Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 9
Opið mánud.-föstud. 10-18 Opið í Bæjarlind laugard. 10-16 Opið í Eddufelli laugard. 10-14 NÝJAR VÖRUR í báðum búðum Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 9 FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BROTUM gegn lögreglumönnum hefur fjölgað nokkuð á undanförnum árum og segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglu- manna (LL), að það sé mat lögreglu- manna að ofbeldið hafi orðið grófara og árásirnar hættulegri. Hann vill að lögreglumenn fái aukna þjálfun í sjálfsvörn eftir að lögregluskóla lýk- ur og að Útlendingastofnun vísi fleiri útlendingum sem brotið hafa af sér af landi brott. Á undanförnum árum hefur tölu- vert verið fjallað um aukið ofbeldi gegn lögreglumönnum og sú umræða var meginástæða þess að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lagði til árið 2006 að refsingar við ofbeldi gegn lögreglumönnum og öðrum stéttum sem geta þurft að beita valdi í störfum sínum yrðu hertar – úr sex ára hámarksrefsingu í átta ára fang- elsi. Ráðherrann tók jafnframt fram að sér þætti sem mikið hefði skort á að dómstólar hefðu litið árásir á lög- reglumenn nægilega alvarlegum aug- um. Björn kvaðst jafnframt vonast til að hertar refsingar hefðu varnaðar- áhrif. Það getur að sjálfsögðu vel verið að hertar refsingar hafi haft einhver varnaðaráhrif, um það er ekki hægt að fullyrða, en á hinn bóginn er ljóst að ofbeldi gegn lögreglumönnum hef- ur aukist frá því lögin voru sett, a.m.k. ef miðað er við upplýsingar um brotin sem fengust hjá embætti rík- islögreglustjóra. Jafnframt er al- gengara að lögreglumanni sé hótað ofbeldi og enn færist í vöxt að fyr- irmælum lögreglu sé ekki hlýtt. Telja ofbeldið grófara Í fyrra birti ríkislögreglustjóri ít- arlega rannsókn sem gerð var á of- beldi gegn lögreglumönnum á árun- um 1998-2005. Á því tímabili fækkaði ofbeldisbrotum lítillega en á hinn bóginn varð algengara að vopnum væri beitt. Þó var munurinn ekki mikill. Ekki hefur verið gerð viðlíka rannsókn síðan en Snorri Magnús- son, formaður Landssambands lög- reglumanna, hefur það eftir fjölda lögreglumanna að ofbeldistilvikunum hafi ekki aðeins fjölgað heldur hafi of- beldið einnig orðið grófara. „Þetta er orðið tilefnislausara og þetta er orðið meira og grófara ofbeldi sem lög- reglumenn verða fyrir. Nærtækust er auðvitað árásin á starfsmenn fíkni- efnadeildarinnar [á Laugavegi í jan- úar á þessu ári] og síðan þetta atvik um helgina þegar lögreglumaður var skallaður og síðan tekinn hálstaki.“ Snorri bætti við að ofbeldi af þessu tagi tengdist útlendingum í auknum mæli. Árásir þeirra væru fólskulegri og grófari. „Þeir virðast ekkert víla það fyrir sér að hjóla í lögreglu,“ sagði hann. Inntur eftir því hvernig bregðast mætti við þessari öfugþróun sagði Snorri að mikilvægt væri að efla for- virkar rannsóknaraðgerðir, að gera lögreglu kleift að fylgjast betur með undirheimunum svo hún verði betur í stakk búin til að takast á við brota- menn. Í öðru lagi ætti Útlendinga- stofnun að nýta betur heimildir sínar til að vísa útlendingum sem gerast brotlegir við lögin af landi brott. Ís- lendingum hefði verið vísað frá lönd- um, þ. á m. frá öðrum Norðurlöndum. Í þriðja lagi þurfi að auka þjálfun lögreglumanna. „Þjálfunin er lítil eft- ir að skóla lýkur, það verður að segj- ast eins og er, mjög lítil. Og það vita það allir sem hafa stundað sjálfsvörn eða einhverjar slíkar æfingar að þú verður ekki góður í því nema æfa mikið,“ sagði hann. Slík þjálfun yrði að vera skipulögð og standa allt árið um kring. Til að þetta sé mögulegt verði að veita fjármuni í þetta sér- staklega. Í fjórða lagi þyrfti að efla búnað lögreglu og á höfuðborgarsvæðinu hafi t.a.m. verið ákveðið að festa kaup á svokölluðum hnífavestum, þ.e. vest- um sem verja lögreglumenn gegn hnífstungum. „Þetta segir sitt um ástandið,“ bætti hann við. 83% voru ölvuð Meðal þess sem fram kom í rann- sókn á ofbeldi gegn lögreglumönnum og nefnt var hér að ofan, var að í 83% tilvika voru ofbeldismenn ölvaðir. Í 7,1% tilvika voru ofbeldismenn alls- gáðir, í 3,5% tilvika voru þeir undir áhrifum fíkniefna og áfengis og 3,1% tilvika voru fíkniefni eini vímuvaldur- inn. Árásirnar voru aðallega framdar að nóttu til um helgar. Lögreglumenn hlutu áverka í 39% brota, í fjórum til- vikum hlutu þeir höfuðáverka og í sex tilvikum fengu þeir mikla áverka s.s. öxl úr lið, brotið rifbein, nefbrot o.