Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN - kemur þér við Sérblað um vinnuvélar fylgir blaðinu í dag                               !   " #$           %      " $          "&     '           (         (    " )              $ +   $         %(  (    % "       , -          !        #)        ( %                  .   !   $   /  !  % (    "       !" !#$!$%&' ( )*++ ! ,$!"-+$./"0$ Kirkjan stefnir ríkinu vegna tveggja kirkju- jarða Erlendir fangar sexfalt fleiri nú en um aldamót SP-fjármögnun vill rannsókn vegna MEST Skoðuðu fjallagórillur í Afríku Monitor, ársafmælið og Nöglin Hvað ætlar þú að lesa í dag? Fyrir tveimur árum, þegar ég var í mennta- skóla, var opnaður skemmtistaður rétt hjá skólanum mínum við Lækjargötu. Var þar um að ræða mjög sérstakan klúbb hvar skálað var í kampavíni og fljóðin flykktust að mönnum með rétt sambönd og þykkt veski. Bauð þessi staður upp á vissa þjónustu aðgengilega herramönnum í umsjón faglærðra kvenna frá ýms- um heimshornum. Í fyrsta sinn í sögu Reykjavíkur gátu menntskæl- ingar farið og fengið sér pulsu, námsráðgjöf og mannvígslu og allt innan þriggja húsaraða. Á nýafstöðnum borgarstjórn- arfundi var afnumið bann við rekstri nokkurra þekktra nekt- ardansstaða í höfuðborginni. Olli umræddur fundur nokkurra daga umróti á bloggsíðum landsmanna, hvar háðfuglar úr embættis- mannakerfinu sem og virðulegt blaðafólk lýsti á misþungan hátt yfir hneykslan sinni og ímugusti á ofan- greindum rekstri. Svo kom helgi, fólk gleymdi þessu bara og skrapp á Tropic Thunder. En Reykjavík er nú ekki ein um rekstur nektardansstaða. Kópavog- ur býður einnig upp á fjörugt og spennandi næturlíf fyrir vel stæða herramenn og þar á bæ er þetta sko látið í friði. Ber þar hæst stað hvers nafn ég nefni þó ekki, en sá ágæti staður nýtur mikillar hylli fyrir iðn- grein þá er þar er stunduð af natni. Er þar fyrir að þakka eig- anda staðarins sem vel er reyndur í rekstri skemmtistaða og í dag- legu máli við staðinn kenndur. Fer sá aðili fullkomlega að gildandi lögum samkvæmt því sem ég best veit og ekkert slæmt um hann að segja. Einnig má þakka hinni ágætu bæjarstjórn Kópavogs hvers leiðarljós er okkur öllum fyr- irmynd í siðgæði og löghlýðni. Ég spyr því gagnrýnisraddirnar, hvað er ólöglegt hérna? Vændi er löglegt á Íslandi, sem og nektardans. Þó líta margir á þessar iðngreinar sem samfélags- mein og vilja þær burt. Svo sem gott og blessað, en hver eða hvað á þá að losa okkur við þetta? Nú, væntanlega Alþingi, þjóðkjörið lög- gjafarþing Íslendinga og rúmur helmingur þingmanna þess og þ.á m. einhverjir þingmenn rík- isstjórnarflokkanna. Og hvaða flokkar skyldu greiða fyrir banninu? Yrði það Samfylkingin, sem í lífstíð Kaffibandalagsins málaði sig and- stæðing vændis en seldi sig svo sjálf X-D? Nei, varla. Eða þá fulltrúar Sjálfstæðisflokks, sem draga málin bara á langinn og í gleymsku og halda hlífiskildi og lögvernd yfir eigendum vændis og strippiðnaðar- ins sem yfirleitt eru vinir þeirra og skólabræður? Já, kannski, þegar helvíti frýs. Alþingismenn leggja fram frum- vörp um lækkun hátekjuskatts, hækkun eigin eftirlauna og reisa gettógirðingu kringum bílastæðið sitt en aðhafast ekki neitt í málum tengdum kynlífsiðnaðinum. Þetta ástand gengur ekki til lengdar. Ég er sjálfur ekki að hvetja beint til neinnar einnar sérstakrar nið- urstöðu en í guðanna bænum gerðu eitthvað, kæri lesandi. Annaðhvort er hægt að banna þessar atvinnu- greinar með öllu með velferð man- salsþolenda að leiðarljósi og klára málið þannig eða þá að feta í fótspor Þjóðverja og einfaldlega verkalýðs- væða vændið, þ.e. skrá atvinnuheit- in í símaskrána, greiða föst laun og láta drósirnar og sykurstrákana greiða skatt eins og aðrir. Alþingi hefur valdið, ekki ég. Hvað mig undirritaðan varðar, þá er ég frekar áhugalítill um þetta sérstaka mál. Það eru önnur og meira aðkallandi mál sem venjulegt fólk þarf að glíma við í gráma hversdagsins, t.d. leikskólar, kenn- aralaun og húsnæði handa rónunum og fíklunum. En svo lengi sem lög- gjafarvaldið slórar við setningu skýrs banns við mansali sem og setningu laga um verndun þeirra einstaklinga sem flýja mansal, þá fer ég nú varla að missa svefn yfir því að kaupa mér eitthvað mjúkt og slavneskt. Ég má það alveg. Þing- maðurinn þinn líka. Herramenn og fagkonur Arnar Þór Krist- jánsson skrifar um rekstur nektarstaða » Svo kom helgi, fólk gleymdi þessu bara og skrapp á Tropic Thunder. Arnar Þór Kristjánsson Höfundur er myndlistarnemi. ÞJÓÐIN er ný- vöknuð af draumi; sannkölluðum