Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 17
Sandalar eða ökklaskór? Óvenjulegur bræðingur frá Tibi. Hippastemning Skrautlegir skór Alexandre Herchcovitch. Á stultum Alvöru hælar frá Charlotte Ronson. Reuters Skórnir hennar Dóróteu Þeir ættu óneitanlega vel heima á fótum Dóróteu í Oz, þessir kristalskreyttu skór frá A. Testoni. New York-tískuvikanstendur þessa dag-ana yfir í Stóra epl- inu og að venju kennir þar margra grasa. Það eru þó ekki bara vor- og sumar- klæðin sem fanga athygli tískufíkla á sýningunum, heldur vekja skórnir stund- um ekki síður athygli. Skæðin sem sjást hér á myndunum eru aðeins nokk- ur dæmi um þann skóbúnað sem þrammað hefur eftir sýningapöllunum undanfarna daga. Og sé mark takandi á myndunum má telja nokkuð ljóst að því óvenjulegra sem skópar komandi sumars er því betra. Skrautlegir skór fyrir næsta sumar Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Uppáhaldsvélarnar mínar eru ONYX140 og YAK 54, en sú síðarnefndaer listflugvél og rosalega skemmti-leg. Ég get gert allar hundakúnstir með henni, snúninga, fettur og brettur. Það er í raun adrenalínkikk að vera með þetta fljúgandi í loftinu. En það getur farið illa ef maður er að rembast við eitthvað sem maður ræður ekki við,“ segir Sigurður Rúnar Ingþórsson á Eski- firði sem er mikill áhugamaður um módelflug. Hann á um fimmtán flugvélar og játar fúslega að hann sé með algjöra dellu. „Það eru ekki nema tvö ár síðan ég féll fyrir þessu. Ég átti mörg önnur áhugamál en hafði lengi verið forvitinn um módelflug. Þegar ég hafði prófað einu sinni lögðust flest önn- ur áhugamál af. Maður getur endalaust bætt sig í því að fljúga þessum flugvélum og nú eru líka til svo öflugir tölvutengj- anlegir hermar sem maður getur tengt fjarstýringu við og æft sig þannig, frek- ar en að vera að krassa vélunum úti á velli.“ Fljúga langt úr sjónmáli Siggi Rúnar hefur ekki verið í því að smíða sjálfur flugvélamódelin, heldur hefur hann keypt þau samsett hjá Módel Express á Ak- ureyri. „Þeir eru með allar gerðir af vélum, bæði eftirlíkingar af stórum alvöru flugvélum og annars konar vélar. Það eru allskonar út- færslur, bæði mjög léttar vélar og svo aðrar miklu þyngri fyrir þá sem eru lengra komnir. Þetta eru fjarstýrðar vélar og nokkuð stórar, þær eru með tveggja metra vænghaf og eru um það bil tveir metrar á lengd. Ég er með vélar sem eru með allt að 40 kúbika bensínmótorum, sem er ekki ólíkt því sem var í skellinöðrum hér áður. Þannig að þessar vélar fljúga bæði langt og hátt, maður er löngu hættur að sjá þær þó að maður stjórni þeim enn með fjarstýringunni, hún dregur mjög langt,“ segir Siggi Rúnar sem flýgur vélunum líka á veturna, ekkert síður en á sumrin. Saknar kaffispjallsins Siggi Rúnar er norðanmaður og bjó áður á Akureyri. Þar átti hann marga félaga sem voru í módelfluginu og þeir komu saman í hverri viku. „Við hittumst í kaffispjalli að kvöldi til, all- an ársins hring og svo hittumst við á Melunum um helgar, þar sem er mjög góður tilbúinn völl- ur og fín aðstaða til að fljúga vélunum. Hér á Eskifirði er því miður algjört aðstöðuleysi fyrir þetta sport. Ég stalst reyndar aðeins til að fljúga á golfvellinum en það gengur ekki þegar hann er kominn í fulla notkun og sláttumenn- irnir farnir af stað. Þetta aðstöðuleysi gerir það að verkum að maður gerir minna af því að fljúga en maður vildi. Við erum líka svo fá sem erum í þessu hér, ætli við séum nema um tíu manns. Ég hef verið að hitta suma þeirra inni á Norðfirði þar sem við höfum stundum verið að fljúga módelunum saman. Þegar við verð- um orðin tuttugu eða þrjátíu í þessu getum við kannski beitt hópþrýstingi og fengið settan upp völl fyrir okkur hér til að fljúga.“ Sjóari kominn í land En breytingin í lífi Sigga Rúnars felst ekki aðeins í því að hann hefur flust búferlum í ann- an landshluta og að færri eru til staðar til að deila með flugmódelaáhuganum. Hann starfar líka á allt öðrum vettvangi. „Ég var meira og minna sjómaður frá því ég var sextán ára en núna vinn ég í kerskála hjá Fjarðaáli á Reyð- arfirði og það er mjög fjölbreytt starf. Þetta er allt annað líf og ég fer heim til fjölskyldunnar minnar eftir vaktirnar sem mér finnst frábær breyting frá því sem var þegar ég var sjómað- ur. Ég sakna þess alls ekki að vera á sjónum.“ Fljúga bæði langt og hátt Eskifjörður | Hann hefur verið til sjós meira og minna frá því hann var unglingur en er nú kominn í land og hefur skipt um starfsvettvang. Í frítíma sínum horfir hann til himins því mód- elflug á hug hans allan. Þeir sem vilja kynna sér módelflug nánar eða fjárfesta í vél geta fundið frekari upplýsingar á: www.frettavefur.net Listflugvélin Siggi Rúnar með eina af uppáhaldsvélunum sínum, YAK 54. |þriðjudagur|9. 9. 2008| mbl.is daglegtlíf Margir telja módelflugið vera dýrt áhugamál en þar sem Siggi Rúnar var áður mikill jeppadellukarl er samanburðurinn honum í hag. „Ein vél með öllu, klár í loftið til að fljúga fyrir byrjendur, kostar jafn mikið og eitt þrjátíu og átta tommu dekk undir jeppa. En svo eru sumir vissulega öfgakenndir í þessu, eins og kannski ég, sem á svona margar vélar. Margir selja vélarnar eftir að þeir eru búnir að fljúga þeim í vissan tíma og fá sér einhverjar aðrar. Fólk skiptist mikið á vélum og annað slíkt og fyrir sunnan eru mód- elklúbbar. Þar eru lendingakeppnir og fleira í þeim dúr.“ Sumir skiptast á vélum Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Rafmagnsflugvél Þessa bláu er gott að skjótast með í bílnum og fara á flug með fjarstýringuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.