Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 15 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is GAMALL draumur eðlisfræðinga er að rætast. Á morgun verður öreindahraðallinn í CERN, Evr- ópsku rann- sóknamiðstöð- inni í öreinda- fræði í Genf, gangsettur eftir áratuga bið. Hraðallinn er í raun samstæða margra hraðla sem þeyta öreindum í afar sterku segulsviði í sérstökum göngum þar til þær nálgast ljós- hraða, hinn endanlega hraða efn- isheimsins, sem mælist rétt tæp- lega 300.000 km á sekúndu. Inntur eftir því hvernig bún- aðurinn virki segir Guðni Sigurðs- son eðlisfræðingur að róteindum sé fyrst hraðað. Nokkrir hraðlar komi þar við sögu, fyrst línuhraðall, sem skjóti eindunum í lítinn hringhraðal, það- an fari þær inn í tvo róteinda- samhraðla (PS og SPS á korti), þar sem þær nái enn meiri hraða. Að því loknu sé þeim skotið inn í sterkeindahraðal, sem hér er til gamans þýddur sterkeindasteðji, sökum þess að þar rekast öreind- irnar á. Í hraðlinum sé öreindunum safnað saman í sérstakan geymslu- hring. Þar hringsóli þær nærri ljóshraða. Hér séu í raun tveir hringir og brautarstefnan hvor á móti annarri og staðirnir, eða steðjarnir, þar sem þær rekast á fjórir (ATLAS, ALICE, LHC-b og CMS). Gagnaöflunin fari fram við árekstrasvæðin, þar sem skoðað sé hvað komi út úr árekstrum öreind- anna, hvaða eindir verði til við árekstur þeirra og hverjir séu eig- inleikar þeirra. Gríðarlega hátt hitastig Hitastigið við árekstrasvæðin sé gríðarlega hátt og skilyrðin lík því sem þau eru talin hafa verið við Miklahvell fyrir 13,7 milljörðum ára. Því geri menn sér vonir um að öðlast dýpri skilning á myndun al- heimsins í árdaga, með gleggri sýn á innsta eðli efnisheimsins. Þá verði reynt að sannreyna kenningu breska eðlisfræðingsins Peter Higgs, öðru nafni kenningu Higgs, um tilvist Higgs-bóseindar, sem gefi öreindunum massa. Kostnaðurinn hleypur á hundr- uðum milljarða króna og segir Guðni að nokkur tími muni líða þar til tilraunir fari að skila eðl- isfræðilegum niðurstöðum. Hvað snerti áhyggjur manna af því að búnaðurinn kunni að leiða til ragnaraka, með myndun svarthola, segir Guðni þær tóma vitleysu, enda sé hér verið að líkja eftir ferl- um í náttúrunni. # # $                       %&'( )*+,  !" -./01.2 02''13!'20./!4 5&4"1 .46 7814'$2.4602#'29  :; !"  <=;<"   !"# -.&0!&4'$#" >03.&4'$#" &?2 @3'#"A $ %&'  (!)" &'*"  )B-C DEF)*C DGED- HI EJ)K9 +, ,  +,-. /        L9M!"   2 + *4'$#" &0 1!H.4? 4'' 8 502?264'' N20 1&" N/0 'O6I21. 6@31502?2 HI 0&!21. 17H O O (@30#" 1.P?#" N20 1&" 504'I40'40 "/.21.9 *4'$#" 1&" &0 1!H.4? 4'' 8 1"/004 ./!4' !H"2 .46 -Q-9 *4'$40'20 &0# (6#..20 .46 EJ) HI "R'$2 N20 "&? I&4162 1&" 1.&('2 57H0 8 18'2 O..4'29 " '&?2'S @20?20 +P? ./!@2KT'2?20 1!U.#0 &4'$#" (0O &4'# ./!4 .46 2''2019 V4? N2? &R!1. H0!2 N&4002 HI N20 "&? 502?4 &4'$2''2 8 IP'I#'#"9 W&I20 N/0 0&!21. O &0# N/0 '/004 6@31502?2 >X9 !"Y1A9 33 4 ,  Q- EJ)SK E*F+ DEF)*                   2 DGED-     !  "      "   V4? O0&!1.#0 P0&4'$2 7&0?#0 .46 (@P6$4 'U002 &4'$2 1&" I&040 &?641(0/?4'I#'#" !6&4(. 2? 02''12!2 4''1.2 &?64 &('415&4"14'19 "5" (3 = D? &'$#01!2Z2 2?1./?#0'20 74? B4!6257&66 HI !2''2 "PI#6&I2 .46741. 