Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT SKJÓTUR frami Frank-Walters Steinmeiers inn- an SPD hefur vakið nokkra at- hygli. Hann á stuttan feril að baki sem stjórnmálamað- ur, en hann var embættismaður á vegum flokksins allt þar til hann tók við embætti ut- anríkisráðherra árið 2005. Útnefn- ing hans sem kanslaraefnis þykir því sæta nokkrum tíðindum. Steinmeier starfaði þétt með Gerhard Schröder, bæði áður og á meðan hann gegndi embætti kanslara. Hann þykir ein bjartasta von jafn- aðarmanna í Þýskalandi og er nú einn vinsælasti stjórnmálamaður landsins. Vinsældir hans þykja sterkasta vopn hans í komandi kosn- ingabaráttu og gætu þær vegið upp á móti reynsluleysi hans. jmv@mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is UMSKIPTI urðu innan þýska jafn- aðarflokksins (SPD) undir lok flokksþingsins á sunnudag, þegar kanslaraefni flokksins var kynnt. Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, var út- nefndur kanslaraefni og mun því etja kappi við Angelu Merkel kansl- ara í kosningum að ári. Svo vill þó til að Steinmeier er jafnframt núverandi aðstoðarkansl- ari Þýskalands í samsteypustjórn CDU og SPD og gæti barátta hans við Merkel því reynst stjórnarsam- starfinu hættuleg. Þá var nýr formaður flokksins einnig valinn vegna óvæntrar upp- sagnar fyrrverandi formanns, Kurts Becks. Jafnaðarmenn hafa átt í langvinnum innanbúðardeilum und- anfarna mánuði og hefur Kurt Beck verið sem holdgervingur þeirra deilna. Franz Müntefering tekur við flokksforystunni eftir útnefningu flokksins, en líklegt þykir að það verði á næstu vikum. Müntefering gegndi áður embætti flokks- formanns frá 2004-2005. Verður SPD ógn á ný? Tvíeykið Steinmeier og Müntefer- ing voru nánir samstarfsmenn Ger- hards Schröders, fyrrverandi kansl- ara. Með tilkomu þeirra innan forystu flokksins þykir margt benda til þess að SPD gæti á ný orðið raun- verulega ógn við flokk Angelu Mer- kel, kristilega demókrata (CDU). Frank-Walter Steinmeier hefur notið mikilla vinsælda sem utanrík- isráðherra og kemst nærri Merkel að vinsældum. Haldi Steinmeier og Müntefering fyrri pólitískum áherslum sínum þykir líklegt að flokknum verði stýrt lengra inn á miðjuna, en flokkurinn þótti hafa rásað nokkuð yfir til vinstri undir forystu Becks. Það verði til þess að minnka svigrúm CDU á miðjunni. Til mótvægis hefur þó verið bent á að þótt Merkel og Steinmeier verði keppinautar sjái hvorugt hag sinn í því að enda stjórnarsam- starfið. Slíkt yrði bara til hagsbóta fyrir smærri flokkana. Kristilegir demókratar hafa krafið forystu SPD um að hún lýsi yfir eindregnum vilja til að halda áfram stjórnarsamstarf- inu. Að sögn Volkers Kauders, þing- flokksformanns CDU, gæti barátta Merkel og Steinmeiers reynst stjórnarsamstarfinu hættuleg. Mik- ilvægt sé að Steinmeier skilgreini sig áfram sem hluta af ríkisstjórn- inni. Merkel fær verðugan andstæðing Tvíeykið Steinmeier og Müntefering talið eiga eftir að sækja hart að CDU Reuters Leiðtogar Franz Müntefering og Frank-Walter Steinmeier ávarpa blaða- mannafund í kjölfar útnefningar þeirra sem kanslaraefni og formaður SPD. SPENNAN fer nú ört vaxandi í kosningabaráttunni í Bandaríkj- unum og á mánudag komst John McCain í fyrsta sinn fram úr Barack Obama í skoðanakönnunum. Könnun á vegum USA Today og Gallup sýndi að McCain leiddi með 50% á móti 46% á meðal skráðra kjósenda. Fyrir landsþing Repúblik- anaflokksins í síðustu viku sýndi samskonar könnun hins vegar