ólymp- íudraumi. Stórkost- legur árangur ís- lenska handknattleiksliðsins er með eindæmum, en afrek þess mun veita íþróttamönnum sem og þjóðinni allri innblástur um ókomna tíð. Á slíkum íþróttaviðburði er takmark þátttakenda vitaskuld að standa á verðlaunapalli. Þó má ekki gleyma því sem aldrei er of oft kveðið: „Aðalatriðið er að vera með“. Reyndar er hugsjón sam- stöðu og jafnréttis ekki aðeins gömul klisja til huggunar þeim sem ekki hreppa verðlaun, heldur á sama tíma lög fest í Ólympíu- sáttmálann, sbr. fimmtu grein: 5. Hvers konar mismunun með tilliti til þjóðernis, kynþáttar, trú- ar, stjórnmálaskoðana, kyns eða annarra þátta samræmist því ekki að tilheyra Ólympíu- hreyfingunni Jafn réttur til íþróttaiðkunar er því ekki aðeins almenn viðmið- unarregla, heldur ein af for- sendum Ólympíuleikanna. Sú afstaða að mótmæli mann- réttindabrota eigi ekki heima á Ólympíuleikum er oft studd þeim rökum að pólitík eigi ekki samleið með ólympíuhugsjóninni. Hæst- virtur menntamálaráðherra talaði um friðarhátíð og sagði enn frem- ur mikilvægt að leikarnir yrðu „haldnir með sóma“. Hins vegar virðist einn aðili hafa notið friðhelgi gagnvart þeirri kröfu að leikarnir ættu að vera óháðir stjórnmálum. Vert er að minnast þess að kín- versk stjórnvöld fengu að halda Ólympíuleika með skilyrðum. Þau skilyrði voru samþykkt og ákvörðunin um að hýsa leikana þar í landi var tekin með hliðsjón af þeirri skuldbind- ingu. Skilyrðin fólust fyrst og fremst í því að staða mannrétt- indamála færðist til betri vegar í landinu og að erlendum fjöl- miðlum yrði gefið fullt frelsi til að miðla fréttum á með- an leikunum stæði. Nú blasir við sú stað- reynd að þau loforð voru ekkert annað en blygðunarlausar lyg- ar. Leikarnir voru gerðir að tylli- ástæðu til að brjóta enn frekar á fólki og í stað frjálsar miðlunar frétta var á elleftu stundu til- kynnt ritskoðun allra ólympíu- frétta. Með því að neita hinum ýmsu hópum þátttöku á leikunum, (þar á meðal rómversk-kaþólskum í Kína, Falun Gong-iðkendum, öll- um sem hafa hlotið varanleg ör- kuml eftir uppreisnir t.d. náms- mönnum á Torgi hins himneska friðar 8́9 og geðfötluðum) hefur Ólympíusáttmálinn verið brotinn og með því hafa kínversk stjórn- völd gert Ólympíuleikana að póli- tískum vettvangi. Ekki þarf að rýna lengi í stofn- skrá Ólympíuleikanna til að átta sig á að hún hafi verið algerlega hunsuð á sjálfum leikunum þetta árið. En fyrsta og önnur grein hennar hljóða svo: 1. Ólympíuhugsjónin er lífs- afstaða sem hefur í heiðri sam- hljóm heildrænna eiginleika manneskjunnar, líkama, huga og vilja. Með samþættingu íþrótta og menningar á Ólympíuhugsjónin að efla jákvæða lífsafstöðu, menntandi gildi íþrótta, tækifæri til að vera öðrum góð fyrirmynd og virðingu við algildum siðferð- isviðmiðum. 2. Markmið Ólympíuhugsjónar- innar er að íþróttir styðji heild- ræna þróun manneskjunnar, frið- armenningu og varðveislu manngildisins. Eitt besta dæmið um viðsnún- ing á gildum ólympíuhugsjónar- innar er að kínverski komm- únistaflokkurinn skilgreindi mestu „hryðjuverkaógn“ leikanna í sum- ar svo, að hún stafaði af Falun Gong-iðkendum, sem eru þekktir fyrir að hafa aldrei beitt illu á móti illu heldur alltaf minnt á mannréttindabrot í Kína á frið- samlegan hátt. Á sama tíma hafa þessi yfirvöld ítrekað reynt að koma sök á Falun Gong-iðkendur með fölsuðum sönnunargögnum og beitt áróðri af mikilli hörku í fjöl- miðlum. Ólympíuleikarnir sjálfir voru notaðir til réttlætingar grimmd- arlegra ofsókna saklausra borgara en þúsundir „óæskilegra“ hafa verið handteknar og pyndaðar, án gefinnar ástæðu, í nafni öryggis leikanna. Á meðan valdaklíkan baðar sig í dýrðarljóma heimsviðburðar sem byggist á fagurri hugsjón og krefst þess af alþjóðasamfélaginu að fullt tillit sé tekið til ólíkra menningarheima, þvingar hún leynt og ljóst fram samþykki okk- ar fyrir því að mannréttindi séu afstæð. Að sjálfsögðu styðjum við íþróttafólk okkar heilshugar og hyllum það fyrir framlag sitt; tímamótaviðburður hefur átt sér stað í íslenskri íþróttasögu sem verður skráður í bækur sögunnar. Enn stærri er þó sigurinn ef þjóðin hefur færst nær þeirri hug- sjón og þeim gildum sem er for- senda leikanna. Setjum ólympíu- hugsjónina í fyrsta sæti; hún er gulls ígildi. Gulls ígildi Hafþór Sævarsson skrifar um ólympíu- hugsjónina »Kínversk stjórnvöld hafa notið friðhelgi gagnvart þeirri kröfu að Ólympíuleikarnir ættu að vera óháðir stjórn- málum. Hafþór Sævarsson Höfundur er Falun Gong-iðkandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.