Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Soffía Ólafs-dóttir fæddist í Tandraseli í Borg- arfirði 11. október 1911. Hún lést á Grund 28. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Ólafur Kristjánsson frá Garðsenda í Eyr- arsveit, f. 23. sept- ember 1880, d. 7. júní 1963, og Ágúst- ína Guðmundsdóttir frá Litla-Fjalli í Borgarhreppi, f. 21. ágúst 1884, d. 21. desember 1965. Börn þeirra: 1) Axel, f. 1909, d. 1993; 2) Soffía, f. 1911; 3) Sig- urborg, f. 1916; 4) Hans Kristján, f. 1918, d. 1939; 5) Stefán Geir, f. 1919, d. 1989; 6) Karl Ágúst, f. 1923 d. 1999 og 7) Sigríður, f. 1927. Soffía ólst upp í Múlaseli í Hraunhreppi í Mýrarsýslu en fluttist um tvítugt til Reykjavíkur. Árið 1937 giftist Soffía Ingólfi Finnbogasyni húsasmíðameist- ara, f. 12. júlí 1911, d. 29. maí 2003, syni Finnboga G. Lárus- sonar, kaupmanns og útgerðar- manns í Gerðum í Garði og síðar á Búðum í Staðar- sveit, f. 1866, d. 1945, og Bjargar Bjarnardóttur, f. 1875, d. 1915. Soffíu og Ingólfi varð fimm barna auðið. Þau eru: 1) Björg, f. 1936, ekkja Har- aldar Gíslasonar, börn þeirra eru Soffía, Ingólfur og Björn Hlynur. 2) Ágústa, f. 1940. 3) Ólafur, f. 1943, kona hans er Bjarghildur Jósepsdóttir, börn þeirra eru Ágústa, Soffía, Hildur og Harpa. 4) Hrafnhildur, f. 1949, maður hennar er Magnús Ágúst Magnússon, börn þeirra eru Ing- ólfur Arnar og Kristín. 5) Finn- bogi, f. 1952, kona hans er Kristín Birna Jakobsdóttir, börn þeirra eru Hrund, Ingólfur og Pétur. Soffía og Ingólfur héldu alla tíð heimili í Reykjavík, lengst af í Mávahlíð 4 og Viðjugerði 12. Útför Soffíu verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Soffía Ólafsdóttir, tengdamóðir mín, er farin í sína hinstu ferð. Henni varð langs lífs auðið og óhætt að segja, að hún hafi lifað og munað tímana tvenna; heimskreppu, heit og köld stríð, fátækt og velmegun, í stuttu máli allt sem einkenndi síð- ustu öld. Hennar kynslóð færði ís- lenskt samfélag úr torfbæjunum inn í nútímann, eins og við þekkjum hann í dag og skapaði þannig þá nauðsynlegu undirstöðu, sem vel- megun okkar byggist á. Lífsstarf Soffíu var hússtjórn á sínu heimili. Í þeirri list voru fáir henni fremri. Allt átti og var í röð og reglu, listilega var raðað í skápa og skúffur og gólf og gluggar skín- andi af hreinlæti. Tengdamamma var einstakur persónuleiki og átti í raun fáa ef nokkra sína líka. Hún var fyndin, uppátæki hennar komu manni oftar en ekki í opna skjöldu. Hún notaði orðfæri, sem fáir ef nokkrir vissu að væru til, enda margt af því áreið- anlega heimatilbúið og hefði án efa verið hægt að gefa út langa nýyrða- bók um þetta sérkennilega orðfæri ásamt viðamiklum skýringum. Hún vann aldrei utan heimilis eins og nútímakonurnar gera og var ekki í útrás eins og nú er í tísku. Hún var fjölskyldukona, húsmóðir og sú þungamiðja sem fjölskyldulífið snerist um. Barnabörnin og síðar barnabarnabörnin hændust að henni enda var hún hrókur alls fagnaðar í þeim hópi, tók þátt í gleði þeirra og sorgum og fylgdist með þeim af áhuga í leik og starfi. Það er óhætt að segja að tengda- mamma hafi verið heilsuhraust allt sitt líf. Henni hrakaði þó verulega þegar tengdapabbi, eiginmaður hennar í rúmlega 65 ár, lést árið 2003. Aldrei var þó langt í góða skapið og skemmtilega orðfærið var á sínum stað. Nú er tengdamamma búin að hitta „kallinn sinn“ aftur og þar verður áreiðanlega glatt á hjalla. Við, sem eftir sitjum munum eftir sómakonunni Soffíu, sérstakri konu eins og að framan er