sjö prósentustiga forskot Obama. Á meðal þeirra sem þóttu líkleg- astir til að kjósa var munurinn meiri, eða 54% á móti 44% McCain í vil. 29% þátttakenda könnunarinnar sögðu að val McCains á Söru Palin sem varaforsetaefni sínu hefði breytt afstöðu þeirra og aukið lík- urnar á því að þeir kysu hann. 21% sagði hins vegar að líkurnar hefðu minnkað á því að það gæfi McCain atkvæði sitt. Önnur Gallupkönnun sýndi að McCain hafði farið í 48% úr 45% fylgi sem er mesta fylgi hans síðan í maí. Valið á Palin segir til sín Sérfræðingar segja að áhrif vegna nýafstaðins landsþings repú- blikana og óvænt val McCains á Pal- in séu nú að segja til sín. „Hann er í mun betri stöðu á þessum tíma- punkti en innanbúðarmenn hans höfðu þorað að vona,“ sagði stjórn- málafræðingurinn Larry Sabato frá háskólanum í Virginíu við AFP- fréttastofuna. Hann sagði þó jafn- framt að aðeins um helmingur þeirra skoðanakannana sem fylgt hefðu í kjölfar landsþinga flokkanna síðustu 30 árin hefði reynst spá rétt um endanleg úrslit. „Það er í raun ótrúlegt hversu stutt áhrifin frá þingunum vara,“ sagði Sabato. jmv@mbl.is Reuters McCain Valið á Palin virðist hjálpa. McCain sækir á F-4E Phanto-orustuflugvél í eigu suðurkóreska hersins undirgengst snjó- og frostþolsmælingar af hálfu varnamálaráðuneytis í Seosan, sunnan við Seúl. Suður-Kórea opnaði á mánudag nýja miðstöð til slíkra prófana og verður það í fyrsta sinn sem kóreski herinn getur mælt getu flug- flotans og annarra herfarartækja með tilliti til öfgakenndra veðurskilyrða, líkum þeim sem hér er við að líkja eftir. jmv@mbl.is AP Suður-kóresk ísvél uppfylltu sett skilyrði fyrir því í gær og undirrituðu yfirlýsingu þess efnis að þeir myndu ekki beita hervaldi gegn Abkasíu. Medvedev sagði jafnframt að al- Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is FRIÐARGÆSLULIÐAR á vegum Evrópusambandsins munu taka sér stöðu í nágrannahéruðum Abkasíu og Suður-Ossetíu í næsta mánuði og í kjölfarið munu Rússar draga herlið sitt til baka frá öllum svæð- um Georgíu, nema Abkasíu og S- Ossetíu. Þetta kom fram í máli Dímítrís Medvedevs Rússlandsfor- seta eftir fund hans með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta. Jafn- framt verður rússneskt herlið kall- að frá höfninni í Poti og nágrenni innan sjö daga, en Georgíumenn þjóðlegar viðræður um málefni Georgíu myndu eiga sér stað í Genf hinn 15. október næstkomandi. Medvedev lagði áherslu á að Rússar hefðu að fullu virt vopna- hléssamkomulagið sem Frakkar áttu milligöngu um og tók gildi í síðasta mánuði. Nicolas Sarkozy sagði að sátta- fundurinn með Medvedev hefði verið erfiður. „Það reyndist ekki unnt að leysa allt á fjórum klukku- stundum,“ sagði Sarkozy. Hann sagði niðurstöðuna þó mikilvæga og þá sérstaklega með tilliti til íhlutunar friðargæsluliða á vegum ESB. 200 friðargæsluliðar til Georgíu Medvedev segir Rússa munu draga allt herlið sitt til baka frá Georgíu, að undanskildum Abkasíu og Suður-Ossetíu Í HNOTSKURN »Auk Sarkozys og Medve-devs voru Javier Solana, sem fer með utanríkismál ESB, og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, á fundinum. »200 friðargæsluliðar ávegum ESB verða sendir til Georgíu fyrir 1. október og í kjölfarið draga Rússar sitt herlið til baka. »Georgískar hersveitirverða að hafa dregið sig til baka fyrir þann tíma. Dímítrí Medvedev Nicolas Sarkozy Bjargvætturinn Steinmeier? Frank-Walter Steinmeier

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.