Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@ml.is F yrsta heila starfsár Kalk- þörungaverksmiðjunnar á Bíldudal er meira en hálfnað. Starfsemin hef- ur gengið vel þetta ár og verið lyftistöng fyrir staðinn, en ekki hafði verið um auðugan garð að gresja í atvinnumálum staðarins. Þá hefur gengislækkun krónunnar stutt við bakið á fyrirtækinu eins og öðrum útflutningsfyrirtækjum. Níu manns starfa hjá fyrirtækinu undir forystu Guðmundar Valgeirs Magnússonar framkvæmdastjóra. Sanddæluskipið Perlan dælir seti með kalkþörungum upp úr sjónum úr fjörðum í botni Arnarfjarðar og kem- ur vestur 2-3 sinnum á ári til að sinna þessu verkefni. Þörungunum er dælt í hráefnisþró eða lón sem útbúið var framan við aðstöðuna á Bíldudal. Það- an er efninu mokað inn í verksmiðj- una eftir þörfum. Kalkþörungarnir eru áþekkir litlum skeljum og fara í gegnum þurrkara eins og var í gömlu loðnu- bræðslunum. Þar eru þeir bæði þurrkaðir og gerilsneyddir áður en þeir fara í gegnum myllu sem malar þá niður í fínt duft, ekki ólíkt sementi. Þar með er framleiðsluferlinu í raun lokið og varan tilbúin. Hún kallast AcidBuf; fæðubótarefni fyrir búfén- að, aðallega nautgripi. „Við höfum framleitt að jafnaði um 40 tonn af fæðubótarefni á dag og gengið ágætlega“, segir Guðmundur Valgeir. „Varan fer frá okkur til Ír- lands, þar sem systurfyrirtæki okkar er með mikil tengsl við viðskiptavini og gott vöruhús þaðan sem varan er send áfram.“ Mest af framleiðslunni á Bíldudal hefur farið til Sádi-Arabíu, en einnig til Frakklands og víðar. Í Sádi-Arabíu er efni úr þörungum úr Reykjafirði og af Langanesgrunni notað til að bæta fóður nautgripa. Eins og nafnið ber með sér eru kalþörungarnir ríkir af kalki sem er kúnum nauðsynlegt við mjólkurframleiðsluna og til að koma í veg fyrir sjúkdóma eins og doða. Tvö skip eru væntanleg til Bíldu- dals þessa dagana og flytja þau fram- leiðslu síðustu vikna til Írlands. Eitt skip kom í byrjun júlí, þrjú í maí og svo er næst væntanlegt skip fyrir ára- mót. Skipin sigla tóm til Bíldudals. Gæti sent gáminn hringinn í kringum hnöttinn með skipi „Okkar draumur er að koma vör- unni í gám hér á Bíldudal og flytja með skipi til kaupenda hvar sem er í heiminum,“ segir Guðmundur Val- geir. „Skortur á möguleikum í flutn- ingum hrjáir okkur hins vegar veru- lega. Við byrjuðum þessa starfsemi þegar Kísilverksmiðjan á Mývatni var að hætta og þar með lögðust strandflutningar eiginlega endanlega af. Ekki er gerlegt að senda fram- leiðsluna með vöruflutningabíl til Reykjavíkur vegna kostnaðar. Gefum okkur að bíllinn kæmi hingað með tóman gám, sem við myndum fylla hér og flytja suður. Þessir flutningar myndu kosta okkur um 25-30 þúsund krónur á tonnið og við stefnum að því að framleiða um 20 þúsund tonn í ár. Nei, þetta er verð sem við ráðum engan veginn við. Fyrir þennan pen- ing geturðu eiginlega sent gáminn hringinn í kringum hnöttinn með skipi,“ segir Guðmundur Valgeir. Tækjabúnaður tvöfaldaður Á síðasta ári var mikið af kalkþör- ungunum, sem dælt var upp úr sjón- um, sent lítið unnið til Írlands og Frakklands. Í ár verður hins vegar mun meira af þörungunum unnið á Bíldudal og stefnt er að því að þetta hlutfall aukist enn meira. Meðal ann- ars er rætt um að tvöfalda tækjabún- að verksmiðjunnar til að auka vinnslugetuna. Um leið myndu fleiri störf verða í boði á staðnum. Guðmundur Valgeir