Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 31 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, EIRÍKUR RÓBERT FERDINANDSSON skósmíðameistari, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 4. september, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði á morgun, miðvikudaginn 10. septem- ber kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Hrafnistu í Hafnarfirði, deild 3-B, reikn. 0545-14-606801, kt. 491177-0129. Steinunn Eiríksdóttir, Ármann Eiríksson, Sigrún Gísladóttir, Ferdinand Róbert Eiríksson, Jóhanna Erla Eiríksdóttir, Jón Pétur Svavarsson og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskuleg kona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA ÞORLEIFSDÓTTIR frá Litlanesi á Gjögri í Strandasýslu, Áshamri 5, Vestmannaeyjum, andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja fimmtudaginn 4. september. Útför hennar fer fram frá Landakirkju laugardaginn 13. september kl. 14.00. Brynjúlfur Jónatansson, Halldór Guðbjarnason, Ragnheiður Brynjúlfsdóttir, Smári Grímsson, Hjálmar Brynjúlfsson, Margrét Ársælsdóttir, Anna Brynjúlfsdóttir, Rúnar Páll Brynjúlfsson, Edda Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Brynhildur Brynjúlfsdóttir, Rafn Pálsson, Steinunn Jónatansdóttir, Óðinn Steinsson, ömmubörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR KJARTAN BRYNJÓLFSSON, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 2. september. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 11. september kl. 13.00. Einar Sigurðsson, Jarþrúður Guðnadóttir, Auður G. Sigurðardóttir, Frosti Richardsson og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR BIRNU HAFSTEINSDÓTTUR, Reykholti, Skagaströnd. Sérstaklega þökkum við starfsfólki Heilbrigðis- stofnunarinnar Blönduósi fyrir alúð og umhyggju. Stefán Jósefsson, Sigríður Gestsdóttir, Rúnar Jósefsson, Súsanna Þórhallsdóttir, Jón Jósefsson, Ásta Helgadóttir, Líney Jósefsdóttir, Sveinn Ingi Grímsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og hluttekningu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU ABIGAEL ÞORVARÐARDÓTTUR, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Hafsteinn Viðar Halldórsson, Erla S. Engilbertsdóttir, Hafdís Abigael Gunnarsdóttir, Garðar S. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Benný Sigur-geirsdóttir fæddist í Reykjavík 9. september 1929. Hún lést á e-deild Sjúkrahúss Akra- ness 3. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurgeir Björns- son, f. 25. október 1899, d. 18. nóv- ember 1943 og Fanney Jónsdóttir, f. 7. mars 1909, d. 26. október 1943 . Börn þeirra voru 9 talsins og var Benný þriðja í röðinni. Systkini Bennýjar eru: 1) Guðrún, f. 25. ágúst 1926, 2) Rósa, f. 27. mars 1928, 3) Jónbjörn, f. 2. mars 1931, d. 5. ágúst 1951, 4) Fanney, f. 29. maí 1932, 5) María, f. 30. ágúst 1933, 6) Friðgeir, f. 18 júní 1935, 7) Margrét, f. 1. september 1936, 8) Sigvaldi, f. 16. febrúar 1939. Benný giftist 3. júlí 1954 eftir- lifandi eiginmanni sínum, Bjarna Stefánssyni, f. 24. október 1928. Foreldrar hans voru Stefán Jóns- son, f. 14. febrúar 1900, d. 19. desember 1977 og Elísabet Sigur- björnsdóttir, f. 20. apríl 1902, d. 14. september 1990. Benný átti fyrir soninn Jóhann þegar hún Helga, f. 26. desember 1981, Baldvin Þór, f. 28 október 1982. Barnabörn þeirra eru 5 talsins. Benný ólst upp hjá foreldrum sínum til 13 aldurs þegar þau féllu frá með aðeins 23 daga millibili. Benný hafði sínu hlut- verki að gegna innan heimilisins og sá meðal annars um móður sína í veikindum hennar. Eftir fráfall foreldranna var systkina- hópnum skipt upp í fóstur til skyldmenna og vina. Benný fór í fóstur til móðurbróður síns Bene- dikts Jónssonar og konu hans Jóhönnu Jóhannesdóttur og var hún þeim ætíð þakklát. Benný vann á sínum yngri ár- um meðal annars sem starfs- stúlka á Landakoti en eftir að hún flutti til Akraness árið 1953 vann hún lengst af sem dagmóðir og áttu börn hug hennar allan. Benný lét af störfum sökum ald- urs árið 2000. Um það leyti sem Benný hættir störfum greinist hún