íslandi,“ bendir Jak- ob Frímann á. „Þetta heimsmet sem þarna var slegið í bíóaðsókn, per capita á eina kvikmynd, verð- ur því að líkindum aldrei slegið aftur.“ Nær helmingur þjóðarinnar í bíó Jakob Frímann telur líklegt að Íslendingar eigi heimsmet í bíóaðsókn Stuðmenn og Grýlur Frá frumsýningu Með allt á hreinu í desember árið 1982. Jakob Frímann Magnússon Koppafeiti Kvikmyndin Grease sló öll met á sínum tíma en svo kom Með allt á hreinu. FRIÐBERT Pálsson var forstjóri Háskólabíós þegar Með allt á hreinu var sýnd þar. Hann staðfestir að rúm 80.000 hafi séð myndina í Háskólabíói frá frumsýningu til sýningarloka næsta árs og tæp 40.000 úti á landi. Hann man þó ekki nákvæmar tölur því langt er um liðið. ,,Munurinn er sá að oft var uppselt á fjórar sýningar á dag í þessum stærsta bíósal landsins en í dag þyrfti að vera uppselt í mörgum bíósölum til að ná viðlíka fjölda,“ segir Friðbert. Hann segist ekki vita til þess að menn rengi þessar tölur, að kvikmyndin eigi aðsóknarmetið. ,,Það var ,,möst“ að sjá þessa mynd, hún sló Grease við í aðsókn en hún átti fyrra aðsókn- armet.“ Friðbert segir gleði og skemmtan greinilega ráða miklu hvað varðar aðsókn að kvikmyndum, sé litið til vinsælda Mamma Mia! nú og Grease og Með allt á hreinu. Fólk komi aftur og aftur á slíkar myndir. „Möst“ að sjá þessa mynd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.