segir að stefnt sé að því að framleiða bætiefnin undir eigin merki. Í lok síðasta mánaðar var á Bíldudal fulltrúi frá vott- unarfyrirtæki í Írlandi, PAI. Stefnan er að fá svonefnda FEMAS-vottun þannig að fyrirtækið megi selja þessa vöru fyrir búpening undir eigin merkjum. Úttektin var umfangsmikil og athugasemdirnar fáar að sögn Guðmundar Valgeirs. Áður hafði framleiðslan fengið lífræna vottun frá vottunarstöðinni Túni. Hins vegar barst nýlega at- hugasemd frá Umhverfisstofnun vegna útblásturs frá verksmiðjunni. „Starfsemin er starfsleyfisskyld og eftir mælingar á útblæstri kom í ljós að of mikið ryk fór út í loftið. Við þurf- um að útbúa síubúnað verksmiðj- unnar betur og minnka það ryk sem fer út í loftið. Það er ekkert annað að gera en bregðast við þessari at- hugasemd og endurhanna kerfið, en búnaður verksmiðjunnar er ekki nýr,“ segir Guðmundur Valgeir.  Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal lyftistöng fyrir atvinnulífið á staðnum  Fyrirtækið framleiðir yfir fjörutíu tonn á dag af bætiefnum fyrir nautgripi        BJARTSÝNI: Til athugunar er að tvöfalda vélasamstæðu verksmiðjunnar og yrði þá mun meira af kalkþörungum fullunnið á Bíldudal með tilheyrandi fjölgun starfs- fólks. VERKEFNI: Athugasemd hefur borist vegna mengunarvarna og er til skoðunar að setja upp vothreinsibúnað við verk- smiðjuna eða bæta síur til að koma í veg fyrir að ryk berist út í andrúmsloftið. VANDAMÁL: Kostnaður við flutninga frá Bíldudal hefur verið talsvert vandamál og sakna ráðamenn verksmiðjunnar strand- flutninga sárlega. Kalkþörungar úr Arnarfirði bæta kúafóður í Sádi-Arabíu Ljósmynd/Guðmundur Valgeir ) 2  '( ) 2  # )             + #   3   !" "   !& -                              !    "         3    #   42 "#$  (&   UM 180 manns eru nú skráðir með lögheimili á Bíldudal og þar af búa um 100 þeirra í plássinu allan ársins hring. Bíldudalur er hluti af Vesturbyggð en þar búa ríflega 900 íbúar. Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að vissulega sé kalkþörungaverksmiðjan mikil lyftistöng fyrir Bíldudal. „Starfsemin skiptir mjög miklu máli og á vonandi eftir að eflast enn þegar fram í sæk- ir. Hráefni hefur þó að einhverju marki verið tekið í fjörðunum og flutt óunnið út, en við vonum að það verði ekki þannig til frambúðar. Við telj- um okkur reyndar hafa fengið fullvissu um að svo verði ekki. Þessu miðar í rétta átt og fyrirtækið er að þróast og byggja sig upp,“ segir Ragnar. Auk verksmiðjunnar er fyrirtækið Perlufiskur starfandi á Bíldudal. Sveitarfélagið beindi byggðakvóta til að koma vinnslunni á Bíldudal aftur í gang og þar starfa nú um 10 manns. Eftir bann við rækjuveiðum í Arn- arfirði í nokkur ár fékkst leyfi til veiða síðastliðinn vetur, en þó ekki það mikið að svaraði kostnaði að koma rækjuvinnslunni af stað á ný. Rækjan var því flutt óunnin af staðnum. Vonir eru bundnar við að rækjuleiðangur í næsta mánuði skili jákvæðum niðurstöðum. „Það sem skiptir sköpum fyrir þetta byggðarlag er tilkoma olíu- hreinsistöðvar við Hvestu fyrir utan Bíldudal,“ segir Ragnar bæjarstjóri. „Málið virðist vera í þeim farvegi að ég sé enga ástæðu til að véfengja að það verði að veruleika. Annaðhvort er að hrökkva eða stökkva fyrir okkur. Fólksfækkun hefur verið stöðug og þetta svæði verður sem nýjar Horn- strandir eftir 100 ár ef engin innspýting verður í byggðarlagið. Ég er alls