með Alzheimers-sjúkdóminn. Fyrstu árin eftir greiningu bjó Benný heima með eiginmanni sínum en síðustu 3 árin dvaldi hún á e-deild Sjúkrahúss Akra- ness. Útför Bennýjar fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 14. kynnist Bjarna. Bjarni gekk honum strax í föðurstað og ól upp sem sinn son. Jóhann er fæddur 4. júlí 1948, kvæntur Guðlaugu Aðal- steinsdóttur, f. 8. mars 1949. Börn þeirra eru: Aðal- steinn Davíð, f. 26. júlí 1972, d. 16. júlí 2007, Bjarni Borgar, f. 25. maí 1973, Benedikt Heiðar, f. 18. september 1978, fyrir átti Guðlaug son. Barna- börn þeirra eru 5 talsins. Saman eignuðust Benný og Bjarni 2 dæt- ur. Þær eru: 1) Jóna Birna, f. 18. desember 1953, gift Guðmundi Reyni Reynissyni, f. 9. október 1951. Börn þeirra eru: Benný, f. 12. september 1973, Valdimar Bjarni, f. 27. september 1974, Jóhann Benedikt, f. 21. júní 1978, Hafþór, f. 2. ágúst 1982, fyrir átti Guðmundur Reynir son. Barna- börn þeirra eru 9 talsins. 2) Elín, f. 19. nóvember 1955, gift Guð- mundi Teitssyni, f. 26. janúar 1954, d. 26 janúar 2006. Börn þeirra eru: Þórdís Bjarney, f. 21. febrúar 1975, Sigurgeir Fannar, f. 18. desember 1978, Rannveig Benný amma var amma allra, hvort sem þar áttu í hlut börn eða fullorðnir. Hefur hún passað ófá börnin í gegnum tíðina og alltaf átti ég jafn bágt með að meðtaka það að önnur börn kölluðu hana ömmu. Ég man eftir einni stelpu sem var hjá henni í pössun. Kallaði hún á ömmu Benný og lét ég hana strax vita það að þetta væri sko amma mín og fékk hún að fljúga niður stigann á Suður- götunni. Seinna meir þegar ég var orðin eldri og stelpurnar kölluðu hana ömmu, þá sagði ég þeim með fyrirlitningarsvip að þetta væri ekk- ert amma þeirra. Það er margt sem ég á ömmu minni að þakka. Mest er ég þó þakk- lát fyrir hversu þolinmóð hún var í veikindum föður míns, alltaf gaf hún sér tíma til að hlusta í þessum ófáu heimsóknum hans. Ég held að þess- ar heimsóknir hafi breytt öllu fyrir hann. Það var margt sem amma kenndi mér í gegnum tíðina, þar á meðal að hafa nú ekki of miklar áhyggjur af lífinu, þetta bjargast, var hún vön að segja, einhvernveg- inn hurfu allar heimsins áhyggjur þegar hún var nærri. Hún hjálpaði mér mikið með Steinar þegar hann var lítill enda hafði ég nú ekki mikla uppeldisþekkingu aðeins 16 ára gömul, og fyrir það er ég henni inni- lega þakklát. Hún var nú ekki há í lofti, hún amma, en mér fannst hún alltaf stór, innihaldið af ást, kærleika og umhyggju í þessum litla skrokki var á við margra hæða blokk. Með þessum örfáu orðum kveð ég í hinsta sinn með miklum söknuði og virðingu hana Benný ömmu og ég veit að pabbi mun taka vel á móti þér, amma mín. Rannveig og fjölskylda. Upp er runnin sú stund sem ég hef kviðið fyrir frá því ég var barn, sú stund að þurfa að kveðja þig amma mín. Í dag hefðir þú orðið 79 ára værir þú á lífi og í stað þess að færa þér rósina mun ég leggja hana á leiði þitt. Amma var mér svo miklu miklu meira en bara amma mín, heimili hennar og afa var mitt annað heimili þegar ég var að alast upp og ég fór til þeirra daglega, stundum oft á dag. Amma tók alltaf vel á móti mér, hún kallaði mig oft Grjónuna sína og iðu- lega sagði hún við mig: „Viltu ekki bara koma og fá þér að borða,“ ef ég kom eitthvað illa fyrirkölluð inn og það var ekki að spyrja að því; alltaf lagaðist skapið eftir að hafa borðað hjá ömmu. Þau eru ófá kvöldin sem við tvær áttum saman og sátum inni í eldhúsi í lönguvitleysu og ólsen-ól- sen sem dæmi. Þau eru ófá púslin sem við púsluðum saman inni í stofu, allt frá þeim smæstu og upp í þau stærstu. Þau eru ófá skiptin sem við sátum og hlustuðum á tónlist. Og þær eru ófáar stundirnar sem við nutum þess að tala saman og hlæja – þessar minningar og svo miklu miklu fleiri mun ég geyma vel um ókomna tíð. Amma starfaði sem dagmóðir um margra ára skeið, allt þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir og þau eru mörg börnin sem kölluðu ömmu „Benný ömmu“. Aldrei gerði hún upp á milli sinna eigin barnabarna og þeirra barna sem hún gætti á dag- inn. Ég ákvað snemma að amma ætti