lýst. Hún veit ábyggilega núna, hvernig sofið er að Helgastöðum, svo vitnað sé í dæmi um málfar hennar. Elsku tengdamamma, hvíl í friði. Magnús Magnússon Soffía tengdamamma mín var einstök kona. Mín fyrstu kynni af henni urðu fyrir tæplega 40 árum. Finnbogi sonur hennar bað mig um að greiða henni því hún var að fara á fínt ball. Ég taldi það vera lít- ið mál, mætti með hárlakkbrúsann og greiðu í Mávahlíð 4. Heimsóknir mínar í Mávahlíð 4 urðu talsvert fleiri og eru mér minnisstæðar. Soffía og Ingólfur byggðu sér hús í Viðjugerði 12. Viðjugerðið hefur alla tíð verið aðalviðkomustaður stórfjölskyldunnar. Við Finnbogi byrjuðum okkar búskap á neðri hæðinni í Viðjugerði. Mínar minn- ingar eru bara góðar frá þeim ár- um. Soffía var bráðdugleg og féll sjaldan verk úr hendi. Hún hafði mikla kímnigáfu, sagði skemmti- lega frá og notaði sín orð og orða- sambönd. Unga fólkið í fjölskyld- unni hafði gaman af henni, hún tók alltaf málstað þess og ef einhver kvartaði yfir unglingastælum sagði hún bara: „Þetta er ungt og leikur sér“. Vorið var komið þegar fannhvítur þvottur blakti á snúrunum í Viðju- gerði, Soffía komin út í garð á létt- um og liprum kjól að fjarlæga kal- kvisti af trjám og runnum. Soffía átti góða og langa ævi, ein- stakan eiginmann og samrýnda fjöl- skyldu. Takk fyrir öll góðu árin sem ég átti því láni að fagna að þekkja þig. Guð blessi minningu tengdafor- eldra minna, Soffíu Ólafsdóttur og Ingólfs Finnbogasonar. Kristín Birna Jakobsdóttir. Tók eftir því nú um daginn að gamla rafstöðin efst í Viðjugerðinu, rétt við bensínstöðina, var allt í einu farin. Þetta stóra dularfulla hús sem enginn vissi eiginlega í gegnum árin hvað hýsti var horfið. Vafalaust eiga samt sem áður margir eftir að sakna þessa húss þrátt fyrir að hafa mögulega aldrei komið þangað inn á lóðina eða hvað þá heldur inn fyrir dyr. Húsið var hulið dulúð sem ég vildi helst ekki komast að sannleik- anum um. Sumir hlutir eiga bara að fá að vera eins og þeir eru án þess að þurfa endilega að vera brotnir til mergjar eða útskýrðir. Þetta hús var eins og skúlptúr eða málverk sem þú botnar ekkert í en finnst samt sem áður notalegt að hafa í kringum þig. Það er annað óútskýranlegt lista- verk sem er ekki lengur til staðar. Hvernig er hægt að lýsa þessari konu? Það er varla hægt. Hún átti engan sinn líka. Hún var orginal eintak. Hún fór algerlega í einu og öllu sínar eigin leiðir. Hún sá hlut- ina í nokkuð öðru ljósi en við hin. Hún var súrrealísk í hugsun án þess þó að hún hafi nokkurn tímann velt því fyrir sér hvað það þýðir. Hvað er hægt að segja um konu sem til dæmis klæddist tveimur kjólum í einu. Þeir voru báðir uppáhalds og henni fannst það þægilegt og þá bara gerði hún það. Hún var rebel. Henni var slétt sama um hvað öðr- um fannst. Hún reyndi aldrei að ala okkur krakkana upp. Hún trúði á algert frjálsræði. Hún kenndi okkur að reykja pípu. Hún var hinn eini sanni hippi og síðast en ekki síst heim- spekingur enn og aftur án þess að hafa nokkuð velt því fyrir sér hvað það þýðir. Það sem stendur upp úr í öllum þessum minningum um hana ömmu sem hafa flogið í gegnum hugann upp á síðkastið eru stund- irnar við eldhúsborðið með henni í gegnum árin. Bara tvö í ró og næði, drekka kaffi og steinþegja. Að þurfa ekki að vera símalandi út í eitt. Í dag virðast allir þurfa að tala sig í gegnum allt. Allt verður að ræða. Þú getur ekki komist að neinu um sjálfan þig án þess að þurfa að heyra þig segja það upp- hátt. Það voru aðrar