ekki smeykur við að fá hingað svona stóran vinnustað með 500 störfum. Sem dæmi get ég nefnt að ekki er fjarri lagi að um 150 manns bíði eftir tækifæri til að koma aftur heim,“ segir Ragnar Jörundsson. Viðkvæmt ástand í atvinnumálum Hverjir eiga Íslenska kalkþör- ungafélagið og þá um leið verk- smiðjuna á Bíldudal? Íslenska kalkþörungafélagið er í eigu írska fyrirtækisins Celtic Sea Minerals, sem á 75% hlut, og Björg- unar í Reykjavík, sem á 25%. Hefur bætiefnið ekkert verið not- að í landbúnaði hér á landi? Gerð var óformleg tilraun á kúm á Hóli í Önundarfirði. Kalkþörungum var blandað við annað fóður í fóð- urvagni og gaf tilraunin góða raun. Til athugunar er að fara í vísinda- legar tilraunir um gagnsemi kalþör- unganna með íslenskum aðilum. S&S STUTT ÁSVALLALAUG í Hafnarfirði hóf starfsemi í fyrradag og voru að lík- indum um 800 manns við vígsluna auk þess sem þúsundir nýttu sér þessa glæsilegu sundlaug fyrsta daginn. Laugin fyrir fullorðna fólk- ið er 50x25 m að stærð auk þess sem þar er glæsileg aðstaða fyrir börn. Laugin prófuð Margir fór í sund. Ný sundlaug EMBÆTTI ríkissáttasemjara hefur verið auglýst laust til umsóknar. Skipað er í embættið til fimm ára frá 1. nóvember nk., en þá mun Ás- mundur Stefánsson, núverandi rík- issáttasemjari, láta af störfum eftir fimm ára starf. Ríkissáttasemjari annast sátta- störf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og at- vinnurekenda og félaga þeirra hins vegar. Skal þess gætt að afstaða hans er slík að telja megi hann óvil- hallan í málum launafólks og at- vinnurekenda. Umsóknir skulu berast félags- og tryggingamálaráðuneytinu ekki síðar en 1. október nk. Staða sátta- semjara á lausu FJÖLDI eldri borgara sækir tíma í leikfimi og íþróttum á hverju ári og bendir flest til að þeim fari fjölg- andi ár frá ári skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Íþróttafélag aldraðra í Kópavogi er nú að byrja haust- og vetr- arstarfið en félagið hefur boðið eldri borgurum upp á íþróttatíma í allmörg ár. Fyrsti leikfimitíminn í haust verður haldinn í dag kl. 11 í Digraneskirkju. Æfingar fara fram tvisvar í viku. ÍAK æfingar BORGARBÚAR eru hvattir til að klippa gróður sem vex út fyrir lóða- mörk svo hann hindri ekki umferð utan lóðamarka eða skyggi á um- ferðarmerki. Samkvæmt bygging- arreglugerð Reykjavíkur er íbúum skylt að gæta að þessum þáttum. Ef að þessu er ekki sinnt innan ákveð- ina tímamarka og áminningu ekki sinnt geta borgaryfirvöld látið fjar- lægja þennan gróður á kostnað lóð- areiganda. Gróður fjarlægður BJÖRGVIN G. Sigurðsson við- skiptaráðherra leggur í dag upp í fundaherferð um landið um neyt- endamál. Er tilgangurinn m.a. að fylgja eftir útgáfu skýrslunnar Ný sókn í neytendamálum og leita sam- starfs við fólk um allt land. „Neyt- endamál snerta alla íbúa landsins og því mikilvægt að sem flestum gefist kostur á að láta sín sjónarmið í ljós og þannig taka virkan þátt í stefnumótun á þessu sviði. Markmið fundanna er bæði að kynna það stefnumótunarstarf sem þegar hef- ur farið fram og að kalla eftir sjón- armiðum fólks um allt land. Fjöl- margir góðir gestir munu leggja Björgvini G. Sigurðssyni lið, til að mynda fulltrúar allra þingflokka á Alþingi og ýmsir frammámenn á sviði neytendamála,“ segir í frétt viðskiptaráðuneytisins. Fundaferð um neytendamál

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.