að gæta barnanna sem ég myndi eignast þegar ég yrði stór, en þegar ég svo loksins eignaðist kraftaverkin mín tvö var amma löngu hætt sem dagmóðir og komin með Alzheim- ersjúkdóminn, sjúkdóm sem hún hvarf sífellt lengra og lengra inn í. Hún náði því aldrei að þekkja né muna hver börnin mín eru, en alltaf færðist bros yfir andlit hennar þegar við Bjarni Snær kíktum á hana þau tvö ár sem hann fékk að kynnast henni. Ég mun aldrei gleyma þeim tíma þegar ég bjó í herberginu hjá ömmu og afa eftir að ég kom heim frá Bandaríkjunum. Ég mun aldrei gleyma stundunum sem ég átti þar þegar við Hanna vinkona vorum að fara á skrall og hlógum eins og vit- leysingar og heyrðum öðruhvoru tístið í ömmu sem þá sat uppi í eld- húsi og lagði kapal og hló innra með sér að vitleysunni í okkur. Síðustu þrjú árin dvaldi amma á sjúkrahúsinu sökum Alzheimersjúk- dómsins, hún var misjöfn frá degi til dags og eftir að hún hætti að nefna mig með nafni en minntist þess í stað á gleraugun mín þá vissi ég að hún vissi hver ég var í það og það skiptið. Elsku hjartans amma mín, ég kveð þig með söknuði. Takk fyrir all- ar stundirnar sem við áttum saman, takk fyrir öll símtölin sem við áttum þegar ég bjó í Bandaríkjunum og eft- ir að ég flutti af Skaganum, takk fyr- ir allt það sem þú hefur gert fyrir mig um tíðina og umfram allt – takk fyrir að hafa verið svo miklu miklu meira en bara amma mín. Ég trúi að pabbi, Alli frændi, foreldrar þínir og bróðir hafi tekið á móti þér og kynni þig nú fyrir veröldinni hinum megin. Elsku afi, mamma, Jói og Gulla, Birna og Reynir, systkini mín og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína innilegustu samúð á þessari stundu. Þín Grjóna, Þórdís Bjarney Guðmundsdóttir (Dísa). Kæra frænka, ekki datt mér það í hug þegar ég kom á sjúkrahúsið þriðjudaginn 2. september til að fara með mömmu í gönguferð í góða veðr- inu að þú yrðir farin daginn eftir. Nokkrar ferðir höfum við farið sam- an út að ganga síðast núna í júlí, þú með barnavagninn og ég með hjóla- stólinn. Fyrstu minningarnar mínar um þig eru frá Hnausunum, ég sett í pössun hjá þér í litla húsinu ykkar Bjarna. Þar stendur upp úr minn- ingin um risastóran járnþvottabala sem stóð í þvotthúsinu og við krakk- arnir lékum okkur með. Síðan flytjið þið á Suðurgötuna og áfram er farið með krakkahópinn til ykkar þegar farið er á Akranes. Ógleymanlegar eru komur ykkar á jólum í sveitina. Nokkrar stuttar ferðir hafa verði farnar saman um næsta nágrenni. Lengsta ferðalag okkar var til Siglufjarðar fyrir um 5 árum er við Birna fórum með ykkur mömmu í fermingu, það var stuð á ykkur systrum þá. Elsku frænka, kærar þakkir fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu og sérstaklega þakka ég hjálpina með stelpuna sem enn talar um Benný mömmu. Set hér að endingu lítið ljóð, Til frænku frá lítilli stúlku. Ég sendi þér frænka mín svolítinn óð þegar sumarið kemur í bæinn, með ósk um að vorgyðjan verði þér góð er víkur hún norður um sæinn. Hún vermi þitt hjarta við hörpunnar ljóð er hjala við suðræna blæinn, svo dreymi þig fegurð er hugsar þú hljóð um hamingjusamasta daginn. (Karl Halldórsson.) Bjarna og fjölskyldu vil ég svo votta samúð mína og biðja guð að styrkja þau á þessum tímum. Fanney Guðbjörnsdóttir. Vertu hjá mér, halla tekur degi, Herra, myrkrið kemur, dylst mér eigi. Þegar enga hjálp er hér að fá, hjálparlausra líknin, vert mér hjá. (Stefán Thorarensen) Elsku Benný mín, mig langar að skrifa smákveðju til þín. Síðustu mánuðina vorum við saman á SHA, þú varst svo lítil og lasin en reyndir þó oft að brosa, varst dugleg að hreyfa þig. Ég minnist þín þó mest sem yndislegrar barnfóstru. Þú gættir dóttur minnar, hennar Rósu Guðrúnar, um tíma fyrir u.þ.b. 20 ár- um, á meðan ég var að kenna. Mér varð oft lítið á þreyttar hendur þínar og þú réttir mér þær oft og sagðir: Sjáðu. Nú veit ég að þú ert komin á góðan og betri stað og það verður tekið á móti þér opnum örmum. Guð geymi þig elsku vinkona mín. Gunnvör Björnsdóttir. Benný Sigurgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.