Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn. (II Sam. 4, 1.-2.) Víkverji kynntist því af eigin rauná dögunum að ökudólgar fyrir- finnast í umferðinni í borginni. Að vísu viðurkennir Víkverji að hann gerði þau mistök að taka upp farsím- ann er hann hringdi á versta tíma, þ.e. á gatnamótum, en viðbrögð við því frá ökumanni fyrir aftan bíl Vík- verja voru ofsakennd og með hrein- um ólíkindum. Lætin hófust með flautugargi frá fyrstu sekúndu og þegar Víkverji var kominn af stað fór ökudólgurinn fram úr og stopp- aði fyrir framan Víkverja, sneri sér við í bílstjórasætinu og steytti hnef- ann með einhverjum öskrum. Aðrir bílstjórar voru farnir að flauta á dólginn, enda kominn að öðrum gatnamótum og hélt þar leið sinni áfram. Víkverji var að fara sömu leið og ók í humátt á eftir dólgnum, sem ók um á gljáfægðum og fallegum kagga, að því er virtist amerískum. Er dólgurinn ók út í kant fór Vík- verji upp að hlið hans, skrúfaði niður rúðuna og spurði hvað gengi á. Þá kom þessi líka reiðilesturinn og fúk- yrðaflaumurinn, að Víkverji hefur sjaldan heyrt annað eins um ævina úr munni fullorðins manns, sem virt- ist vera í þokkalega góðri stöðu og áreiðanlega sæmilega menntaður. Fæst af því sem dólgurinn sagði er prenthæft en meðal þeirra mannlýs- inga sem Víkverji fékk að heyra var að hann væri „heilalaus hálfviti“. Víkverji viðurkennir aftur mistök sín að tala í farsímann á ferð, það er bannað með lögum, en sú yfirsjón réttlætti ekki þau ofsafengnu við- brögð sem umræddur ökumaður sýndi. Hann varð sér og sínum til ævarandi skammar með hátterninu, harðfullorðinn maðurinn. Hafi þetta verið lögreglumaður á frívakt afsak- ar það heldur ekki neitt. x x x Víkverja langar að endingu aðbenda hinum mæta útvarps- manni, Sigurði G. Tómassyni, á að láta af einum ósið; að hætta að botna setningar hjá viðmælendum sínum. Víst er að Sigurður er fróður en hann verður að leyfa viðmælend- unum að njóta sín. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 högni, 4 lítil- fjörlega persónu, 7 kompa, 8 furða, 9 tvennd, 11 efnislítið, 13 orka, 14 játa, 15 listi, 17 dægur, 20 espa, 22 kipps, 23 þreytuna, 24 ok, 25 hindri. Lóðrétt | 1 hestur, 2 ólyfjan, 3 lund, 4 durg- ur, 5 smákvikindi, 6 lík- amshlutirnir, 10 útskagi, 12 greina frá, 13 ambátt, 15 kalviður, 16 hirða um, 18 viljugt, 19 nes, 20 óska eftir, 21 bára. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fólskuleg, 8 leiti, 9 dugur, 10 pár, 11 suddi, 13 annan, 15 holls, 18 hrúts, 21 ein, 22 lofti, 23 alveg, 24 dapurlegt. Lóðrétt: 2 ómild, 3 skipi, 4 undra, 5 engin, 6 glás, 7 hrín, 12 dul, 14 nár, 15 hali, 16 lyfta, 17 seigu, 18 hnall, 19 út- veg, 20 segl. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 50/50. Norður ♠Á873 ♥D8 ♦KD1076 ♣D5 Vestur Austur ♠1095 ♠KD42 ♥K542 ♥– ♦G983 ♦42 ♣G8 ♣K976432 Suður ♠G6 ♥ÁG109763 ♦Á5 ♣Á10 Suður spilar 6♥. Vinningshorfur sagnhafa liggja ein- hvers staðar í kringum 50%. Svíning í trompi afgreiðir málið í eitt skipti fyrir öll, en austur má þó ekki vera með kónginn fjórða, sem lækkar svíningar- líkur úr 50% í 45%. Á móti kemur að útspilið gæti verið hagstætt – til dæmis laufgosi! Og svo er ótalinn aukamögu- leiki sem flest í legunni að ofan. Segj- um að vestur sé ekki í neinu jólaskapi og komi út með ♠10. Sagnhafi drepur og spilar ♥D með því hugarfari að svína. En aðstæður snarbreytast þegar austur hendir laufi í slaginn. Nú þarf að losna við svörtu tapspilin strax, áður en vestur kemst að á ♥K. Sem er því aðeins hægt að vestur