aðferðir not- aðar við eldhúsborðið í Viðjugerði. Í þessu ótrúlega húsi bjuggu þessar mögnuðu andstæður, amma og afi. Inni í stól hjá afa fékk maður að heyra það óþvegið ef eitthvað var ekki alveg að ganga upp hjá manni í lífinu. Amma notaði talsvert öðrvísi meðul. Það var eins og að ganga á fund indjánahöfðingja þar sem hún sat ein í horninu í eldhúsinu, reykti pípu og sagði ekki eitt einasta orð langtímum saman. En í þögninni var samt fullkominn skilningur. Þar var viskan. Þar var sannleikurinn. En nú er hún farin frá okkur. Mikið hefur sá gamli verið feginn að fá hana til sín þarna uppi. Hann var beygður án hennar þegar þau lifðu eins og við hin núna sem þurfum að halda áfram án hennar. En hún verður alltaf með okkur því hún er ógleymanleg. Hún sannar fyrir okk- ur hvað mannskepnan getur verið merkilegt, kostulegt og ekki síst óhemju skemmtilegt fyrirbæri. Það var á hátindinum á listræn- um ferli Skaparans þegar hún fór á striga þessi kona. Hún var hans Móna Lísa. Hún var, er og verður meistaraverkið. Björn Hlynur Haraldsson. Alveg hefði ég viljað hafa hana ömmu hjá mér í 50 ár í viðbót en líf- ið býður víst ekki upp á það. Það eru forréttindi að hafa kynnst konu eins og henni. Hún var ekki bara amma mín heldur besti vinur minn. Hún var þannig vinur að ég gat sagt henni allt og treyst henni fyrir öllu því hún var alltaf eins og jafnaldri. Svo var það sem ég tel mikilvægast þegar maður á góðan vin að við þögðum saman. Við sátum stundum við eldhúsborðið í Viðjó og það eina sem okkur fór á milli voru hennar ótrúlegu setningar eins og Ingi glingi, ljótur ertu Konni – Konni þú ert ljótur eða Tjörnes Tjörnes. Þetta skildi enginn nema við sem þekktum hana best. Það var alveg ótrúlega gott að vera hjá henni í Viðjugerðinu, hún var mikill húmoristi, óhemju stríðin og jákvæð. Hvað maður elti hana oft inn í fataherbegi, sem var henn- ar allra heilagasta, til þess að finna súkkulaði sem hún keypti eftir hina árlegu Ameríkutúra. Hún faldi það vel af því hún hafði unun af að sjá okkur frændsystkinin leita. Dugnaðurinn í henni við heimilis- störfin var ótrúlegur. Ef hún var ekki í þvotti þá var hún að skúra og þegar því var lokið fór hún að end- urraða í búrinu eða í fyrrnefndu fataherbergi og aldrei kvartaði hún. Eftir að afi dó fyrir fimm árum hvarf lífsneistinn smám saman og hún fjarlægðist okkur með tíman- um. Hún hafði mjög mótandi áhrif á mig og það verður erfitt að sætta sig við að hún er farin. Nú mun hún hvíla við hliðina á afa sem hefur beðið hennar í nokkur ár og þá tel ég hana vera komna í öruggar hendur. Guð geymi þau bæði. Ingólfur Arnar. Ef við ættum að lýsa Soffu ömmu í einu orði þá væri það húmoristi. Lífsviðhorf hennar var okkur mikil fyrirmynd því hún sá iðulega já- kvæðu og skondnu hliðarnar á hlut- unum. Hún var kannski ekki týpan sem lagði mikið til málanna, heldur hlustaði frekar og gat svo slegið botninn í umræðurnar með einni setningu sem sagði allt sem segja þurfti. Heimatilbúnu málshættirnir og orðaforðinn (soffískan), sem við barnabörnin vorum alin upp við og okkur fannst mjög eðlilegt tungu- tak, var oft vægast sagt framandi utan fjölskyldunnar. „Hvernig er sofið á Helgastöðum? Það er fínt hjá Siggu. Situr eins og Benónía. Ég er svo alda hissa. Lifandis und- ur.