þ.h. Lögregla fái meiri þjálfun í að verjast  Ofbeldi gegn lögreglu eykst á milli ára  Grófari tilvik                                                !  "  # " $ Í HNOTSKURN »Dómsmálaráðherra sagði ífebrúar að undirbúningur væri hafinn að því að flytja tvo Litháa sem afplána dóma hér á landi til Litháens þar sem þeir myndu ljúka afplánun. »Litháarnir eru enn á Litla-Hrauni. »Samkvæmt upplýsingumfrá dómsmálaráðuneytinu er stjórnsýslan ytra mun hæg- virkari en hér heima en verið er að efla tengslin til að slíkt gangi hraðar í framtíðinni. HEIMILDIR Útlendingastofnunar til að vísa útlend- ingum sem tilheyra einhverju ríkja Evrópska efnahags- svæðisins eru mun þrengri en þær heimildir sem stofn- unin hefur til að vísa öðrum útlendingum á brott (borgurum þriðja ríkis). Þannig kemur t.d. fram í lögum um útlendinga að heimilt sé að vísa útlendingi frá þriðja ríki úr landi ef hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar sem getur varðað fangelsi lengur en þremur mánuðum. Út- lendingi sem hefur dvalarleyfi eða norrænum ríkisborg- ara má aðeins vísa af landi brott ef brotið varðar eins árs fangelsi eða meira. Líkt og á við um aðra útlendinga má vísa útlend- ingum frá EES á brott ef þeir hafa ekki fullnægjandi ferðaskilríki eða eru í endurkomubanni. Einnig ef þeir hafa sýnt af sér háttsemi sem ætla megi að feli í sér „raunverulega og nægilega alvarlega ógn gagnvart grundvallarþjóðfélagssjónarmiðum“. Hafi viðkomandi verið dæmdur fyrir afbrot má aðeins vísa honum af landi brott ef um er að ræða háttsemi sem getur gefið til kynna að útlendingurinn muni fremja afbrot á ný. Að sögn Hauks Guðmundssonar, setts forstjóra Út- lendingastofnunar, er ríkt tillit tekið til tengsla EES- borgara við landið. Brottvísun geti verið mjög léttvægt úrræði gagnvart manni sem hefur engin tengsl við landið en afar þungbær gagnvart þeim sem hafa búið hér lengi. Burðardýrum fíkniefna sé jafnan vísað úr landi, líka þeim sem koma frá EES-ríkjum. „Við höfum fullan hug á því að beita þessum heimildum til hins ýtr- asta,“ segir hann. Mun þrengri heimildir til að vísa EES-borgara af landi brott Röng kynning Í kynningu á grein eftir Auði Ólafs- dóttur í blaðinu í gær segir að greinin fjalli um störf sjúkraliða. Þar hefur prentvillupúkinn verið á ferð því greinin fjallar um störf sjúkraþjálfara. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. Óvíst með Bond Fram kom í frétt í Morgunblaðinu s.l laugardag, að til stæði að sýna nýja James Bond mynd í nýrri bíó- aðstöðu í Egilshöll í byrjun nóv- ember. Hið rétta er að ekki hefur verið ákveðið hvort myndin verður sýnd í Egilshöll. Í tilkynningu frá Senu segir að staðfest sé hins vegar að myndin verði frumsýnd 7. nóv- ember n.k. í Smárabíói, Laug- arásbíói, Háskólabíói, Regnbog- anum og Borgarbíói Akureyri. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT                      www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 38-56 Nýjar vörur frá Flestir eyða ævinni í leit að hamingju og tilgangi en með misjöfnum árangri. Allir vilja finna til frelsis, vera sjálfsöruggir og fullir af lífi og orku. Á námskeiðinu verður fjallað um aðferð sem getur gert þennan draum að veruleika, aðferð sem notuð er af fjölda manns víðs vegar um heim. Leiðbeinandi er Pétur Guðjónsson, höfundur marga bóka, m.a. „Bókin um hamingjuna“, „Að lifa er list“. Þetta ferli hentar öflugum einstaklingum sem sætta sig ekki við meðalmennsku og vilja láta gott af sér leiða. Kynningarnámskeið um aðalatriði lífsins Áhugasamir bóki þátttöku á petur@islandia.is Staður: Grand Hotel Stund: Fim. 11. sept. kl. 20-23. Verð: 2.500 kr. innifalið kaffi og meðlæti Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Ný sending Flottir bolir, heilar og hnepptar peysur Laugavegi 63 • S: 551 4422 LÉTTAR HAUSTYFIRHAFNIR MEÐ HETTU AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.