Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Fyr getur nú brunnið til ösku, og þið segið bara allt í lagi, þó það finnist ekki svo mikið sem túkall með gati í rústunum. Ögmundi Jónassyni, þingflokks-formanni Vinstri grænna, lízt ekkert á frumvarp heilbrigð- isráðherra um sjúkratryggingar.     Ögmundur skrifaði í Morg-unblaðið á sunnudaginn og kallaði til vitnis um það hversu ómögu- legt frumvarpið væri, „færustu sér- fræðinga á sviði heilbrigðismála“, sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, þar sem hann er líka for- maður, hefur boðið til landsins.     Ámeðal sérfræðinganna eru Gör-an Dahlgren frá Svíþjóð og Ally- son Pollock frá Bretlandi.     Dahlgren er sérlegur ráðgjafistjórnvalda í Alþýðulýðveldinu Víetnam um heilbrigðismál.     Pollock gagnrýnir brezka Verka-mannaflokkinn frá vinstri og er í miklu uppáhaldi hjá róttækum hreyfingum sósíalista í Bretlandi.     Með öðrum orðum skoð-anasystkin Ögmundar og fé- laga í VG, bæði tvö.     Og bæði boðin hingað á kostnað fé-lagsmanna í BSRB, sem sömu- leiðis hafa kostað útgáfu bæklinga með erindum „sérfræðinganna“.     Fjölmargir starfsmenn hins op-inbera eiga ekki annan kost en að vera í BSRB og greiða þar fé- lagsgjöld. Ætli þeir séu allir sam- mála því að peningarnir þeirra séu notaðir til að fjármagna vinstri grænan áróður?     Væri ekki bara nær að þingflokk-urinn borgaði? STAKSTEINAR Ögmundur Jónasson BSVGRB?                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -            !! "    # 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    $# %          !!  &! & :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? &   &       & & & &    &                                  *$BC                    !   "#$    *! $$ B *! '(  ) !  !( ! %  # *# <2 <! <2 <! <2 '% )  !+ " ,!-#.  D$ -                  <7  $ # %& '      '%   ( ))  * ( '  <   $ #     %    +  ' , '%      #  "  "% '-'          #$     ! .  /0 !!#11  # !!2 # #!+ " VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR EINAR Stefáns- son prófessor við læknadeild Há- skóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Land- spítalans fær svo- kölluð Jules Gon- in verðlaun. Þessi verðlaun eru ein hin merkustu sem veitt eru í heiminum á sviði augn- læknisfræði, samkvæmt upplýsing- um Háskóla Íslands. „Þetta er mikill heiður fyrir Einar, Háskóla Íslands, Landspítalann og íslenskt vísinda- samfélag. Jules Gonin-verðlaunin eru veitt annað hvert ár þeim einstak- lingum í heiminum sem þykja hafa staðið sig öðrum framar í augnrann- sóknum og lækningum, sérstaklega á sviði sjónhimnusjúkdóma,“ segir í frétt HÍ. Gonin-verðlaunin eru veitt ein- staklingum sem þykja hafa lagt mikið til augnlækninga og augnrannsókna á ferli sínum. Talið er að í þessu tilviki sé m.a. horft til rannsókna Einars á sviði súrefnisefnaskipta augans og skýringa á því hvers vegna leisi-með- ferð er hjálpleg við augnsjúkdómi í sykursýki og æðalokunum. „Þetta er mikill heiður“ Einar Stefánsson fær Gonin-verðlaunin Einar Stefánsson SJÖ MÓTMÆLENDUR sem allir tengdust sam- tökunum Saving Iceland á einn eða annan hátt voru í gær dæmdir til að greiða samtals 550 þús- und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna mótmæla við jarðborinn Tý uppi á Skarðsmýrarfjalli. Ekki var ágreiningur um að ákærðu í málinu fóru að Hellis- heiðarvirkjun, og ekki var ágreiningur um að tveir þeirra fóru upp á stjórnhús borsins, einn mótmæl- enda hlekkjaði sig við námubifreið og annar ofan á bómu á skurðgröfu. Ákærðu í málinu báru við að engar girðingar hefðu verið kringum vinnusvæðið eða borinn. Þau hefðu ekki fylgt vegi heldur gengið frá tjaldbúðum Saving Iceland og um nokkra dali. Engar merk- ingar hefðu verið á þeirri leið, né í kringum borinn sjálfan. Því hefðu þau talið sig í rétti til að vera þar. Lítið gefið fyrir málatilbúnað Héraðsdómur Suðurlands gaf lítið fyrir þessar skýringar og segir m.a. svo í dómnum: „Breytir engu þó svo að girðingar hafi ekki verið í kringum [borinn] eða skilti á þeim stað sem sneri út á víða- vang. Það er hverju mannsbarni ljóst að þar er um mikið mannvirki að ræða og engum verður talin trú um að fullorðnu fólki, sem meðal annars stund- ar háskólanám, megi ekki vera það ljóst, þó svo að ekki hafi verið skilti við þann stiga sem þau fóru um, að þau hafi þurft sérstakt leyfi til að fara þar um.“ Bótakröfu Orkuveitu Reykjavíkur og Klæðn- ingar ehf. vegna vinnutaps var vísað frá dómi þar sem þær voru ekki studdar neinum gögnum. Fjór- um sakborninga var gert að greiða 100 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs og þremur 50 þúsund krónur. Þeim var einnig gert að greiða allan sak- arkostnað, alls 444 þúsund krónur. andri@mbl.is Dæmd fyrir mótmæli við jarðbor Þurfa að greiða samtals 550 þúsund kr. í sekt auk 444 þúsund kr. í sakarkostnað Blönduós | Magnús Pétursson, bóndi í Miðhúsum í Vatnsdal, náði þeim stóra áfanga að ljúka sínum fimm- tugustu göngum á Grímstungu- og Haukagilsheiði í haust. Magnús sem er fæddur árið 1944 fór í sínar fyrstu göngur 14 ára gamall og hef- ur farið í göngur hvert haust síðan. Magnús sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði einnig nær alltaf farið í aðrar göngur og jafnvel í eftirleitir. Þessar ferðir Magnúsar á Grímstungu- og Haukagilsheiði eru því orðnar vel á annað hundrað. Síðustu tuttugu árin hefur hann verið gangnaforingi á Gríms- tunguheiði. Spurður um það hvort eitthvað sérstakt standi upp úr eftir allar þessar ferðir sagði Magnús svo ekki vera. „Maður hefur oft orðið áttavilltur og lent í misjöfnum veðr- um en aldrei svo að orð sé á ger- andi. Það eina sem maður getur gert þegar maður er villtur er að bíða og ná áttum. Ég er nýbúinn að læra á farsímann og ekki kominn svo langt að læra á GPS-tækin þannig að eðlisávísunin mun ráða næstu árin um það hvar leið skuli liggja til byggða.“ Varlega má áætla að Magnús hafi verið að lágmarki eitt ár á fjöllum við smalamennsku fyrir sig og sitt samfélag þegar allt er talið. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Göngugarpur Magnús Pétursson hefur farið í göngur í samfellt 50 ár. „Oft áttavilltur og lent í misjöfnum veðrum“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.