sé með fjóra tígla. Sagnhafi hugsar jákvætt, stingur upp ♥Á og fer í tígulinn – tekur á ásinn og svínar tíunni. (Betra en að treysta á ♦Gx í austur.) (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þig dreymir dagdrauma, líklega muntu ekki hafa tíma til þess í eftirmið- daginn. En það gerir lítið til, því draum- arnir næstu nótt verða stórkostlegir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þetta er eitt af þessum skiptum þar sem það besta sem þú getur gert er að hætta öllu. Sumir skilja það ekki, og ekki reyna að útskýra það. Þeir skilja þegar þú hefur leikinn að nýju. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert gjafmildur, ekki heimsk- ur. Þú veist þegar einhver biður um eitt- hvað sem hann getur vel aflað sjálfur, en vill það ekki. Ekki taka þátt í því. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er sætt hversu tilfinninga- næmur þú ert og kannt að tárast á réttu augnablikunum. Líklega munu gamlar myndir hræra mest við þér eða gamalt dót í skúffum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert ástmaður, ekki bardagamað- ur. En þegar öllu er á botninn hvolft muntu berjast fyrir því sem þú elskar. Vertu viss um að þetta sé ekki misskiln- ingur. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Sambönd og verkefni eru tilbúin, taktu næsta skref. Þú þarft bara að ýta við þeim. Hringdu, sendu ávísun. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú heillast af hvatvísri manneskju sem fylgir tískustraumunum. Ef þú vilt elta hana gerðu það þá af öllum huga og njóttu ferðarinnar vel. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú finnur fyrir viðvæmni þessa dagana, og þarft að vita af sterkum stuðningi. Hringdu nokkur símtöl. Þú kemst að því að ástvinir þínir elska þig og þekkja þig út í gegn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert ekki í miðju eldsins en þú skynjar hitann vel. En þér er nokk sama um það sem fólk er að æsa sig yfir, og skilur að þú þarft ekki að taka þátt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur mikinn sannfæringar- kraft en einnig sterka réttlætiskennd. Þú gætir fengið allan heiminn, en ef einhver tapar á því hefurðu ekki áhuga. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það eru alltof margir mögu- leikar í boði. Reyndu að þrengja valið. Þegar þú leiðbeinir öðrum skaltu aðeins sýna þeim eina leið. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Semdu um smáatriðin. Leystu litlu vandamálin á meðan þau eru lítil. Mundu að tala mest við venjulegt fólk. Þinn innsti hringur þarfnast mikillar umhyggju. Stjörnuspá Holiday Mathis 9. september 1208 Víðinesbardagi var háður í Hjaltadal í Skagafirði. Nokkrir höfðingjar sóttu með 360 manna lið að Guðmundi bisk- upi Arasyni og mönnum hans. Í bardaganum féllu tólf menn, þeirra á meðal Kolbeinn Tuma- son, 35 ára. Sagt er að á bana- dægri sínu hafi Kolbeinn samið sálminn Heyr himna smiður. 9. september 1926 Alhvítt var að morgni dags í Reykjavík. Ekki er vitað að snjó hafi fest þar fyrr að hausti. 9. september 1933 Hlaup kom í Jökulsá á Sól- heimasandi, eitt hið mesta í manna minnum. Áin flæddi „yfir allar eyrar,“ sagði Morgunblaðið, „og voru jaka- hrannir til og frá alla leið frá jökli og fram í sjó“. 9. september 1942 Bresk flugvél brotlenti í kart- öflugarði við hús í Elliða- árdalnum. Flugmanninum tókst að beina vélinni frá hús- inu á síðustu stundu. 