“ Þetta eru dæmi um frasa sem hún notaði óspart og voru skírskot- anir í atburði úr æsku hennar í sveitinni. Það var líf og yndi ömmu að stjórna hinu myndarlega heimili í Viðjugerðinu. Annað eins snyrti- menni er vandfundið. Að sniglast í kringum hana og fylgjast með henni raða og njörva, eins og hún kallaði það, eru í minningunni okk- ar uppáhaldsstundir. Við frænkurn- ar vorum kannski ekki þær vinsæl- ustu þegar við lékum okkur í búðarleik inni í fataherbergi – þar sem allt var stífstraujað og á sínum stað – búnar að dubba okkur upp í samkvæmiskjóla og skreyta okkur með perlufestum. En þrátt fyrir allt umrótið kom aldrei styggðaryrði frá henni, hún njörvaði bara einu sinni enn og gerði ekki athuga- semdir aðrar en: „Tjörnes, Tjör- nes.“ Soffa amma var hamhleypa til verka. Eftir að hafa bónað efri hæð- ina með tuskurnar fastar við inni- skóna og skúrað svalirnar, tók hún til við að umraða inni í búri og fata- herbergi eða huga að þvotti. Að amstri loknu naut hún sín best við eldhúsborðið með kaffi og molasyk- ur að leggja kapal. Það var oft hin mesta skemmtun að hlusta á beina útsendingu hennar af framvind- unni. Þá voru önnur orðaskipti óþörf – það var svo ótrúlega gott að þegja með henni og hlusta eftir ör- lögum „gosagálunnar“ og „kengs- ins“ á spilaborðinu. Það var líka með ólíkindum hvað kapallinn gekk alltaf upp hjá henni. Þegar við vor- um yngri vorum við dugleg að benda henni á að hún svindlaði en hún vildi ekkert kannast við það. Amma hafði lúmskt gaman af því að stríða okkur barnabörnunum. Eftir utanlandsferðir hennar og afa faldi hún súkkulaðið á ólíklegustu stöð- um og skemmti sér mikið við að halda því fram að ekkert hefði verið keypt á meðan hún fylgdist með okkur hamast við að leita. Hún hafði einnig einstakt lag á því að vera vinur hvers og eins okkar. Hún fylgdist vel með öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og hlustaði af áhuga þegar við vorum að segja henni frá okkar daglega lífi. Hún var stór persónuleiki sem hafði mikil áhrif á okkur. Elsku amma, takk fyrir allt. Þínar Kristín og Hrund. Það er víst enginn eilífur en hins vegar taldi ég hana ömmu mína vera góðan kandídat í að láta reyna á það. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að umgangast bæði ömmu og afa þó nokkuð mikið í gegnum árin og líkt og aðrir fjölskyldumeðlimir þá var ég nánast daglegur gestur í Viðjugerði 12. Það var alltaf ánægjulegt að koma í heimsókn í Viðjó og ég á margar góðar minn- ingar frá því að spjalla við afa inni í stofu eða gæða mér á súkkulaðikexi hjá ömmu, sem bragðaðist stundum eins og harðfiskur því hún átti það til að taka matvæli úr pakkning- unum og setja í krukkur sem var óheppilegt ef sama krukkan var notuð fyrst undir harðfisk og síðan kex. Ég var afa og ömmu oft innan handar en aðstoð mín var oft á tíð- um fólgin í að færa hluti til og frá í bílskúrnum. Afi fékk mig oft til að koma einhverjum hlut fyrir, t.d. í bílskúrnum, en svo 10 mínútum seinna kom amma og fékk mig til að færa sama hlutinn aftur á þann stað sem hún vildi hafa hann. Amma var einstök manneskja sem fór alltaf sínar eigin leiðir í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur og lét ekki nokkurn mann segja sér hvað hún mátti gera og hvað ekki. Henni líkaði t.d. ekki að setja á sig öryggisbelti í bíl og hélt því beltinu alltaf í fanginu án þess að spenna það, „bara til að plata lögguna“. Amma hafði einstakan húmor en hún átti það til að kalla okkur barnabörnin hinum og þessum nöfnum eins og Ingi glingi eða Hrunna grunna. Einnig liggja ótal skemmtilegir frasar og orðasam- bönd eftir hana sem eru fyrir löngu orðnir rótgrónir inn í orðaforða fjöl- skyldunnar. Það er víst