5#6$#&('419 35 (3 = B#'#04'' O 2'$&('4 HI 54'#" N&!!.# &4'$#" &('415&4"14'19  )6 %%' = D? !2''2 'U@20 78$$409 && = D? 12''0&R'2 !&''4'I# J4II19 +    $  %  & " Q- -Q- EJ)Q- [HH1.&0EF,D): 7 8 97: 8 ; + <9 8 7:  \0!2 03.&4'$2] B >"&I2A S 99 C % >I8I2A S 999 C G >.&02A S 9999 9 + =  , = 7<> 8 ?" ;; 8 ?" <;@ + ?" 7: + E*F+ ;  ?"^3'2H0!2 O !@20'&4'$] J6#.4]  -=  ,   A +B.   A ,  8A ,8 =  CD++,  _0&!1.#0 P0&4'$2''2 6&4?40 .46 H0!#6H1#'20 8 0U"4 1&" &0 #" "466@3' "466@3' 14''#" 1"/002 &' "H1!8.3(6#I29 -!04?H0!2 "H1!8.3S (6#I# &0 #"  G&V >1@O .P(6#A9 *4'$40'20 I&.2 N&R1. #" IP'I4' 8  1.#'$40 HI (204?  "466@20?2 !"C &?2 9:`< 504'I4 O 1&!T'$#9 E,  +  2F G , / a68!20 &4'$40 6H!21. 4''4 8 "41"#'2'$4 6PI#" '&"2'1 74? O0&!1.#09 E&4? I&4162 E&4? I&4162     '( *4'$40 0&!21. O 'H&' &' % 35&' ! ,)" / 0 4 ,   " I3I& ''"  JI"3K %"5IK 6 I )' 35"  " 4 (L&' &33 &%J' 33 4 ; % *3I 3II !I*3I &3&< ) *+$", " # $ % & ' ( # ) # $ * + , - + + - Guðni Sigurðsson Skyggnst í hugskot skaparans AP Gagnageymslan Á hverju ári mun búnaðurinn afla nægra gagna til að fylla 20 km stafla af geisladiskum. AP Umfang Kjarninn í hinu ofurleið- andi segulsviði straumspólunnar (CMS) sem sýnd er á kortinu. Í HNOTSKURN »Róteind er helsta bygging-areind efnisheimsins. »Hugmyndin um Miklahvell(e. Big bang), lýtur að myndun alheimsins eftir út- þenslu óendanlega heits punkts, en var fyrr sett fram á 20. öld er gleggri mynd fékkst af innsta eðli efnisheimsins. »Breski stjarneðlisfræðing-urinn Stephen Hawking hefur nefnt Miklahvell „hug- skot Guðs“. Gagnaöflun háhraðlasamstæðu ætlað að varpa ljósi á Miklahvell „VIÐ höfum aldrei fengið tvo fellibylji í röð með svo skömmu millibili í sögu landsins,“ sagði Jose Rubiera, yfirmað- ur kúbversku veðurstofunnar á Kúbu, eftir að fellibylurinn Ike olli mikilli eyðileggingu á eyjunni í gær. Flóðbylgjur á hæð við fimm hæða íbúðarhús skullu á strandbyggðinni í Baracoa á Austur-Kúbu, þar sem hundruð heimila gjöreyðilögðust. „Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði ónafngreindur íbúi Baracoa í samtali við AFP-fréttastofuna í gær, en hann hefur búið þar síðustu 57 ár. Ike er fjórða fárviðrið sem gengur yfir Karíbahafið á síðustu vikum og hafa minnst 600 týnt lífi á Haíti eftir að fellibylurinn Hanna fór þar yfir. Tugir þúsunda eru heimilislausir og farið að bera á skorti á aðföngum. Dregur úr vindhraðanum Ike var skilgreindur sem fjórða stigs fellibylur þegar hann reið yfir Turks- og Caicoseyjar um helgina, en var í gær endurskilgreindur sem fyrsta stigs fellibylur, sem þýðir að vindhrað- inn var um 130 km á klukkustund. Til samanburðar eru 118 km á klukku- stund skilgreindir sem 12 vindstig. Gíf- urlegur viðbúnaður var í Havana í gær- kvöldi og var óttast að Ike myndi magnast á leið sinni yfir sjó. Búist var við að hann skylli á borginni í nótt. Fordæmislaus fárviðrahrina AP Rústir Allt var á tjá og tundri í Holguin á austurhluta Kúbu eftir að Ike reið þar yfir í gær. Hátt í tvær milljónir Kúbverja flúðu fárviðrið og óttuðust menn það versta í Havana þegar Ike stefndi á höfuðborgina í gærkvöldi. Tveir öflugir fellibyljir ríða yfir Kúbu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.