9. september 1955 Söngkvart- ettinn Delta Rhythm Boys hélt söng- skemmtun í Austurbæj- arbíói í Reykjavík við mikla hrifningu. Lokalagið var Vögguvísa eftir Emil Thor- oddsen og ætlaði fagnaðar- látum aldrei að linna. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist þá … FARI svo að knattspyrnulið Selfyssinga vinni sigur á liði Fjarðabyggðar á föstudaginn kemur, er óhætt að fullyrða að tvöföld gleði muni ríkja á laugar- dagskvöld. Þá heldur Hermann Ólafsson, landslags- arkitekt og formaður knattspyrnudeildar UMFS, upp á stórafmæli – en hann er fertugur í dag. Sel- fyssingar eru sem stendur í öðru sæti 1. deildar karla, og með hagstæðum úrslitum á föstudag getur liðið tryggt sér sæti í efstu deild að ári. „Það væri stórfín afmælisgjöf,“ segir Hermann en bætir við: „En ætli það ráðist nokkuð fyrr en í síðustu umferð- inni.“ Taka ber fram að í efsta sætinu hefur ÍBV þriggja stiga forskot og tveimur stigum á eftir Selfossi er Stjarnan. Ná- grannaliðin Selfoss og ÍBV eigast svo við í lokaumferðinni. Hvernig svo sem fer á föstudag verður haldið upp á afmælið í Hvíta húsinu á laugardagskvöld. „Þetta verður mátulega lítið samkvæmi,“ segir Hermann sem ákvað í tilefni af áfanganum að lífga við hljómsveit- ina Lótus en á sínum tíma tók hann við míkrófóninum af Kjartani Björnssyni rakara á Selfossi og söng með sveitinni um árabil. „Við erum á fullu að æfa þessa dagana og gengur vel. Við erum ekki búnir að leggjast yfir það hvenær við lékum saman síðast en það eru ábyggilega hátt í tuttugu ár,“ segir Hermann. Sambýliskona Hermanns er Arna Ír Gunnarsdóttir og eiga þau þrjá stráka. andri@mbl.is Hermann Ólafsson landslagsarkitekt fertugur Vill sigur sinna manna í gjöf dagbók Í dag er þriðjudagur 9. september- , 253. dagur ársins 2008 Reyðarfjörður Birkir Örn fæddist 29. maí kl. 20.15. Hann vó 16 merkur og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Heiða Rut Ingólfsdóttir og Einar Örn Hallgrímsson. Reykjavík Karólína Björg fæddist 18. júní. Hún vó 3.115 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Erla Sigurðardóttir og Árni Pétur Reynisson. Sandgerði Ásta Maren fædd- ist 19. ágúst kl. 13.57. Hún vó 16 merkur (4.000 g) og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Katrín Júlía Júlíusdóttir og Ólafur Þór Ólafsson. Nýirborgarar Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. Rf3 d5 2. g3 Rf6 3. Bg2 c6 4. c4 Bg4 5. Re5 dxc4 6. Rxg4 Rxg4 7. Ra3 e6 8. O–O Bxa3 9. bxa3 O–O 10. Hb1 b5 11. Hxb5 cxb5 12. Bxa8 Dd6 13. Bg2 Rc6 14. Bb2 Hd8 15. Db1 Dc5 16. De4 Rge5 17. Df4 Rd4 18. He1 h6 19. h4 a5 20. Be4 f5 21. Bg2 b4 22. axb4 axb4 23. De3 Kh7 24. Bh3 Dd5 25. Bg2 Dd6 26. Hc1 Rg4 27. Dxd4 Dxd4 28. Bxd4 Hxd4 29. Hc2 Re5 30. Bf1 f4 31. Kg2 Kg6 32. e3 b3 33. Hb2 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Antwerpen í Belgíu. Kínverski stórmeistarinn Xiangzhi Bu (2710) hafði svart gegn þýska stórmeistaranum Gerhard Schebler (2453). 33… Hxd2! 34. Hxd2 f3+ 35. Kh3 c3 og hvítur gafst upp enda ræður hann ekki við frípeð svarts. Svartur á leik. Birna G. Jóhannsdóttir frá Hauganesi verður níræð 12. september næst- komandi. Af því tilefni er fjöl- skyldu, ættingj- um og vinum hennar boðið til afmælisveislu laugardaginn 13. september í Árskógi á Árskógs- strönd milli kl. 15 og 19. 90 ára Reykjavík Jökull Fannar fæddist 18. júlí kl. 8.47. Hann vó 3.300 g og var 49 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Jór- unn Harpa Ragnarsdóttir og Haukur Claessen. ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd, og nafn foreldra, á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.