ekki hægt að kalla það sorg þegar svo gamalt fólk deyr en söknuðurinn er samt sem áður mik- ill. Ljóst er að ég mun aldrei gleyma því eilífa augnabliki þegar ég sat hjá ömmu á meðan hún tók sinn síðasta andardrátt á lofti og stimplaði sig þar með út úr þessari veröld. Ingólfur Finnbogason. Þann 28. ágúst 2008 hættu klukk- urnar í Viðjugerði 12 í Reykjavík að tifa og lögðu vísum sínum, – útvarp- ið þagnaði og það slokknaði á ofn- unum, vatnið hætti að renna í krön- unum og ljósin neituðu að loga. Kaffikannan heldur ekki lengur heitu og spilastokkurinn hnipraði sig saman í skúffunni. Fætur eld- húsbekksins buguðust og húsið stendur nú hnípið í sorg. Húsmóðir þess, sú er ljáði því líf og sál er horfin,– eftir situr húsið og við hin standandi á skörum þess á meðan við hlustum eftir rödd hennar, dragandi skref í inniskóm og glampandi hlátri. Viðjugerði 12 var yndislegt og ei- lítið skrýtið hús, óvenju líflegt og ið- andi þar sem allajafna varð ekki þverfótað fyrir gestum og gang- andi. Einnig varð þar ekki heldur þverfótað fyrir spekúlasjónum um hina undarlegustu hluti og ekkert í þessari veröld heimilisfólki þess né gestum óviðkomandi. Ekki var lífs- gátan ráðin innan veggja þessa heimilis en margar nýjar gátur urðu þó til, – yfirleitt óvart og þá eftir þverskonar og hverskonar vangaveltur heimilisfólks og áhang- enda. Í þessu húsi bjuggu einstaklega vel gerð og vönduð hjón, þau Soffía Ólafsdóttir og Ingólfur Finnboga- son, – hús fullt af gæsku, góðvild, trygglyndi, uppátækjum og húmor. Fyrir flestum uppátækjunum stóð þó húsmóðirin Soffía, – með ein- dæmum einstök, háöldruð kona með glettnisglampa í augum sem skemmti sér við það að eignast ný og ný leyndarmál með barnabörn- um sínum og viðhengjum á milli þess sem hún notaði sukker og gerði sætt, lagði kapalinn með gos- agálum og keingjum, þuldi upp málshætti sem að enginn kannaðist við og stundaði sitt aðalleyndarmál síðari ár að reykja pípó sem alls enginn mátti vita um og enginn veit enn… – ekki nokkur maður. Soffía var afar sérstök kona, fá- gæt sökum mannkosta, skarp- skyggni, gáfna og einstaks húmors. Hæglát en ákveðin með tifi sínu og tindli, – kona er lét allajafna lítið yf- ir sér en svo mótsagnakennt sem það er þá hef ég aldrei hitt sterkari persónu en hana, aldrei fundið manneskju með eins mikla nærveru og Soffíu Ólafsdóttur. Einstaklega næm á fólkið í kringum sig og líðan þess, – öll vera Soffiu var góð og stór, hvort sem maður vildi spjalla, leggja kapalinn eða bara fá að sitja og þegja með sjálfum sér í eldhús- inu í Viðjugerði, njóta þagnarinnar með henni, þagnar sem maður kom endurnærður frá og sagði og gerði meira en mörg orð. Manneskja með slíka nærveru er fágæt og fögur er sú sál sem býður öðrum slíkt. Um slíka persónu duga í raun engin orð því í raun er mér orðafátt um Soffíu því svo mikil og sterk áhrif hafði hún á mig, – slíkar persónur þarf maður að upplifa og finna en þá um leið hverfa orðin til að lýsa og segja frá og eftir sitja hljóðlát faðmlög Soffíu Ólafsdóttur á sálinni. Nú er roðaglampi pípunnar slökktur, – síðasti ilmur reykjar- slóðans hefur liðast út um eldhús- gluggann en í gluggatjöldum minn- inganna mun hann þó alltaf finnast, ljúfur, glettinn „ – bambabamm og íííhíííhí…“. Elsku yndislega Soffía mín… þakka þér fyrir, – ég mun aldrei gleyma þér því mig langaði svo að við myndum aldrei kveðjast og ég ætti nærveru þína alltaf ! Andri Heide. Soffía Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.